Morgunblaðið - 07.04.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
Alþjóðaforseti Lions
til Islands
WILLIAM C. Chandler, alþjóðafor-
seti Lions-hreyfingarinnar, kemur
til íslands í dag, þriðjudaginn 7.
apríl. íslenzkir Lionsmenn munu
taka á móti alþjóðaforsetanum og
Mörthu, konu hans, á Keflavíkur-
flugvelli seinni hlutann í dag og sýna
þeim hjónum mannvirkin að Svarts-
engi undir leiðsögn Eiríks Alexand-
erssonar, umdæmisstjóra í Lions-
umdæmi 109 A. Síðan verður haldið
til Reykjavíkur, þar sem William C.
Chandler mun heimsækja Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra og
veita honum, sem forsætisráðherra
íslands, sérstaka heiðursorðu
Lions-hreyfingarinnar.
Um kvöldið munu þau hjónin
Martha og William C. Chandler sitja
kvöldverðarboð íslenzkra Lions-
manna að Hótel Sögu, en því stjórn-
William C. Chandler
ar Ólafur Sverrisson umdæmisstjóri
Lions-umdæmis 109 á íslandi.
(Fréttatilkynning.)
Nefnd til stuðnings fjölskyldu Korchnois:
Halldór Blöndal
kjörinn formaður
\\\ beU'
i \\6V\Sii
HALLDÓR Blöndal alþingismaður
var á sunnudaginn kjörinn formað-
ur Íslandsdeildar Stuðningsnefnd-
ar fjölskyldu Victors Korchnois.
stórmeistara i skák, en markmið
nefndarinnar er að vinna að þvi að
eiginkona stórmeistarans og sonur
fái að flytjast frá Sovétrikjunum.
Þeim hefur itrekað verið neitað um
brottfararieyfi, og sonurinn er nú i
fangelsi i Sovétrikjunum. Með Hall-
dóri Blöndal i stjórn nefndarinnar
eru þeir Margreir Pétursson skák-
maður og Páll Heiðar Jónsson
dagskrárgerðarmaður.
I undirbúningsnefnd fyrir stofn-
fundinn voru þeir Einar S. Einars-
son forseti Skáksambands Norður-
landa, Haraldur Blöndal og Högni
Torfason. Halldór Blöndal sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
stjórnin hefði þegar haldið sinn
fyrsta stjórnarfund, og væri nú
unnið að skipulagningu starfsins og
línur lagðar um það á hvern hátt
helst megi koma fjölskyldu Kor-
chnois til aðstoðar. Verða hugmynd-
ir stjórnarinnar kynntar blaða-
mönnum innan tíðar.
Halldór sagði það vera grundvall-
ar mannréttindi að mati okkar
íslendinga, að fjöiskyldur fái að búa
saman og ferðast milli landa að
geðþótta. Stjórnmálaskoðanir eða
önnur slík mál eigi þar ekki að hafa
nein áhrif á. Sovésk stjórnvöld
virðist hins vegar reyna að kúga
fjölskyldu skákmeistarans í þeim
tilgangi að halda heimsmeistaratitl-
inum í skák austan járntjalds, og séu
slík vinnubrögð forkastanleg og
óskiljanleg öllum lýðræðissinnum.
Formaður Alþjóðanefndarinnar
til stuðnings fjölskyldu Korchnois,
er dr. Max Euwe, fyrrum forseti
Alþjóða skáksambandsins, FIDE.
Sve'<wb'.®^sv.ut
**•%»***
^ vbö'íaSe^h
f. s{ivX s'9’
*
S\8B'® "'carf'a
Óöum
WKam®
raeKt-
. «-arrS>saE
sveitW séT
^a\ds\ö9'n
PÖNTUNARSÍMI 44440
mer
jafnvægisdisk
Sendiö
Nafn ...
Heimilisfang ...............................
Póststöð ...................................
Póstversl. Heimaval, Box 39, 202 Kópavogur.
kr.
164.00
póstkostn.
Enn kemur Útsýn á óvart . . .
MEÐ UNDURSAMLEGA ÆVINTÝRAFERÐ
Mexíco-Arizona-Nevada
14 dagar frá 26. maí til 9. júní.
Náttúrfegurö Kyrrahafsstrandar
Mexíco, dregur feröamenn hvað-
anæva úr heiminum.
Útsýn hefur valiö einhvern besta
baöstaö Mexico, sem dvalarstað
fyrstu daga þessarar óvenjulegu
ferðar. Síðan er ferðast um þetta
töfrandi land: Tolteca, Maya og
Azteka-indíánanna, notið hins
dýrlega veðurfars og létta
mexikanska andrúmslofts. Þar
ríkir hvarvetna söngur og gleöi.
Frá Mexico er svo feröast um
Arizona á slóöum „kúreka" og
gullgrafara þar sem enn í dag er
aö finna andrúm hins „villta vest-
urs“. Dvaliö á búgöröum meöal
„kúreka" og snæddur kvöldveröur
viö varöeld í félagi viö þá.
Sagt er aö enginn gleymi Grand
Canyon, sem séö hefur. Þar
veröur dvaliö og notiö sólarupp-
rásar yfir þessu furöulandi, sem
laöar til sín fleiri ferðamenn árlega
en nokkur annar staður í víöri
veröld.
Síöan er farið inn í Nevada
„auðnina“ og dvaliö í mestu
skemmtiborg veraldar LAS
VEGAS, þar sem þekktustu
skemmtikraftar Ameríku og Evr-
ópu eru stöðugt á sviöum
skemmtihúsa og spilahalla.
Islenzkur
framlengja
dvölina í
Bandaríkjunum.
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Símar 26611 og 23638.
Austurstræti 17.
•V ;
,j.í
i •■*«<
fíi
•V -
'if!
: