Morgunblaðið - 07.04.1981, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRIL 1981
37
Landakaupasjóður kaupstaða
Fram hefur verið lagt stjórnar-
frumvarp um Landakaupasjóð
kaupstaða og kauptúna. Tilgangur
sjóðsins er að veita þessum sveit-
arfélögum lán til að kaupa land
innan marka þeirra, enda telji
sveitarstjórn nauðsyn á að eignast
landið vegna almennra þarfa og
ráðuneytið fallist á það sjónarmið.
Sjóðurinn skal vera í vörzlu fé-
lagsmálaráðuneytis og ráðstöfun-
arfé hans skal vera: 1) Fé það sem
fyrir er í sjóði samkvæmt lögum
nr. 41/1963. 2) Lán sem sjóðurinn
tekur. 3) Afborganir og vextir af
veittum lánum. Ríkisstjórn skal
heimilt að taka lán vegna sjóðsins
svo að hann geti gegnt hlutverki
sínu, hinsvegar fellur niður sú
núverandi kvöð ríkissjóðs að
leggja árlega fram kr. 10 m. nýkr.
til slíkra landakaupa.
Ginstök lán mega nema allt að
60% af kaupverði lands. Kjör á
útiánum skuiu vera í samræmi við
útlánakjör fjárfestingarsjóða á
hverjum tíma.
Kahrs parket á gólfið
Tónleikar Clark Terry
Clark Terry hélt á föstudagskvöld í Reykjavík tónleika á
vegum Djassvakningar ásamt 18 manna hljómsveit sinni. Var
listamönnunum vel fagnað, en fjölmenni var í Háskólahíói.
Eru þetta einu tónleikar Clark Terry hérlendis, en hann er að
koma úr hljómleikaferð um Evrópu og er á leið til
Bandaríkjanna.
fellsvirkjunar frá ÍSAL nema 56%
af öllum rekstrarkostnaði hennar
frá því hún hóf rekstur, auk
kostnaðar af lánagreiðslum. A
tímabilinu frá þyí 1969 til 1994
munu tekjur frá ISAL gera meir
en greiða upp allan kostnað við
Búrfellsvirkjun. Þrátt fyrir þetta
má endalaust deila um orkuverð,
en hafa verður í hyggju, þegar um
það mál er fjallað, að sú orku-
kreppa sem síðar varð í heiminum
var ekki komin til þegar upphaf-
lega var samið um orkuverð til
álversins, sem síðan hefur breytzt.
Þorvaldur sagði að afstaða Al-
þýðubandalagsins til orkufreks
iðnaðar minnti á hindurvitni og
hjátrú og þau fyrirbæri í þjóðsög-
um sem nátttröll heiti, sem hljóti
að daga uppi í dagsbrún komandi
tíma.
Hann lagði áherzlu á samstöðu í
þessu máli, minnti á að Sjálfstæð-
isflokkurinn stendur heill að þessu
frumvarpi, jafnt þeir sem styðja
ríkisstjórnina og þeir sem eru í
stjórnarandstöðu. Alþýðuflokkur-
inn er sammála meginstefnu
frumvarpsins og orð Tómasar
Árnasonar, viðskiptaráðherra, í
þessari umræðu falla í sama
farveg. Ég skora á hæstvirtan
iðnaðarráðherra að halda með
djörfung á þessum mikilvæga
málaflokki en láta ekki úrtölur
ráða ferð.
Vert er að minnast þess að
laxveiðin í öllum heiminum er
ekkert ýkja mikil, nema þá af
Kyrrahafslaxi, en af honum eru
veidd árlega tæp 500 þúsund tonn.
Ársveiðin af Atlantshafslaxinum
— sem jafnan hefur reynst miklu
verðmeiri fiskur — er ekki nema
um 15 þúsund tonn af villtum laxi.
Það er því engin smávegis viðbót,
sem bara kemur frá Noregi á
næstu árum, hvað þá þegar fleiri
þjóðir bætast við í framleiðslu á
sjóeldislaxi. Þetta gæti þýtt mikið
verðfall á laxinum.
Þegar þessar staðreyndir eru
skoðaðar nánar fer ekki hjá því að
sú skoðun hlýtur að verða ríkjandi
hjá allflestum, er um mál þessi
fjalla og undirbúa framkvæmdir í
þeim, að við íslendingar eigum að
geta annast framkvæmd þessara
mála sjálfir. Við eigum að forðast
að leiða erlend öfl inná yfirráða-
svæði okkar í þessum efnum en
kappkosta að búa sjálfir að
okkar hag í fiskiræktar- og fisk-
cldismálum og þá ekki hvað sizt i
sjóeldi á laxi. Auðvitað eigum við
að tileinka okkur þekkingu, kunn-
áttu og reynslu þeirra, sem málum
þessum eru kunnugastir og á þann
hátt reyna að sneiða hjá þeim
byrjunarörðugleikum, sem aðrir
hafa orðið fyrir. Við megum miklu
síður — smáþjóðin — verða fyrir
slíkum áföllum en hinar stóru og
ríku.
En -gullkistuna" okkar —
aðstæðurnar og möguleikana til
að gera sjóeldi á laxi að miklum
og lifvænlegum atvinnuvegi,
megum við alls ekki selja eða
lána, heidur opna hana til góðs
fyrir sem flesta i okkar góða
landi, fslandi.
iðnaðar. Þau atvinnutækifæri,
sem þangað verða sótt, eru veiga-
miklir híekkir í þeirri keðju at-
vinnuöryggis og aukinna þjóðar-
tekna (bættra lífskjara), sem við
viljum stefna að á næstu árum og
áratugum. Reynslan af álveri og
járnblendiverksmiðju hefur gert
fyrri hrakspár þeirra Alþýðu-
bandalagsmanna að engu og vel
megum við muna að Búrfellsvirkj-
un væri enn ekki risin ef álverið
hefði ekki komið til. Tekjur Búr-
Bygging
GOODpYEAR
viftureimarinnar
1. Efsti burðarvefur reimarinnar, sem blandaður er gúmmíi,
hefur viðnám gegn olíu, ozoni og polychloropreni, sem
dregur mjög úr liðunarþreytu og útilokar sprungur.
2. Afar slerkur polyesterþráður með mikið teygjuviðnám
tryggir vörn gegn skyndilegu alagi, gerir endurstrekkingu
óþarfa og gerir kleift að nota litlar reiinskífur.
3. Trefjablönduð einangrun eykur stöðugleika relmarinnar.
4. Þriggja laga vefur, sem hefur rafleiðni og er blandaður poly-
chloropreni, gerir reimina einkar stöðuga og veitir vörn gegn
sliti og sprungum, jafnvel þött notuð séu strekkingarhjol.
HEILDSALA - SMÁSALA
IHIHEKLAHF
I Laugavegi 170 -172 Sími 21240
GOODfÝEAH
viftureimar
í sérflokki
ódýrar og sterkar
Þurfir þú
nýja reim er
auðvelt að
finna
stærðina.
Þu kemur með
þá ónýtu
Við mælum hana
Stærðin ákvörðuð
Eða afgreidd eftir
ntimeri
Ný reim afhent