Morgunblaðið - 07.04.1981, Qupperneq 21
%
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR It'lÍPWÍL 1981
21
IHox-flnnfrlntúft
Míwurra
Jón tvíbætti
Evrópumetið
KR-INGURINN sterki, Jón Páll
Sigmarsson, setti nýtt Evrópu-
met í réttstöðulyftu í kraftlyft-
ingum um helgina. Jón, sem
keppir í yfirþungavigt, lyfti
350 kg. Met þetta var sett á
innanfélagsmóti KR, sem fram
fór i Jakabóli i Laugardal. Jón
Páll, sem er í mjög góðri æfingu
um þessar mundir, tvíbætti
Evrópumetið.
Fyrst lyfti hann 342,5 kg og
bætti met sem Arthúr Bogason
frá Akureyri átti og var 340 kg.
Síðan lét Jón setja 350 kg á
stöngina og fór upp með þá
þyngd. Er það mál manna, að
Jón Páll geti gert enn betur.
Sverrir Hjaltason KR setti
met í 100 kg flokki í réttstöðu-
lyftu. Lyfti Sverrir 320 kg og
bætti met Óskars Sigurpálsson-
ar um 20 kg. Frábært afrek hjá
Sverri.
— þr.
Óvenjulegt mark
UM helgina léku lið ÍBV og
Reynis, Sandgerði, tvo æfinga-
leiki i knattspyrnu sem reyndar
er ekki i frásögur færandi.
Fyrri leik iiðanna lauk með
sigri ÍBV 3—2, en þeim síðari
8—0. í síðari leiknum skoraði
nýliði hjá ÍBV, Ingólfur Ing-
ólfsson. fyrrum leikmaður
Breiðabliks, óvenjulegt mark. í
upphafsspyrnu siðari leiksins
gaf Sigurlás á hann boltann.
Ingólfur sá að markmaður
Reynis var ekki rétt staðsettur
og skaut þegar föstu og háu
skoti frá miðju vallarins og
skoraði. Boltinn fór yfir mark-
vörðinn sem kom engum vörn-
um við.
HKJ/ÞR.
• Tveir íslenskir júdómenn, þeir Bjarni Friðriksson (t.v.) og Ilalldór
Guðbjörnsson (t.h.), stóðu sig frábærlega vel á sterkasta opna júdómótinu
sem haldið er í Evrópu. Báðir sigruðu í sínum riðlum en töpuðu svo
naumlega í úrslitakeppnunum. Ljósm. Þórarinn RaKnarsson
Glæsilegt afrek hjá
Bjarna og Halldóri
TVEIR islenskir júdómenn, þeir Bjarni Friðriksson og Halldór
Guðbjörnsson, kepptu á Opna hollenska meistaramótinu i júdó,
sem háð var um helgina. Þetta er sterkasta opna mótið sem
haldið er i Evrópu, og tóku islenskir júdómenn nú þátt i þvi i
fyrsta sinn, og stóðu sig með prýði.
Haildór Guðbjörnsson
keppti i 71. kg.-flokki á
laugardag. Hann sigraði
með yfirburðum i sínum
riðli. Annar i riðlinum var
Hangyasi frá Ungverjalandi
sem siðar hlaut gullverð-
launin, og var Ilalldór sá
eini sem hann sigraði á
mótinu. í úrslitakeppninni,
sem er útsláttarkeppni, lenti
Halldór fyrst á móti þýskum
keppanda og sigraði auð-
veldlega. í næstu umferð
mætti hann sovéskum kepp-
anda. Rússanum tókst ekki
að skora stig gegn Halldóri,
en Halldóri var dæmt refsi-
stig fyrir að stiga út af
keppnissvæðinu og vann
Rússinn á þvi. Þessi Rússi
komst áfram i úrslitaviður-
eignina gegn Ungverjanum
Hangyasi, og það þýddi að
Halldór komst aftur inn i
keppnina um þriðja sætið.
Þar tapaði Ilalldór gegn
þýskum keppanda með að-
eins 3 stigum (koka(, og
voru það einu stigin sem
skoruð voru á hann i þeim 6
viðureignum sem hann
glimdi á þessu sterka móti.
Bjarni Friðriksson keppti
í 95 kg.-flokki á sunnudag.
Hann sigraði einnig með
yfirburðum í sinum riðli og
lagði alla keppinauta á ipp-
on (10 stig). Bandaríkjamað-
ur varð annar i riðlinum. í
úrslitakeppninni tapaði
Bjarni fyrir hollenskum
keppanda og var þar með úr
leik. Sigurvegari í þessum
þyngdarflokki var Numann
frá Hollandi, sem varð þriðji
á ólympiuleikunum sl.
sumar.
Frammistaða þeirra Hall-
dórs og Bjarna verður að
teljast mjög góð í harðri
alþjóðlegri keppni sem þess-
ari.
12 ára stúlka setti glæsilegt met
Knattspyrna)
FRÁBÆR árangur náðist á
meistaramóti íslands i sundi
sem fram fór um siðustu helgi.
Ragnheiður v-þyzkur meistari
RAGNHEIÐUR Óiafsdóttir FH
hefur nýverið hlaupið tvö stór-
hlaup úti í Vestur-Þýzkalandi,
þar sem hún hefur dvalist við
æfingar frá því haustið 1979.
Varð hún vestur-þýzkur ungl-
ingameistari í 1500 metra
hlaupi innanhúss, og skömmu
seinna varð hún i þriðja sæti i
unglingameistaramóti V-Þýzka-
lands i viðavangshlaupi.
Árangur Ragnheiður er
framúrskarandi. Fyrr í vetur
hefur Mbl. skýrt frá þvi er
Ragnheiður varð héraðsmeist-
ari i Nord-Rhein-héraði á nýju
íslandsmeti i 1500 metra
hlaupi, og fyrir skömmu sögð-
um við frá því að hún væri bezt
v-þýzkra unglinga i 800 og 1500
metra hlaupum innanhúss.
Ragnheiður Ólafsdóttir varð
yfirburðasigurvegari á ungl-
ingameistaramótinu innanhúss,
að sögn Jóns Diðrikssonar
hlaupara úr UMSB, í spjalli við
Mbl. Jón, sem dvelst við nám í
Köln, sagði einnig að þegar um
200 metrar hefðu verið eftir af
víðavangshlaupinu, hefði Ragn-
heiður verið 50 til 60 metrum á
undan næstu keppendum og allt
stefnt í stórsigur hennar. Hefði
hún þá fengið skyndilegan
krampa í kálfa og orðið að
valhoppa í markið og orðið að
gera sér að góðu þriðja sætið, því
tvær stúlkur hefðu skotist fram
úr henni eftir óhappið. Jón sagði,
að til allrar Guðs lukku hefði
Ragnheiður sloppið við meiðsl
þrátt fyrir krampann og æfði
hún af fullum krafti. Jón sagði,
að fátt gæti komið í veg fyrir að
Ragnheiður ynni stórafrek á
hlaupabrautinni í sumar.
Jón sagðist sjálfur æfa af
kostgæfni, og er hann á förum í
æfingabúðir með hópi af fremstu
hlaupurum V-Þjóðverja, þar sem
hann dvelst út apríl. Jón hyggst
keppa í sínu fyrsta brautar-
hlaupi í maíbyrjun í Bonn, en
hann keppir fyrir félag þar í
borg.
Alls voru sett níu islensk met
eða um metjöfnun var að ræða.
Ung stúlka, Guðrún Fema Ág-
ústsdóttir. vakti mikla athygíi
á mótinu, hún er aðeins 12 ára
gömul, en engu að síður setti
hún nýtt íslandsmet, telpnamet
og stúlknamet i 100 m bringu-
sundi. Synti vegalengdina á
1.17,5 mín. Glæsilegur árang-
ur.Þá var millitími hennar í 50
metrunum 34,4 sek, nýtt ís-
landsmet. Guðrún setti líka
telpnamet í 200 m bringusundi.
Félagarnir frá Akranesi, þeir
Ingólfur Gissurarson og Ingi Þór
Jónsson voru iðnir við kolann og
settu mörg met. Ingólfur Gissur-
arson jafnaði islandsmet Guð-
jóns Guðmundssonar í 200 m
bringusundi 2.27,9 mín. Mjög
góður árangur. Þá setti hann
met í 100 m bringusundi, 1.08,3
mín. í sama sundi setti hann met
í 50 m, 31,6 sek. Ingólfur setti
lika met í 400 m fjórsundi 4.43,2
mín. í sama sundi synti hann 50
m baksund á 29,1 sek sem er nýtt
met. Þá var hann í sveit ÍA í
4x100 m boðsundi sem setti met
4.16,1 mín.
Ingi Þór Jónsson setti þrjú
met: I 100 m skriðsundi 53,6 sek.
50 m. flugsundi 27,8 sek og 100 m
baksundi 1.03,0 mín. Miklar
framfarir eru greinilegar hjá
sundfólkinu.
- þr
Ragnheiður Ólaísdóttir er i
stöðugri framför.
Frjðlsar Iþrútttr
Ingi Þór Jónsson setti þrjú ný met.
i < '■ * ■ ■
; /J *
v: ■
■f'.'T t
mn v. ■ /