Morgunblaðið - 07.04.1981, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
41
fólk í
fréttum
+ Hin brasiliska sambýliskona
breska lestarræningjans, Ronald
Brigg, sem svo mjög hefur verið
í fréttunum, var í Sviss er henni
bárust fréttirnar um örlög sam-
býlismannsins, að honum hefði
verið rænt heima í Brasilíu og
fluttur til Barbados. Sagði hún,
að hún myndi reyna að komast
sem fyrst heim til þess að sækja
son þeirra. Hún heitir Raimunda
de Castro og er fatafella og var á
skemmtistaðnum Tiffany í bæn-
um Winterthur, sem er bær fyrir
norðan Zúrich. Sem fatafella
kallar hún sjálfa sig „Xuxu“. —
En vegna skorts á farareyri mun
ferð hennar til Brasilíu eitthvað
hafa tafist a.m.k. Hún kvaðst
vilja koma aftur til Svisslands
með drenginn sinn.
+ Þetta glæsikvendi er forsetafrúin í Egyptalandi,
Jehan Sadat. Myndin er tekin af forsetafrúnni
fyrir skömmu er hún var á ferð i Bandarikjunum.
og tók AP-ljósmyndari myndina er hún skoðaði
náttúrugripasafnið i Chicago ásamt borgarstjór-
anum i þeirri hasarbrog, en það er kona, sem
kunnugt er af fréttnm
Dali málverk
í fangelsi
+ 116 ár hafa fangar í einu fangelsanna í New York
matast í borðsal fangelsisins undir málverki af
krossfestingu Jesú Krists eftir listmálarann Salva-
dor Dali. — Hann gaf fangelsinu þetta málverk á
sínum tíma. Það er 4x5 fet að stærð. — Fyrir
nokkru kallaði fangelsisstjórinn á kunnáttumann,
til þess að verðleggja málverkið, því fjárskortur
þrengir að starfsemi í þágu fanganna. Er málverkið
metið á 75—100.000 dollara og hyggst fangelsis-
stjórinn leita til Salvadors Dali um samþykki hans
og leyfi til að selja málverkið.
,pskutunmi-
tvíburar“
+ Þessi reifabörn sem myndin er af komust í
fréttir allra fjölmiðla í Bandaríkjunum fyrir
skömmu. — Þetta eru tvíbura-drengir, sem börn
er voru að leik fundu ofaní öskutunnu í borginni
Dayton í Ohiofylki. — Tvíburarnir litlu voru
3—4ra daga gamlir er þeir fundust. Voru þeir
þegar fiuttir á vöggustofu í borginni, þar sem
þeir komust undir lækna hendur. Var talið að
tvíburunum myndi ekki hafa orðið meint af
dvölinni í sorptunnunni. Einn krakkanna sem
fundu börnin, 10 ára strákur, sagði frá því að
hann og leikfélagarnir hefðu heyrt einhver vein.
Hefði hann talið að þau kæmu frá hundi. Hefðu
krakkarnir gengið á hljóðin sem komu úr
öskutunnu. Buíð hafði verið um börnin í
pappírspokum. Við urðum að moka með höndun-
um ofan af þeim til að ná þeim upp úr sorpinu.
Annar tvíburanna var rúmlega 6 pund, en hinn 5
pund. Þá þegar að fréttin spurðist út, höfðu
hundruð foreldra snúið sér til spítalayfirvald-
anna og boðist til þess að ganga öskutunnu-tví-
burunum í foreldra stað.
A ,Reagan-
skemmtun"
+ Fyrir nokkru var haldin skemmtun, til heiðurs
Reagan Bandaríkjaforseta í svonefndu Ford-
leikhúsi í Washington. Komu þar fram ýmsir
kunnir listamenn. A þessari mynd eru þrjú úr
þeim hópi: Fiðluleikarinn Itzhak Perlman, söngv-
arinn Johnny Cash og hin fræga ballerína
Natalia Makarova.
NATIONAL ALKALINE
RAFHLÖÐUR Ávallt
fyrirliggjandi
UM-3DE
Rafborg sf.
Rauóarárstígl
Sími11141
ÞAÐ ER SAMA HVERT
LITIÐ ER HURÐIRNAR
ERUALLARFRA
SICURÐI ELIASSYNI
SELKO
Hringiö eða skrifið eftir frekari upplýsingum.
Ég óska eftir að fá ókeypis myndalista yfir SELKO hurðir.
Nafn:_______________________________________________
SIGURÐUR
ELÍASSON HF.
AUÐBREKKU 52. KÓPAVOGI. SIMI 41380
_______^
Heimili: ______________________________________________________________________
Sími:__________________________________________________________________________
Sendist til: Siguröar Elíassonar h.f. Auðbrekku 52 — Kópavogi Sími 41380
Kynningarverð á furubaðinnréttingum
í stuttan tíma.
kajmar
innréttingar hf.
SKEIFAN 8. REYKJAVÍK SIMI 82011.