Morgunblaðið - 07.04.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
13
Miðað við framansagt verður nýtingartími virkjunarinnar tiltölulega
hár eða nálægt 6400 stundum á ári, en hafa ber í huga, að nýtingartími
Hrauneyjafossvirkjunar verður hlutfallslega lágur, og með henni hefur
því verið búið í haginn fyrir Sultartangavirkjun að þessu leyti.
RANN SÓKNIR
Vettvangsrannsóknir á virkjunarsvæðinu við Sultartanga hófust fyrir
alllöngu, en síðustu tvö árin hafa þær beinzt að þeirri virkjunartilhögun,
sem nú er ráðgerð.
Stíflustæði og vatnsvegaleiðir hafa verið kannaðar ítarlega. Boraðar
hafa verið kjarnaholur, samtals um 1650 bormetrar til könnunar á
jarðlagaskipan, og fjölmargar hoiur án kjarnatöku til könnunar á
hraunlögum og jarðvatnsstöðu. Auk þess hefur þykkt lausra yfirborðs-
laga verið könnuð með jarðsveiflumælingum og cobra-borun. Ymsar
jarðeðlisfræðilegar mælingar hafa verið gerðar, einkum til sprunguleit-
ar I Sandafelli. ítarleg leit að byggingarefnum hefur farið fram og
fjölmörg sýni hafa verið rannsökuð.
Nauðsynlegum undirbúningi undir verkhönnun er nú að mestu lokið.
Kostnaður við Sultartangavirkjun er áætlaður um 1000 milljónir
króna (100 milljarðar gkróna) á verðlagi desember sl.
HELZTU EINKENNISTÖLUR
Rennsli og miðlun:
Vatnasvið virkjunar ............................ 6320 km2
Meðalrennsli til miðlunarlóns .................. 305kl/s
Flatarmál miðlunarlóns með vatnsborði í 297 m hæð y.s. 19 km2
Nýtanleg miðlun ...................................... 85 G1
Stifla:
JAROSTÍFLA:
Lengd ............................................ 5900 m
Mesta hæð .......................................... 21 m
Meðalhæð ....................................... 12 m
Hæð á stíflukrónu .............................. 302 m y.s.
FLÓÐVIRKI:
Lengd yfirfalls ................................. 400 m
Hæð á yfirfalli ................................ 297 m y.s.
Lengd flóðvars .................................... 500 m
Hæð á flóðvari ............................... 299,8 m y.s.
Hönnunarflóð ................................... 4000 kl/s
Aftakaflóð við rofið flóðvar ................... 7000 kl/s
BOTNRÁS:
Hæð botnrásarskurðar ofan lokuvirkis ........... 278 m y.s.
Stærð botnrásar .............................. 2x4x5,5 m2
Flutningsgeta við lónhæð 290 m y.s.............. 400 kl/s
Vatnsvegir
INNT AKSSKURÐUR:
Lengd ............................................. 100 m
Mesta dýpt ......................................... 40 m
ADRENNSLISGÖNG (HLUTAFÓÐRUÐ):
Lengd .......................................... 3040 m
Þverskurðarflatarmál ................................. 162 m2
Vatnshraði við fullt álag ...................... 2,3 m/s
Botnhæð í göngum ............................... 260 m y.s.
JÖFNUNARÞRÓ:
Lengd .............................................. 80 m
Botnhæð ........................................ 270 m y.s.
Hæsta vatnsborð við skyndilegt álagsfall ..... 304,8 m y.s.
ÞRÝSTIGÖNG (TVENN, STEYPUFÓORUO):
Lengd ............................................ 2x50 m
Þvermál ganga ......................-................. 7,2 m
FRÁRENNSLISSKURÐUR:
Lengd ............................................ 6250 m
Botnhæð ........................................ 245 m y.s.
Botnbreidd ...................................... 13—20 m
Mesta dýpt ......................................... 32 m
Meðaldýpt .......................................... 13 m
Vatnsborðshæð við fullt álag (efst) ...f...... 255,4 m y.s.
Vatnsborðshæð við fullt álag (neðst) ......... 250,5 m y.s.
Stöðvarhús og vélbúnaður
STÖÐVARHÚS:
Stærð ........................................... 19x57 m2
Hæð frá sográsarbotni .............................. 43 m
VÉLASAMSTÆÐUR (TVÆR):
Afl ............................................ 2x60 MW
Gerð vatnshverfla ............................ Kaplan
Rafalar ...................................... 2x75 KVA
Snúningshraði ................................ 142,8 sn/mín.
Orkuvinnsla .................................. 770 GWst/á
Nýting ......................................... 6400 st/á
Tengivirki .............................. SF6-einangrað
Helztu magntölur
Gröftur ................................... 2.100.000 rm
Sprengingar ............................... 1.700.000 rm
Fyllingar ................................... 2.330.000 rm
Steinsteypa .................................... 51.000 rm
Mótasmíði ...................................... 43.500 m2
Steypustyrktarstál og bergboltar ............ 2.040.000 kg
Glæsilegur
organleikur
ANDRÉ Isoir hélt fyrri orgeltón-
leika sína í Reykjavík laugardag-
inn 4. apríl í kirkju Fíladelfíu-
safnaðarins. Síðari tónleikar Isoir
verða miðvikudaginn 8. apríl í
Landakotskirkju.
Á efnisskrá tónleikanna í Fíla-
delfíukirkjunni voru svo til ein-
göngu verk höfunda frá 16., 17. og
18. öld, flestra franskra. Nöfn eins
og Preston, Cl. Le Jeune, Reinck-
en, Lasceux, Balbastre, Corrette
og Boely koma e.t.v. kunnuglega
Tðnllst
eftir RAGNAR
BJÖRNSSON
fyrir sjónir sum hver, en lítið
kann maður frá þessum höfund-
um að segja. Ástæðan er vitan-
lega sú að maður þekkir of lítið
franska tónlist frá þessu tímabili
svo og hitt, eins og Isoir segir
sjálfur, að á tímum frönsku
orgel-„improvísatoranna“ var
þýðingarlaust að semja og gefa út
organtónsmíðar, organleikararnir
sjálfir spunnu á staðnum þær
tónsmíðar sem við átti hverju
sinni og skrifaðar orgeltónsmíðar
seldust einfaldlega ekki. (Styður
þetta ekki þá kenningu, að góðan
hljóðfæraleikara þurfi til að
skrifa góða tónlist?) Afar fróðlegt
var að kynnast þessum gömlu
frönsku höfundum og þrátt fyrir
að sumar tónsmíðarnar væru
einskonar dægurflugur urðu þær
perlur í meðferð Isoir. „Orna-
ment“ í gamalli franskri tónlist er
kapítuli út af fyrir sig og hafa
kannske fáir • aðrir en Frakkar
hana fyllilega á valdi sínu. Hér
var um kennslustund að ræða í
þeim fræðum af hálfu Isoir, en því
miður allt of fáir organleikarar og
aðrir tónlistarmenn urðu vitni að.
Liklega hafa reykvískir tónleika-
gestir ekki áttað sig á hver
afburðamaður er hér á ferð.
Franskur orgelskóli og þýskur
eru ólíkir en standa þó hlið við
hlið í stærstu tónleikasölum
heims sem tákn ólíkra viðhorfa en
gagnkvæmrar virðingar. Dupré, J.
Alain, Litaze, Messiaen, Marie-
Claire og glæsilegir fulltrúar
fransks orgelstíls fylltu eða fylla
tónleikasali og kirkjur hvar sem
þeir koma við til að spila. Isoir er
einn þessara snillinga, sem hlýtur
að fylla hina sömu sali, slíkur er
leikur hans. Franskur glæsileiki
og nákvæmni er í leik hans öllum
og yfirburða tækni er honum
aðeins sjálfsagður hlutur. Hugs-
anlega erum við ekki sammála
honum í hverjum takti — en það
er aukaatriði. Isoir hefur mikið að
segja okkur. Hafi Antonio Corv-
eiras þökk fyrir að tæla Isoir
• hingað og vonandi leikur hann
ekki fyrir lítinn hóp áheyrenda í
Landakotskirkju á miðvikudags-
kvöldið. Óhætt er að lofa glæsi-
legum tónleikum.
Borgarrall
í Reykjavík
BÍLALEIGA Loftleiða varð
10 ára 1. apríl sl. og á þessum
merkisdegi voru 22 bílar frá
bílaleigunni notaðir til þess
að fara i sérstakt bílarall um
Reykjavík. Það var trygg-
ingafyrirtækið Abbey Life
sem hélt ráðstefnu að Hótel
Loftleiðum sem stóð fyrir
rallinu undir stjórn Bíla-
klúbbs Reykjavíkur.
Ekki var lagt uppúr hrað-
akstri í þessu ralli en hins
vegar þurftu þátttakendur að
koma við á 27 stöðum og
minnsta möguleg vegalengd
var 34,4 km. Þátttakendur sem
allir voru erlendir óku eftir
korti og virtu að sjálfsögðu
reglur um hámarkshraða á
götum og þjóðvegum.
Þannig leysa
SUMMA
raðskápar
geymsluvanda
heimilisins,
Bílaleiga Loftleiða tók til
starfa með 45 bílum. Stofnun
bílaleigunnar var af brýnni
þörf, þar sem oft skorti bíla
Íeigubíla fyrir ferðamenn yfir
ferðamannatímann. Nú hefur
bílaleigan 104 bíla og verða
þeir nokkru fleiri í sumar.
Uppistaðan í bílaflotanum
hefur frá öndverðu verið
Volkswagen og nú eru flestir
bílanna af Volkswagen Golf-
gerð. Auk þess eru bílar af
gerðinni Scout og Volkswagen
Micro-bus.
auk þess að
bæta aðstöðu
allra í
fjölskyldunni
Nýlega opnaði Bílaleiga
Loftleiða afgreiðslu í byggingu
Innanlandsflugs á Reykjavík-
urflugvelli. Framkvæmda-
stjóri Bílaleigu Loftleiða er
Erlingur Aspelund, en um
daglegan rekstur sjá þeir
Ómar Anderson og Gylfi
Ólafsson.