Morgunblaðið - 04.02.1982, Page 10

Morgunblaðið - 04.02.1982, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRUAR 1982 PORTÚGAL Ramalho Eanes, forseti Portúgals, hefur eina ferðina enn ruglað landa sína í ríminu, er hann gaf þá yfirlýsingu á dögunum að hann myndi segja af sér embætti, ef völd hans yrðu skert í nýrri stjórnarskrá landsins, en meiningin er, að endurskoöun hennar verði lokið með vorinu. Eanes hótar afsögn ef völd hans veröa skert Stjórnarskrá sú sem gildir nú var samin 1975—1976, þegar áhrif kommúnista voru hvaö mest og hefur síöan þótt full ástæöa til aö endurmeta og endursemja mörg atriöi í henni. Deildar meiningar hafa veriö um, hvort draga ætti úr völdum forsetans, en nú hefur Eanes kveðiö uþþ úr meö þaö í eitt skipti fyrir öll: Hann ætlar ekki aö una því ef svo veröur. Eanes er vinsæll og virtur og nú eru aö veröa liöin tvö ár af seinna kjörtímabili hans. Þótt skoöanir hans þyki íviö meira til vinstri en æskilegt er sýnist ekki leika á því vafi, aö hann er Portúgölum ákveöiö sameining- artákn á þessum erfiöu tímum, sem veriö hafa í landinu síöan 1974. Eanes hefur meira aö segja látið aö því liggja aö hann myndi stofna sinn eigin stjórnmála- flokk og bjóða sig fram í þing- kosningum og sækjast eftir starfi forsætisráöherra. Þing- menn Alianca Democratica og sumir fulltrúa PS-flokks Mario Soares, sem styöja breytingar á EANES stjórnarskránni er hníga aö því aö draga úr völdum forsetans, hafa kallaö yfirlýsingu Eanes örgustu kúgun. Þess má og vænta aö stjórnmálaforingjar heföu töluverða ástæöu til aö hafa áhyggjur ef Eanes geröi al- vöru úr hótun sinni. Eins og allir vita hefur veriö umhleypinga- samt á sviöi portúgalskra stjórnmála þessi fáu ár sem liöin eru frá því Portúgalar veltu af sér fimmtíu ára einræöisstjórn. Rikisstjórnir hafa komið og far- iö, ég man ekki í svipinn hvort þrettán eöa fjórtán hafa setiö viö völd þessi átta ár, en síðan Eanes var kjörinn forseti áriö 1976 hefur honum tekizt aö veröa þjóöinni býsna mikilsvert sameiningartákn eins og fyrr sagði. Þaö er athyglisvert aö Eanes hlaut kosningu þá vegna þess aö hann kom upp um valdaráns- samsæri kommúnista, en þegar hann var kjörinn ööru sinni studdu hann kommúnistar og sósíalistar, og reyndar hlaut hann verulegt atkvæöamagn frá hægri og miöjumönnum, vegna lítillar ánægju meö frambjóö- anda Alianca Democratica, Soraes Carneiro. Friðrik Sophusson í útvarpsumræðum: Niðurgreiðslur eru pappírslausn Hér fer á eftir karli úr rteðu þeirri, sem Friðrik L. Sophusson, varafor maður Sjálfstaðisflokksins, flutti í útvarpsumræðum sl. fimmtudags- kvöld. Haustið 1979, eða nánar tiltekið hinn 28. nóvember, birtist í Morg- unblaðinu ágæt grein um niður- greiðslur. I henni segir orðrétt með leyfi forseta: „Bændur sjálfir og samtök þeirra hafa látið i ljós, að niðurgreiðslur megi helzt ekki verða meiri en mismunur á fram- leiðsluverði og söluverði. Þessar miklu niðurgreiðslur skekkja verð- lag og draga úr hvöt til að ráðast í nýjar búgreinar. Þær bjóða heim hættu á misnotkun og spillingu. Þær leiða til þess, að þeir ríku fá meira í sinn hlut úr ríkissjóði en þeir snauðu. Þegar dregið verður úr niðurgreiðslum, á að bæta lág- launafólki það upp með tekju- tryggingu, fjölskyldubótum og af- námi á tekjuskatti, þannig að kaupmáttur þessa fólks minnki ekki.“ I þessari grein er fjallað með vitrænum hætti um þá gífurlegu galla, sem fylgja niðurgreiðslum og bent á aðrar og betri leiðir. Eftir að hafa hlýtt á boðskap forsætisráðherra hér áðan um stórfelidar niðurgreiðslur, verður það eflaust erfitt fyrir marga að trúa því, að hann sé sjálfur höf- undur þeirra orða, sem ég vitnaði til hér áðan. Eg vona, og ég er reyndar per- sónulega sannfærður um, að.for- sætisráðherra sé sömu skoðunar og hann var fyrir tveimur árum, þótt það hafi orðið hlutverk hans hér í kvöld að lesa þá moðsuðu, sem greinilega er samin af Fram- sóknarmönnum og kommúnistum, en þeir eru hvort tveggja í senn, úrræðalausir og innbyrðis sundur- þykkir í skoðunum. Því verður a.m.k. ekki trúað að forsætisráð- herra vilji ýta undir „misnotkun og spillingu", svo vitnað sé til hans eigin orða. Ástæðan fyrir því að ríkis- stjórnin fer þá leið að greiða niður landbúnaðarvörur í stað þess að lækka vöruverð með söluskatts- lækkun, er einfaldlega sú, að lækkun á söluskatti er samkvæmt. uppl. Þhs. fjórfalt dýrari aðferð fyrir ríkissjóð en niðurgreiðslurn- ar. Vægi landbúnaðarafurða er svo rangt metið í vísitölugrunninum, að hægt er með reikningskúnstum að láta verðbólguna hjaðna með því að greiða niður vörutegundir, sem jafnvel fyrirfinnast ekki í verziunum. Hin raunverulega verðbólga heldur hins vegar áfram að vera til, því að aðrar vörur hækka og þær sem ekki eru í vísitölunni miklu meira en hinar. Þetta þekkja þeir sem annast innkaup fyrir heimilin og þurfa að láta tekjur sínar duga fyrir auknum útgjöldum. Lækkun söluskatts er raunveru- leg verðlækkun, en niðurgreiðslur eru pappírslausn, sem notuð er til að lækka laun, þegar laun eru vísi- tölutengd við verðlag í landinu. Forsætisráðherra las það úr skýrslu ríkisstjórnarinnar hér áð- an, að efnahagsmarkmið ríkis- stjórnarinnar væru þau sömu og í efnahagsáætluninni frá gamlárs- degi 1980 eða: Öflugt atvinnulíf, hjöðnun verðbólgu og trygging kaupmáttar — og bætti svo við, að tekist hefði að ná þessum mark- miðum. Höfundur skýrslunnar hlýtur annaðhvort að vera gjör- sneyddur dómgreind eða gæddur einstöku skopskyni, þegar á það er litið, að atvinnufyrirtæki lands- manna hafa verið rekin með bull- andi tapi, verðbólgan stefnir í yfir 50 stig og kaupmáttur launa hefur rýrnað eins og launþegar finna bezt, þegar þeir verzla í búðum eða greiða af bankalánum. Þá og nú Það vekur sérstaka athygii, þeg- ar sagt er að markmiðin nú séu þau sömu og með efnahagsaðgerð- unum, sem efnt var til í byrjun síðasta árs, að nú er ekki minnst á þær leiðir, sem þá voru farrtar. • Nú er ekkert talað um fast gengi, eins og gert var í fyrra. Þvert á móti gefa ráðherrar lof- orð um gengisfall, gengissig eða gengisaðlögun. • í fyrra átti að halda verðlagi niðri með hertri verðstöðvun. Núna er það viðurkennt að slík ákvörðun var gagnslaus og lagt er til að teknir verði upp nýir starfshættir, sem vonandi eru í átt til frjálsari verðlagningar. • í fyrra voru sett sérstök niður- Garðabær: Nýtt bflaverkstædi BÍLATÍIN — bílastillingastöð, hefur flutt starfsemi sína úr Sigtúni 3 þar sem hún hefur verið í átta ár, upp í Garðabæ í Iðnbúð 4. Þar opnaði eig- andinn, Kristján Tryggvason, bílastill- ingastöðina í nýju og stærra húsnæði en áður og er hægt að gera við fimm bíla í einu þar en þrír bifvélavirkjar Á nýja verkstæðinu í Garðabæ. Frá vinstri: Kristján Tryggvason eigandi og Örn Jónasson bilvéla- virki. koma til með að vinna á verkstæðinu í Garðabæ. í samtali við Mbl. sagði Kristján Tryggvason að húsnæðið væri á tveimur hæðum, verkstæðið á neðri hæðinni og væri húsnæðið í allt 360 fm stórt. Sagði Kristján að á verk- stæðinu væri hægt að vinna al- mennar bílaviðgerðir fyrir skoðun, Ijósastillingu og hjólastillingu. „Þetta er alveg ný þjónusta hér í Garðabæ, því það var aðeins eitt verkstæði hér fyrir og er þetta því alveg óplægður akur,“ sagði Krist- ján.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.