Morgunblaðið - 07.04.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1981
23
• Sigursælir keppendur á íslandsmótinu i badminton sem fram fór á
Akranesi. Frá vinstri: Kristin Mannúsdóttir. isl.meistari i einliðaleik
kvenna. Broddi Kristjánsson, ísl.meistari i einliðaleik karla. Jóhann
Kjartansson og Kristin Berglind, sigurvegarar í tvenndarleik.
Jafnframt léku þau til úrslita við þau fyrrnefndu i einliðaleiknum.
AZ-67 tapaði stigi
AZ’67 Alkmaar mátti sætta sig
við jafntefli. 0—0, gegn neðsta
liðinu i 1. deildarkeppninni i
holiensku knattspyrnunni um
helgina. Var það annað stigið
sem Alkmaar tapar á þessu
keppnistímabili. Feyenoord tap-
aði 0—1 á heimavelli, en Feyen-
oord lék án fjögurra fastamanna.
m.a. þeirra Rene Notten, Ben
Reykjavíkurmótið
Leikjum
frestað
Reykjavikurmótið i knatt-
spyrnu átti að hef jast i gærkvöldi
með leik Vals og Þróttar á
Melavellinum. En þar sem völlur-
inn var mjög slæmur var leiknum
frestað. Leik Fylkis og Þróttar
sem fara atti fram i kvöld er líka
frestað um óákveðinn tíma.
Wijnstekers og Péturs Péturs-
sonar. Úrslit leikja urðu sem hér
segir.
GAE Deventer — Roda JC 5—1
FC Utrecht — Wageningen 5—0
Willem 2. — Nac Breda 2—2
Feyenoord — PSV Eindhoven 0—1
Maastricht — Groningen 2—2
Ajax — Den Haag 2—0
Nec Nijmegen — Alkmaar 0—0
Pec Zwolle — Sparta 3—1
FC Tvente — Excelsior 0—1
Dick Schonaker og Frank Arne-
sen skoruðu mörk Ajax gegn Den
Haag. Willy Carbo (2), Ton De
Kruik, Koos Van Tameln og Joop
Wildtbred skoruðu mörk Utrecht
og Gran Rutgers skoraði sigur-
mark Excelsior gegn Tvente.
Alkmaar hefur tíu stiga forystu,
46 stig. Feyenoord heldur öðru
sætinu þrátt fyrir tap, hefur 36
stig, Utrecht hefur 34 stig, PSV 32
stig og Ajax 31 stig.
• Þrír fyrstu í Víðavangshlaupi Akureyrar. Frá vinstri Gunnar Páll
Jóakimsson. Mikko Háme, og Agúst Ásgeirsson.
• Þrjár fyrstu í kvennaflokki. Frá vinstri Laufey Kristjánsdóttir,
Valdís Hallgrimsdóttir, Linda Ólafsdóttir.
Mikko sigraði á Akureyri
Á laugardaginn fór fram Viða-
vangshlaup Akureyrar og var
það siðasta hlaup i svonefndum
stjörnuhlaupum sem hafa farið
fram í vetur. Á Akureyri var
keppt i 3 flokkum og var þátt-
taka með ágætum. Úrslit mótsins
urðu sem hér segir:
Karlaflokkur:
1. Mikko Háme ÍR 16.35
2. Ágúst Ásgeirsson ÍR 17:02
3. Gunnar P. Jóakimsson ÍR 17:06
4. Guómundur Sigurðsson UMSE 17:53
5. Einar Sigurðsson UBK 17:54
6. Magnús Haraldsson FH 18:26
7. Gunnar Birgisson ÍR 18:29
8. Friðgeir Sigurðsson UMSE 19:26
9. Benedikt Bjðrgvinsson UMSF. 20:12
10. Viggó Þórisson FH 21:52
Sveit ÍR sigraði í sveitakeppn-
inni, fékk 6 stig, og hlaut þar með
til varðveizlu bikar sem Bókabúð
Jónasar gaf til hlaupsins.
Kvennaflokkur:
1. Laufey Kristjánsdóttir HSÞ 9:36
2. Vaidfs Hallgrímsdóttir KA 10:50
3. Linda B. Ólafsdóttir FH 11:53
4. Þórunn Sigurðardóttir KA 12:16
5. Siffrún Marteinsdóttir KA 12:18
Sveit KA sigraði í sveitakeppn-
inni, fékk 11 stig, og hlaut þar með
til varðveizlu bikar sem verzlunin
Skart gaf til hlaupsins.
Piltaflokkur:
1. Viggó Þórisson FH 4:24
2. Kagnar Stefánsson UMSE 4:36
3. Árni Árnason UMSE 4:37
Meistaramót íslands í badminton
Engin óvænt úrslit, Broddi
og Kristín sigruóu örugglega
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í badminton fór fram á Akranesi um
siðustu helgi. Keppendur á mótinu voru um 80 talsins, langflestir frá
TBR. Alls fóru fram um 100 leikir á mótinu í heild. Mótið gekk allvel
fyrir sig og var framkvæmd þess góð.
íslandsmeistari i einliðaleik karla varð Broddi Kristjánsson. Hann
sigraði Jóhann Kjartansson mjög örugglega i úrslitaleiknum 15—2 og
17—16. Broddi hafði umtalsverða yfirburði. f síðari lotunni komst
Broddi í 8—2, en slakaði þá verulega á og kom sigrinum í höfn án
teljandi erfiðleika. Sá sem veitti Brodda hvað mesta keppni i mótinu
var Guðmundur Adolfsson er þeir mættust i undanúrslitunum.
Guðmundur sigraði 17—16 í fyrstu lotu. En Broddi í næstu tveimur
15-7 og 15-12.
fslandsmeistari i einliðaleik kvenna varð Kristín Magnúsdóttir.
Hún sigraði Kristinu Berglind í úrslitum. Fyrsta lota þeirra endaði
12—9 fyrir Kristinu Berglind en í næstu tveimur lotum sigraði
Kristin Magnúsdóttir örugglega og tryggði sér sigurinn. Þær lotur
enduðu 11—0, og 11—4. Það má þvi segja að engin óvænt úrslit hafi
átt sér stað á mótinu.
fslands
Kristin Magnúsdóttir.
meistari kvenna i einliðaleik.
Berglind þær Laufeyju Sigurðar-
dóttur og Ragnheiði Jónasdóttur
15-4 og 15-4.
í úrslitum í tvíliðaleik karla
mættu Jóhann og Broddi þeim
Guðmundi Adolfssyni og Sigurði
Kolbeinssyni og sigruðu 15—6,
10-15, 15-4.
Úrslit í tvenndarleik urðu þau
að Jóhann Kjartansson og Kristín
Berglind sigruðu Brodda og Krist-
ínu Magnúsdóttur 15—11, 12—15
og 15-11.
Úrslit í Öðlingaflokki
40 til 50 ára:
Til úrslita í einliðaleik léku
Reynir Þorsteinsson og Garðar
Alfonsson. Reynir sigraði 15—7 og
15—4. í tvíliðaleik í sama flokki
sigruðu Garðar Alfonsson og
Kjartan Magnússon Hæng Þor-
steinsson og Viðar Guðmundsson
15-12, 13-15 og 15-8.
í elsta flokki 50 ára og eldri
sigraði Ragnar Haraldsson Gísla
Bjarnason í einliðaleik 12—15,
15—12 og 15—4. í tvíliðaleik
sigruðu Gísli Guðlaugsson og
Ragnar Haraldsson Gísla Bjarna-
son og Einar Jónsson 15—10, en
fleiri lotur voru ekki leiknar. Gísli
Bjarnason meiddist á fæti og varð
að hætta keppni.
Úrslitaleikir mótsins urðu þess-
ir: f tvíliðaleik kvenna sigruðu
Kristín Magnúsdóttir og Kristín
Úrslit í A-flokki:
í einliðaleik karla sigraði Gunn
Broddi Kristjánsson, fslands-
meistari i einliðaleik karla.
ar Björnsson Ara Edwald 15—2 og
15—7. í einliðaleik kvenna sigraði
Elísabet Þórðardóttir Ingu Kjart-
ansdóttur 12—10 og 11—5. í tvílið-
aleik sigruðu Elín Bjarnadóttir og
Elísabet Þórðardóttir. Þær stöllur
sigruðu Ingu Kjartansdóttur og
Ingunni Viðarsdóttur 7—15, 15—
11 og 15-1.
í tvíliðaleik karla í A-flokki
sigruðu Ólafur Ingþórsson og
Gunnar Björnsson þá Atla Hauks-
son og Þorstein Þórðarson 8—15,
15-11 og 15-10.
Eins og áður sagði voru lang-
flestir keppendur frá TBR. Rafn
Viggósson formaður Badminton-
sambands íslands sagði i viðtali
við Mbl. að sér hefði ekki fundist
nægilega margir keppendur af
landsbyggðinni. Til dæmis frá
Selfossi og Hafnarfirði var enginn
keppandi.
— ÞR.
Tap og sigur hjá körfu-
knattleikslandslióinu
ÍSLENSKA landsliðið í körfu-
knattleik bæði tapaði og sigraði i
vináttulandsleikjum þeim sem
Bikarkeppni HSÍ
Víkingar
mæta
Fram
DREGIÐ heíur verið í
undanúrslituni í bik-
arkeppni HSÍ or leika
Víkingar Kej?n Fram
ok Þróttur gegn IIK.
Leikir liðanna fara
fram í LauKardalshöIl-
inni á fimmtudags-
kvöldið kl. 20.00.
Handknattieikur
það tók þátt í i Skotlandi um
helgina. Fyrsti leikurinn var
gegn enska landsliðinu sem
reyndar er skipað 6 „handarísk
um Englendingum”. eða Könum
sem fengið hafa enskan rikis-
borgararétt. Englarnir sigruðu
89—64, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 42—39. Lengst af var
leikur þessi i járnum. en er
islenska liðið missti bæði Torfa
Magnússon og Jón Sigurðsson út
af með fimm villur. hrundi leikur
liðsins og Englendingarnir sigr-
uðu örugglega. Pétur Guð-
mundsson skoraði mest fyrir ts-
land, 32 stig, Gunnar Þorvarðar-
son skoraði 8 stig og Ágúst
Lindal 7 stig.
Betur gekk gegn Noregi á
sunnudaginn og Norðmenn áttu
aldrei möguleika gegn jöfnu og
frísku íslensku liði. ísland sigraði
88—51, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 43—41. Norðmenn
skoruðu því aðeins tíu stig í síðari
hálfleik sem veit ekki á mikil
gæði.
íslenska liðið lék mjög vel að
þessu sinni, en stigahæstur var
Símon Ólafsson með 17 stig. Pétur
Guðmundsson og Jón Sigurðsson
skoruðu 14 stig hvor og Kristinn
Jörundsson 8 stig. Á morgun
mætir liðið belgíska landsliðinu í
Belgíu, en heldur síðan til Sviss
þar sem C-keppnin fer fljótlega
fram.
Knattspyrnufélagið Haukar
hyggst halda fyrirtækjakeppni í innanhúss-
knattspyrnu í Haukahúsinu v/Flatarhraun, ef næg
þátttaka fæst. Mótiö verður haldiö um páskana,
16,—20. apríl n.k. Þátttökugjald kr. 400.- Þátttaka
tilkynnist í Haukahúsinu, sími 53712, fyrir 14. apríl
nk.