Morgunblaðið - 08.04.1983, Side 1
72 SÍÐUR
78. tbl. 70. árg.____________________
Kína — Bandaríkin:
Kínversk stúlka
kældi sambúðina
Peking, 7. aprfl. AP.
KÍNVERSK stjórnvöld slitu í gær íþrótta- og menningarleg-
um tengslum við Bandaríkjamenn það sem eftir lifir ársins
1983 aö minnsta kosti. Ástæðan er sú, að bandarísk stjórn-
völd veittu ungri kínverskri tennisstjörnu, Hu Bo, hæli sem
pólitískur flóttamaður.
Þar með drógu Kínverjar til baka þátttöku sína í 10 íþrótta-
viðburðum í Bandaríkjunum svo eitthvað sé nefnt. Bannið
tók gildi í gær, í bókstaflegum skilningi, bandarísk kvik-
mvndavika í Peking var stöðvuð, fjöldi Kínverja varð af því
að sjá kvikmyndina Star Wars.
Geimfarinn Musgrave á „gangi“ tjrir utan geimskutluna í gerkvöldi.
SinumjDd AP.
Gengið um geiminn
('*pe Canaveral, 7. aprfl. AP.
TVEIR bandarískir geimfarar, þeir
Story Musgrave og Donald Peter-
son, urðu í gærkvöldi fyrstu Banda-
ríkjamennirnir ■ næstum áratug til
að ganga úti í geimnum, er þeir
brugðu sér i gönguferð út fyrir
geimskutluna sem þeir fóru með út
í geiminn ásamt tveimur öðrum
löndum sínum.
Erindi þeirra var að reyna
geimbúningana, sem kostuðu 2,1
milljón dollara og að læra hand-
tökin við að gera við bilaða gervi-
hnetti. Allt fór samkvæmt áætl-
un, en þeir Musgrave og Peterson
voru í einangrun í 3,5 klukku-
stundir áður en gangan hófst.
Önduðu þeir þá að sér hreinu súr-
efni til þess að eyða nítrógeni úr
blóðinu, en það hefði getað orsak-
að vanlíðan geimfaranna er út úr
skutlunni væri komið.
Verður mynduð bandarísk loft-
brú með vopn til Thailands?
Náðu
39 kíló-
um af
heróíni
Frankfurt, 7.aprfl. AP.
Það bar vel í veiði hjá vest-
ur þýsku lögreglunni á
flugvellinum í Frankfurt í
gær, en hún komst yfir
39,4 kflógrömm af hreinu
heróíni, sem hafði verið
pakkað í plastpoka í tveim-
ur ferðatöskum. Ásamt
eitrinu voru í töskunum
lyktsterkar plöntur til að
plata sérþjálfaða leitar-
hunda lögreglunar.
Töskurnar voru merktar 25
ára gömlum manni og voru á
leið frá Indlandi til Lundúna.
Þetta er mesta heróínmagn
sem náðst hefur í einu lagi í
Vestur Þýskalandi.
Töskurnar voru á leið til
Lundúna og hefur breska
fíkniefnalögreglan hafið leit
að manninum sem töskurnar
voru á leið til.
Kínversk stjórnvöld hafa lýst
yfir að Bandaríkjamenn geti sjálf-
um sér um kennt. Þeir hafi marg
varað þá við að svona myndi fara
ef Hu Bo yrði ekki skilað umyrða-
laust. Hafa talsmenn stjórnarinn-
ar í Peking oftar en einu sinni lát-
ið hafa eftir sér að stúlkan þyrfti
alls ekki að óttast aðgerðir gegn
sér og í útvarpsviðtali við foreldra
hennar ásökuðu þau bandarísk
stjórnvöld harðlega fyrir að aftra
Hu Bo frá því að hverfa aftur
heim. Undirstrikuðu foreldrar
hennar að yfirvöld myndu ekki
sækja hana til saka.
Mark Crocker, talsmaður
bandaríska sendiráðsins í Peking
sagði einungis að bandaríska
stjórnin harmaði mjög óþarflega
harkaleg viðbrögð Peking-
stjórnarinnar.
Bangkok, Thailandi, 7. aprfl. AP.
NOKKUÐ hefur dregið úr átökum Vf-
etnama og Kambódíumanna á landa-
mærum Kambódíu og Thailands mið-
að við sem áður var fyrr f vikunni, en
Bandaríkjamenn hafa engu að síður
samþykkt að flýta vopnasendingum til
handa stjórnarhernum í Thailandi.
Þarlenskir hermenn urðu fyrir hörðum
árásum víetnamska innrásarliðsins og
um tíma höfðu víetnamskir hermenn
búið um sig á thailenskri grund.
Flótta- og frelsissveitabúðirnar Son
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Sann á landamærunum hafa verið um-
setnar víetnömskum hermönnum að
undanförnu, en til þessa hefur ekki
verið ráðist til atlögu við búðirnar. Þar
eru 77.000 óbreyttir borgarar og nokk-
ur þúsund frelsisliðar. I gær var þar
allt með kyrrum kjörum, en mikil
spenna eigi að síður og Ijóst að ástand-
inu þar megi líkja við púðurtunnu sem
gæti sprungið hvenær sem er. Bardag-
ar stóðu yfir í frumskógunum lengra
inn í Kambódíu, en engar nánari
fregnir bárust
Aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Paul Wolfowitz,
sagði í gær að óljóst væri enn með
hvaða hætti vopnin yrðu flutt til
hinna þurfandi herja Thailands á
landamærunum, en útilokaði ekki
að loftbrú yrði mynduð. 1 þeim fjár-
lögum sem Reagan Bandarfkjafor-
seti hefur samið, en ekki fengið
samþykkt enn sem komið er, er gert
ráð fyrir 9 prósent hækkun á fjár-
Prentsmiðja Morgunblaðsins
útlátum til vígbúnaðar thailenska
hersins. Samkvæmt frumvarpinu fá
Thailendingar 99 milljónir dollara.
Wolfowitz hefur verið á ferð um
Thailand að undanförnu og hann
sagði fréttamönnum í gær, að
Bandaríkin litu svo á, að Sovétríkin
bæru mikla ábyrgð á því hvernig
komið er á þessum slóðum, en Sov-
étmenn sjá Víetnömum fyrir vopn-
um.
Breskur njósnamálasérfræðingur:
Sovéskir njósnarar
skipta þúsundum
Lundúnir, 7. apríl. AP.
BRESKI njósnamálasérfræðingiirinn
Chapman Pincher skýrði frá því á
síðum Daily Express í gær, að hinir
47 sovésku njósnarar sem frönsk yf-
irvöld vísuðu úr landi fyrr f vikunni,
væru varla dropi f hafið þegar á
heildina væri litið. Pincher, sem um
árabil hefur ritað um mál þessi bæði
sem hlaðamaður og rithöfundur,
sagði ennfremur, að 47 njósnarar
væri lítill afii þvf að minnsta kosti
5.000 sovéskir njósnarar störfuðu í
löndum Vestur-Evrópu, sennilega þó
miklu fleiri. Sagði hann að ganga
mætti út frá því sem staðreynd, að 60
prósent allra starfsmanna hvers sov-
ésks sendiráðs f Vestur-Evrópu væru
njósnarar, þjálfaðir hjá KGB. Þessar
tölur eiga einnig við um Aeroflot,
Tass o.fl. stofnanir segir Pincher og
ber fyrir sig ónefnda heimildamenn f
bresku leyniþjónustunni og þeirri
bandarísku, CIA.
í grein sinni í gær greindi Pinch-
er frá því, að þegar Bretar vísuðu
105 sovéskum njósnurum úr landi
árið 1971, biðu bresk stjórnvöld til-
búin með nöfn 200 annarra
meintra njósnara sem sendir hefðu
verið sömu leið ef Sovétmenn
hefðu brugðist harkalega við.
Pincher skipti sovéskum njósn-
urum í Vestur-Evrópu f tvo megin-
flokka, í fyrsta lagi njósnara sem
vinna að því eingöngu að ráða til
starfa menn eins og Kim Philby og
Anthony Blunt eru ágæt dæmi um.
Hinir njósnararnir eru meira f
„framkvæmdum", eins og skemmd-
arverkum, pólitiskum morðum, svo
og að efla tengsl og samvinnu við
hryðjuverkasamtök svo sem irska
lýðveldisherinn og aðskilnaðar
Baska á Spáni.
„I Frakklandi, Bretlandi og viðar
í Vestur-Evrópu undirbúa þeir
einnig jarðveginn fyrir skemmdar-
verk á flugvöllum og ratsjárstöðv-
um og fleira af því tagi ef til sov-
éskrar árásar kynni að koma,“ seg-
ir Pincher. Hann gat þess einnig að
njósnararnir notuðu óspart friðar-
hreyfingar og blönduðu sér i mót-
mælagöngur til að verða einhvers
vísari um herstöðvar og fleira.
Samansafn
af drykkju-
sjúklingum
Bonn, 7. aprfl. AP.
TILKOMA þingmanna úr flokki
græningja á vestur-þýska þingið
hefur valdið talsverðu fjaðrafoki og
hafa þeir með ýmsum leiðum lýst
andúð sinni á flokkakerfinu þýska
og þeim mönnum sem fyrir hönd
flokkanna sitja á þinginu.
Þótti mörgum um þverbak
keyra í gær, er einn af þingmönn-
um græningjaflokksins, Joseph
Fishcer, sagði í viðtali við dag-
blaðið Tagezeitung, að þingmenn
væru ekkert annað en samansafn
drykkjusjúklinga sem lyktuðu eins
og vínámur.