Morgunblaðið - 07.04.1981, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
• Margrét reynir að brjótast í gegn en tekst ekki. LkWbi. R*x
Auðveldur sigur Þróttar
ÞRÓTTUR sigraði Aftureldingu
mjög örugglega i 8-iiða úrslitum
bikarkeppninnar i handknattleik
i íþróttahúsinu að Varmá á laug-
ardaginn. Lokatölur ieiksins
urðu 22—16, eftir að staðan i
hálfleik hafði verið 8—5.
Fyrri hálfleikurinn var lengst af
í járnum og lítið var skorað,
þannig var staðan 3—3 þegar 14
mínútur voru til leikhlés og 4—3
fyrir Þrótt er níu mínútur voru
eftir. En síðan tók 1. deildar
félagið að síga fram úr. Mest náði
liðið níu marka forystu, 19—10, er
langt var liðið á síðari hálfleik, en
lokakaflann tókst leikmönnum
UMFA að lagfæra stöðuna nokkuð
sér í hag.
Þróttarar voru slakir að þessu
sinni, en engu að síður var slíkur
gæðamunur á liðunum að miðl-
ungsliðið úr 2. deild náði aldrei að
veita liðinu nokkra keppni sem
heitið gat. Bestur hjá Þrótti var
markvörðurinn Sigurður Ragn-
arsson, sérstaklega varði hann vel
framan af. Sigurður Sveinsson var
í strangri gæslu nær allan leikinn
og virtist bera lítið á honum. Engu
að síður skoraði hann 9 mörk! Páll
Ólafsson var frekar skapstyggur
framan af, en tók sig saman í
andlitinu og var mjög drjúgur.
Sigurjón Eiríksson var atkvæða-
mestur hjá UMFA og Emil
markvörður stóð sig ágætlega.
Mörk UMFA: Sigurjón Eiríks-
son 6, 4 víti, Steinar Tómasson 4,
Þorvaldur Hreinsson 3, Þórður
Hjaltested 2 og Björn Bjarnason 1
mark.
Mörk Þróttar: Sigurður Sveins-
son 9, 3 víti, Páll Olafsson 7, Jón
Viðar Jónsson 3, Magnús Mar-
geirsson 2 og Einar Sveinsson eitt
mark. — gg.
Handknattlelkur
V- ............... v
íslensku stúlkurnar í
kennslustund hjá Noregi
SÍÐARI handknattlcikslandsleik
íslands og Noregs, vináttulands-
leiknum á sunnudaginn, lauk
eins og þeim fyrri, með öruggum
stórsigri norska liðsins. Ef nokk-
uð var, þá var íslenska liðið enn
grátt leiknara en i fyrri leiknum
og þótti mönnum þó þá nóg um.
Lokatölur á sunnudag urðu 27—
12 og var hreinlega um hand-
knattleikssýningu að ræða hjá
norsku stúlkunum, sem skoruðu
mörg mörk eftir frábærar leik-
fléttur. t hálfleik var staðan
13-5.
Liðsuppstilling íslenska liðsins í
byrjun leiksins vakti nokkra at-
hygli, Sigurbergur þjálfari hafði
þá á bekknum hjá sér flesta af
sterkustu leikmönnum sínum.
Hefur stefnan trúlega verið sú, að
leyfa öllum að vera með, en
umrædda leikmenn setti hann
ekki inn á fyrr en staðan var orðin
7—0 og sú veika von um að gera
aðeins betur en í fyrri leiknum
rokin út í veður og vind. Staðan
breyttist síðan í 10—1 og deginum
ljósara hvert stefndi. íslenska
liðið náði þó að svara fyrir sig
endrum og eins þegar líða tók á
leikinn, en fyrst og fremst mátti
liðið þó læra af mótherjum sínum,
enda sýndi norska liðið oft og
tíðum tilþrif sem sjást ekki einu
sinni til 1. deildar félaganna í
karlaflokki hér á landi.
Þær Guðríður Guðjónsdóttir og
Margrét Theodórsdóttir léku mjög
þokkalega fyrir íslenska liðið að
þessu sinni, sérstaklega í sókninni.
Gyða Úlfarsdóttir varði nokkuð
vel eftir atvikum í markinu og
Eiríka Víkingur stóð vel fyrir
sínu. Að öðru leyti var meðal-
mennskan ríkjandi.
Mörk íslands: Guðríður 5, Mar-
grét 4, 2 víti, Katrín, Eiríka og
Oddný eitt hver.
Sissel Bucholdt var markhæst í
norska liðinu með 6 mörk, Glosi-
mot og Rise skoruðu 4 mörk hvor,
en aðrir leikmenn minna.
Sænsku dómararnir tveir sem
sáu um landsleikina báða, dæmdu
afar illa, en það kom jafnt niður á
báðum liðunum. —gg
Norðmenn skoruðu níu í röð
ÞAÐ FÓR aldrei svo, að islenska
kvennalandsliðið i handknattleik
næði að standa i hinu norska, er
liðin áttust við í Ilafnarfirði á
laugardaginn. Var það siðari
viðureign liðanna i undankeppni
fyrir B-keppni HM. Norðmenn
unnu fyrri leikinn 17—9, en
lokatölurnar á Iaugardag urðu
20—10 fyrir Noreg, eftir að
staðan i hálfleik hafði verið
13-4.
Ýmislegt í byrjun leiksins lofaði
þó góðu fyrir framhaldið, Margrét
Theodórsdóttir skoraði fyrsta
mark leiksins og þó að norska liðið
svaraði með þremur mörkum, þá
var jafnt, 4—4, þegar 11 mínútur
voru liðnar af fyrri hálfleik. ís-
lenska liðið hafði að vísu sýnt
mikið óöryggi í varnarleiknum, en
það sem átti eftir að ganga yfir fór
fram úr svörtustu svartsýni. í
stuttu máli skoraði íslenska liðið
ekki eitt einasta mark síðustu 14
mínútur hálfleiksins, en fékk hins
vegar á sig 9 stykki! Því 13—4 í
hálfleik.
íslenska liðið skoraði tvö fyrstu
mörkin í síðari hálfleik, en síðan
gekk hvorki né rak, liðin skiptust
á að skora og Norðmenn gerðust æ
kærulausari, enda stórsigur í ör-
uggri höfn. Lokatölur urðu síðan
20—10 eins og áður sagði.
íslenska liðið náði sér aldrei á
skrið, enda var mótherjinn af allt
öðru sauðahúsi. Norsku stúlkurn-
ar léku þær íslensku oft afar
grátt, snerpa þeirra var svo miklu
meiri en hjá landanum, að með
ólíkindum var. Sem dæmi má
nefna Oddnýju Sigsteinsdóttur,
sem var rekin tvívegis af leikvelli
með nokkurra mínútna millibili,
einfaldlega vegna þess að hún
braut klaufalega af sér af fyrr-
greindum sökura. Þá tala 11 víta-
köst Norðmanna sínu máli, svo og
sjö brottrekstrar hjá íslenska lið-
inu. Þá var reginmunur á mark-
vörslunni, hún var mjög góð hjá
Norðmönnum frá upphafi til enda,
en afar slök hjá íslandi allt þar til
seint í leiknum, að Jóhanna Páls-
dóttir tók að verja vel um tíma,
þar af tvö víti. Annars var Mar-
grét Theodórsdóttir einna best í
íslenska liðinu.
Mörk íslands: Margrét Theo-
dórsdóttir 3, 1 víti, Guðríður
Guðjónsdóttir 2, 1 víti, Kristjana
Aradóttir 2, Erna Lúðvíksdóttir,
Ingunn Bernódusdóttir og Jó-
hanna Halldórsdóttir eitt hver.
Kristín Glosimot var marka-
hæst í norska liðinu með 6 mörk,
Tove Liberg skoraði 5 mörk. —gg.
• Akui
um 200
Líf og fjör var á skíðamóti
eldri kynslóöarinnar á Akureyri
Karlar, 35 — 40 ára
1. HafKteinn SÍKuróftnon I 95,42
2. Árni SÍKurðsKon í 101,92
3. Samúel (íÚKtaÍKHon I 102.66
4. Haukur Björnsson R 103,33
5. Reynir Brynjólfaaon A 104,44
6. MaxnÚK InxólísKon A 104,59
7. Bjorn Óisen R 105.95
8. Hlnrik IlermannKson R 108,10
9. tvar SÍKmundsson A 108,18
10. Höróur ÞórleifKaon A 113,78
Svlit karla. 41 ira o* eldri:
1. jóhann VilberifSKon R 59.97
2. Þorlikur SÍKurðsHon A 64.74
3. Gisli Braiti Hjartarson A 70,45
4. Þórir Lirusson R 73,68
5. Svanberif Þórðarson A 97.91
Karlar, 35—40 ira:
1. HafKteinn Slifurðsson 1 56,27
2. Samúel Gústafsson I 58.97
3. Árni Sigurðsson I 59,54
4. Maitnús Initólfsson A 60.36
5. Bjðrn Ólsen R 60.43
6. Reynir Brynjólfsson A 61.89
7. Ivar SÍKmundsson A 63,10
8. Haukur Björnsson R 63,71
9. Hörður Þórleifsson A 68,09
10. Ævar Guðmundsson A 83,71
11. lflnrik Hermannsson R 93,38
Konur:
m
• Hafsteinn Sigurðsson ísafirði sigraði í svigi og
stórsvigi á Akureyri um síðustu helgi. Ljósm. sor
ÞAÐ VAR mikið fjör i Hliðarfjalli við Akureyri um helgina þar sem
fram fór mót á vegum Skíðaráðs Akureyrar fyrir 35 ára og eldri.
Keppt var i stórsvigi á laugardaginn og svigi á sunnudaginn, í
dásamlega góðu veðri. Þarna voru saman komnir margir af þekktustu
skiðamónnum landsins hér i eina tið, og var greinilegt að menn höfðu
mjðg gaman af. Töluðu menn um hvað væri nú helv. gaman að þessu
og sögðust hittast aftur á næsta ári. Undirrituðum barst til eyrna að
þar sem „Andrésar andar-leikarnir“ eru fyrir börn, væri tilvaiið að
kalla þetta mót „Fetmúla festival".
Úrslitin (samanlagðir timar) urðu sem hér segir:
4. BraKÍ lljartarson A
5. Sveinn MaKnússon A
Konur:
1. Karólina Guðmundsdóttir A
2. BjörK FinnboKadóttir A
114.18
117.64
77.97
78.49
StórnvÍK karla, 41 irH ok eldri:
1. Jóhann VilberKHKon R
2. SvanberK Þórðarson A
3. Þorlikur SÍKurÓKHon A
97.79
103.51
106.10
• Ánægðir keppendur að loknu mótinu á Akureyri fyrir 35 ára og eldri.
1. BjörK FinnboKadóttir A 86.64
2. Karólína Guðmundsdóttir A 97,02
3. Kolbrún Geirsdóttir A 135,10
Keppendur fra ísafirði og þjálfari