Morgunblaðið - 07.04.1981, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
]H«rðunbI<tbi&
fHtrigtTOWaljii®*
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981
Síminn á afgreiðslunni er
83033
JH«r0unbtabib
1979-1980:
Sala innflutts elds-
neytis dróst sam-
an um liðlega 8,30%
SALA á innfluttu eldsneyti
ntinnkaði um 10,4% ntilli ár-
Braut rúðu til
að fá húsaskjól
hjá lögreglunni
UNGUR martur greip til þess
örþrifaráðs á sunnudaginn að
brjóta rúður í banka ojj verzlun
til þess að fá húsaskjól hjá
lögreglunni.
Maðurinn, sem er liðlega tví-
tugur kom í Breiðholtskjör á
fimmta tímanum á sunnudaginn
og fékk að hringja þar í sælgæt-
issölunni. Maðurinn, sem var
ölvaður hringdi á aðaistöð lög-
reglunnar og vildi að lögleglu-
bifreið kæmi að sækja sig. Hann
hefði í ekkert hús að venda og
vildi fá inni í fangageymslu
lögreglunnar. Lögreglan sá ein-
hver tormerki á því að sækja
manninn og bað hann að koma
sjálfan í leigubíl eða strætó.
Maðurinn var ekki hrifinn af
þessu svari og greip nú til eigin
ráða til þess að fá lögregluna á
staðinn. Hann braut rúðu í
verzluninni og gier í afgreiðslu-
borði og ennfremur braut hann
tvær stórar rúður í útibúi Verzl-
unarbankans við hliðina. Lög-
reglunni var strax gert viðvart
og maðurinn fékk gistingu í
fangageymslu hennar, alveg eins
og hann hafði óskað.
| anna 1979 og 1980. Á árinu
| 1979 voru flutt inn og seld
tæplega 605 þúsund tonn af
eldsneyti, en um 542 þúsund
tonn á síðasta ári.
Innflutningur á benzíni jókst
hins vegar úr 87.724 tonnum í
88.976 tonn milli áranna. Sala á
flugvélabenzíni minnkaði úr
2.438 tonnum í 1.576 tonn milli
áranna.
Ennfremur varð mikill sam-
dráttur í sölu á þotueldsneyti,
eða úr 68.947 tonnum í 47.959
tonn. Steinolíusala minnkaði úr
1.829 tonnum í 1.418 tonn.
Gasolíuinnflutningur minnk-
aði úr 282.678 tonnum á árinu
1979 í 231.051 tonn á síðasta ári,
en sala á brennsluolíu jókst
hins vegar úr 161.367 tonnum í
171.103 tonn milli áranna.
Sé litið yfir lengra tímabil,
eða árabilið 1977 til 1980, þá
kemur í ljós, að sala á innfluttu
eldsneyti hefur aðeins minnkað
um 8,3% eða úr 591 þúsund
tonnum í um 542 þúsund tonn,
eins og áður sagði. Samdráttur-
inn hefur mestur orðið á þessu
árabili í sölu á gasolíu, eða um
liðlega 25%, úr 309.724 tonnum
í 231.051 tonn, eins og áður gat.
Miðstjórn Framsóknarflokksins:
Óbreytt stefna
í öryggismálum
„MÉR FINNST ekki rétt að
rugga bátnum eins og á stendur,“
svaraði Steingrímur Hermanns-
son spurningu á fréttamanna-
fundi í gær, um það hvort Fram-
sóknarflokkurinn héldi ekki við
sína fyrri stefnu þess efnis að
herinn færi brott úr landi i
áföngum. „Eins og ástandið er nú
í heiminum get ég ekki litið svo á
Auglýsendur
athugið!
Páskablað Morgunblaðs-
ins kemur út á skírdag,
16. apríl nk.
Þeir, sem vilja auglýsa í
blaðinu, eru vinsamlega
beðnir að staðfesta pant-
anir við auglýsingadeild-
ina sem fyrst, vegna tak-
markaðs auglýsingarýmis
i hlaðinu.
Fyrsta blað eftir páska
kemur út miðvikudaginn
22. apríl, síðasta vetrar-
dag.
Jfldtaxtnlila&jfc
að friðartímar ríki, sem er for-
senda þess að herinn fari úr
landi," sagði hann.
í sjónmálaálytkun aðalfundar
miðstjórnar Framsóknarflokksins
segir m.a.: „Við ríkjandi aðstæður
skal framfylgt óbreyttri stefnu í
öryggismálum,“ og í sérstökum
kafla um flugstöðina á Keflavík-
urflugvelli segir: „Aðskilnaður
hers og þjóðlífs meðan erlendur
her er í landinu er grundvallarat-
riði í stefnu Framsóknarmanna og
bygging nýrrar flugstöðvar tr
forsenda þeirrar stefnu.“ Að-
spurður á fundinum sagði Stein-
grímur, að hann teldi persónulega
ekkert rangt við það, að Banda-
ríkjamenn greiddu sinn hluta í
kostnaði af því að slíkur aðskiln-
aður væri fyrir hendi og nefndi
hann töluna 50% sem réttláta
skiptingu kostnaðar.
Þá kom og fram á fundinum, að
Framsóknarflokkurinn telur rétt
að ráðist verði í byggingu nýrrar
flugstöðvar á næsta ári, en í
niðurlagi kaflans um flugstöðina í
ályktuninni segir: „Ný flugstöð er
auk þess skilyrði bættrar ferða-
mannaþjónustu, og núverandi að-
staða er ósamboðin þjóðlegum
metnaði. Aðalfundur miðstjórnar
1981 lýsir því eindregnum stuðn-
ingi við byggingu nýrrar flug-
stöðvar á Keflavíkurflugvelli."
Gylfi Þ. Gíslason, formaður Norræna félagsins í Reykjavík, færir borgarskáldinu, Tómasi
Guðmundssyni, blómvönd á samkomunni „Tómas og við“, sem efnt var til í Norræna
húsinu á sunnudaginn. Fjölmenni sótti samkomuna og varð fólk frá að hverfa, þótt hún
væri endurtekin siðar um daginn. Sjá nánar á blaðsíðu 20 i Morgunblaðinu i dag.
Ríkisstjórnin snið-
gengur Verðlagsráð
Heimilar upp á sitt einsdæmi 10% hækkun til Sementsverksmiðjunnar
„Verðlagsstofnun hefur
haft samband við fyrirtækið
og fékk þær skýringar, að
þessi hækkun hefði verið sam-
þykkt í rikisstjórninni, og
fulltrúi hennar tilkynnt for-
ráðamönnum fyrirtækisins
það,“ sagði Georg óiafsson,
verðiagsstjóri, i samtali við
Mbl., er hann var inntur eftir
því, hvort rétt væri, að Sem-
entsverksmiðja ríkisins, hefði
hækkað framleiðslu sína um
10% frá og með deginum í
gær.
„Ef þetta er rétt, þá er hér
um mjög sérstæða málsmeð-
ferð að ræða, þar sem verð-
lagning á framleiðslu þessa
fyrirtækis heyrir undir Verð-
lagsráð. Það er hins vegar
ríkisstjórnarinnar að stað-
festa eða hafna ákvörðunum
Verðlagsráðs.
Verðlagsstofnun mun kanna
hjá ríkisstjórninni hvernig
Getrauna-
vinningur
kom of seint
í ÞRÍTUGUSTU og fyrstu leik-
viku Getrauna um helgina. komu
fram tveir seðlar með 12 leikjum
réttum, og var vinningur fyrir
hvora röð krónur 41.130, en með
11 rétta voru 24 raðir og vinning-
ur þar var 1.468 krónur.
Annar vinningshafinn með 12
rétta upplýsti, að hann hefði fyrir
nokkrum dögum neyðst til þess að
selja hús sitt, en ef hann hefði
dokað aðeins við, hefði þessi vinn-
ingur fleytt honum yfir erfiðleik-
ana.
þetta mál er vaxið, en nánar
get ég ekki tjáð mig um það á
þessu stigi,“ sagði Georg
Ólafsson, verðlagsstjóri.
Er þetta mál ekki svipaðs
eðlis og hækkunin á unnum
kjötvörum, þar sem Verðlags-
ráð hafði heimilað um 8%
meðalhækkun, en ríkisstjórn-
in skar hana niður í 6%.
Hérna virðist vera um svipað
mál að ræða, en ég get ekki
tjáð mig frekar um það á
þessu stigi.“
Þykist vera að
gera kynlífs-
könnun fyrir blað
Rannsóknarlögreglan leitar
nú manns, sem hefur margoft á
undanförnum mánuðum hringt
í konur og þótzt vera að vinna
að kynlífskönnun fyrir blaðið
Samúel. Hefur maðurinn spurt
konurnar nærgöngulla og oft
dónalegra spurninga. Aðstand-
enur Samúels hafa að vonum
haft mikinn ama af þessu fram-
ferði mannsins og þeir kærðu
málið til lögreglunnar. Það er
nánast ógerningur að rekja
simtöl af þessu tagi og er
maðurinn ófundinn. En ástæða
er fyrir konur að svara engu ef
þær verða fyrir þeirri
óskemmtilcgu reynslu að fá
slíka hringingu.
Morgunblaðið hafði samband
við Þorvarð Jónsson yfirverk-
fræðing hjá Pósti og síma og
spurði hann hvaða möguleika
stofnun hans hefði til að rckja
símtöl. Þorvarður sagði að
venjulega rofnaði samtalið þeg-
ar sá sem hringdi legði tólið á.
Ef ákveðið símanúmer yrði fyrir
ítrekuðu ónæði væri hægt að
tengja viðkomandi númer og þá
væri mögulegt að finna út hver
ónæðinu ylli. Fólk yrði þá að
vera vel á verði, það mætti alls
ekki leggja tólið á en hraða sér í
annan síma og láta mælaborð
Pósts og síma vita um það að
síminn væri í sambandi við
númer mannsins, sem væri vald-
ur að ónæðinu. Póstur og sími
hefur þá reglu, að sögn Þorvarð-
ar, að gefa ekki upp nafn þess
sem ónæðinu veldur nema lög-
reglan leiti hans. Hins vegar er
haft samband við manninn og
hann beðinn að hætta þessum
hringinum, að öðrum kosti eigi
hann á hættu að verða kærður
auk þess sem hann kunni að
missa símann.
Samkvæmt þessu eru símtöl
ekki rakin nema ónæðið sé
ítrekað svo „kynlífskönnuður-
inn“ verður varla gripinn alveg á
næstunni svo framarlega sem
hann hringir ekki í sömu konuna
aftur. Er aðeins hægt að gefa
konum það heilræði að skella á
manninn ef hann hringir.