Morgunblaðið - 07.04.1981, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
15.
frumvörp á Alþingi. í þessum
fjórum frumvörpum felst stefnu-
mörkun i skipastólsmálum. Þessi
frumvörp eru um afnám sérstakr-
ar heimildar til ríkisábyrgðar
vegna togarakaupa erlendis frá,
um hagkvæmni í stærð og endur-
nýjun skipastólsins um greiðslu-
tryggingasjóð fiskafla og um efl-
ingu úreldingarstyrkja.
Fjögur lagafrumvörp
Alþýðuflokksins
Megindrættir í frumvörpunum
eru þessir:
1. Fyrsta frumvarpið fjallar um
afnám heimildar fyrir ríkis-
stjórnina til að veita ríkis-
ábyrgð á lánum til skuttogara-
kaupa erlendis. Fer þá heimild-
arveitingin til Alþingis eins og
um aðrar ríkisábyrgðir, sbr. t.d.
meðferðina á Flugleiðamálinu.
Gerð er tillaga um þessa breyt-
ingu af því að ríkisstjórnar-
heimildin, sem er samkvæmt
lögum frá 1972 hefur leitt
ríkisstjórnina í þá freistni að
láta undan þrýstingi eins og
dæmin sanna.
2. Samkvæmt frumvarpi um hag-
kvæmni í stærð og endurnýjun
skipastólsins eru sett lög um
það, að nýjar viðbætur við
fiskiskipaflotann á hverjum
tíma fram til 1985 megi ekki
fara fram úr 50% af meðalúr-
falli úr flotanum næstu 2 ár á
undan og er þá miðað við
brúttórúmlestatölu. Þó eru
ákvæði um bann við fiskiskipa-
innflutningi árin 1981 og 1982
og tiltekið hámark á innan-
landsmiðum á sama tíma. Þetta
er gert til þess að draga úr
stærð flotans en hann hefur
haft tilhneigingu til þess að
halda áfram að vaxa, þótt
veiðiskömmtun sanni að afköst
flotans eru umfram afraksturs-
getu fiskistofnanna.
3. I frumvarpi um greiðslutrygg-
ingasjóð fiskafla er gert ráð
fyrir stofnun sérstaks sjóðs,
sem hafi milligöngu um stað-
greiðslu á afla i plássum sem
búa við hráefniseklu. Þetta er
gert til þess að jafna aflanum
og draga úr þörf fyrir skipa-
kaup.
4. í frumvarpi um eflingu aldurs-
lagatryggingar eru sett lög um
aukningu úreldingarstyrkja til
þess að skapa aukið svigrúm til
endurnýjunar.
Sííelldur vöxtur
nema árið 1979
í þessu sambandi er vert að líta
sérstaklega á hver þróunin hefur
verið seinustu árin.
Árið 1977 nema viðbætur við
fiskiskipaflotann 5083 tonnum í
skipum keyptum erlendis og 991
tonnum í innanlandssmíði, eða
alls 6074 tonnum, en brottfall
nemur þá 2039 tonnum. Nettóvið-
bót er því 4035 tonn.
Árið 1978 eru viðbætur 3849
tonn í skipum keyptum erlendis
frá og 1390 tonn í innanlandssmíði
eða alls 5239 tonn, en brottfall
nemur 241 tonni. Nettóviðbót er
4998 tonn.
Árið 1979 eru viðbætur 2050
tonn í skipakaupum erlendis og
722 tonn úr innanlandssmíði eða
alls 2772 tonn, en brottfall nam þá
4672 tonnum. Það ár minnkaði
þvi fiskiskipastóllinn um 1900
tonn.
Á árinu 1979 hafði stækkunar-
þróunin þannig ekki bara verið
stöðvuð heldur hafði þróuninni
verið snúið við.
Strax á árinu 1980 sótti svo
aftur í sama stækkunarfarveginn.
Átak sem skilaði árangri
Fjöldi þeirra fiskiskipa, sem
úrelt eru og eyðilögð eða eyði-
leggjast er líka athyglisverður.
Árið 1977 voru þau einungis tvö og
1978 voru þau þrjú talsins, en 1979
voru þau 35. Árið 1980 voru þau
aftur á móti 12 talsins. Árið 1979
sker sig þannig úr, enda var þá
gert sérstakt átak til þess að taka
úrelt skip úr rekstri. Það átak
hefur aftur runnið að verulegu
leyti út i sandinn siðan, eins og
þessar tölur sýna.
Undanlátssemin ríður
húsum á ný
Það er ekki siður íhugunarefni
að skoða brottflutning skipa úr
landi, ekki sízt með tilliti til þess
að ýmsir sjávarútvegsráðherrar
hafa gert sérstakt mál úr því að
skip færi úr landi i stað innflutts.
Árið 1977 voru 3 skip flutt úr
landi, árið 1978 var hins vegar
ekkert skip flutt úr landi, en árið
1979 voru þau 7 talsins. Árið 1980
var hins vegar einungis eitt skip
flutt úr landi.
Það er liklega ekki úr vegi að
geta þess að á árinu 1979 var
sérstakt átak gert til þess að
þvinga erlenda kaupendur ís-
lenzkra fiskiskipa til þess að flytja
úr landi þau skip sem þeir höfðu
keypt. Því höfðu þeir ekki vanist
og þetta kostaði nokkra fyrirhöfn.
En lika i þessum efnum er öld
snúin og undaniátssemin ríður
húsum á ný.
Þríþættar aðgerðir, sem
skiluðu árangri
Eins og kunnugt er, var gert
þríþætt átak til að sporna gegn
óhagkvæmri stækkun skipastóls-
ins i tíð minni sem sjávarútvegs-
ráðherra.
1. Teknir voru upp sérstakir úr-
eldningarstyrkir sem fyrst voru
fjármagnaðir með ákveðnu
framlagi úr gengismunasjóði,
en hlutu síðan fastan tekju-
stofn sem hlutdeild í útflutn-
ingsgjaldi.
2. Innflutningur fiskiskipa var
stöðvaður með sérstakri reglu-
gerð.
3. Erlendir aðilar sem áttu hér
skip, voru neyddir til að flytja
þau úr landi.
Síðan núverandi ríkisstjórn tók
við hafa mál breytzt. Sett var af
stað skriða innflutnings. Reglu-
gerð um að flytja út skip í stað
innflutts var notuð sem skálka-
skjól en sú reglugerð hefur síðan
verið þverbrotin. Ennfremur hafa
sérstakir tilburðir verið uppi við
að flytja inn að nýju skip, sem
voru þegar flutt út og að skip sem
eiga að heita að fari úr landi, fari
alls ekki.
Likleg stækkun á
þessu ári um
2000 tonn
Mér telst svo til að viðbótin í
stórum skipum á árinu 1981 muni
nema um 2600 tonnum. Eru þá
ótaldir smærri bátar, sem smíðað-
ir yrðu innanlands. Má telja lík-
legt skv. reynslu, að sú smíði yrði
á bilinu 100—200 tonn. Hér hef ég
þó ekki talið Þórshafnartogarann.
Að honum meðtöldum fer viðbótin
þannig upp í ca. 3200 tonn. Ég hef
heldur ekki talið þá togara og báta
sem lausafregnir herma að séu
uppi hreyfingar um, svo sem af
hálfu Akurnesinga og Patreksfirð-
inga, né heldur þann samning sem
Vestmanneyingar munu hafa gert
við Slippstöðina um smíði fyrir
sig. Ég hef heldur ekki talið
endurinnflutning á Guðbjörgu til
Reyðarfjarðar, eins og um mun
talað eða frágengið.
Án átaks í úreldingu má búast
við brottfalli sem nemur ca.
1200—1300 tonnum á þessu ári,
sbr. spá um úreldingu og reynsl-
una á sl. ári. Er því fyrirsjáanleg
nettóviðbót upp á ca. 2000 tonn á
árinu 1981.
Nauðsyn stefnumörkunar
Þetta ætti að sanna betur en
nokkuð annað nauðsyn þess að
samþykkja lagafrumvörp þau sem
við Alþýðuflokksmenn höfum flutt
um stefnumörkun í skipastólsmál-
um, þ.e.a.s. frumvarpið um
greiðslutryggingasjóð fiskafla,
frumvarpið um hagkvæmni í
stærð og endurnýjun skipastólsins
og síðast en ekki síst frumvarpið
um aukningu úrlendingarstyrkja.
Erindi um
ræktun
plöntuhluta
ÞRIÐJUDAGINN 7. apríl heldur
Sigurgeir ólafsson erindi á veg-
um Liffræðifélags íslands, sem
hann nefnir „Ræktun á plöntu-
frumum og plöntuvef“.
í erindinu verður einkum fjallað
um þýðingu ræktunar einstakra
plöntuhluta fyrir rannsóknir á
plöntusjúkdómum og aðgerðir til
að auka plöntuheilbrigði. Erindið
sem er öllum opið verður haldið í
stofu 158 í húsi verkfræði- og
raunvísindadeildar, Hjarðarhaga
2—4, og hefst kl. 20.30.
Viíjafá-
brú yfir
Dýrafjörð
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd stjórnar
Kaupfélags Dýrfirðinga, Þingeyri:
„Stjórn Kaupf. Dýrfirðinga skor-
ar á þingmenn Vestfjarða, Vegagerð
ríkisins, og alla Vestur-ísfirðinga,
að vinna ötullega að því að hafin
verði undirbúningur að vegagerð og
brú yfir Dýrafjörð, úr Lambadals-
odda að Kjaransstöðum. Stjórnin
vill benda á að hér er mikið
hagsmunamál fyrir alla íbúa Dýra-
fjarðar seih og nálægra byggða.
Leggur stjórnin mikla áherslu á að
hér er um að ræða möguleikann á að
halda opnum akfærum vegi allt
árið, sem og allmikla styttingu á
vegalengd. Samgöngumál eru sá
þáttur er hvað mesta þýðingu hefur
fyrir æskilega þróun í atvinnumál-
um, heilbrigðismálum sem og fé-
lagslegum samskiptum þessara
byggðarlaga."
HVAR SEM ER
Á HEIMILINU ERU
SUMMA
RAÐSKÁPAR LAUSNIN
Óteljandi möguleikar á uppröðun, einfalt útlit,
vandaður frágangur og mikið notagildi auk hag-
stæðs verðs og afborgunarskilmála okkar gera
valið auðvelt.
SUMMA raðskáparnir eru framleiddir í verk-
smiðju fyrirtækisins og þróaðir af starfsmönnum þar.
Komið í verslunina eða á næsta útsölustað og
kannið kosti og verð SUMMA raðskápanna.
Útkoman kemur á óvart.
Útsölustaðir fyrir K.S. húsgögn:
Reykjavík: Hallarmúli sf., Jón Loftsson hf • Akureyri: Augsýn hf., Örkin hans Nóa
• Akranes. Verslunin Bjarg hf • Blönduós: Trésmiðjan Fróði hf • Borgarnes:
Verslunin Stjarnan • Bolungarvík: Verslunin Virkinn • Hafnarfjörður: Nýform •
Húsavík: Hlynursf • Keflavík: Duus® Kópavogur: Skeifanhf • Neskaupstaður:
Húsgagnaverslun Höskuldar Stefánssonar • Ólafsfjörður: Verslunin Valberg hf •
Ólafsvík: Verslunin Kassinn • Sauðárkrókur: Húsgagnaverslun Sauðárkróks •
Selfoss: Kjórhúsgögn • Siglufjörður: Bólsturgerðin • Vestmannaeyjar:
Húsgagnaverslun Marínós Guðmundssonar • Patreksfjörður: Húsgagnaverslun
Patreksfjarðar • Stykkishólmur: J.L. húsið • Hornafjörður: Húsgagnaverslun
J.S.G •
f/\ KRISTJflfl
SIGGEIRSSOfl HE
m
LAUGAVEG113. REVKJAVIK SIMI 25870
Ég óska eftir aö fá sendan SUMMA litmyndalistann.
Nafn:________________________________________________
heimili:
staður:
Sendisttil: Kristján Siggeirsson hf. Laugavegi 13.101 Reykjavík
Sjómannafélag ísfírðinga:
Mótmælir lagabindingu
olíugjaldsins og skollaleik
við fiskverðsákvörðun
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn
Sjómannafélags ísfirðinga:
„Fundur haldinn í stjórn S.í.
þriðjudaginn 24. mars 1981 hefur
samþykkt einróma eftirfarandi
yfirlýsingu.
Stjórn S.I. telur sig mæla fyrir
munn allra Vestfirzkra sjómanna
er hún mótmælir öllum fyrirætl-
unum stjórnvalda um áframhald-
andi lagabindingu olíusjóðsins.
Stjórnin lýsir furðu sinni yfir
þeirri afstöðu, sem núverandi
sjávarútvegsráðherra hefur til
þessa máls og brýtur algjörlega í
bága við fyrri yfirlýsingar hans og
loforð.
Vill stjórnin minna á að við
seinustu kjarasamninga gaf nú-
verandi sjávarútvegsráðherra
Steingrímur Hermannsson for-
svarsmönnum sjómannasamtak-
anna á Vestfjörðum skýlausa yfir-
lýsingu þess efnis að það væri
skoðun hans og stefna að olíu-
gjaldið yrði alfarið fellt úr gildi og
mundi hann vinna að því með
öllum tiltækum ráðum að svo yrði
sem allra fyrst. Reyndin er sú að
sá hinn sami ráðherra hefur nú
þegar beitt sér fyrir hækkun
olíugjalds úr 2,5% í 7,5%.
Þykir sjómönnum að vonum
leitt til þess að vita að orð
ráðherra skuli eigi marktæk og
munu að sjálfsögðu taka mið af
þeirri staðreynd ef á reynir síðar.
Skorar stjórn S.í. eindregið á
þingmenn alira flokka að fella
frumvarpið um lögbindingu oliu-
gjaldsins.
Við viljum ennfremur benda á
að fiskverðshækkun, sem er í orði
18% er á borði um 10,2% ef miðað
er við aflasamsetningu skuttogar-
anna og lækkun kassauppbótar.
Mótmælum við harðlega þeim
skollaleik sem verðlagsráð sjávar-
útvegsins leikur með verðhækkun-
um á ruslfiski, sem litlu máli
skiftir í heildarafla og búa þannig
til falskar tölur um fiskverðs-
hækkun.
Við viljum minna á að einn af
þeim þáttum, sem einna stærstan
hlut á í erfiðleikum útgerðar nú er
ofvöxtur fiskiflotans og má rekja
beint til stjórnleysis ráðamanna
og væri æskilegra að þeir þættir,
sem snúa að fiskvernd og flota-
stærð væru betur í takt, en eigi
ávallt gripið til þeirra ráða að
ganga á kjör sjómanna.
Olíusjóðurinn einn jafngildir
um það bil 2% skiptakjaraskerð-
ingu hjá hlutasjómönnum og hef-
ur orsakað um það bil 1,4%
kjararýrnun frá undirskrift sein-
ustu kjarasamninga vestfirskra
sjómanna. Þar við bætist skerðing
á kassauppbót og skollaleikur með
fiskverð.
Skorar S.í eindregið á íslensk
sjómannasmtök að taka öll þessi
mál fastari tökum og jafnframt
benda stjórnvöldum á að síendur-
teknar aðfarir að kjörum sjó-
manna gætu haft ófyrirsjáanlega
neikvæðar afleiðingar."
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU