Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2004, Síða 50
Hildur Elísabet Pétursdóttir
Veturinn fyrir vestan
Vestfjaröadeild Félags íslenskra hjúkrunarfræöinga var
stofnuð áriö 1970 og voru stofnendur hennar 19 hjúkrun-
arkonur sem hér störfuöu. Er deildin því aö veröa 34 ára og
hefur allt frá upphafi veriö mjög öflug. Þennan veturinn
hefur ekki veriö gerö nein breyting á því og er margt fram
undan.
Mynd tekin á aðalfundi 2004
17. og 18. október sl. héldum við haustnámsstefnu en hún
hefur árum saman verið fastur liður í starfi deildarinnar. Þess-
ar námsstefnur eru opnar öllu heilbrigðisstarfsfólki. Yfirskrift-
in að þessu sinni var „geðheilbrigði og samfélagið" og var hún
sú þriðja og síðasta um þetta þema, en núna var fjallað um
meðferð og úrræðamöguleika. Fyrirlesarar voru fjórir, Engil-
bert Sigurðsson, læknir, Rósa Marfa Gunnarsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur, og Guðný Anna Arnþórsdóttir og Páll Biering,
geðhjúkrunarfræðingar. Páll hefur hjálpað okkur með skipu-
lagningu út af þessu þema. Námsstefnan tókst mjög vel og
kunnum við fyrirlesurunum bestu þakkir fyrir.
Jólafundurinn er alltaf haldinn í byrjun desem-
ber með pökkum, jólasveinum og tilheyrandi og
þar fá hjúkrunarfræðingar iðulega að hleypa út
innibyrgðum leiklistarhæfileikum. Þessir jóla-
fundir voru lengi vel í heimahúsum en síðari ár
höfum við leigt litla sali. Þessi upplyfting svona
rétt fyrir jólin hefur farið vel í okkur og er mæt-
ing góð.
Aðalfundur er svo haldinn í febrúar þar sem síð-
asta ár er gert upp og kosin ný stjórn ef þörf er á.
Hjúkkur rækta meö sér leiklistarhæfileikana á jólafundi 2003
í nóvember héldum við almennan félagsfund með fræðslu í-
vafi. Finnbogi Karlsson, innkirtlasérfræðingur sem leysti af í
Bolungarvík í haust, hélt fyrirlestur um sykursýki og hjarta-
sjúkdóma. A fundinum var líka sagt frá félagsráðsfundinum
sem haldinn var í október og trúnaðarmaður fræddi okkur um
starfsmenntunarsjóð F.í.h. og styrktarsjóð BHM.
Með hækkandi sól ætlar Þorsteinn Jóhannesson,
yfirlæknir á Isafirði, að halda fyrir okkur fyrir-
lestur um sjúkdómavæðingu. Þess má geta að
hingað koma kvensjúkdómalæknar, barnalæknar
og fleiri sérfræðingar á nokkurra mánaða fresti
og eru þeir yfirleitt mjög jákvæðir að halda fyrir
okkur fyrirlestra. Vonandi verður eitthvað um
það í vetur.
í vor klára þrír hjúkrunarfræðingar héðan frá ísa-
firði fjarnám í Ijósmóðurfræði og verður spenn-
andi að fá þær til starfa. Við vonum að þær kynni
fyrir okkur lokaverkefnin sín einhverja notalega
kvöldstund þegar fer að vora.
17. júní síðastliðinn skipti gamla sjúkrahúsið,
sem ekki hefur verið notað sem slíkt frá 1989,
um hlutverk og var vígt sem safnahús eftir vel
heppnaðar endurbætur. Nú er þar bókasafn, hér-
aðsskjalasafn og ljósmyndasafn. I tilefni af þessu
stóra afmælisári okkar hjúkrunarfræðinga höfum
við ákveðið í samvinnu við Safnahúsið og Heil-
brigðisstofnunina í Isafjarðabæ að setja upp sýn-
Tímarit hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 80. árg. 2004