Morgunblaðið - 09.03.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1982
39
Fræðsluráð:
Vogaskóli rekinn áfram
með öllum aldursárgöngum
FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur sam-
þykkti í gær tillögu, sem Kristján J.
Gunnarsson, fræðslustjóri og Guð-
mundur Guðbrandsson, skólastjóri,
höfðu unnið um rekstur skólans á
næsta ári, sem er meira í samræmi
við fjárveitingar til hans lögum sam-
kvæmt en verið hefur. í þeirri tillögu
er gert ráð fyrir því að aldursflokkur
verði í einni bekkjardeild, ef nem-
endur eru ekki fleiri en 30. Vegna
óhagstæðrar skiftingar í aldurs-
flokka má húast við að í bekkjum
verði allt frá 16 nemendum í 4
bekkjum og upp í 30 í einum. Var
tillagan samþykkt með 6 atkvæðum
gegn I atkvæði. Verða þannig allir
nemendur úr hverfinu áfram í skól-
anum næsta vetur.
Bragi Jósepsson, fulltrúi Al-
þýðuflokksins, gerði svo grein
fyrir mótatkvæði sínu: Ég tel mik-
ilvægt að íbúar einstakra borg-
arhverfa fái að ráða miklu um
þróun og skipulag viðkomandi
skóla. Ég er mótfallinn þvíað nem-
endum í grunnskólum Reykjavík-
ur sé stokkað upp vegna fjölgunar
eða fækkunar í hverfunum, en tel
aftur á móti að eðlilegt sé, að gera
nauðsynlegar breytingar á rekstri
einstakra skóla án þess að færa
nemendur milli hverfa eða með
því að leggja niður heila bekki eða
jafnvel heila skóla. Ég tel því ekki
rétt að samþykkja breytingu sem
lögð er til. Ég tel að kostur A sé
aðgengilegri.
Vegna orða Braga, bókuðu aðrir
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Al-
þýðubandalags og Framsóknar-
flokks: Vegna bókunar Braga Jós-
epssonar viljum við taka fram að
með þeirri samþykkt, sem við höf-
um gert um skipulagningu skóla-
starfs í Vogaskóla fyrir næsta
skólaár, er ekki gert ráð fyrir að
„færa nemendur milli hverfa", og
því síður .. leggja niður ... heila
skóla". Meginefni samþykktarinn-
ar er að Vogaskóli starfi áfram
með öllum aldursárgöngum, með
skipan sem gerir unnt að reka
hann innan ramma núgildandi
laga og reglugerða um skólakostn-
að.
Við viljum leggja áherslu á að
þær reglur gera erfitt að skipu-
leggja skólastarf í grunnskólum
Reykjavíkur þannig að æskilegur
nemendafjöldi verði í bekkjum.
Brýnast væri í því sambandi að
gera unnt að fækka í fjölmennustu
deildunum, þannig að hver skóli
verði gerður sjálfstæð rekstrar-
eining.
V ogaskólamálinu
er ekki lokið
- segir í yfirlýsingu foreldra- og kennarafélagsins
Á samkomunum í Akrancskirkju verður sagl frá kristniboði í Afríku.
Myndin er af börnum í Afríku.
Samkomur á Akranesi
/KSKULÝÐS- og kristniboðsvika
hófst í Akraneskirkju síðastliðið
sunnudagskvöld, á æskulýðsdaginn.
KFUM og KFUK á Akranesi standa
fyrir samkomum í kirkjunni alla
þessa viku og fram á næsta sunnu-
dag.
Ræðumenn eru margir og flytja
þeir hugvekjur og kynna íslenzka
kristniboðið í Eþíópíu og Kenýa.
Ungt fólk er meðal þeirra sem
taka til máls og mikið er um söng.
Meginefni vikunnar er „Guð kall-
ar enn“, og verður þetta efni rætt
frá ýmsum hliðum á samkomun-
um. Þá er samkomugestum gefinn
kostur á að leggja eitthvað af
mörkum til kristniboðsstarfsins.
í kvöld, þriðjudag, syngja og
tala tveir ungir guðfræðingar,
Gunnar J. Gunnarsson og Hilmar
Baldursson. Auk þess verður al-
mennur söngur.
Allir eru velkomnir á samkom-
urnar í Akraneskirkju, yngri
jafnt sem eldri. Þær hefjast dag-
lega kl. 20.30.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi yfirlýsing frá foreldra- og
kennarafélagi Vogaskóla:
„Baráttunni um framtíð Vogaskóla
er ekki lokið.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um, hefur fræðsluráð samþykkt að
halda áfram grunnskólarekstri í
Vogahverfi, þó með vissum skilyrð-
um, sem fram koma í nýgerðri til-
lögu fræðslustjóra og skólastjóra
Vogaskóla. Skilyrðin eru, að bekkj-
ardeildum verði fækkað úr 17 í 14
þannig, að fleiri nemendur verði í
hverri bekkjardeild en nú er.
En Vogaskóli hefur um tíma verið
rekinn með 19 nemendur að meðal-
tali í bekkjardeild en opinber staðall
er 24 nemendur í bekkjardeild.
Þessu fylgja uppsagnir 3—4 kenn-
ara og 4—5 kennslustofur myndu
losna, sem gætu nýst borginni til
annars reksturs.
Hvað hefir þessi sparnaður í för
með sér fyrir íbúa Vogahverfis?
1) Oæskilega stórar bekkjardeildir.
2) Litla möguleika á stækkun skól-
ans, þegar þess verður þörf.
Spurningin er: Hvað á að gera við
nemendur, er bætast við núverandi
nemendafjölda. Vísbendingar eru
um fjölgun nemenda næstu 5 árin
en skv. íbúaskrá árið 1980 voru 167
börn á aldrinum 0—5 ára í hverfinu
og þeim hefur fjölgað síðan. í skóla
með 10 bekkjardeildum er þessi
kjarni efni í 3—400 nemenda skóla.
Ennfremur eru fyrirhugaðar
íbúðarbyggingar í nágrenni skólans.
Stefna fræðsluráðs bendir til
þess, að fjölga verði enn nemendum
í þessum 14 deildum, sem þegar eru
of stórar eða að vísa verði nemend-
um í Langholtsskóla. Kjarni máls-
ins er þessi:
Sveiflum í nemendafjölda er ekki
hægt ad mæta með því að binda
fjölda nemenda í bekkjardeild við
staðal.
Surnir skólar verða óhjákvæmilega
dýrari en aðrir skamma stund.
Þetta vilja fræðsluyfirvöld ekki
skilja.
Á fundi fulltrúaráðs Foreldra- og
kennarafélags Vogaskóla var því
fagnað, að fræðsluráð samþykkti
framhald grunnskólareksturs í
Vogahverfi.
Samtímis tók ráðið afstöðu gegn
fyrirhugaðri lausn málsins og þeim
skilyrðum, sem í raun felast í stefnu
yfirvalda. Ráðið telur réttara að
halda 17 bekkjardeildum og fækka
hvorki kennurum né stofum. Bæta
má nýtingu þeirra á ýmsa vegu.
Afstaða þessi er ekki endanleg
eða bindandi fyrir félagið. 9. mars
nk. verður almennur fundur með
íbúum hverfisins í heild. Um leið er
leitað til Kennarasambands Islands
og annarra foreldrafélaga.
Fulltrúaráðið mótmælir því, sem
Kristján Benediktsson, formaður
fræðsluráðs, segir í viðtali við
Dagblaðið/Vísi 3. mars sl. Hann
túlkar þar samþykkt fræðsluráðs
persónulega og segir, að fulltrúar
foreldra hafi sætt sig við fyrirhug-
aðar breytingar. Hið rétta er, að
fulltrúarnir fögnuðu eftirfarandi
samþykkt á fundi fræðsluráðs:
„Með tilliti til eindreginna óska
aðstandenda Vogaskólans telur
fræðsluráð rétt að gerð verði áætlun
um skólahald í Vogahverfi næsta
skólaár, sem miðist við að í Voga-
skóla verði starfræktur óskertur
grunnskóli, enda fari kostnaður við
skólahaldið ekki vcrulcga fram úr
þeim fjárveitingum, sem skólinn á
rétt á miðað við nemendafjölda."
(Okkar undirstrikanir).
Foreldra- og kennarafélag
Vogaskóla.**
Stjörnubíó frum-
sýnir Hrægammana
STJÖRNUBÍO frumsýnir í dag banda-
rísku kvikmyndina Hrægammana með
Richard Harris, Ernest Borgnine, Ann
Turkel og Art Garney í aðalhlutverk-
um.
Kvikmyndin gerist árið 1991.
Kjarnorkustyrjöld hefur svo til eytt
öllu lífi á jörðinni. Ekkert vex á
landi og höfin eru sneydd öllu lífi.
Aðeins nokkrar hræður hafa lifað af
eyðinguna og þær þjást af hungri.
I kynningu kvikmyndahússins
segir svo um myndina: „Falk og
Miriam hafa komið sér fyrir í gam-
alli olíustöð. Falk reynir af öllum
mætti að finna eitthvað ætilegt og í
einni ferðinni koma Hrægammarnir
auga á hann. Hrægamntarnir hafa
aðeins eitt markmið — að drepa
allt, sem á vegi þeirra verður. Þeir
ætla sér að ráða lögum og lofum í
því viðbjóðslega þjóðfélagi, sem eft-
ir stendur."
Gerist nú margt æsilegt, en sögu-
þráður verður ekki rakinn frekar.
Hvers vegna er
tvöföld líming
1)
Állisti - breidd hans ræður loftrúmi á
milli glerja og er hann fylltur með raka-
eyðingarefni.
2)
Butyllími er sprautað á hliðar állistans.
Butyllímið er nýjung sem einungis er í
einangrunargleri með tvöfaldri limingu.
Butyl er 100% rakaþétt og heldur eigin
formi - hvað sem á dynur!
3)
Rúðan er samsett. Butylið heldur
glerinu frá állistunum og dregur þanniq
úr kuldaleiðni.
4)
Yfirlíming, Thiocol.gefur glerinu í senn
teygjanleika og viðloðun, sem heldur
rúðunum saman.
Við hvetjum þig til þess að kynna þér í hverju yfirburðir tvöfaldrar límingar
eru fólgnir. Þeir leggja grunninn að vandaðra og endingarbetra einangrunargleri,
sem sparar þér vinnu og viðhaldskostnað er á líður - tvöföld liming er betri
Einangrunargler með tvöfaldri límingu
- eini framleiðandinn á Islandi *
HF
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 53333