Morgunblaðið - 07.04.1981, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
Douwe Jan Bakker
Það er góður gestur sem um
þessar mundir er staddur hér á
landi og heiðrar okkur með
sýningu á ljósmyndum er hann
hefur tekið á Islandi. Hér er átt
við velþekktan Hollenzkan
myndlistarmann, sem búsettur
er í Harlem nálægt Amster-
dam. Hann hefur heimsótt ís-
land átta sinnum síðan árið
1971 og tekið sérstöku ástfóstri
við landið og yngri kynslóð
íslenzkra myndlistarmanna.
Hann er að því leyti óvenju-
legur íslandsvinur, að hann
hampar því ekki í tíma og
ótíma. Það atriði, að njóta
sérkenna landsins og virkja
þau til eigin listsköpunar er
Douwe Jan Bakker meira en
nóg.
Það þarf ekki lengi að skoða
ljósmyndir listamannsins, er
hann sýnir í sýningarsalnum að
Suðurgötu 7, til að sannfærast,
að hér fer maður með næma
tilfinningu fyrir sérkennum
landslagsins og íslenzkrar arf-
leifðar í byggingarlist. Þá nær
listamaðurinn andrúminu og
samsemd landslags og bygg-
ingarlistar fágætlega vel í þess-
um myndum sínum. Hér er um
að ræða hluta 400 mynda er
hann tók á íslandi árið 1972 og
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
hafa þær sem hér eru sýndar
verið birtar í listtímaritinu Art
forum, Vol 25. No. 2 árið 1975
og úrval ljósmyndanna hefur
verið sýnt í Rotterdam árið
1977.
Hér er þannig um ágæta
landkynningu að ræða, því að
myndirnar eru hið mesta
augnayndi í blíðum og þoku-
kenndum grátónaskala sínum
og hafa ábyggilega vakið þó
nokkra athygli erlendra.
Hér eigum við merkilega
arfleifð, sem erlendir virðast
ósjaldan taka betur eftir en
landinn sjálfur, er lætur sér
iðulega fátt um finnast um
torfbýlin okkar gömlu. Á sýn-
ingunni er t.d. ógleymanleg
mynd af kirkju og mörgum
smáhólum allt um kring. Er
líkast sem að hér sé um álfa-
bústaði að ræða í kringum
kirkjuna og sem slík virkar
myndin á áhorfandann sem
klippt úr íslenzkri þjóðsögu.
Það væri meira en æskilegt,
að einhverjir tækju sig til og
gæfu út þessar myndir í bók-
arformi með íslenzkum og er-
lendum textum með hverri
Ilollenzki myndlistarmaðurinn
Douwe Jan Bakker.
mynd. Engin sýningarskrá er í
gangi á sýningunni, myndirnar
ónúmeraðar og nafnlausar —
væri þó stundum fróðlegt að
vita hvaðan listamaðurinn hef-
ur mótívin jafnvel þótt sum séu
auðþekkt.
Það er mjög ánægjulegt að
líta inn í Suðurgötugalleríið
þessa dagana, a.m.k. fyrir þá er
hafa tilfinningu fyrir þessum
hlutum. Ég þakka fyrir mig og
sendi listamanninum kveðjur
mínar.
— Að lokum vil ég koma að
dálitlu, sem er sýningunni óvið-
komandi en kemur sýningar-
staðnum við. Nefnilega fagnaði
ég því mjög, að koma tvisvar á
þessa sýningu að opnum dyr-
um. Það hefur nefnilega þrá-
faldlega viljað koma fyrir að
allt væri lokað og læst á
augiýstum sýningartímum er
mig hefur borið að garði á
þennan stað. Þetta er einfald-
lega ekki hægt og væri heiðar-
legra að hætta rekstrinum en
að bjóða fólki upp á slíkt. Að
utan virðist húsið vera að detta
í sundur og eru menn því á
síðasta snúningi um varðveislu
þess eða niðurrif. Þetta tvennt
ber að athuga.
Bragi Ásgeirsson
Vorið gæg-
ist á glugga
Raufarhofn, 4. april.
VORIÐ er aðeins farið að gægjast
inn um gluggana hjá okkur og þó
enn sé hiti aðeins fáar gráður
fyrir ofan frostmark þá skín sólin
í heiði. Enn er mikill snjór hér í
plássinu og ruðningar allt að 2
metrum meðfram götum. Snjórinn
er orðinn þungur og mjög erfiður
viðureignar.
Grásleppuvertíðin er vel komin
af stað. Sæmilegt kropp hefur
verið hjá netabátunum undanfarið
og í fyrradag landaði Rauðinúpur
tæplega 100 tonnum af þorski.
- Helgi
Afli Horna-
fjarðarbáta
að glæðast
Hornaflrði, 4. april.
AFLI hefur glæðst síðustu daga
og sannarlega var tími til kom-
inn því afli hefur verið tregur
fram undir þetta og tíðarfarið
erfitt til sjósókna. Bátarnir hafa
fengið ágætan afla síðustu daga
og t.d. kom Hvanney að í gær
með tæplega 60 tonn, en að vísu
tveggja nátta. Bátarnir eru á leið
inn, þegar þetta er sent, í helgar-
frí og eru þeir margir með góðan
afla.
í dag verður fjarvarmaveita
Hornafjarðar formlega tekin í
notkun með vígsluathöfn.
— Einar
Saltlaust í
Siglufirði
Siglufirði 4. april.
SIGUREY kom hér inn í morgun
með um 160 tonna afla. Nú er að
verða hér saltlaust og er ekki vitað
hvenær von er á meira salti til
bæjarins, en dragist það eitthvað
getur það skapað vandræði hjá
fiskverkendum strax um eða eftir
helgina, en bátarnir hafa aflað vel
að undanförnu. Nú er farið að sjá
hér í hreinar göturnar eftir snjó-
ruðning og fært er til nágranna-
byggðanna.
m.j.
i 26933 26933 1
* 3ja—4ra herb. íbúö óskast í
lyftuhúsi. Staögreiösla í boði. |
Höfm kaupanda aö 3ja til 4ra herb. íbúö í
lyftuhúsi á 1. til 3. hæö. Staðsetning:
Ljósheimar, Sólheimar, Austurbrún eöa
Kleppsvegur. Staögreiðsla fyrir rétta eign.
&AA&AAAAAAAA&&&&&AAAÁ&&&&AAAAAA&
26933
26933
3ja til 4ra herb. íbúö óskast í lyftuhúsi.
Staögreiösla í boöi
Höfum kaupanda að 3 — 4 herbergja íbúð í lyftuhúsi á fyrstu til
þriðju hæö Staðsetmng: L|ósheimar. Sólheimar, Austurbrún
eða Kleppsvegur Staðgreiðsla fyrir rétta eign
Allar úrslitasveitirnar
úr Rvík og Kópavogi
Undankeppni íslandsmótsins
i bridge, sveitakeppni, lauk um
helgina. Spilað var í fjórum 6
sveita riðlum og fór keppnin
fram á Hótel Loftleiðum. Tvær
sveitir i hverjum riðli komst i
úrslitakeppnina.
Eftirtaldar sveitir komust i
úrslit:
Sveit Samvinnuferða,
örn Arnþórsson,
Sigurður Sverrirsson,
Guðm. Sv. Hermannsson,
Ásmundur Pálsson,
Gestur Jónsson,
Egill Guðjohnsen,
Sævin Bjarnason.
A-riðilI:
Þessi riðill var talinn lang-
sterkastur og var búist við
harðri keppni eins og kom á
daginn. Einkum voru það 4
sveitir sem þóttu koma til álita í
úrslitin. Voru það sveitir Jóns
Þorvarðarsonar, Samvinnuferða,
Ólafs Lárussonar og sveit Arnar
Arnþórssonar. Að loknum
tveimur umferðum hafði sveit
Arnar ekki hlotið eitt einasta
stig, hafði tapað fyrir Sam-
vinnuferðum og Jóni Þorvarðar-
syni. Héldu þá flestir að þar með
væri „landsliðið" úr sögunni og
benti flest til þess. Þegar ein
umferð var eftir var staðan
þannig að Samvinnuferðir voru
öruggar með annað af fyrstu
sætunum, en sveit Ólafs Lárus-
sonar var með 58 stig og átti að
spila gegn Erni sem hafði 39
stig. Sveit Arnar varð að vinna
leikinn 20—0 til að komast
áfram. j hálfleik benti fátt eitt
til þess að svo færi. Sveit Arnar
var með 5 stig yfir en eins og svo
oft áður í undankeppni ís-
landsmótsins tóku þeir félagar
þann endasprett sem þurfti og
unnu leikinn 20—0 og þar með
voru þeir komnir í úrslit.
Lokastaðan í A-riðll:
Samvinnuferðir 87
Örn Arnþórsson 59
Ólafur Lárusson 58
Jón Þorvarðarson 44
Aðalsteinn Jónsson 23
Stefán Ragnarsson 18
B-riðill:
í þessum riðli voru Reykjavík-
ursveitirnar taldar sigurstrang-
legar, þ.e. sveitir Sigurðar Sverr-
issonar og Guðmundar Sv. Her-
mannssonar. Það var þó sveit
Aðalsteins Jörgensen sem tók
forystu í riðlinum og vann sveit-
in hvern leikinn af öðrum. Fyrir
síðustu umferðina var sveit Að-
alsteins í fyrsta sæti ásamt sveit
Guðmundar en tapaði illa fyrir
Sigurði Sverrissyni í síðustu
umferðinni.
Lokastaðan i B-riðli:
Sigurður Sverrisson 89
Guðm. Sv. Hermannsson 80
Aðalsteinn Jörgensen 70
Gunnar Jóhannesson 20
Gunnar Þórðarson 8
Kristján Kristjánsson 6
Lokastaðan í C-riðii:
Ásmundur Pálsson 71
Gestur Jónsson 69
Sigmundur Stefánsson 55
Ingi St. Gunnlaugsson 39
Guðmundur Bjarnason 33
Steingerður Steingrímsdóttir 24
D-riðill:
Sennilega hefir þessi riðill
verið jafnastur að styrkleika.
Allar sveitirnar af suð-vestur-
horninu nema ein. Sveit Egils
Guðjohnsens afrekaði það að
Æ/m
K ' < »M V'i *
i . H ’ . ’z- mm
Svipmynd frá fslandsmótinu á Hótel Loftieiðum. Það er keppnis-
stjórinn, Agnar Jörgensen, sem er hér að skipta um spil á einu
borðinu, en hann stjórnaði mótinu af mikilli röggsemi að venju.
Bridge
Umsjón» ARNÓR
RAGNARSSON
C-riðill:
Þessi riðill var nokkuð jafn.
Þó voru sveitir Ásmundar Páls-
sonar og Gests Jónssonar Rvík
taldar sigurstranglegastar eins
og kom á daginn. Fyrir síðustu
umferðina hafði sveit Ásmundar
51 stig enda þótt hún hefði tapað
leik 0—20. Sveit Gests hafði 50
stig svo og sveit Sigmundar
Stefánssonar. Það var því spurn-
ingin hvaða sveitir ynnu stærst í
síðustu umferðinni, því engin
þessara sveita spilaði saman.
Sveit Sigmundar tapaði sínum
leik á meðan Gestur og Ásmund-
ur unnu sína leiki stórt.
tapa engum leik ein sveita í
mótinu og vinna riðilinn örugg-
lega. Sveit Sævins Bjarnasonar
var í fyrsta sæti í riðlinum fyrir
síðustu umferðina og nægði það
þeim enda þótt þeir töpuðu
síðasta leiknum illa. í þessum
riðli gerðist það slys í næst
síðustu umferðinni að vitlaust
var sest að borði og kostaði það
að verið var að spila til kl. 3
aðfararnótt mánudagsins. Voru
þá margir orðnir toginleitir og
syfjaðir. Má þar til dæmis nefna
að síðasti hálfleikurinn sem
gerður var upp á þessu móti
endaði 114—0 sem eru tölur með
ólíkindum.
Lokastaðan í D-riðli:
Egill Guðjohnsen 77
Sævin Bjarnason 60
Magnús Torfason 57
Þorfinnur Karlsson 46
Ólafur Valgeirsson 28
Arnar Hinriksson 24
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
enson. Úrslitakeppnin verður
spiluð á Hótel Loftleiðum 16.—
19. apríl.