Morgunblaðið - 09.03.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1982
Tveir létust
í snjóflóðum
Innsbruck, 7. marz. AP.
TVEIR mcnn létust í dag er snjó-
skriður féllu á sitt hvorum staðnum.
Að auki er eins saknad.
í öðru flóðinu urðu níu manns
undir því. Einn lést, en sjö tókst
að bjarga sér af eigin rammleik.
Einn hefur enn ekki fundist. í
Ötztal-dalnum lenti snjóflóð á
fjórum ferðamönnum. Þrír sluppu
lifandi úr því en sá fjórði lést sam-
stundis. Ekki er lengra síðan en í
janúar, að 12 manns létust í
snjóflóði í Austurríki.
Dómar yfir
morðingj-
um Sadats
Kairó, 8. marz. Al*.
IJM HELGINA voru kveðnir upp í
Kairó dauðadómar yfir fimm
mönnum, sem voru fundnir sekir
um að ráða Sadat forseta af dög-
um í októbermánuði sl. Sautján
menn aðrir fengu fangelsisdóma
frá nokkrum árum og upp í ævi-
langan en tveir menn voru sýknað-
ir af ákærum.
Formaður dómsins dr. Samil
Fadel skýrði fréttamönnum frá
þessu úti fyrir dómssalnum.
Meðal þeirra sem voru dæmdir
til dauða var Khaled El-Islamb-
ouly sem af flestum er talinn að-
almaðurinn í málinu. Sak-
borningarnir voru ekki í dóm-
salnum er dómarnir voru lesnir
upp, því að þeir höfðu nokkru
áður haft uppi hávær hróp og
köll og ávirðingar um Sadat og
voru því fluttir brott.
Hosni Mubarak forseti verður
að staðfesta alla dómana.
Veður
víða um heim
Akureyri
Reykjavík
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlin
Brtiasel
Chicago
Dyflinni
Feneyjar
Frankfurt
Fœreyjar
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhannesarborg
Kaupmannahötn
Kairó
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Malaga
Mallorca
Mexíkóborg
Miamí
Moskva
New York
Nýja Delhi
Osló
París
Perlh
Rió de Janeiró
Rómaborg
San Francisco
Sfokkhólmur
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
3 skýjað
1 haglél
6 heiðskírt
14 skýjað
10 léttskýjað
9 heiðskírt
vantar
-6 snjókoma
9 rigning
10 skýjað
8 heiðskírt
5 léttskýjað
5 heíðskirt
1 heiðskírt
15 rigning
15 heiðskirt
23 heiðskírt
5 heiðskírt
23 heiðskirt
19 skýjað
15 heiöskírt
10 heiðskirt
25 skýjað
15 heiðskírt
16 léttskýjaö
9 skýjað
22 skýjað
27 heiöskírt
-1 skýjaö
3 rigning
21 heiðskírt
3 heiðskírt
7 skýjað
21 heiðskirt
27 skýjað
13 skýjaö
15 skýjað
6 heiöskírt
30 heiðskfrt
19 heiðskírt
7 heíðskirt
8 heiðskfrt
11 heiðskírt
Brezhnev er hann ræddi við Jaruzelski hershöfðingja á dögunum.
Hneyksli í KGB
ógnar Brezhnev
Dauði mágs hans veldur heilabrotum
BROTTVIKNING yfirmanns sovézka verkalýðssambandsins hefur leitt í
Ijós alvarlega vankanta í verkalýðskerfinu að sögn bandarískra sérfræð-
inga og ber vott um aukin völd Konstantíns Chernenko, sem getur orðið
arftaki Leonid Brezhnevs. Jafnframt virðist dauði yfirmanns KGB, Semj-
on Tsvigun hershöfðingja, í janúar hafa staðið í sambandi við valdabar
áttu f Kreml. Það gæti bent til þess að Leonid Brezhnev forseti sé að
missa stjórn á þróuninni að sögn sérfræðinga.
Tsvigun hershöfðingi var
mágur Brezhnevs og Los Angel-
es Times segir að hann hafi
framið sjálfsmorð eftir orða-
sennu um spillingu á æðstu stöð-
um. Sovézkur blaðamaður segir
að Tsvigun hafi tekið eitur eftir
misheppnaða tilraun til að sjá
um að leynilögreglan KGB stæði
ein að rannsókn á viðkvæmu
máli.
Annar heimildarmaður telur
að Tsvigun hafi svipt sig iífi eftir
harðar umræður við hugsjóna-
fræðinginn Mikhail Suslov, sem
einnig lézt í janúar, sex dögum á
eftir Tsvigun. Umræðunum mun
hafa lokið þannig að Suslov
sagði við Tsvigun: „Þú átt ekki
annarra kosta völ en að skjóta
þis“
Fréttum um mál Tsvigun ber
ekki saman: sumir segja að hann
hafi reynt að hylma yfir
hneyksli, aðrir segja að hann
hafi háð misheppnaða baráttu
gegn hneyksli. Síðari skýringin
kemur heim við þau ummæli
starfsmanns KGB í desember í
samtali við vestrænan fulltrúa
að KGB reyr.di að taka við stjórn
langrar baráttu sem hefur verið
háð gegn spillingu af MVD,
ríkislögreglunni, á þeirri for-
sendu að ríkislögreglan væri
gegnsýrð af spillingu.
Þremur dögum eftir lát Tsvig-
un fékk Suslov heilablóðfall sem
dró hann til dauða 25. janúar.
Annað er ekki að sjá en að dauði
hans hafi verið eðlilegur.
Sögusagnirnar um Tsvigun
eru aðeins ein vísbendingin af
mörgum um að völd Brezhnevs
séu að komast í hættu. Sirkus-
hneykslið á dögunum snerti fjöl-
skyldu hans. Brottvikning Alexei
I. Shibayev úr stöðu yfirmanns
verkalýðssambandsins átti sér
stað aðeins 11 dögum áður en
þing hreyfingarinnar kemur
saman og á sama tíma og margt
bendir til þess að Brezhnev eigi í
pólitískum erfiðleikum.
Brottvikningin er m.a. sett í
samband við ástandið í Póllandi
og talin stafa af því að menn séu
almennt farnir að gera sér grein
fyrir því að verkalýðshreyfingin
gæti ekki hagsmuna verka-
manna nógu vel.
Blair Ruble, sérfræðingur í
sovézkum verkalýðsmálum í
Kennan-stofnuninni í Washing-
ton, segir að þetta tákni ekki að
meiriháttar verkföll eða vinnu-
stöðvanir séu í uppsiglingu í
Sovétríkjunum eins og í Póllandi
þegar Samstaða var og hét. En
síðan í desember hafa birzt
greinar í sovézkum blöðum þar
sem verkalýðssambandið er
gagnrýnt fyrir að standa ekki
nógu dyggan vörð um velferð-
armál verkamanna og öryggi á
vinnustöðum.
Þessi gagnrýni og brottvikn-
ing Shibayev kemur heim við
stefnu og pólitískan metnað
Chernenko að dómi Ruble. Hann
telur að Chernenko vinni nú að
því að leggja grundvöll að völd-
um sínum í framtíðinni á svipað-
an hátt og Brezhnev gerði á
valdatíma Nikita Krúsjeffs.
Annar sérfræðingur, Jerry F.
Hough við Duke-háskóla, segir
að brottvikning Shibayevs virð-
ist áfall fyrir Andrei P. Kiril-
enko, sem lengi hefur verið tal-
inn líklegur arftaki Brezhnevs.
Verkalýðsmálin hafa heyrt und-
ir Kirilenko, en nú hefur Chern-
enko snúið sér að því sviði og
rekið mann sem telja má stuðn-
ingsmann Kirilenko, segir
Hough.
Hann bendir á að Brezhnev
hafi lagt áherzlu á að Chernenko
sé hlynntur umbótum og vilji
auka framleiðni. Hann telur lík-
legt að Chernenko muni beita
sér fyrir auknum áhrifum verka-
manna á stjórn fyrirtækja, en
ólíklegt sé að nokkrar breytingar
eigi sér stað fyrr en Brezhnev
fari frá.
Fiskimenn
loka bryggju
í Hamborg
Ilamborg, 8. marz. AP.
NÍU fiskiskip lokuðu bryggju álvers-
fyrirtækisins Dow Chemical í Ham-
borg í dag til að mótmæla mengun,
sem þeir segja að stafi frá úrgangi úr
verinu á Saxelfi.
Heinz Östmann, talsmaður
fiskimanna á Saxelfi er berjast
fyrir verndun fiskimiða sinna,
sagði að þeir hefðu fengið fregnir
um að yfirvöld hefðu leyft Dow
Chemical að losa allt að sex lestir
af úrgangi í fljótið.
Yfirvöld bönnuðu í fyrra sölu á
vissum fisktegundum sem veiðast
í Saxelfi, aðallega ál, þar sem
hann væri ekki hæfur til neyzlu
vegna eiturefna. Fiskimenn svör-
uðu með miklum mótmælaaðgerð-
um á bátum sínum til að krefjast
þess að fljótið yrði hreinsað.
Östmann sagði að skipin sem
mótmæltu mengun Dow Chemical
yrðu kyrr við bryggju álversins í
að minnsta kosti hálfan mánuð og
mundu reyna að koma í veg fyrir
uppskipun úr vöruflutningaskip-
um sem koma með hráefni.
Fiskimenn á Saxelfi krefjast
einnig aðstoðar frá yfirvöldum,
aðallega nýrra laga um hreinsun
fljótsins.
Sluppu med tæpar
3 milljónir marka
(■öppingcn, V l*ýskalandi, 8. mars. AP.
RÆNINGJAR rændu aðfaranótt
mánudags bankastjóra og dóttur
hans á heimili þeirra í Göppingen.
Annar ræningjanna flutti síðan
dótturina um set, en hinn hélt með
bankastjóranum til banka hans.
Krafðist hann 2,7 milljóna marka
lausnargjalds ef bankastjórinn
vildi sjá dóttur sína aftur á lífi.
Varð hann að sjálfsögðu við kröf-
um ræningjans. Dótturinni var
sleppt en ekkert hefur spurst til
ræningjanna.
Furðuský
rannsakað
Topcka, Kansas, 7. marz. AP.
FLUGSTJÓRI U-2 könnunarflugvél-
ar flaug í rúmlega 16 km hæð um
helgina og kannaði í sex tíma um-
merki furðuskýs sem hefur sézt frá
jörðu.
Flugvélin flaug gegnum skýið í
50—60.000 feta (15—18 km) hæð
yfir Mexíkóflóa. Vísindamenn
vona að sýnishorn úr ferðinni færi
svar við uppruna skýsins, sem er
talið stafa frá eldgosi er hafi farið
fram hjá mönnum, í Asíu eða á
Kyrrahafi.
Aðrar hugsanlegar skýringar á
skýinu, en ólíklegri, eru að átt hafi
sér stað kjarnorkusprenging, sem
ekki hafi verið tilkynnt um, eða að
loftsteinn hafi sprungið.
Marxisti veldur uppnámi
í V erkamannaflokknum
l.ondon, 8. marz. AP.
TILVONANDI frambjóðandi Verkamannaflokksins hefur valdið uppnámi í
flokknum með ræðu þar sem hann varaði við blóðsúthellingum og hvatti til
þess að brezku valdastéttinni yrði kollvarpað.
italista".
Sá sem uppnáminu olli er Pat
Walls, yfirlýstur marxisti sem
hefur verið valinn frambjóðandi
Verkamannaflokksins í Bradford
North. Hann er félagi í samtökum
trotskýista, „The Militant Tend-
ency“, sem hófsamir menn í
Verkamannaflokknum vilja reka.
Walls sagði í ræðu, sem Sunday
Times sló upp á forsíðu, að „marx-
istísk Verkamannaflokksstjórn"
mundi steypa „ríkisapparati kap-
„Það hefði í för með sér að kon-
ungdæmið yrði lagt niður ásamt
lávarðadeildinni, hershöfðingjar,
aðmírálar og flugmarskálkar yrðu
reknir ásamt háttsettum embætt-
ismönnum, lögreglustjórum, dóm-
urum og svoleiðis fólki," sagði
Walls.
Hann varaði við því að nema því
aðeins að „valdi valdastéttarinn-
ar“ í þessu kapitalistarríki yrði
hnekkt „munum við standa
frammi fyrir möguleika á borg-
arstyrjöld í Bretlandi og þeim
hræðilegu dauðsföllum óg eyði-
leggingum og blóðsúthellingum
sem það mundi hafa í för með
sér.“
Walls er einn sex félaga „Milit-
ant Tendency", sem vinstrisinnað-
ar flokksdeildir hafa valið í fram-
boð fyrir Verkamannaflokkinn í
kosningunum 1984. Undirnefnd
framkvæmdastjórnar flokksins
átti að koma saman í dag, mánu-
dag, og búizt var við því að hún
hvetti til þess að nýtt val á fram-
bjóðanda færi fram í Bradford,
ekki af því að Wails sé rnarxisti
heldur á þeirri tæknilegu forsendu
að sitthvað hefði verið við at-
kvæðagreiðsluna að athuga.
Hófsamir menn eru æfir vegna
þess að flokkurinn skuli sam-
þykkja að marxistar séu í kjöri
fyrir flokkinn. Þeir leggja hart að
Michael Foot flokksforingja að
reka Militant Tendency úr flokkn-
um eða í það minnsta að koma í
veg fyrir að menn úr félaginu
verði frambjóðendur þar til flokk-
urinn hefur rannsakað samtök
trotskýista.