Morgunblaðið - 07.04.1981, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
39
Anna Kvaran
Schiöth - Minning
Fædd 5. október 1909.
Dáin 15. marz 1981.
Anna Eva Catherina, eins og
hún hét fullu nafni, var dóttir
sæmdarhjónanna Axels Schiöth,
bakarameistara á Akureyri, og
konu hans Margrethe, fædd Friis,
frá Vejen í Danmörku. Anna ólst
upp á Akureyri, nánar tiltekið í
Hafnarstræti 23 í glöðum syst-
kinahópi við nám, leiki og störf, að
þeirrar tíðar hætti. Hún lauk
námi frá Gagnfræðaskólanum
(seinna Menntaskóli) og dvaldist
eftir það í Danmörku um hríð.
Eftir heimkomuna vann Anna á
símstöðinni á Akureyri til ársins
1931, að hún giftist eftirlifandi
manni sínum Ágúst Kvaran leik-
ara og leikstjóra, er þá var nýlega
fluttur til Ákureyrar, var gull-
brúðkaup þeirra hjóna 13. marz sl.
Börn þeirra urðu tvö, Axel,
forstöðumaður í Reykjavík,
kvæntur Ósk Guðbjartsdóttur, og
Anna Lilja er starfar hjá Flug-
leiðum, gift Sveini Óla Jónssyni,
einnig ólu þau upp sonarson sinn,
Ágúst, sem er efnafræðingur hjá
raunvísindastofnun Háskóla Is-
lands.
Anna var stórglæsileg kona,
bæði í sjón og reynd, glaðlynd og
hnyttin í svörum. Skemmtilegri
ferðafélaga var ekki hægt að
hugsa sér. Hún var fyrirmyndar
húsmóðir, smekkvís og heimili
þeirra hjóna ætíð mjög aðlaðandi.
Um tíma tók hún mikinn þátt í
félagsstarfi kvenna á Akureyri,
var lengi ritari hins merka félags
„Framtíðin", einnig var hún einn
af stofnendum Rebekkustúku
Oddfellowreglunnar á Akureyri,
og starfaði þar í mörg ár. Hún
hafði yndi af ræktun trjáa og
blóma og um það ber garðurinn
hennar í Brekkugötu 9 fagurt
vitni. í mörg ár var hún í stjórn
Lystigarðsins og hafði alltaf
áhuga á vexti hans og viðgangi, en
sem kunnugt er, var það amma
hennar og nafna Anna Schiöth
ljósmyndari, sem hóf þar fram-
kvæmdir og móðir hennar Mar-
grethe Schiöth, tók þá við og
stjórnaði þar öllu til ellidaga. Var
hún gerð að heiðursborgara Akur-
eyrar vegna þess mikla og fórn-
fúsa starfs, er hún innti af hönd-
um í þágu bæjarfélagsins alls.
Anna var enn á góðum aldri, er
sjúkdómur í höfði hertók hana og
gerði það að verkum, að minnis-
leysi og sljóleiki gerði henni
ókleift að lifa eðlilegu lífi. Sárt
var að sjá þessa fögru og mikil-
hæfu konu þannig á sig komna, en
engin læknisverk gátu þar nokkru
um þokað.
Að leiðarlokum vil ég og fjöl-
skylda okkar þakka öll góðu árin,
sem við urðum samferða hér og
biðjum henni blessunar guðs á
nýjum tilverustigum. Öldruðum
eiginmanni hennar og fjölskyldu
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Sigríður Guðmunds-
dóttir Schiöth.
Jón Runólfsson
- Minningarorð
Pantió nýja FREEMANS vörulistann strax
. . . og veljið vandaöan sumarfatnað frá stærstu póstverslun í London fyrir
ykkur og fjölskylduna í rólegheitunrv heima. Skrifiö eða hringið strax í dag
eftir nýja pöntunarlistanum. Verð kr. 49.00. Póstburðargjald kr. 16.60.
heimili:
staöur:
of London
Þar scm tískan byrjar
hann og mjög söngvinn og var af
mörgum kallaður Jón tralli.
Áhugamál átti hann aðallega
tvö, og þau voru velgengni Sjálfs-
bjargar og Hallgrímskirkju og
taldi hann fjármunum sínum ekki
vera betur varið en hjá þeim og
má fullyrða að um talsverðar
upphæðir er að ræða er runnu til
þessara stofnana.
Svo varð þessi vinur okkar fyrir
því slysi fyrir rösku ári að detta
niður stiga, en eftir það áfall var
hann ekki sami maður. Var hann
um tíma á Ási í Hveragerði en
fluttist síðar á Elliheimilið Grund
þar sem hann andaðist 31. mars sl.
Þeir eru fjölmargir við Lauga-
veginn og víðar, sem sakna vinar í
stað og minnast hans sem sólar-
geisla í grámyglu hversdagsleik-
ans. Megi minning hans lengi lifa.
Jón og óskar
Sendist til FREEMANS OF LONDON c/o BALCO h/f. Reykjavikurvegi 66, 220 Hafnarfirði. simi 53900.
Fæddur 12. desember 1899.
Dáinn 31. mars 1981.
Gamall vinur og samstarfsmað-
ur hefur gengið veg sinn á enda.
Jón Runólfsson fæddist og ólst
upp á Vopnafirði en bjó mestan
hluta ævi sinnar í Reykjavík og
hér kynnumst við honum.
Þegar við opnuðum verslun
okkar við Laugaveginn fyrir rösk-
um 10 árum kom þessi glaðværi og
hugljúfi maður til okkar og bauð
fram þjónustu sína, sem að athug-
uðu máli var með þökkum þegin
og ekki urðum við fyrir vonbrigð-
um með störf hans, því samvisku-
samari mann var vart að finna.
Hann var þeim mannkostum
búinn, að þeim er kynntust honum
þótti fengur að kynningunni. Eins
og áður segir var hann svo glað-
vær að með ólíkindum var, því
hann brá aldrei skapi þótt ýmis-
legt væri honum andhverft. Þá var
Nafn:
Vinsamlega sendið mér nýja FREEMANS pöntunarlistann í póstkröfu.
Kveðja:
Margeir
Margeirsson
Fæddur 24.10.1968
Dáinn 5.11.1980
Softð er áxtarauKaA þitt,
i»m aldrel bráet aA metti mlnum.
Mest hef ég dáAst aA broei þinu.
andi þinn oáat þar ailt meA sltt.
J.H.
Kveðja frá Sigríði og Jóni Baldri
Lundi. Sviþjóð.
JSHk
Merkin
sem við mælum með í
Gólfteppin sem duga. t í
Við mælum, sníðum og \ . í
leggjum. \2C
Friörik Bertelsen h.f.Teppaverslun
Ármúla 7. Sími 86266