Morgunblaðið - 07.04.1981, Side 28
28'-
MORGUNBLAÐIÐ, ÞttfÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
Ipswich tapaði enn
- og Villa skaust nú upp fyrir liðið
Palace féll endanlega W-Ham öruggt
»»
• Hart er nú barist um sæti þau i 2. deild sem gefa sæti i 1. deild að hausti. Hér er eitt þeirra liða sem
eru köiluð að þessu sinni, hvort það verður útvalið þegar upp verður staðið leiðir timinn í ljós. Þetta er
Sheffield Wednesday.
ASTON Villa ætlar sér greini-
iega ekkert annað en ensku
meistaratignina, en á laugar-
daginn náði liðið forystu i
keppninni er það gersigraði
Leicester á sama tíma og Ips-
wich tapaði þriðja leik sínum á
skömmum tima. Margir af
fastamönnum Ipswich eiga við
meiðsli að striða og virðist
eitthvað vera farið að hrikta i
stoðunum hjá félaginu. Villa
virðist hins vegar eflast með
viku hvcrri og félagið hefur
verið blessunarlega laust við að
missa lykilmenn á sjúkralist-
ann. Villa tók Leicester i
kennslustund á Filbert Street i
Leicester. Steve Lynes náði
reyndar forystunni fyrir Lei-
cester, en þeir Des Bremner og
Peter Withe svöruðu með tveim-
ur mörkum. Enn jafnaði Lynes
fyrir leikhlé, en i siðari hálfleik
átti lið Leicester ekkert svar og
þeir Withe og Tony Morley
bættu mörkum við. öruggur
sigur var i höfn. Úrslit leikja
urðu annars sem hér segir:
Birmingham — Middlesbr. 2—1
Brighton — Arsenal 0—1
Leeds — Coventry 3—0
Leicester — Aston Villa 2—4
Manch. Utd. — Cr. Palace 1—0
Norwich — Manch. City 2—0
Southampt. — Nott. Forest 2—0
Sunderiand — Wolves 0—1
Tottenham — Everton 2—2
West Bromwich — Ipswich 3—1
Lið Ipswich
virtist þreytt
WBA vann Ipswich með at-
hyglisverðum yfirburðum og var
það þriðji tapleikur Ipswich i
fjórum síðustu leikjum liðsins.
Ally Brown náði forystunni fyrir
WBA á 8. mínútu, en Alan Brazil
jafnaði metin skömmu síðar.
Rétt fyrir hlé skoraði bakvörður-
inn Brendan Batson glæsilegt
1. DEILD
Aston Villa .16 23 7 6 64 35 53
IpHwich Town .16 21 10 5 71 31 52
We*t Bntmwlrh .17 17 11 8 5.136 47
Southampton 38 19 8 11 70 50 46
Livcrpool 35 1514 6 58.38 44
Nottintch. Forcst 37 17 10 10 57 40 44
Arwnal 37 1514 8 52 42 44
Tottrnh. Hota. 37 1113 10 6158 41
Manrh. Unltnl .18 11 18 9 45 .15 40
LwIh línitrd .17 16 7 14 37 45 .19
BirminKh. City 37 1311 134851 37
ManrhrHt.T City 37 12 10 15 49 54 34
Stoke Clty 37 9 16 12 42 55 34
MiddleahrouKh 36 14 5 17 18 50 33
Everton 36 12 8 16 19 50 32
Wolverhampton 36 12 816.18 46 32
Sunderland 37 12 7 18 16 47 31
Coventry Clty 37 11 818 1363 30
BrÍKhton 37 10 7 20 45 64 27
Norwlch City 37 10 7 20 41 67 27
Irfirester Clty 38 11 5 22 33 61 27
CryHtal Palaee 37 5 6 26 40 72 16
2. DEILD
Weat llara .16 23 9 4 67 28 55
NottaCounty 35 15 14 6.19.12 44
Swanaea Clty 36 15 11 10 52 38 41
GrimshyTown 36 14 13 9 39 29 41
Blarkb. líoverH .16 13 15 8 37 29 41
Shefí. Wednend 35 16 8 11 46 37 40
Queenn P. HanK. 37 14 11 12 48 37 39
Luton Town 36 14 11 11 49 42 39
Derhy County 37 13 1311 50 48 39
Chelaea 37 14 10 134634 38
CarabridKe Unit. 36 16 6 14 45 49 38
Orlent 37 131014 48 46.16
Newcaatle Unit. .16 12 12 12 24 37 .16
Watlord 36 1210 14 42 41 34
Bolton Wand. 37 13 717 56 59 33
Oldham Athletir 37 10 13 14 35 45 33
Shrewab. Town 37 9 14 14 37 41 32
Wrexham 35 10 12 13 33 38 32
Cardllf Clty 36 11 9 16 39 53 31
Preaton 36 8 12 16 33 56 28
Brlatol Clty 37 6 14 17 25 45 26
Brlatol Rovers 37 5 12 20 31 57 22
skallamark, fyrsta mark hans á
þessu keppnistímabili, og náði
WBA þar með forystunni. Síðari
hálfleikur var síðan vart hafinn,
er Peter Barnes bætti við þriðja
marki WBA. Hafði liðið nokkra
yfirburði og ógnaði Ipswich
aldrei sigrinum úr því sem
komið var.
Barist um
UEFA-sætin
Southampton náði sér vel á
strik og lék Forest sundur og
saman langtímum saman. Kevin
Keegan skoraði fyrra mark
Southampton strax á 18. mínútu
leiksins, en Mick Channon bætti
öðru marki við á 39. mínútu. Var
það fyrsta mark sem Channon
skorar í einar tíu vikur eða svo.
Framherjar Southampton fóru
illa með nokkur góð tækifæri
önnur.
Tottenham gekk ekkert í hag-
inn í fyrri hálfleiknum gegn
Everton, sem hafði tapað sex
leikjum í röð, fram að laugar-
deginum. Asa Hartford lék með
Everton á ný eftir nokkuð lang-
varandi meiðsl og hann skoraði
fyrra mark Everton og átti síðan
mikinn þátt í öðru markinu sem
Imre Varadi skoraði. Argentínu-
maðurinn Ricardo Villa kom inn
á sem varamaður í síðari hálf-
leik og breyttist allur leikur
Tottenham um leið mikið til hins
betra. Garth Crookes minnkaði
muninn og síðan jafnaði Tony
Galvin metin.
Aðrir leikir
Brighton sogaðist í enn meiri
fallhættu er liðið tapaði á
heimavelli sínum gegn Arsenal.
John Hollins lék sinn fyrsta leik
í 6 vikur og skoraði sigurmarkið
á 34. mínútu. Leikurinn þótti
afspyrnuslakur,-
Palace féll endanlega á laug-
ardaginn er liðið tapaði 0—1 á
Old Trafford í Manchester. Uni-
ted hafði mikla yfirburði í leikn-
um, en þó kom sigurmarkið ekki
fyrr en á 74. mínútú, er Mike
Duxbury skoraði. United hefur
nú tekið átta stig af síðustu tíu
mögulegum og sýnt allt aðra og
betri knattspyrnu heldur en fyrr
í vetur. Svo illa hafa meiðsl
Ieikmanna komið niður á
Manchester-liðinu í vetur, að
aðeins tveir leikmanna liðsins,
þeir Arthur Albiston og Steve
Coppell, hafa leikið alla leiki
vetrarins.
Leeds vann annan stórsigur
sinn í röð, nú var það Coventry
sem fékk 3—0 skell. Þetta var
sjöundi tapleikur Coventry í röð
og er liðið í alvarlegri fallhættu.
Byron Stevenson skoraði fyrsta
• Peter Withe skoraði tvivegis
um helgina.
markið og eina mark fyrri hálf-
leiks meö fallegu langskoti á 23.
mínútu leiksins. Yfirburðir
Leeds voru miklir og í síðari
hálfleik bættu þeir Derek Par-
lane og Brian Flynn hvor sínu
markinu við.
Sunderland er einnig í tölu-
verðri fallhættu og ekki batnaði
staða liðsins við tapið gegn
Wolverhampton. Ekkert var
skorað í fyrri hálfleik, en þá
hafði heimaliðið mikla yfirburði.
Hins vegar skoraði Andy Gray
sigurmark Úlfanna rétt fyrir
leikslok, eftir að hafa komið inn
á sem varamaður nokkru áður.
Norwich bætti stöðu sína mik-
ið með því að sigra Manchester
City af öryggi. MC virðist ekki
Ieggja mikið á sig þessa dagana,
eða eftir að liðið komst í undan-
úrslit bikarkeppninnar. Nú fara
leikmenn liðsins sér hægt, því
enginn vill missa af bikarleikn-
um vegna meiðsla. Norwich
skoraði bæði mörkin í fyrri
hálfleik, fyrst skoraði Mark Bar-
ham á 13. mínútu og síðan bætti
John McDowell síðara markinu
við úr vítaspyrnu.
Loks má geta sigurs Birming-
ham gegn Middlesbrough. Það
voru fastir iiðir eins og venju-
lega hjá Boro, að tapa á útivelli.
En leikurinn þótti æsispennandi
og vel leikinn af hálfu beggja
liða. Kevin Broadhurst skoraði
sigurmark Birmingham á 72.
mínútu, eftir að Tony Evans
hafði náð forystunni fyrir liðið,
en Charlie Bell jafnað. Nokkru
áður en Broadhurst skoraði
mark sitt endaði stórsókn ein
hjá Boro með því að Charlie
þessi Bell spyrnti firnafast í
þverslá Birmingham-marksins.
Slapp heimaliðið þar naumlega
fyrir horn.
2. dcild:
Bristol C. 3 (Hay, Mann, Mabb-
utt) — Orient 1 (Jennings)
Cambridge 2 (Fallon, O’NeiI) —
Bolton 3 (Reid, Nicolik, What-
more)
Chelsea 0 — Cardiff 1 (Stevens)
Preston 1 (Bruce) — Oldham 2
(Atkinson, Wylde)
QPR 1 (Francis) — Grimsby 0
Sheffield Wed. 3 (Curran 2,
Mirocevic) — Luton 1 (Ingram)
Shrewsbury 1 (King) — Derby 0
Swansea 2 (Stevenson, L. James)
— Blackburn 0
Watford 0 — Newcastle 0
West Ham 2 (Pike, Goddard) —
Bristol Rovers 0
Með sigri sínum tryggði West
Ham sér endanlega sæti í 1.
deild næsta keppnistímabil. Yf-
irburðir WH hafa verið miklir í
2. deildinni að þessu 9Ínni og ef
litið er á stöðuna, þá má sjá, að
liðið hefur nú tíu stiga forystu í
deildinni.
Knatt-
spyrnu-
úrslit
Þýskaland.
Engin breyting varð á toppi
vestur-þýsku dcildarkeppn-
inar i knattspyrnu um helg-
ina, þar sem bæði Ilamburg-
cr SV og Baycrn Munchen
sigruðu i leikjum sinum um
helgina. HSV sigraði For-
tuna Dusseldorf i spennandi
leik og Bayern sigraði Boch-
um örugglega á útivelli. Atli
Eðvaldsson og íélagar hans
hjá Borussia Dortmund sigr-
uðu 1860 Munchen á útivelli
og skoraði Manny Burgsm-
ullcr sigurmarkið i siðari
háifleik. En úrslit urðu ann-
ars sem hér segir:
Duiaburg — B. Uerdingen 3—2
Bochum — Bayern Munchen 1—3
Nurnberg — B. Mönchengl. 2—0
Karlaruhe — FC Köln 1—1
B. Leverk. — Arm. Bielefeldt 2—0
Stuttgart — Schalke 04 3—0
Hamb. SV — Fort. Dusaeld. 2—1
1860 Munchen — B. Dortm. 0—1
Það var Ivan Buljan sem skor-
aði sigurmark HSV er aðeins
tvær minútur voru til leiksloka,
en aðeins tveimur mínútum áður
hafði Jakobs skorað sjálfsmark
og jafnað metin fyrir Duaseldorf.
Fyrata mark leiksins og fyrra
mark HSV akoraði hins vegar
Willy Reiman á 75. mínútu. Ba-
yern lék Bochum sundur og sam-
an, en það var engu að aíður
heimaliðið sem náði óvænt for-
y8tunni í leiknum með marki
Tenhagen. Dieter Höness (2) og
Udo Horsman skoruðu mörk Ba-
yern.
Förster, Allgower og Tuf-
ecky skoruðu mörk Stuttgart
gegn Schalke 04 og þeir
Gelsdorf og ökland skoruðu
mörk Leverkusen gegn Biele-
feldt. Bierelorzer skoraði
fyrra mark Nurnberg gegn
Borussia Mönchengladbach
og síðara markið var sjálfs-
mark Henness. í leik Karls-
ruhe og Kölnar náði Engels
forystunni fyrir Köln, en
síðan var Englendingurinn
Tony Woodcock rekinn af
leikvelli og skömmu síðar
jafnaði Karlsruhe með marki
Rudiger Bold.
Tveir leikir fóru fram í
þýsku bikarkeppninni, Kais-
erslautern sigraði Eintrakt
Braunschweig 3—2 og Ein-
trakt Frankfurt sigraði
Herhta Berlín 1—0.
HSV hefur nú 41 stig,
Bayern hefur 39 stig og
Kaiserslautern og Stuttgart
hafa 33 stig hvort félag.
Frankfurt hefur 32 stig og
síðan koma Dortmund og
Köln með 29 stig hvort félag.
Skotland
Celtlc
Aberdccn
RanKcrn
Dundcc Unltcd
St. Mirrcn
Airdrlc
Partlck Thlstlc
Morton
llcarts
Kilmarnock
31 23 3 5 77 31 19
31 17 9 5 57 24 43
31 14 10 7 54 30 38
31 15 8 8 57 34 38
31 14 8 9 4612 36
32 9 914 31 44 27
31 9 9 13 26 40 27
32 9 7 16 32 53 25
32 15 6 21 24 63 16
32 4 7 20 21 63 15
Góður
sigur ÍA
Boltinn er heldur betur farinn að
rúlla og um helgina fóru fram
tveir lcikir i Litlu Bikarkeppn-
inni i knattspyrnu. Skagamenn
sigruðu Hauka 2—0 á Kapla-
krikavelli með mörkum Ástvalds
Jóhannessonar og Guðbjörns
Tryggvasonar, en í Kópavogi
skildu lið UBK og ÍBK jöfn, 1 — 1
og jafnaði nýi leikmaður IJBK,
Jón Einarsson, metin fyrir lið
sitt. Þá fór fram einn athyglis-
verður æfingarlcikur um helg-
ina, Víkingur sigraði Fram 4—2.