Morgunblaðið - 07.04.1981, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
• Týr varð Vestmannaeyjameistari i handknattleik 1981. Tveir leikir
voru milii Eyjaliðanna Týs og Þóra. jafntefli varð í þeim fyrri. 16—1,
en Týr sigraði með yfirburðum i þeim siðari, 23—13. Mikil aðsókn er
að jafnaði að innbyrðisleikjum Eyjaliöanna og að þessu sinni gáfu
liðin allan aðgangseyrinn til kaupa á mjðg fullkomnu þrekþjálfunar-
tæki sem komið verður fyrir i íþróttamiðstoð þeirra Eyjamanna.
óli Pétur Sveinsson. Ijósmyndari, tók þessa mynd af Eyjameisturum
Týs. Aftari röð f.v.: Ingibergur Einarsson (liðsstjóri), Halidór
Hallgrímsson, Erlendur Bogason, Logi Sæmundsson, Magnús Þor-
steinsson, ólafur Lárusson. fremri röð f.v.: Kári Þorleifsson, Sigurlás
Þorleifsson, Jón Bragi Arnarsson, Jens Einarsson (þjálfari), Þorvarð-
ur Þorvaldsson, Davið Guðmundsson. Á myndina vantar Valþór
Sigþórsson.
Austur-Þjóðverjar
unnu heppnissigur
AUSTUR-ÞJÓÐVERJAR áttu í
miklum vandræðum með að sigra
Moltuhua i undankeppni HM um
helgina. Þeir höfðu það þó af að
sigra, en naumt var það. Lokatöl-
ur urðu 2—1 og voru öll mörkin
skoruð í fyrri háifleik.
Möltubúar náðu forystunni
snemma í leiknum með marki
Emanuel Fabri, en Þjóðverjum
tókst að svara fyrir hlé með
mörkum þeirra Rudiger Schnup-
hase og Reinardt Hafner. Þjóð-
verjarnir áttu síðan í vök að
verjast í síðari hálfleiknum, en
Möltubúum tókst þó ekki að jafna
5000 áhorfendum til sárra von-
brigöa.
HK leikur í 1. deild
— sigraöi lið ÍR í gærkvöldi 18—15
LIÐ HK úr Kópavogi tryggði sér
sæti í 1. deild næsta keppnistima-
bil. i gærkvöldi er liðið sigraði ÍR
að Varmá í Mosfellssveit með 18
mörkum gegn 15. HK hafði ör-
ugga forystu i hálfleik 11 mörk
gegn 5. HK hlaut 18 stig i 2. deild
jafnmörg stig og lið KA frá
Akureyri. Bæði liðin leika því í 1.
deild næsta keppnistimabil.
Það var mikil stemming að Varmá
í gærkvöldi. íþróttahúsið var fullt
áhorfenda sem hvöttu liðin ákaft í
hinum mikilvæga leik. Hefði lið
ÍR sigrað í leiknum hefði 1.
deildar sætið verið þeirra. HK
byrjaði leikinn af miklurn krafti
og náði frumkvæðinu. Eftir 15.
mínútna leik var staðan 4—2,
þeim í hag. Sex mörk skildu liðin
af í hálfleik. í síðari hálfleik gekk
HK afar illa fyrstu 12. mínútur
hálfleiksins og skoruðu þá ekkert
mark. IR-ingar minnkuðu hins-
vegar munin niður í eitt mark
11—10. Þá tóku leikmenn HK
aftur við sér og lið ÍR náði aldrei
að jafna í leiknum. Það var fyrst
og fremst stórgóð markvarsla
Einars Þorvarðarsonar í leiknum
sem skóp sigur HK. Einar varði 16
skot í leiknum þar af eitt víti. Þá
var varnarleikur HK mjög sterk-
ur. Besti útileikmaður HK var
Hilmar Sigurgíslason. Þá átti
Ragnar Ólafsson góðan leik. Hjá
ÍR áttu Guðmundur Þórðarson,
Bjarni Bessason og Sigurður
Svavarsson bestan leik.
Mörk HK: Hilmar Sigurgíslason 6,
Ragnar Ólafsson 5 3v, Kristinn
Ólafsson 4, Sigurður Sveinsson 3.
Mörk ÍR: Sigurður Svavarsson 4,
Bjarni Bessason 4, Bjarni Hákon-
arson 3 2v, Guðmundur Þórðarson
3, Brynjólfur Markússon 1. — þr.
Sigur gegn Wales
í körfuknattleik
( HandlmatllelKiiP
Góður sigur Lokeren
— en Standard fékk slæman skell
ÍSLENSKA landsliðið i körfu-
knattleik sigraði landslið Waies i
ærkvöldi með 101 stigi gegn 66.
hálfleik var staðan 39—27 fyrir
ísland. íslenska landsliðið lék
allvel og sigraði örugglega.
Stigahæstir i liðinu voru þeir
Pétur Guðmundsson með 25 stig,
Torfi Magnússon með 17, Krist-
ján Magnússon 11, og Valur
Ingimundarson með 10. —þr.
Kðrtuknaltielkur
ÞAÐ GEKK á ýmsu hjá Standard
og Lokeren i belgísku deilda-
keppninni i knattspyrnu um
helgina. Ásgeir og félagar töp-
uðu 0—2 úti gegn Molenbeek, en
Lokeren vann hins vegar góðan
sigur á heimavelli gegn FC
Brugge. Úrslit leikja urðu sem
hér segir:
Molenbeek — Standard 2—0
Lierse — Beveren 2—2
Beringen — Waterschei 0—1
Kortrijk — AA Ghent 4—2
Beerschot — Waregem 3—0
FC Liege — Anderlecht 1—1
Lokeren — FC Brugge 3—1
Cercle Brugge — Antwerp 0—0
Anderlecht hefur þegar tryggt
sér sigur í belgísku deildinni,
hefur liðið 47 stig, eða 9 stigum
meira en næsta lið, Beveren með
sín 38 stig. Lokeren er í þriðja
sætinu með 36 stig, 3 stigum
meira en Standard sem er í fjórða
sætinu með 30 stig.
Skíðaaönquskóli Morqunblaðsins
• Mjöjj víða eru marKar göngur skipulagðar fyrir fólk á öllum aldri, bæði keppnismenn og aðra. Elsta og kunnasta gangan er
Birkibeinagangan í Noregi. Gönguleiðin er 56 km löng og hefst annað hvert ár í Lillehammer og Rena.
• I>ú getur haft það fyrir takmark að vinna til mismunandi merkja fyrir þátttöku í göngum.
• Á einum vetri er hægt að eignast mörg merki sem veitt eru fyrir mislangar göngur og tíma. Skíðasambandið gefur slík merki fyrir
þátttöku.
'i