Morgunblaðið - 09.03.1982, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1982
29
festing
tnanna
Framsóknarflokkur: 1. Skúli
Sigurgrímsson, 2. Ragnar
Magnússon, 3. Jón Guðlaugur
Magnússon, 4. Katrín
Oddsdóttir, 5. Bragi Árnason,
6. Guðrún Einarsdóttir og var
kosning ekki bindandi í sæti.
— Þetta er góð útkoma fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og ég vil
þakka þeim sem studdu okkur
í prófkjörinu og öllum, sem
lögðu hönd á plóginn við fram-
kvæmd þess, sagði Richard
Björgvinsson, sem er efsti
maður á lista sjálfstæð-
ismanna. — Ég tel okkur hafa
sterkan lista og við hefðum
ekki náð þessum árangri nema
með einingu allra sjálfstæð-
ismanna og er árangurinn
staðfesting á þessari einingu.
Þátttakan er í minnsta lagi, en
vel má líta á hana sem skoð-
anakönnun, sagði Richard
ennfremur.
— Ég er mjög ánægður með
útkomuna og vona að hér sé að
skila sér sameining sjálfstæð-
ismanna, sagði Arnór Pálsson
sem skipaði sæti á S-lista við
síðustu kosningar. — Þessi
hópur kemur til með að geta
unnið vel saman sem er mjög
þýðingarmikið og ég þykist
viss um að það geti hann og
geri. Þátttakan var að vísu
ekki mikil og trúlega of lítil til
að mynda sér ákveðnar skoð-
anir, en úrslitin sýna þó stefn-
una, sagði Arnór einnig.
því þó ítalska sé þar töluð og ítölsk
áhrif ríkjandi, er hún talin sérstæð
og ólík meginlandi Italíu um margt,
enda þar mætzt fjölbreytilegir
menningarstraumar.
Stærsta borgin á Sikiley er að
sögn Ingólfs Palermo, en sú fræg-
asta Taormina og er ferðamanna-
bærinn Giardini Naxos steinsnar frá
henni, við „sítrónuströndina" undir
hlíðum sjálfrar Etnu. Að sögn Ing-
ólfs hefjast ferðirnar til Sikileyjar
þann 8. apríl nk. og standa þær fram
í október nk. Hann sagði mjög mikla
eftirsókn eftir ferðunum og væri nú
þegar upppantað í margar þeirra.
Pétur Björnsson sem starfað hef-
ur hjá Útsýn í átta ár verður aðal-
leiðsögumaður á Sikiley i sumar.
Hann fjallaði í hádegisverðarboðinu
um helstu þætti í menningu og sögu
eyjarinnar og kynnti síðan við-
stadda Sikileyjarbúa og túlkaði
málflutning þeirra. Fyrstur tók til
máls fulltrúi borgarfulltrúa Giard-
ini Naxos, þá fulltrúi ferðamálaráðs
eyjarinnar, auk þess fleiri viðstadd-
ir. Þeir báru allir mikið lof á mót-
tökurnar sem þeir hefðu fengið hér- :
lendis. Lýstu síðan landi sínu og
þjóð nokkrum orðum og sögðust geta
lofað íslendingum því, að á Sikiley
fengju þeir nóg af sól og góðar mót-
tökur. Þrátt fyrir að Islendingar töl-
uðu fáir ítölsku og líklega enginn
Sikileyjarbúi mikið í íslenzku, þá
væri háttur Sikileyjarbúa að tjá sig
með hjartanu og gætu þeir því full-
vissað okkur um að við fengjum
jafngóðar móttökur og þeir hefðu
fengið hér.
Hádegisverðarboðinu lauk með
því að skemmtikraftarnir sikileysku
tóku lagið fyrir viðstadda og Ingólf-
ur þakkaði gestum komuna.
A myndinni eni frá vinstri til hægri: Anton Dolin, Helgi Tómasson, Sveinn Einarsson, John Gilpin og Jón Stefánsson.
Þjóðleikhúsið:
Ballettinn Giselle frumsýndur
IIINN kunni ballett Giselle verður
frumsýndur í Þjóðleikhúsinu nk.
lostudag. Anton I)olin og John
Gilpin hafa æft ballettinn og
stjórna sviðssetningu í samein-
ingu. Danshöfundur er Anton Dol-
in. Ilann reisir dansana á uppruna-
legri gerð eftir Jean ('oralli og Jul-
es Perrot auk Mariusar Petipa.
Tónlistin er eftir franska tónskáld-
ið Adolphe Adam. Með hljómsveit-
arstjórn fer Jón Stefánsson og
konsertmeistari er Guðný Guð-
mundsdóttir. En 10 manna kamm-
ersveit skipuð félögum úr Sinfón-
íuhljómsveit íslands leikur undir.
Iæikmynd og búningar eru eftir
hinn breska leikmyndahönnuð
William Chappell.
Helgi Tómasson ballettdans-
ari kom hingað til lands í gær.
Hann mun dansa annað aðal-
hlutverkið á fyrstu 6 sýningun-
um. Helgi, sem hefur verið aðal-
dansari hjá New York City Ball-
et undanfarin ár, hefur dansað
hlutverk í Giselle víðs vegar um
heim. Það er því öldungis gleði-
efni að Helgi hafi séð sér fært að
taka þátt í þessari sýningu Þjóð-
leikhússins. Enda lét Sveinn
Einarsson þjóðleikhússtjóri í
ljós mikla ánægju yfir komu
Helga á blaðamannafundi sem
haldinn var í tilefni af frumsýn-
ingu ballettsins.
Er Helgi var spurður að því
hvað tæki við að þessu verkefni
loknu kvaðst hann hafa mikið á
prjónunum. Fyrst færi hann til
Miami á Florida til að taka þátt
í sýningu. En þar kæmu margir
frægir dansarar fram. Síðan
mundi hann dansa á vegum
leikhúss í Suður-Karólíufylki.
Og í apríl hæfust svo æfingar á
ballettum í New York sem flytja
ætti í maí og júní.
Helgi gat þess ennfremur að
nú væri einn íslendingur við
nám í skóla New York City-
ballettsins. Það er Einar Sveinn
Þórðarson. Er hann nú hingað
kominn sérstaklega til að taka
þátt í þessari sýningu.
Af öðrum þeim sem taka þátt í
sýningunni má nefna Per Arthur
Segerström. En hann mun taka
við hlutverki Helga Tómassonar.
Ásdís Magnúsdóttir mun dansa
hlutverk Giselle, en Ólafía
Bjarnleifsdóttir hefur einnig æft
hlutverkið. Enn fremur er ætl-
unin að María Gísladóttir komi
síðar og dansi Giselle sem gest-
ur. Hlutverk Myrthu drottn-
ingar dansa á víxl Guðmunda
Jóhannesdóttir og Birgitte
Heide. Að öðru leyti kemur allur
íslenski dansflokkurinn fram í
þessari sýningu ásamt leikurum
og öðrum dönsurum. Með
stærsta leikhlutverkið fer Mar-
grét Guðmundsdóttir.
Ballettinn Giselle var frum-
fluttur í Parísaróperunni árið
1841. Hefur hann síðan verið
settur á svið í mörgum löndum.
Sagan er eftir þá Theophile
Gautier og Vernoy de Saint-
Georges. Þeir reistu hana á
þýskri þjóðsögu sem Hinrik
Heine skráði.
Að þessari sýningu Þjóðleik-
hússins á Giselle standa valin-
kunnir menn. Anton Dolin og
Johr Gilpin hafa mikla reynslu á
sviði balletts. Hafa þeir bæði
dansað aðalhlutverk i nafntog-
uðum leikhúsum og sett víða upp
balletta. Þess má geta að Anton
Dolin hefur sett ballettinn Pas
de Quatre á svið í Þjóðleikhús-
inu. Var það á Listahátíð 1976
með íslenska dansflokknum.
Einnig sá hann um uppsetningu
sovéska ballettflokksins á sama
ballett. En hann var fluttur í
Þjóðleikhúsinu í fyrravetur.
Afstaða reikistjarna
hættuleg jörðinni?
„SÚ SAGA hefur gengið manna á
meðal, hérlendis sem erlendis, að
á árinu 1982 muni reikistjörnurnar
mynda beina línu út frá sól eða því
sem næst, með hinum verstu af-
leiðingum fyrir jarðarbúa," scgir
m.a. í Almanaki fyrir ísland 1982
sem Iláskóli íslands gefur út.
Upphafsmenn þessarar sögu
eru sagðir vera tveir vísinda-
menn, sem gáfu árið 1974 út bók
um efnið. Telja þeir að hinn 10.
mars, þ.e. á morgun, þegar reiki-
stjörnurnar eru allar sömu meg-
in við sólu, valdi þær svo gífur-
legum sólgosum sem hafi m.a.
þau áhrif að hræðilegir jarð-
skjálftar verði. I þættinum „Ver-
öld“ í Mbl. sl. sunnudag segir
nánar frá þessu máli og þar
kemur m.a. fram að aðrir vís-
indamenn berjist hetjulegri bar-
áttu við að leiðrétta þessa skoð-
un. Hafa þeir sagt að reiki-
stjörnurnar séu allar sömu meg-
in við sólu á tímabilinu 24. janú-
ar til 10. apríl og að Móður jörð
sé síst meiri hætta búin 10. mars
en aðra daga.
I Almanakinu segir að bók vís-
indamannanna hafi ekki orðið
þeim til álitsauka þar sem þeir
hafi farið frjálslega með stað-
reyndir. Sést á myndinni sem
fylgir hér með að nokkuð vantar
upp á að reikistjörnurnar séu í
beinni línu, en þessi er afstaða
þeirra hinn 10. mars þegar þær
mynda minnst horn séð frá sólu
á þessu ári.
Tcikningin hér sýnir afstöðu reikistjarnanna 10. mars 1982, en á tíma-
bilinu 24. janúar til 10. apríl eru þær allar sömu megin sólar.
Mynd úr Almanaki fyrir Island 1982.
11 rússnesk njósnadufl
hafa fundizt á 10 árum
RÚSSNESKA hlustunarduflið, sem
fannst á dögunum undan landi er
ellefta sovézka njósnaduflið, sem
finnst hér við land síðan árið 1972.
I^tndhelgisgæzlan heldur skrá yfir
fund slíkra dufla og eru þau yfir
leitt skoðuð af sérfræðingum Land-
helgisgæzlunnar eða Varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli.
Í sumum tilfellum skoða báðir
aðilar þessi njósnadufl eins og
nú. Duflið var flutt til Keflavík-
urflugvallar með þyrlu Varnar-
liðsins.
1972: 28. október fannst dufl á
reki við Vestmannaeyjar.
1975: 22. febrúar fundust tvö
dufl rekin á land, annað við
Stokksnes og hitt við Landeyjar-
sand. 2. apríl fannst dufl rekið á
Fossafjöru á Síðu. 3. apríl fannst
dufl rekið á fjöru í Ófeigsfirði á
Ströndum. 20. júní fannst dufl á
reki út af Krísuvíkurbjargi.
Fimm dufl fundust því á reki á
fjögurra mánaða timabili árið
1975.
1976: 22. júní fannst dufl á reki
út af Krísuvíkurbjargi.
1979: 6. maí fannst dufl á Þing-
eyrasandi í Húnafirði. 22. júlí
fannst dufl á reki utan við
Grímsey. 22. ágúst fannst svo
dufl á reki við Horn og loks er
ellefta duflið það sem fannst und-
an landi á dögunum.