Morgunblaðið - 07.04.1981, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981 —
Samtök stundakennara á fréttamannafundi:
Ayikin aðild að stjórn
HI og samningsréttur
Fulltrúar stundakennara a tundi með fréttamönnum,
þar sem þeir gerðu grein fyrir kröfum sínum. líósbi. rax
FULLTRÚAR Samtaka stunda-
kennara, sem nú eru i verkfalli
og fulltrúar fjármála- og mennta-
málaráðuneyta sátu i gær á
sáttafundi að frumkvæði Guð-
mundar K. Magnússonar há-
skólarektors. Fulltrúar ráðu-
neytanna lögðu þar fram tillögur
um lausn málsins og verða þær
ræddar á fundi Samtaka stunda-
kennara er vera á í Árnagarði kl.
20:30 i kvöld. Verkfallið hefur
haft nokkuð viðtæk áhrif á
starfsemi Háskólans og i dag er
allsherjarverkfall nemenda.
Samtök stundakennara boðuðu
fréttamenn á fund sinn í gær og
greindu þar frá helstu kröfum
sínum. Aðalkröfurnar eru í 7
liðum og hefur þeim verið hafnað
nema einni, að greiðslur í veik-
indaforföllum stundakennara við
H.í. verði færðar til samræmis við
samsvarandi greiðslur til stunda-
kennara í KHI. Aðrar kröfur eru:
Að stundakennarar, sem nú
taka laun í launaflokkum 109 til
111, færist upp í launaflokka 112
til 114 og í þessu sambandi leggja
stundakennarar áherslu á að
flokkahækkun komi til eftir 1.000
vinnustundir en ekki 1.500. Að
prósentuálag verði jafnað og tek-
inn upp nýr liður, 25% álag fyrir
aðstöðu, en stundakennarar sögð-
ust ekki njóta aðstöðu í skólanum
og því verða að leggja hana fram
sjálfir. Tímakaup stundakennara
er nú frá 62 til 69 kr. með álagi. Að
stundakennurum verði greidd yf-
irvinna fyrir vinnu umfram 40
stundir, en í dag segjast þeir
aðeins njóta dagvinnutaxta jafn-
vel þótt vinna þeirra sé meiri á
viku en hin hefðbundna 40 stunda
vinnuvika og einnig gera þeir
kröfur um yfirvinnukaup á
kennslu er fellur til að ósk skólans
eftir kl. 17 virka daga og á
laugardaga. Að stundakennurum
verði greidd laun í hlutfalli við
kennslu eina viku í páskaleyfi og
minnst tvær vikur um jólin. Að
greiddar verði minnst 40 stundir
til þeirra fyrir undirbúning nýrra
námskeiða og að annar fulltrúi
stjórnsýslu háskólans úr stunda-
kennslunefnd verði úr hópi fastra
kennara.
Þá hafa stundakennarar sett
fram kröfur um að réttur samtaka
þeirra til að semja við stjórnvöld
um málefni stundakennara verði
viðurkenndur og að skipan
stundakennslu við HI verði þegar
tekin til gagngerðrar endurskoð-
unar og samtökin fái beina aðild
að þeirri endurskoðun. Einnig
greindu forráðamenn Samtaka
stundakennara frá því á fundin-
um, að fyrir reglugerðarnefnd
Háskólans liggi nú tillögur um að
þeir fái fulltrúa í Háskólaráði, að
þeir sem annist a.m.k. eitt nám-
skeið á misseri fái rétt til setu á
deildarfundum, að stundakennar-
ar eigi fulltrúa í deildarráðum og
að þeir fái aðild að rektorskjöri.
Meðal þeirra félaga stúdenta er
lýst hafa stuðningi við stunda-
kennara og hvatt til þess að deila
þeirra verði leyst hið bráðasta eru
félög læknanema, hjúkrunar-
fræðinema, sjúkraþjálfanema,
þjóðfélagsfræðinema, bókmennta-
fræðinema, málvísindanema,
dönskunema, enskunema, ís-
lenskunema, sagnfræðinema,
verkfræðinema, matvælafræði-
nema, líffræðinema, jarðfræði- og
landafræðinema og stúdentaráð
hefur einnig lýst yfir stuðningi
sínum. Þá segir í frétt frá stjórn
Félags háskólakennara, að að-
staða og aðbúnaður stundakenn-
ara við HÍ sé lakari en æskilegt
geti talist og verði að bæta úr. Er
skorað á stjórnvöld að marka nýja
stefnu sem stundakennarar geti
vel við unað og þegar um sé að
ræða viðamikla stundakennslu sé
nauðsynlegt að stofna fastar
kennarastöður með rannsókna-
skyldu og rannsóknaaðstöðu.
Á fundinum lögðu fulltrúar
stundakennara áherslu á að starf
stundakennara við Háskólann
væri all ótryggt, oft væru þeir
ekki ráðnir til kennslu nema með
stuttum fyrirvara, þeir héldu ekki
kaupi um jólafrí og páska og segja
mætti að þeir væru daglauna-
menn. Þó virtist sem Háskólinn
gengi einatt að þessum vinnu-
krafti vísum og þess vegna væri
nú lögð áhersla á að skapa þeim
öruggari grundvöll.
«KaKan 6e3ynpeMHafl MOHTamHan cþopMa
BbiTb MomeT, H3M cneflOBano
óbi KonnpoBaTb ee.»
,,Atveg einstakt kerfi. Vió ættum etv. að líkja eftir þvi!"
Betri ending
Reynslan hefur sýnt, að pústkerfi úr álvörðu stáli
endist 20-40% lengur en venjuleg pústkerfi, - bæði
kútar og rör.
Pústkerfi fyrir alla
Fjöðrin h/f framleiðir nú um 50 gerðir af hljóð-
kútum og mörg hundruð gerðir af púströrum - allt
úrálvörðu stáli. Fjöðrin h/f hefur rúmlega 1000
mismunandi gerðir af pústkerfum á lager og í
pöntun.
LJrvalið er gífurlega mikið, enda er vandfundinn
sú bíltegund, sem Fjöðrin getur ekki „þaggað niður
í”!
Góð þjónusta
Fjöðrin h/f er brautryðjandi í sérþjónustu við
íslenska bifreiðaeigendur. Eigin framleiðsla og eigið
verkstæði tryggir góða vöru og gæða framleiðslu.
Hljóðkútar og púströr eru okkar sérgrein, en
vanti þig tjakk, fjaðrir, fjaðrabolta, hosuklemmur,
skíðaboga, farangursgrind, eða smáhluti í bílinn
borgar sig að ræða við okkur.
BÍLAVÖRUBUOIN
FJÖÐRIN
Skeifan 2 simi 82944
Við getum þaggað niður í þeim flestum!