Morgunblaðið - 07.04.1981, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
81. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Júgóslavar játa að
ólga ríki í Kossovo
Belgrad. 6. apríl. AP.
EINN valdamesti kommúnistaleiðtoginn í Júgóslavíu, Stane
Dolanc, staðfesti í dag, að 11 hefðu fallið í óeirðum, sem Albanir
stóðu fyrir í héraðinu Kossovo, fyrstu óeirðunum í Júgóslavíu er
eiga rætur að rekja til rígs milli ólíkra þjóðarbrota síðan Josip
Broz Tito marskálkur lézt í fyrra.
Meðal þeirra sem biðu bana
voru tveir lögregluþjónar og fimm
„óbreyttir borgarar". Hinir munu
hafa fallið fyrir hendi lögreglu,
sem bældi óeirðirnar niður. Dol-
anc sagði, að 22 hefðu verið
handteknir í óeirðunum, sem 2.000
manns tóku þátt í til að krefjast
aukinnar sjálfstjórnar Kossovo.
Hreinskilni Dolanc kemur á
óvart, en bent er á að enn hefur
ekki verið aflétt banni við ferðum
útlendinga til héraðsins. Erlendur
sendiráðsmaður sagði, að ekki yrði
hægt að leggja mat á ástandið
fyrr en ferðir til héraðsins yrðu
leyfðar. Þetta er í fyrsta sinn sem
fréttamönnum hefur verið bannað
að ferðast til óróasvæðis í Júgó-
slavíu.
Bann við fundum og útgöngu-
bann er enn í gildi í Kossovo, en
þetta er í fyrsta skipti sem
yfirvöld hafa gripið til slíkra
ráðstafana. Dolanc sagði á
blaðamannafundi, að hér væri um
„bráðabirgðaráðstafanir" að ræða,
Æ fleiri
flýja frá
Póllandi
Genf, 6. apríl. AP.
TÆPLEGA 1.400 pólskir
flóttamenn komu til Austur-
ríkis á fyrstu þremur mán-
uðum ársins til að biðja um
hæli sem pólitiskir flótta-
menn á Vesturlöndum sam-
kvæmt yfirliti, sem var birt í
dag. Þetta eru þrisvar sinn-
um fleiri flóttamenn frá
Póllandi en á sama tima í
fyrra.
Alls flúðu 1.678 manns frá
Austur-Evrópulöndum öðr-
um en Sovétríkjunum til
Austurríkis á þessu tímabili.
Jafnframt er sagt í Varsjá,
að Rússar hafi tilkynnt mik-
inn niðurskurð á fjölda
þeirra pólsku skemmtiferð-
amanna, sem verður leyft að
fara til Sovétríkjanna á þessu
ári. Kunnugir telja tilgang-
inn þann að koma í veg fyrir
að upplýsingar berist um
ókyrrð verkamanna í Póll-
andi,
Ný stjórn
í Belgíu
ItrUswl, 6. sprll. AP.
NÝ RÍKISSTJÓRN undir forsætí
Mark Eyskens vann embættiseiða í
kvöld. Að henni standa kristilegir
demókratar og sósíalistar og ráð-
herrar hennar eru hinir sömu og í
fráfarandi stjórn að einum undan-
skildum. Nýja stjórnin heitir því að
hafa samráð við verkalýðshreyfing-
una og atvinnurekendur, m.a. um
nýja launastefnu, verðbindingu og
skattaívilnanir handa fyrirtækjum.
en gaf í skyn að þær yrðu í gildi í
nokkurn tíma.
Dolanc sagði, að „erlend áhrif"
hefðu leitt til mótmælanna í
Kossovo. „Hópar þjóðernissinna",
er stæðu í sambandi við „útlagaöfl
erlendis“, hefðu borið hluta
ábyrgðarinnar á óeirðunum. Hann
sagði, að útlagarnir væru í Banda-
ríkjunum, Vestur-Þýzkalandi og
víðar.
Einn þeirra sem féll var Júgó-
slavi, sem er sagður hafa búið
erlendis, og Dolanc benti á það sem
sönnun fyrir erlendum áhrifum á
skipulagningu óeirðanna.
Albanska sendiráðið vill ekkert
segja um Kossovo-óeirðirnar, þar
sem þær séu Júgóslavneskt inn-
anríkismál“. Dolanc sagði, að efla
bæri menningartengsl Kossovo og
Albaníu, en þau hafa aukizt mikið
á síðari árum.
Karel Hoffmann úr stjórn tékkóslóvakiska kommúnistaflokksins
heilsar Stefan Olszowski, harðlínumanni úr stjórn pólska kommúnista-
flokksins er hann kemur til Prag að sitja flokksþingið þar.
Ihlutun er talín eina von
pólskra harðlínumanna
Varsjá, 6. april. AP.
Á SAMA tima og uggur manna á
Vesturiöndum um sovézka ihlutun i
Póllandi hefur aukizt var haft eftir
einum af ráðunautum verkalýðs-
hreyfingarinnar Samstöðu, Jan
Olszewski, að aðeins „ihlutun“ gæti
bjargað harðlinumönnum kommún-
ista frá uppreisnargjörnum,
óbreyttum flokksmönnum.
Jafnframt hörðnuðu árásir Var-
sjárbandalagslandanna á pólska
verkamenn og leiðtoga með ræðu sem
tékkóslóvakíski kommúnistaleiðtog-
inn Gustav Husak flutti á þingi
tékkóslóvakíska kommúnistaflokks-
ins í Prag. Gagnrýni hans naut
greinilega samþykkis Leonid Brezhn-
evs, forseta Sovétríkjanna, sem situr
þingið og hlýddi á ræðuna.
í Bonn er sagt að Brezhnev hafi
lýst áhuga á því að fara i heimsókn
til Vestur-Þýzkalands á þessu ári.
Sovézki forsætisráðherrann, Nikolai
A. Tikhonov, kom í dag til Austurrík-
is í fimm daga opinbera heimsókn.
Pólska fréttastofan hefur sagt frá
því, að Wojciech Jaruzelski, forsætis-
ráðherra, hafi veikzt af inflúenzu.
Þar með urðu að engu sögusagnir um
að sú ákvörðun hans að aflýsa
boðskap, sem hann ætlaði að flytja
þjóðinni, og sú ráðstöfun að fresta
þingfundi stæðu í sambandi við
fréttir um hernaðaraðgerðir Rússa
umhverfis Pólland.
Þingfundum var frestað til 10.
apríl á föstudaginn þegar fréttir
bárust til Vesturlanda um að herliði
Varsjárbandalagslandanna hefði
verið skipað að vera viðbúið með
litlum fyrirvara og það gæti látið til
skarar skríða hvenær sem væri tii að
bæla niður uppreisn verkamanna.
Málgagn pólska hersins sagði í
dag, að heræfingar Varsjárbanda-
lagsins héldu áfram, þótt langt sé
síðan þeim átti að ljúka, og Pólverjar
eru farnir að ræða vestrænar fréttir
um viðbúnað Rússa. Tilkynnt var í
Austur-Berlín að nýr liðsafli hefði
verið sendur til æfinganna um helg-
ina.
Þau ummæli Weinbergers, varnar-
málaráðherra Bandarikjanna, að við-
búnaður Rússa hafi sömu hræðslu-
áhrif og raunveruleg innrás hafa
vakið mikla athygli í Póllandi. Sumir
telja dálítið til í þessu, en aðrir eru
vissir um að Pólverjar fái sjálfir að
leysa vandamál sín.
Yfirlýsing Olszewski, sem birtist í
Gustav Ilusak, leiðtogi tékkóslóvakiksra kommúnista (til hægri) ásamt
Leonid Brezhnev, forseta Sovétríkjanna og Vasil Bilak úr stjórn
tékkóslóvakiska kommúnistaflokksins á flokksþinginu i Prag.
fréttablaði Samstöðu, fylgir í kjölfar
annarra yfirlýsinga leiðtoga Sam-
stöðu um að ráðherrar hafi varað við
innrás í viðræðunum er komu í veg
fyrir allsherjarverkfall í síðustu
viku. Hann sagði, að barsmíðarnar í
Bydgoszcz 19. marz hefðu átt að kalla
fram allsherjarverkfall og síðan
íhlutun. „Slíkt ástand getur komið
fyrir aftur og því verður að finna
aðrar leiðir til að þrýsta á stjórnina,"
sagði hann.
Stefan Olszowski, einn harðlínu-
manna í forystu pólskra kommún-
ista, er kominn til Prag að sitja þing
tékkóslóvakíska kommúnistaflokks-
ins. Husak sagði í ræðu sinni að
leiðtogum Pólverja hefði ekki tekizt
að koma á reglu eftir að hafa
viðurkennt að landið stæði andspæn-
is stjórnleysi. „Sú staðreynd að þessi
stjórnmálakreppa heldur áfram
fyllir okkur þeim mun meiri ugg,“
sagði Husak í líklega hörðustu opin-
beru árás austantjaldsleiðtoga til
þessa. Husak hvatti jafnframt til
heimsráðstefnu kommúnistaflokka
um vandamál, sem hefðu „hrannazt
upp“.
I Moskvu birtu sovézkir fjölmiðlar
bréf frá sovézkum verkamanni, þar
sem hann lýsir þeirri sannfæringu
sinni að pólski kommúnistaflokkur-
inn sé eina aflið sem geti sigrazt á
ástandinu.
Bandaríkin saka Rússa um
brot á Helsinki-samningnum
Washlnaton. 6. april. AP.
BANDARÍSKA utanríkisráðuneyt-
ið sagði 1 dag, að hernaðaraðgerðir
Rússa umhverfis Pólland væru brot
á ákvæði Helsinki-sáttmálans er
bannaði hótun um herihlutun.
Talsmaðurinn William Dyess
sagði að ekkert lát hefði orðið á
hernaðaraðgerðum Rússa, en engin
sönnun lægi fyrir um að Rússar
hefðu tekið ákvörðun um innrás i
Pólland.
Auk þess sem bannað er sam-
kvæmt Helsinki-sáttmálanum að
hóta heríhlutun eru aðildarríki hans
skuldbundin til að tilkynna allar
heræfingar, sem fleiri en 25.000
menn taka þátt í. Dyess sagði, að
ríkisstjórnin væri að kanna hvort
Rússar hefðu brotið það ákvæði. Með
tilliti til umfangs aðgerða Rússa
hefði tilkynning frá Moskvu „áreið-
anlega stuðlað að því að draga úr
spennu".
Bandaríkjastjórn hefur sagt í
nokkra daga, að aðgerðir Rússa séu
komnar á það stig að þeir geti gert
innrás í Pólland hvenær sem er.
Dyess sagði hins vegar í dag, að
stjórnin teldi ekki að sovézk ihlutun
væri líkleg í nánustu framtíð. í stað
þess að gera hreina innrás megi vera
að Rússar ætli að hafa áhrif á
stjórnmálaþróunina í Póllandi.
Talsmaður Hvíta hússins skýrði
frá því í gær, að Ronald Reagan
forseti hefði sent Leonid Brezhnev
forseta orðsendingu um Pólland,
þótt hann skýrði ekki frá efni
hennar.
í London var skýrt frá því í dag, að
Margaret Thatcher hefði sent
Brezhnev bréf á laugardaginn og
varað hann við því að íhlutun í
Pólland mundi hafa „alvarlegar al-
þjóðlegar afleiðingar".
Frú Thatcher sagði að Pólverjar
yrðu að fá að leysa vandamál sín
sjálfir án utanaðkomandi afskipta
og hvatti Rússa enn til þess að hörfa
frá Afghanistan, ef þeir vildu bæta
sambúð austurs og vesturs.
Einn helzti talsmaður Verka-
mannaflokksins, John Silkin, hvatti
ríkisstjórnina til að kalla þingið
saman ef Rússar gerðu innrás í
Pólland um páskana, þegar þing-
menn eru í leyfi.
Varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, Caspar W. Weinberger, sem
Rússar hafa sakað um að magna
spennu í heiminum með því að
gagnrýna heræfingarnar, kom til
Bonn í dag til að ræða Póllandsmálið
við aðra vestræna varnarmálaráð-
herra á venjulegum vorfundi.
Áður en Weinberger fór til Bonn
frá Bretlandi sagði hann, að hernað-
arviðbúnaður Rússa hefði sömu
hræðandi áhrif og innrás. Tilgang-
urinn með þeim -væri að hræða
Pólverja og kúga þá til hlýðni.
Utanríkisráðherra Breta, Carr-
ington lávarður, sem er í Tokyo,
sagði í dag að „raunverulegur mögu-
leiki“ væri á sovézkri innrás og var
sammála japönskum leiðtogum um
að vara ætti Rússa við því að innrás
yrði svarað með ströngum aðgerð-
um.