Morgunblaðið - 24.02.1981, Side 44

Morgunblaðið - 24.02.1981, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1981 HÖGNI HREKKVÍSI ást er... ... aö sleikja frímerkin á allan jólapóstinn hennar. TM R«q U.S. P«t. Off. — aH nghts fwwvxl • 1978 Los AngQ— T>m— Syndtcaf Þú munt finna jafninKÍa þinn í stórri fílahjörð! COSPER Við þurfum ekki að óttast að sú Kamla komi okkur hér i opna skjöldu, vina! Heimilistrygg- ingin bætir ekki tjónið G.J. hringdi og kvaðst vilja koma á framfæri ábendingu til fólks og vara það við að skilja eftir þvott á snúrum yfir nótt. Dagvistarstofnanir: Góð menntun aldrei ofmetin — Nágrannakona mín varð fyrir miklu tjóni um daginn, þegar hún lét það henda sig að geyma til morguns að taka inn þvottinn. Þegar hún ætlaði að fara að tína spjarirnar af snúr- unum, var hvert einasta stykki horfið. Tjón hennar er tilfinn- anlegt og hún er búin að ganga úr skugga um það, að heimil- istryggingin tekur engan þátt í að bæta tjónið, vegna þess að þvottinum var stolið að nóttu til, en látið vera að taka hann inn um kvöldið. Hvað eigum við marga þingmenn? Móðir skrifar: „Ég er móðir tveggja bana sem bæði hafa verið á dagvistarheimili frá því að þau voru 2ja ára og til 6 ára aldurs. Það er skoðun mín að líf þeirra hafi orðið ríkara vegna þess að þau fengu að vera á dagvistar- heimili. Eg tel það hafi verið þeim ómetanlegt að vera innan um fólk sem skildi þroska þeirra og at- hafnaþörf og kenndi þeim margt sem ekki verður kennt á fámennu einkaheimili. Tíminn á dagvistar- heimilinu var þeim góður skóli og engu síður nauðsynlegur en sá skóli sem þau eru í nú. Góð aðstoð við foreldra Ég hef þá skoðun að hæfilegur tími á dagvistarheimili, t.d. 4—6 tífnar, sé mjög góð aðstoð við foreldra. Reyndar tel ég dvöl á dagvistarheimili nauðsynlega fyrir börn sem koma frá fámenn- um heimilum þar sem t.d. eru aðeins tvö systkini og foreldrar. Venjuleg heimili veita börnum ekki þá örvun sem þau þurfa til þess að nýta hæfileika sína eins og hægt er. Þar getur uppeldisfræði- lega menntað fólk hjálpað til. Lengi býr að fyrstu gerð Ég tel nauðsynlegt að hlúð verði að því fólki sem hefur tekið yfir stóran hluta af uppeldi barna á forskólaaldri. Góð menntun verð- ur aldrei ofmetin. Það er nauðsyn- legt að á dagvistarstofnunum starfi vel menntað fólk sem skilur börn og hefur þá þekkingu til að bera sem þarf til þess að nýta þennan dýrmæta tíma sem for- skólaaldurinn er. Því lengi býr að fyrstu gerð.“ Mikið var ég' g löð 4216-6154 hringdi og sagði: — Hvað eigum við marga þing- menn, Reykvíkingar? Er Albert okkar eini þingmaður? Enginn annar hefur a.m.k. séð ástæðu til að hreyfa mótmælum við skrefatalningunni, sem ætlunin er að koma á hér á höfuðborg- arsvæðinu. Ég er búin að bíða í 15 mínútur eftir að ná sam- bandi við þig, Velvakandi. Hvernig hefði þetta litið út fyrir mig, ef skrefatalning væri komin á? En er það ekki þetta, sem koma skal, að taka fullt gjald af símnotendum meðan þeir bíða, oft til einskis, eftir að ná sambandi við rétta aðila? Nei, þetta er tvímælalaust skref afturábak, hvernig sem á málið er litið. Símamál dreifbýlisins verður að leysa á annan hátt en að telja niður þjónustu hér á höfuðborgarsvæðinu. Og ég spyr enn og aftur: Hvað eigum við marga þingmenn? Kemur ekki til greina Elín Sigurðardóttir hringdi og sagði að sér fyndist ekki koma til greina að hafa — kriki sem seinni hluta í nöfnum gatna á Öskjuhlíð- arsvæðinu eins og rætt hefði verið um. — Hins vegar kæmi til greina að hafa í stað þess t.d. -hæð. Mér finnst það að minnsta kosti falia betur að aðstæðum þarna. Ekki satt. Húsfreyjan á Kiðafelli skrifar: „Velvakandi. Sjáðu hvað blessuð litla rjúpan er falleg. í tvö skipti hafa rjúpur komið inn í garð til mín. í fyrra skiptið var það fyrir fjórum árum, snemma að vorlagi. Og svo þegar ég leit út um gluggann minn í gær, sá ég hvar tvær yndislegar hvítar rjúpur voru þar á vakki. Mikið var ég glöð yfir að þær skyldu sleppa frá drápsfýsn mannanna síðastliðið ár.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.