Morgunblaðið - 09.03.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1982
47
Norska skemmtiferðaskipið Ilmatar.
Norðmenn koma í
„víking“ í sumar
Hækkun ábyrgðartrygginga:
Tryggingafélögin vænta svars
frá ráðuneytinu innan tíðar
„ÞESSI mál eru öll í athugun um
þessar mundir og medferðar hjá
Tryggingaeftirlitinu, en það liggja
ekki fyrir neinar ákveðnar prósentu-
tölur varðandi einstaka þætti. Við
hins vegar leggjum fram okkar for
sendur og álit á stöðunni eins og
hún er í dag,“ sagði Ólafur B. Thors,
forstjóri Almennra trygginga, í sam-
tali við Mbl., er hann var inntur eftir
því hversu mikla hækkun trygg-
ingafélögin hefðu farið fram á á
ábvreðartrvíirinram.
Ólafur B. Thors sagði hins veg-
ar, að félögin hefðu nú fengið
7,51% hækkun, eða sem næmi
vísitöluhækkuninni 1. marz sl., en
það framreiknað næstu tólf mán-
uði þýðir tæplega 34% hækkun.
„Það verður síðan ráðuneytisins
og eftirlitsins, að meta þessar for-
sendur okkar og ákveða hversu
hækkunin verður mikil," sagði
Ólafur B. Thors ennfremur.
AðsDurður sagði Ólafur, að
tryggingafélögin ætluðu að bíða
með að senda bráðabirgðareikn-
inga eins og venja hefur verið
undanfarin ár. „Við erum að vona
það, að málið liggi það ljóst fyrir,
að hægt verði að taka ákvörðun
þegar fyrri hlutann í þessum mán-
uði. Við ætlum okkur'því ekki að
senda út bráðabirgðakvittanir
fyrr en ljóst er að svo fer ekki,"
sagði Ólafur B. Thors, forstjóri
Almennra trygginga að síðustu.
NOKSKA ferðaskrifstofan Bennet (
Osló og norskra dagblaðið Aftenpost-
en hafa ákveðið að efna til sérstakrar
ferðar á skemmtiferðaskipi í sumar,
sem nefnist „I vesturvíking“. í ferð-
inni verða Skotland, Orkneyjar, Hjalt-
land, Færeyjar og ísland heimsótt.
Færeyska blaðið Dimmalætting
skýrir frá því fyrir skömmu, að
skemmtiferðaskipið Umatar hafi
verið leigt til ferðarinnar, en það
tekur 350 farþega og er verðið fyrir
farþega á bilinu 5.100 krónur til
12.200 krónur. Þessi ferð er farin í
tilefni af því að nú er talið að al-
mennt séu liðin um 1000 ár síðan
víkingarnir tóku sér bólfestu í um-
ræddum löndum.
Áætlað er að Ilmatar leggji af
stað í ferðina frá Osló hinn 5. sept-
ember næstkomandi og á skipið að
koma til baka þann 17. september.
Bókmenntakynn-
ing BSRB í Reykja-
vík og á Akureyri
Bókmenntakynningar BSKB
í Keykjavík og á Akureyri.
MIÐVIKUDAGINN 10. marz klukk-
an 20.30 heimsækir Jónas Árnason
rithöfundur opinbera starfsmenn að
Grettisgötu 89. Helgi Seljan alþing-
ismaður talar um rithöfundinn,
Baldvin Halldórsson leikari les upp
og Jónas og Valur Óskarsson kenn-
ari syngja Ijóð Jónasar.
Laugardaginn 13. marz klukkan
14 heimsækir síðan Indriði G.
Þorsteinsson rithöfundur opin-
bera starfsmenn á Akureyri að
Hótel Varðborg. Hjörtur Pálsson
dagskrárstjóri kynnir höfundinn
og Jóhann Pálsson leikari les upp
ásamt Indriða.
Hollustuvernd rfkisins:
Tveir sækja um
forstjórastöðu
TVKIR sóttu um stöðu forstjóra
Hollustuverndar ríkisins, en um-
sóknarfrestur um starfið rann út 1.
marz sl.
Að sögn Páls Sigurðssonar,
ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu, sóttu um
starfið þeir Örn Bjarnason, lækn-
ir, og Eggert Ásgeirsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Rauða
kross íslands.
— Málið hefur nú verið sent
stjórn Hollustuverndar ríkisins til
umsagnar, en síðan mun ráðherra
taka ákvörðun um veitinguna,
sagði Páll Sigurðsson ennfremur.
Ný leiðrétting
á Flökkulífi
UNDIRRITUÐUM er bæði Ijúft og
skylt að leiðrétta hvimleiða missögn
í Flökkulífi þar sem sagt er frá
Bandaríkjaför Ólafs Jóh. Nigurðs-
sonar skálds.
Þar segir ranglega að hann hafi
hlotið bandarískan styrk til lang-
dvalar við Columbia-háskólann,
en raunin er sú að hann hlaut
ofurlítinn styrk frá Menntamála-
ráði til vesturfarar og varð að
kosta háskóladvölina að mestu
sjálfur. Þessi missögn mín í
Flökkulífi er ekki sprottin af illum
hvötum, heldur einfaldlega byggð
á misskilningi. ilannes Nigfússon, L,
SHARP
rísandi merki
-UJ l.'IU^tvm Í umntmwi