Morgunblaðið - 07.04.1981, Blaðsíða 26
2 6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
Fólk og fréttir í máli og myndum
• „Brigðult er veður, þótt blítt sýnist.“
En Koða veðrið hélst alla helgina, og svo
gott var það að Jóhann (Jonni) Vilbergs-
son, hinn kunni skiðakappi, lét sig ekki
muna um að fara úr (peysunni.) Hér
nýtur hann aðstoðar dóttur sinnar, Auð-
ar, við brautarlagningu, en Jonni var
brautarstjóri Reykjavíkurmótsins.
• Broshýrir Reykjavikurmeistarar. Þau Dýrleif Arna
Guðmundsdóttir og Kristján Valdimarsson urðu þrefald-
ir Reykjavíkurmeistarar í alpagreinum.
• „Betur mega tveir en einn.“ Baldur Ómar (Bóbó) aðstoðar Einar
Þorkelsson mótsstjóra við tilkynningu úrslita að loknu móti. Þeim á
hægri hönd eru þeir feðgar Gunnar, Pétur og Karl Maack.
Reykjavíkurmót unglinga fór fram í
Skálafelli dagana 28. og 29. mars sl.
Veðrið var mjög gott og var keppnin
bæði spennandi og skemmtileg. Urslit
mótsins hafa þegar verið birt, en á
meðfylgjandi myndum sem ljósm. Mbl.
Ágúst Baldursson tók, má sjá bæði
keppendur, starfsmenn og fleiri.
Skíðasvæði KR-inga
6 skíðalyftur eru
nú í Skálafelli
KR-ingar hafa byggt upp mjög gott skíðasvæði i Skálafelli. Þar eru
nú 6 skíðalyftur, ásamt góðum skála og nú i vetur reistu þeir 120
fermetra hús við lyftur 5 og 6. Þar er gert ráð fyrir hreinlætisaðstöðu
svo og aðstöðu þar sem fólk getur neytt ncstis. Mun sá skáli
væntanlega verða tekinn i notkun nú um páskana.
Eitt af framtiðaráformum þeirra KR-inga er að komið verði upp
lýsingu við lyftur 5 og 6. Nú er brekkan við lyftu 1 (þ.e. við eldri
skálann) upplýst, en með lýsingu við iyftur 5 og 6 verður aðstaðan til
skíðaiðkunnar i Skálafelli stórbætt. Og ekki verður aðstaðan þar siðri
er lyfta sú er þegar hefur fengist opinbert leyfi fyrir, og er i daglegu
tali kölluð „lyftan á toppinn" verður komin i gang. Ráðgert er að
hefja vinnu við hana sumarið 1982. Lyfturnar 6 sem i Skálafelli eru
nú, eru þrennskonar: 3 diskalyftur, þ.e. lyfta 1 við eldri skálann,
(gilið) og lyftur 5 og 6 sem eru samsiða, 2 spjaldalyftur og 1 kaðallyfta
sem er kjörin fyrir byrjendur af yngri kynslóðinni. Hér á eftir fara
nokkrar gagnlegar uppl. um skiðasvæðið.
Lyftur eru í gangi frá kl. 10.00 á morgnana til kl. 18.00 og lengur ef
veður leyfir.
Boðið er uppá kennslu fyrir almenning í Skálafelli og þjálfun fyrir
keppendur. Brekkur eru véltroðnar.
Verð á lyftukortum:
Dagkort fullorðinna kr. 35.00
Dagkort barna kr. 18.00
10 ferðir fulorðnir kr. 35.00
10 ferðir börn kr. 18.00
Árskort fullorðinna kr. 500.00
Árskort 13—16 ára kr. 280.00
Árskort 12 ára og yngri kr. 190.00
Aðgangur er ókeypis í kaðallyftu.
Aætlunarferðir laugardaga og sunnudaga:
Kl. 9.30 Kaupf. Hafnfirðinga Miðvangi.
Kl. 9.35 Kaupf. Hafnfirðinga Garðaflöt.
Kl. 9.40 Arnarneshæð.
Kl. 9.50 Mýrarhúsaskóli.
Kl. 9.52 KR-heimilið.
Kl. 10.00 BSÍ Umferðarmiðstöð.
Kl. 10.05 Shell Miklubraut.
Kl. 10.10 Vogaver.
Kl. 10.15 Shell Norðurfelli.
Kl. 10.17 Fellaskóli.
Kl. 10.20 Straumnes.
Kl. 10.25 Breiðholtskjör.
Kl. 10.40 Þverholt Mosfellssveit.
Æfingaferðir Miðvikudaga:
Kl. 17.00 Kaupfélagið Garðaflöt.
Kl. 17.15 KR-heimilið.
Kl. 17.25 BSÍ Umferðarmiðstöð.
Kl. 17.40 Fellaskóli.
Kl. 17.42 Straumnes.
Kl. 17.45 Breiðholtskjör.
Kl. 18.00 Þverholt Mosfellssveit.
Símsvari Skíðasvæðisins i Skálafelli er 66099, en beint samband við
KR-skála 66095.
• Þeir eru ungir að árum, KR-ingarnir hér að ofan. En samt farnir að láta að sér kveða í skíðaíþróttinni.
Talið f.v. Hrafn Rögnvaldsson, Sveinn Rúnarsson, Guðjón Þór Mathiesen, Bjarni Pétursson, Arnór
Arnason og Einar Ásbjörnsson.
Þau hlutu verðlaun á Reykjavík-
urmótinu. Talið frá vinstri Dýr-
leif Arna Guðmundsdóttir, Rósa
Jóhannsdóttir, Heiga Stefáns-
dóttir, Steingrímur Birgisson,
Þór Ómar Jónsson, Tryggvi
Þorsteinsson, Erling Yngvason,
Kristján Valdimarsson, örnólfur
Valdimarsson, Baldvin B. Valdi-
marsson og Haukur Þorsteins-
son.
Frá skíðasvæði KR-inga í Skálafelli.
'I