Morgunblaðið - 07.04.1981, Síða 47
V
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
47
Ástandið í Póllandi
rætt á ráðherrafundi
Sant Chitpatima hershöfðingi (fyrir miðju) ásamt öðrum herforingj-
um sem studdu hann í byltingartilrauninni.
Handtökur
í Thailandi
Banickok. Thailandi. 6. april. AP.
Konungsfjölskyldan i Thai-
landi hélt aftur til Bangkok sl.
sunnudag ásamt forsætisráðherr-
anum Prem Tinsulandonda. Voru
þá liönir tveir dagar frá þvi
byltingartilraun herforingja var
brotin á bak aftur.
Yfir 100 herforingjar sem voru
viðriðnir byltingartilraunina hafa
verið handteknir. Meðal þeirra eru
allir helstu leiðtogarnir nema að-
alleiðtoginn, Sant Chitpatima
hershöfðingi, og virðist enginn
vita hvar hann heldur sig.
Prem sagði sl. sunnudag, að
herforingjarnir myndu allir hljóta
réttláta meðferð og myndu þeir
sem gáfu sig fram fá gefnar upp
sakir sínar.
Meðan á byltingartilrauninni
stóð fékk Prem umboð frá ríkis-
stjórn sinni til að taka til hverra
þeirra ráðstafana sem hann teldi
nauðsynlegar. Hann kvaðst í dag
ætla að skila þessu umboði „þegar
rétti tíminn væri kominn".
Stjórnmálamaður einn í Thai-
landi sagði, að þrátt fyrir að Prem
hefði tekist að brjóta tilraunina á
bak aftur væri hann ekki sigur-
vegarinn. Hann hefði misst meira
en helming bestu herforingjanna.
Washin?ton, 6. april. AP.
REAGAN Bandarikjaforseti fylg-
ist grannt með atburðunum i
Póllandi og þróun máia i þeim
heimshluta. að sögn George Bush
varaforseta. en Reagan hefur enn
vægan hita. og komið hefur i ljós,
að lausir aðskotahlutir eru i
vinstra lunga, sem skaddaðist i
skotárásinni á forsetann.
Læknar við George Washington
háskólasjúkrahúsið sögðu, að lík-
lega væri um dauðar blóðklessur
eða vefjastykki að ræða, sem
fylgdi gjarnan innvortissárum af
því tagi sem Reagan hlaut. Hann
sagði, að Hklega liði langur tími,
þar til þessir aðskotahlutir eydd-
ust upp og yrðu að engu.
Læknarnir sögðu, að ekkert
hefði komið í ljós er bent gæti til
þess, að sýklar hefðu komist í
þessa aðskotahluti.
I tilkynningu sjúkrahússins
sagði, að James S. Brady blaða-
fulltrúi forseta færi fram, og að
málfar hans yrði æ skiljanlegra.
Þá þekkti hann eiginkonu sina er
hún kom í heimsókn í gær.
Síðdegis bárust þær fregnir frá
Washington, að Reagan verði tæp-
lega leyft að fara af sjúkrahúsinu
fyrr en eftir næstu helgi.
Gro Harlem Brundtland
Brundtland
var kosin
formaður
08ló, 6. aprll. AP.
GRO HARLEM Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs var kosinn
formaður Verkamannaflokksins
norska á þingi flokksins sl. laugar-
dag með öllum greiddum atkvæð-
um.
Einar Förde dóms- og kirkju-
málaráðherra var kosinn varafor-
maður.
Einn höfuðpaura Rauðu
herdeildanna handtekinn
Reagan fylgist
með þróun mála
Bonn, 6. aprtl. AP.
Varnarmálaráðherrar 13
NATO-ríkja hittast á reglu-
bundnum fundi á morgun og
miðvikudag til að endurskoða
stefnu bandalagsins i varnarmál-
um, en búist er allt eins við því,
að fundurinn snúist fyrst og
fremst um málefni Póllands, að
sögn þátttakenda i fundunum.
Ráðherrarnir hittast tvisvar á
ári til að endurskoða varnaráætl-
un bandalagsins, en embættis-
maður, sem þátt tekur í fundinum,
sagði að hin öra þróun mála í
Póllandi og næsta nágrenni síð-
ustu daga, væri það mikið
áhyggjuefni, að vart kæmist ann-
að að á fundinum. Búist er við að
varnarmálaráðherrarnir gefi út
yfirlýsingu varðandi málefni Pól-
lands í fundarlok.
Fundurinn er fyrsti fundur ráð-
herra frá ríkjum Atlantshafs-
bandalagsins frá því í desember,
þegar Sovétmenn voru varaðir við
hvers kyns íhlutun í Póllandi, og
Niður-
talning
hafin
Canaveralhöfda, 6. apríl. AP.
NIÐURTALNING að því að
skjóta geimskutlunni Kólumbíu
á braut umhverfis jörðu hófst í
morgun, þrátt fyrir bilanir í
rafbúraði skutlunnar á siðustu
stundu.
Ef allt gengur að óskum verða
hreyflar skutlunnar settir í gang
klukkan 11.50 að íslenzkum tíma á
fö8tudag. Rafmagnsbilunin, sem í
ljós kom í gærkvöldi, hafði það í
för með sér að loki í hreyflum
skutlunnar opnaðist. Gert er ráð
fyrir að allt að 32 klukkustundir
taki að gera við bilunina, og
treysta menn því að það takist í
tæka tíð.
að íhlutun kynni að hafa hinar
alvarlegustu afleiðingar í för með
sér. Fundurinn er einnig fyrsti
ráðherrafundurinn frá því að
bandalagsríkin hófu að vinna að
þvi á bak við tjöldin til hvaða ráða
skyldi gripið ef Rússar réðust inn
í Pólland.
Mílanó, 6. apríl. AP.
Hryðjuverkamaðurinn Mario
Moretti sem ítalska lögreglan hef-
ur leitað hvað mest að undanfarin
ár var handtekinn i Milanó sl.
Iaugardag. Moretti er einn af
höfuðpaurum rauðu herdeildanna
og er talinn hafa skipulagt ránið
og morðið á Aldo Moro fyrrum
forsætisráðherra ítaliu árið 1978.
Moretti var eftirlýstur fyrir 51
glæp, allt frá samsærum til morðs-
ins á Moro. Lögreglan umkringdi
Moretti og félaga hans, Enrico
Fenzi, á götu í miðborg Mílanó
síðdegis á laugardag .Lögreglan
segir að Moretti hafi verið vopnað-
ur og reynt að ná til byssu sinnar en
séð að hann var í vonlausri aðstöðu
og gefist upp. Moretti og Fenzi voru
á leið til að hitta tvo aðra félaga í
Rauðu herdeildunum og voru þeir
handteknir skömmu siðar.
„Ég er Mario Moretti og ég lýsi
því yfir að ég er pólitískur fangi,"
sagði Moretti eftir að hann hafði
verið handtekinn. Fenzi sagðist
einnig vera pólitískur fangi, að sögn
Iögreglunnar.
Endalok Rauðu
herdeildanna?
Búist er við að handtaka Morettis
hafi í för með sér tímamót í
rannsókn á morðinu á Moro og
búist er við því að hún þýði endalok
Rauðu herdeildanna. Aðeins einn af
höfuðpaurum þeirra gengur enn
laus, það er sambýliskona Morettis,
Barbara Blazarni.
Sérfræðingar ítölsku lögreglunn-
ar í baráttunni gegn hryðjuverka-
mönnum hafa á sl. mánuðum farið
herferð á hendur hryðjuverka-
mönnum á Norður-Ítalíu. Þeir segja
að Moretti hafi komið til Mílanó til
að endurskipuleggja starfsemi
Rauðu herdeildanna þar í borg.
Moretti er 34 ára og telur lögregl-
an að hann hafi meðal annarra
staðið að baki fyrsta glæpi Rauðu
herdeildanna, tveimur þjófnuðum
árið 1971. Honum hefur hvað eftir
annað tekist að komast undan
lögreglunni og töluðu ítölsku blöðin
oft um að ekki væri hægt að hafa
hendur í hári hans. Árið 1972 var
hann t.d. á leið inn í hús sem
lögreglan sat fyrir honum í er hann
á einhvern hátt var var við hættuna
og komst í burtu. Talið var að hann
hefði flúið land fyrir nokkru en
hann hefur verið aðaltengiliður
Rauðu herdeildanna við erlenda
hryðjuverkamenn.
^ móttökumælir.
nn dolby
I fyrir betri
upptökur.
® Útgangsorka
2x20 SINUS Wött
v/4 Ohm. I■
SHARP SG-1H/HB:
Klassa steríó samstæóa
með hátalara, í,,silfur“
eöa ,,brons“ útliti.
Breldd 390 mm Hæð 746 mm 373 mm. Dýpt 330 mm.
/
w
!
SHARP CP-1H/HB: 0 Rafeinda /METAL
Hatalarar, bassa og diskant styrkmæiir stiiiing fyrir metai
25 Watta í „silfur“ eða kassettur
,,brons“ útliti. ^Nt settiö, verö kr.:
Breidd 220 mrr. Hæð 373 mm Dýpt 18 3 mm 6.320.00.
fÆU. HLJÖMTÆKJADEILD
<£)il KARNABÆR
^f LAUGAVEGI 66 SIMI 25999
Útsölustaóir: Karnabær Glæsibæ —
Fataval Keflavík — Portiö Akranesi —
Eplið Isafirði — Alfhóll Siglufirði —
Cesar Akureyri — Hornabær Hornafirói —
Eyjabær Vestmannaeyjum — M.M. h/f. Selfossi.
(