Morgunblaðið - 07.04.1981, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1981
Við dauða sjómanns
fær ekkja með þrjú
börn 84 þús. krónur
HIN tíðu sjóslys, sem orðið hafa í
vetur leiða hugann að því hverjar
bætur ekkja sjómanns, sem t.d. er
með þrjú born, fær við fráfall
eiginmanns. Morgunblaðið leit-
aði upplýsinga um þetta mái hjá
Landssambandi ísl. útvegsmanna
og miðað við greiðslutaxta frá
því í desember á siðasta ári fær
ekkjan samtals 83.860 krónur i
einu lagi frá tryggingafélagi við
dauða sjómannsins.
Siðan koma samtals 7.743
krónur á mánuði frá trygg-
ingastofnun og tryggingafélagi.
Loks eru greiðslur úr lífeyris-
sjóði, en þær eru mjög misjafnar
eftir því hve mikil réttindi við-
komandi hafði aflað sér og fleiri
atriði koma þar inn í.
Mánaðargreiðslurnar eru sem
hér segir: 1.486 krónur í makabæt-
ur frá Tryggingastofnun ríkisins
og sama upphæð frá tryggingafé-
lagi. Barnabætur frá trygginga-
stofnun er 1821 króna á mánuði,
þ.e. 3 sinnum 607 krónur, og sama
upphæð kemur frá tryggingafé-
lagi. Loks eru mæðralaun frá
lífeyrisdeild Tryggingastofnunar
ríkisins með 3 börnum 1.129 krón-
ur á mánuði.
Stúdentar hvetja
tíl allsherjarverk-
falls í HÍ í dag
ALMENNUR stúdentafundur,
sem haldinn var í gær í Félags-
stofnun stúdenta, samþykkti
ályktun þar sem er m.a. skorað á
alla stúdenta að mæta ekki til
kennslu í dag, 7. apríl. „Fundur-
inn skorar á yfirvöld að ganga
þegar til samninga um sann-
gjarnar kröfur Samtaka stunda-
kennara. Lágmarkskrafa er að
þeim sé búin viðunandi aðstaða,"
segir m.a. í ályktuninni.
Háskólarektor boðaði í gær-
morgun fulltrúa Samtaka stunda-
kennara og ráðuneyta á sáttafund
og lögðu starfsmenn fjármála- og
menntamálaráðuneyta þar fram
tillögur að lausn málsins. Hvorki
fulltrúar Samtaka stundakennara
né Þröstur Ólafsson aðstoðarmað-
ur fjármálaráðherra vildu tjá sig
um hverjar þessar hugmyndir
væru. Er ráðgert að þær verði
kynntar á fundi Samtaka stunda-
kennara sem halda á í kvöld í
Árnagarði og hefst hann kl. 20:30.
í ályktun hins almenna stúd-
entafundar í gær segir m.a.
„Fundurinn átelur þá stefnu yfir-
valda að leysa aukna kennsluþörf
með síaukinni stundakennslu.
Verði þróun undanfarinna ára
ekki snúið við er stöðu Háskóla
íslands, sem rannsókna- og
kennslustofnunar stefnt í voða.“
Fundinn sóttu milli 3 og 4 hundr-
uð stúdentar.
Sjá einnig á bls. 19.
Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins:
Steingrímur Hermannsson
endurkjörinn formaður
STEINGRÍMUR Hermannsson
var kjörinn formaður Framsókn-
arflokksins á aðalfundi mið-
stjórnar flokksins um siðustu
helgi með 96 atkvæðum, Páll
Péturssson fékk eitt atkvæði einn
seðill var auður. Tómas Árnason
var kjörinn ritari með 93 atkvæð-
um, 5 atkvæði dreifðust á aðra.
Guðmundur G. Þórarinsson var
kjörinn gjaldkeri með 92 atkvæð-
um, 6 atkvæði dreifðust á aðra.
Þá var Halldór Ásgrímsson kjör-
inn varaformaður með 93 at-
kvæðum, 5 atkvæði dreifðust á
aðra. Vararitari var kjörinn
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir
með 83 atkvæðum og varagjald-
keri Haukur Ingibergsson með
73 atkvæðum.
í framkvæmdastjórn voru
kjörnir 9, en í hana eru 5 sjálf-
kjörnir. Þeir sem náðu kjöri eru:
Ólafur Jóhannesson, Eysteinn
Jónsson, Erlendur Einarsson,
Helgi Bergs, Hákon Sigurgríms-
son, Jónas Jónsson, Ragnheiður
Sveinbjörnsdóttir, Hákon Hákon-
arson, Þórarinn Þórarinsson og til
vara: Gerður Steinþórsdóttir,
Guðmundur Bjarnason og Jón
Helgason.
í níu manna blaðstjórn voru
kjörin: Halldór Ásgrímsson, Heið-
ur Helgadóttir, Sigrún Sturludótt-
ir, Geir Magnússon, Steingrímur
Hermannsson, Vilhjálmur Jóns-
son, Haukur Ingibergsson, Pétur
Einarsson, Hákon Sigurgrímsson,
Til vara: Leó Löve og Óskar
Þórmundsson.
Dísarfell náðist óskemmt af strandstað
HornafirAi 5. apríi
EITT af skipum Sambandsins,
Dísarfellið, kom hingað á
sunnudagsmorgun og til að
lesta hér um 100 tonn af
fiskimjöli. Það óhapp vildi til er
skipið var á leið inn innsigling-
una, að það lagðist utan i
sandeyri rétt austan við Hellinn
og sat skipið þar fast þangað til
það losnaði á flóðinu um klukk-
an 17.45 með aðstoð lóðsbátsins.
Ekki er talið að nein hætta sé á
að skipið hafi skemmst þótt það
legðist utan í eyrina þar sem
þarna er mjúkur, leirkenndur
botn.
Strax og Dísarfellið var lagst
að bryggju var hafist handa við
að lesta 100 tonnum af mjöli í
skipið eins og ekkert hefði í
skorist. Þess má geta, að Dís-
arfellið kom hingað frá Akureyri
og virtist það nokkuð hlaðið.
Einar
Skuldbreytingar útgerðarinnar:
Stöðvun blasir við mörg-
um verði ekkert að gert
— segir Eggert Haukdal, stjórnarformaður Framkvæmdastofnunar
LIÐLEGA ár er nú liðið frá því
Framkvæmdastofnun óskaði eft-
ir að sett yrði á laggirnar sam-
starfsnefnd, sem fjalla skyldi um
skuldbreytingar útgerðarinnar.
Eggert Haukdal, stjórnarformað-
•ur Framkvæmdastofnunar, sagði
aðspurður, að málið hefði gengið
alltof hægt fyrir sig, hefði reynd-
ar lítt þokast á þessu liðlega ári,
frá því stofnunin opnaði málið.
„Það er mikill fjöldi útgerða í
landinu, sem á í miklum vandræð-
um. Málið er reyndar svo alvarlegt
hjá sumum, að verði ekkert að
gert, er ekki um annað að ræða
fyrir viðkomandi, en að loka. Það
verður að gefa þessum aðilum kost
á því að skuldbreyta, en um er að
Nafn drengsins
er drukknaði
DRENGURINN sem drukknaði
skammt frá bænum Ási við ör-
lygshöfn á föstudaginn, hét
Hrafnkell Hjartarson, til heimilis
að Hænuvik í Rauðasandshreppi.
Hann var fæddur 15. júni árið
1976.
Að sögn lögreglunnar á Pat-
reksfirði er líðan hins drengsins,
er féll í vökina, við tilraun til að
bjarga Hrafnkatli, góð, og mun
hann ná sér að fullu. Hann er sjö
ára gamall, en faðir hans bjargaði
honum er hann hafði borist um 70
metra frá vökinni, undir ísnum.
ræða gífurlegar skuldir við marga
aðila, s.s. olíufélög, hreppana
heima í héraði og sveitarfélögin og
lífeyrissjóði," sagði Eggert Hauk-
dal ennfremur.
Eggert sagði, að þessar upphæð-
ir skiptu samanlagt nokkrum
milljörðum, og þvi lægi í augum
uppi að taka yrði á málinu fyrr en
síðar. „Maður getur reyndar ekki
ímyndað sér, að togarar verði
látnir stöðvast, þegar hægt er að
henda nokkrum milljörðum í
Þórshafnarævintýri," sagði Egg-
ert ennfremur.
Hugmyndir Framkvæmdastofn-
unar voru þær, að samstarfshóp-
ur, sem í væru fulltrúar sjávar-
útvegsráðuneytisins, Fiskveiða-
sjóðs, bankanna og fulltrúar
Byggðasjóðs, sem Framkvæmda-
stofnun hefur með að gera.
„Eftir viðræður við menn að
undanförnu, geri ég mér vonir til
þess, að málið komist á einhvern
skrið innan tíðar, og það er
nauðsynlegt, að snarlega verði á
málum tekið," sagði Eggert Hauk-
dal ennfremur.
Alþingi verði
ein málstofa
— segir í stjórnarskrártillögum Alþýðufl.
ÞINGFLOKKUR Alþýðuflokks-
ins hefur ályktað um stjórnar-
skrármálið. og telur timabært að
hafnar verði viðræður þing-
flokka um málið, svo að niður-
staða um breytingar á stjórn-
arskránni geti fengist á þessu
kjörtimabili. Segir i ályktun al-
þýðuflokksmanna, að lengri
dráttur á slikum viðræðum geti
leitt til þess að breytingum verði
enn slegið á frest, eða þá að of
knappur timi gefist á endanum
til samkomulagstilrauna, sem þá
Tilraun til bankaráns á Hellissandi:
Náði ekki neinum f jármunum, en
tapaði skó á flótta undan þjófabjöllunni
BROTIST var inn í útibú
Landsbanka íslands á Hellis-
sandi á Snæfellsnesi um helg-
ina. Þeir er þar voru að verki
höfðu þó ekkert upp úr krafs-
inu og komust ekki í neinar
fjárhirslur, en annar þeirra
tapaði á hinn bóginn öðrum skó
sínum, er hann flýtti sér á brott
við hávært undirspil þjófabjöllu
i húsinu er ekki gast að manna-
ferðum á þessum tima sólar-
hrings, en atburðurinn átti sér
stað laust fyrir klukkan fimm
að morgni sunnudagsins.
Ingólfur Ingvarsson, yfirlög-
regluþjónn í Stykkishólmi, sagði
í samtali við blaðamann Morg-
unblaðsins í gær, að innbrotið,
sem varla væri unnt að nefna
bankarán, hefði átt sér stað um
klukkan 4.40 aðfaranótt sunnu-
dags. Dansleik var þá nýlega
lokið í félagsheimilinu á Hellis-
sandi, og voru lögregluþjónar frá
Ólafsvík enn í þorpinu. Þá gerð-
ist það að fólk heyrði til þjófa-
bjallna í Landsbankahúsinu, og
var lögreglumönnum þegar gert
viðvart.
Er þeir komu á staðinn, var
þar hins vegar engan mann að
sjá, en greinilegt var að maður
eða menn höfðu skriðið inn um
glugga einn er þvingaður hafði
verið upp. Skó komumanns
fundu þeir á gólfinu við glugg-
ann. Skömmu síðar óku lög-
reglumenn svo fram á tvo menn
á gangi á þjóðveginum til Ólafs-
víkur, var annar þeirra skólaus á
öðrum fæti, og við nánari athug-
un reyndist þar vera á ferð hinn
óvenjulegi viðskiptavinur bank-
ans. Játaði hann að hafa farið
inn í bankann, en félagi hans
beið átekta utan dyra. Er þjófa-
bjöllurnar fóru í gang varð hann
hræddur og hafði sig á brott
ásamt félaganum svo skjótt sem
verða mátti, en lenti þó innan
skamms í klóm varðmanna laga
og réttar sem fyrr segir.
Sá er inn í bankann fór, er
Reykvíkingur, milli tvítugs og
þrítugs, og hefur hann undan-
farið verið að vinna í Ólafsvík.
Var honum sleppt að lokinni
yfirheyrslu, og var hann mjög
miður sín að sögn lögreglunnar,
enda innbrotið framið í augna-
bliksvitleysu, í og með undir
leiðsögn Bakkusar konungs.
einangrist ef til vill við kosinga-
og kjördæmaskipunarákvæðin.
En fleira þurfi að koma til, svo
sem ákvæði um mannréttindi,
valddreifingu, félagafrelsi,
starfshætti Alþingis og fleira.
Síðan segir í ályktuninni:
„Þingflokkur Alþýðuflokksins
telur, að breytingar á ákvæðum
stjórnarskrár um kosningar til
Alþingis og kjördæmaskipun séu
erfiðasta og viðkvæmasta við-
fangsefnið í endurskoðun stjórn-
arskrárinnar og að miðað við fyrri
reynslu sé líklegt að þau atriði
komi ekki til endanlegrar af-
greiðslu fyrr en nær dregur kosn-
ingum. Því leggur þingflokkurinn
áherslu á að tíminn verði nú
notaður til að hefja viðræður milli
flokka þingsins um endurskoðun á
öðrum þáttum stjórnarskrár
þannig að frá þeim hafi verið
gengið þegar viðkvæmustu og um-
deildustu atriði endurskoðunar-
innar verða tekin til meðferðar.
Til þess að auðvelda þetta verk
hefur Alþýðuflokkurinn þegar lát-
ið gera drög að nýjum 3ja kafla
stjórnarskrárinnar með veiga-
miklum umbótum og leggur þær
hugmyndir fram sem umræðu-
grundvöil, en hefur þó fyrirvara
um einstök atriði. í þessum drög-
um er m.a. gert ráð fyrir auknu
eftirliti Alþingis með fram-
kvæmdavaldinu, umboðsmanni
Alþingis, einni málstofu, nýskipan
á nefndakerfinu í Alþingi, 18 ára
kosningarétti ásamt mörgum
fleiri nýmælum."