Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.2004, Page 59
Golfmót hjúkrunarfræðinga,
september 2003
Haustmót hjúkrunarfræðinga í golfi fór fram á
velli golfklúbbsins Leyni á Akranesi 12. sept-
ember 2003.
Vegna veðurs varð að fresta mótinu um eina
viku, en miklar og krappar lægðir gengu yfir suð-
vesturland á þessu tímabili. Þessi frestun kom
sér illa fyrir suma, því ekki gátu allir verið með
sem höfðu boðað þáttöku. Það er víst lítið hægt
að gera þegar veðrið leikur okkur grátt annað en
taka tvo föstudaga frá í kringum mótsdaganna.
Yfir 20 þátttakendur voru með að þessu sinni,
heldur minni þátttaka en á mótunum þar á
undan. Keppt var í tveimur flokkum, eftir forgjöf.
Urslit urðu:
Nándarverölaun
A holu 8. Svanhildur Thorsteinsson 4.10m
Á holu 18 Þóranna Halldórsdóttir 6.17m
Makaverðlaun
Sigurður Jóhannsson
Flokkur 28-42
Elínborg Sigurðardóttir
Guðrún Bjarnadóttir
Þóranna Halldórsdóttir
31punktur
33 punktar
32 punktar
32 punktar
Úrdrættir úr lokaritgeröum í
meistarnámi
GOLFMOT 2004
Eins og undanfarin ár verða 2 golfmót hjúkrunarfræðinga
haldin í sumar.
Fyrra mótið verður haldið á golfvellinum á Selfossi þann 3.
júní og hefst kl 13.00. Á þessu móti verður keppt um GSK
bikarinn sem Glaxo Smith Kline gefur ásamt öðrum verðlaun-
um. Handhafi þessa bikars er Ágústa Dúa Jónsdóttir.
Seinna mótið verður haldið á golfvellinum á Korpúlfsstöðum
föstudaginn 10. september kl 13.00. Delta h.f mun veita verð-
laun á því móti eins og undanfarin ár.
Flokkur 0-27
Svanhildur Thorsteinsson
Herdís Sveinsdóttir
Helgi Benediktsson
36 punktar
34 punktar
32 punktar
Sem fyrr var það DELTA h.f sem gaf glæsileg
verðlaun og kunna hjúkrunarfræðingar þeim
miklar þakkir fyrir stuðninginn við þetta mót.
Fyrirkomulag mótanna verður eins og undanfarin ár, punkta-
keppni og keppt verður í 2 flokkum, makar eru velkomnir með
svo fremi að þátttaka fari ekki fram úr öllum væntingum.
Skráning í mótin er hjá helgiben@hotmail.com eða dua.jons-
dottir@hgsel.is
Við hvetjum alla hjúkrunarfræðinga sem leika golf að taka
þessa daga frá.
Tímarit hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 80. árg. 2004