Morgunblaðið - 09.03.1982, Blaðsíða 40
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
Síminn á afgreiöslunni er
83033
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1982
Kjarvalsmynd
á 127 þúsund
HNOVALLAMYND eftir Jóhannes
S. Kjarval var slegin á málverkaupp-
boði Klausturhóla í gær á 103 þús-
und krónur, sem með söluskatti ger
ir 127.205 krónur, eða nálega 13
milljónir gkróna.
Önnur Kjarvalsmynd, sú er
Guðmundur Axelsson keypti úr
eigu dansks greifa, var slegin á 50
þúsund krónur, sem með sölu-
skatti gerir 61.750 krónur.
Júní ’81 - marz ’82:
Afengi og
tóbak hækk-
aði um 53%
Verdbótavísitala hins
vegar aðeins um 39%
ÁFENGI og tóbak hækkaði að
meðaltali um 10% l.marz sl. eins
og skýrt hefur verið frá, en alls
hefur áfengi og tóbak því hækk-
að um liðlega 53% frá því í júní-
byrjun á síðasta ári, en á sama
tíma hefur verðbótavísitala
hækkað um liðlega 39%, eða 14
prósentustigum minna.
l.jósm. Mbl.: Kristján
Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra um ÍSAL-málið:
Kuligowski
til
Frakklands
Kemur aftur til lands-
ins um mánaðamótin
PÓLSKI stórmeistarinn Adam
Kuligowski hélt af landi brott á
sunnudag. Hann fór til Frakk-
lands, þar sem hann tekur þátt í
sveitakeppni í skák en síðar í
vikunni heldur hann til New
York til þátttöku í skákmóti.
„Ég er ákaflega ánægður
með þær viðtökur sem ég fékk
hér á landi og er ákveðinn í að
koma aftur um mánaðamótin
þegar mótinu í New York er
lokið," sagði Kuligowski í sam-
tali við Mbl. áður en hann hélt
af landi brott. Kuligowski
sagði, að hann hefði hug á að
dvelja hér á landi næstu miss-
erin.
Stórmál sem ég tel eðlilegt að ráð-
herranefndin ræði við dr. Miiller
AUar áfengis- og tóbakshækk-
anirnar fjórar á þessu tímabili
hafa verið umfram hækkun verð-
bótavísitölunnar, en misjafnlega
mikið.
í byrjun júní á síðasta ári
hækkaði áfengi og tóbak um 10%,
en verðbótavísitala hins vegar um
8,01%.
í byrjun september sl. hækkaði
áfengi og tóbak um 10%, en verð-
bótavísitala um 8,99%
í byrjun desember sl. hækkaði
áfengi og tóbak svo um 15%, en á
sama tíma hækkaði verðbótavísi-
tala um 9,92%.
Loks hækkaði áfengi og tóbak
um 10% í byrjun marz sl., en verð-
bótavísitala hækkaði hins vegar
um 7,51%.
Gunnar Thoroddsen og Steingrímur Hermannsson telja, ad iðnaðarráðherra standi rétt að málum
„ÞETTA er stórt mál sem varðar
ríkisstjórnina alla og ég tel eðlilegt,
að þriggja manna ráðherranefndin
ræði við dr. Miiller," sagði Friðjón
Þórðarson dómsmálaráðherra, sem
setið hefur í þriggja manna ráð-
herranefndinni sem fjallað hefur um
ISAL-málið í fjarveru forsætisráð-
herra, er hann var spurður álits á
svari iðnaðarráðherra, Iljörleifs
Guttormssonar, til dr. Miillers, þar
sem hann býður honum til einkavið-
ræðna, en dr. Miiller hafði áður lýst
sig reiðubúinn til viðræðna við ráð-
herranefndina. Aðspurður um sama
mál sagði forsætisráðherra m.a., að
hann vænti þess að hann og Stein-
Smygluðu hass-
olíu í iðrum sér
HÆSTIRETTUR ógilti í gær
framlengdan gæzluvarðhalds-
úrskurð, sem kveðinn var upp á
mánudag í síðustu viku í ávana-
og ITkniefnadómstóinum yfir
manni, sem mikið hefur komið
við sögu fíkniefnamála hér á
landi. Gæzluvarðhald var fram-
lengt til 17. marz, en maðurinn
hafði setið í gæzluvarðhaldi á
fjórðu viku. Maðurinn er
grunaður um meiri háttar fíkni-
efnamisferli. Kmbætti ríkissak-
sóknara gerði ekki kröfu til
þess, að hinn framlengdi gæzlu-
varðhaldsúrskurður yrði stað-
festur.
Maðurinn kom til landsins um
áramótin og var fíkniefna leitað
á honum en engin fundust.
Skömmu síðar var komið til
dreifingar hér á landi mikið
magn af hassolíu. I kjölfarið var
maður handtekinn og bar hann,
að hann hefði ásamt fyrrnefnd-
um manni farið til Indlands og
fest kaup á hassolíu. Maðurinn
var handtekinn og viðurkenndi
hann, að hafa farið í umrædda
ferð til Indiands. Þeim félögum
bar ekki saman um hve mikið
magn þeir festu kaup á, en eftir
því sem næst verður komist var
það á bilinu 300 til 400 grömm.
Andvirði þessa hassolíumagns
nemur á markaði eitthvað á
milli 270 þúsund til 360 þúsund
krónum.
Mennirnir smygluðu hassolí-
unni með því að setja hana í
smokka og gleypa þá og geyma í
iðrum sér.
Þetta er í fyrsta sinn, að
spurst hefur til íslendinga á
Indlandi gagngert til að festa
kaup á hassi. Vitað er, að menn
hafa farið í innkaupaleiðangra
til Pakistans og einnig Afganist-
ans. Fyrir nokkrum árum var ís-
lendingur hnepptur um skeið í
fangelsi í Afganistan fyrir kaup
á hassi.
grímur Hermannsson myndu ræða
við iðnaðarráðherra og dr. Miiller að
afloknum fundi þeirra, en Stein-
grímur Hermannsson sagði aftur á
móti, að mál þetta væri tvímælalaust
í höndum iðnaðarráðherra og hefði
hann samkvæmt öllum lögum og
reglum rétt til að ræða við hann
sjálfur.
Friðjón Þórðarson sagði einnig,
að hann reiknaði með að mál þetta
yrði rætt á ríkisstjórnarfundi sem
halda á árdegis í dag. Steingrímur
Hermannsson er fulltrúi Framsókn-
arflokksins í ráðherranefndinni, en
auk hans skipa hana Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra og Hjör-
leifur Guttormsson iðnaðarráð-
herra. Steingrímur sagði, er Mbl.
ræddi við hann: „Þetta er mál sem
er tvímælalaust í höndum iðnaðar-
ráðherra og hann hefur samkvæmt
öllum reglum og lögum forystu um,
svo það er rétt að hann ræði málið
við dr. Múller. Ráðherranefndir eru
fyrst og fremst til að spara ríkis-
stjórnarfundi og þær eiga að vera
viðkomandi ráðherrum til aðstoðar í
stórum málum. Svo þó ráðherra-
nefnd hafi verið skipuð í þetta mál,
þá er það að sjálfsögðu í höndum
iðnaðarráðherra." Aðspurður um
hvort hann og Gunnar Thoroddsen
myndu einnig ræða við dr. Múller
svaraði hann: „Það getur orðið, ég
geri ráð fyrir að við hittum hann
líka.“
Svar forsætisráðherra, Gunnars
Thoroddsen, er hann var spurður
álits var svohljóðandi: „Islenzk
stjórnskipun kveður á um verka-
skiptingu milli ráðherra. Hver
þeirra hefur sín lögákveðnu verk-
efni. Þannig fer iðnaðarráðherra
með iðnaðar- og orkumál, þar á
meðal málefni ÍSAL, eins og fyrir-
rennarar hans hafa einnig gert. En
fjölmörg mál og sérstaklega stórmál
eins og álverið í Straumsvík eru
auðvitað rædd á ríkisstjórnarfund-
um. Þá er ráðherrum frá hinum
stjórnaraðilunum oft falið að fjalla
um mál með fagráðherrunum og
m.a. að undirbúa tillögur til ríkis-
stjórnar. í þessu deilumáli nú um
álverið höfum við Steingrímur Her-
mannsson verið valdir til þess.
Ég vænti þess að forstjóri Alu-
suisse komi hingað til fundar í
marzmánuði og eftir viðræður iðn-
aðarráðherra og hans, geri ég ráð
fyrir að við Steingrímur ræðum við
þá um lausn vandamálanna þar sem
hækkun á rafmagnsverði er mest
aðkallandi, en mörg önnur atriði er
þar um að ræða.“
Hlíf felldi samn-
ingana vid ÍSAL
Verkamannafélagið HJíf í Hafnar-
fírði felldi á laugardag samkomulag
verkalýðsfélaganna og íslenzka ál-
félagsins hf. Hins vegar hafa málm-
iðnaðarmenn, rafvirkjar, bygg-
ingamenn og verzlunarmenn allir
samþykkt samningana. Verka
kvennafélagið Framtíðin í Hafnar
firði hefur cnn ekki fundað um
samningana. Meðal Hlífarmanna
mun ráðgert að halda annan félags-
fund á fimmtudag.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun það einna helzt
hafa verið gagnrýnt meðal félags-
manna í Hlíf, að þriðja vaktin er
felld niður. Fellur vaktaálag því
niður í 24% í stað 36% áður. Hins
vegar er þriggja mánaða aðlögun-
artími á þessar breytingar og í
samningunum tókst að koma í veg
fyrir starfsmannafækkun og
launalækkun. Vinnutími verður
hins vegar skemmri. Bónusgreiðsl-
ur verða fastar miðað við það sem
áður var.
Verzlunum verður heimilt
að hafa opið á laugardögum
„MANUDAGA til fostudaga skal heim-
ilt að opna sölustaði klukkan 08.00 og
loka skal þeim eigi síðar en klukkan
18.00. Á laugardögum skal heimilt að
hafa sölustaði opna klukkan 08.00—
12.00.“ Þetta kemur fram í bréfi
skrifstofustjóra borgarstjórnar varð-
andi tillögur um breytingar á 2. grein
samþykktar um afgreiðslutíma verzl-
ana í Reykjavík, sem lagt var fyrir
borgarráð fyrir skömmu.
Ennfremur segir: 2. málsgrein 2.
greinar orðist svo: Auk þess, sem að
framan greinir er verzlunum heimilt
að hafa opið á eftirtöldum tímum:
Allt að 8 stundir á mánudegi til
föstudags klukkan 18.00—22.00 á
tímabilinu 1. september — 31. maí.
Verzlanir mega þó ekki nýta þessa
heimild á fleiri dögum en 2 í hverri
Viku. Allt að 4 stundir á mánudegi til
föstudags klukkan 18.00-22.00 á
tímabilinu 1. júní — 31. ágúst. Verzl-
anir mega þó nýta þessa heimild
fleiri daga en einn í hverri viku.
Borgarráð samþykkti á fundi sín-
um, að leggja til við borgarstjórn, að
framangreindar breytingar verði
samþykktar. í fyrstu umræðu í borg-
arstjórn 2. marz sl. voru breyting-
arnar samþykktar samhljóða, en
þær koma til lokaafgreiðslu á næsta
fundi borgarstjórnar.