Morgunblaðið - 08.04.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Ný flugstöðvarbygging:
Fjárveiting Bandaríkjamanna
nægir til að ljúka 1. áfanga
Javier Pérez de ('uéllar aðalfram-
kvæmdastjóri SÞ.
FJÁRVEITING sú sem Bandaríkja-
menn hafa gert ráð fyrir aö verja til
nýrrar flugstöðvarbyggingar á Kefla-
víkurflugvelli, þ.e. 20 milljónir doll-
ara, munu nægja til að unnt verði að
Ijúka fyrsta áfanga byggingarinnar
samkvæmt nýrri byggingaráætlun
sem unnin hefur verið af húsameist-
ara ríkisins. Fyrsti áfangi samkvæmt
því gerir ráð fyrir uppsteypu allrar
^yggingarinnar, sem nema mun um
12.000 fermetrum og endanlegum
frágangi um 7.000 fermetra, sem
rúma mun alla þá þjónustu sem snýr
beint að farþegum.
Að sögn Garðars Halldórssonar
húsameistara ríkisins byggist
þessi staðreynd á því, samkvæmt
því sem honum er bezt kunnugt,
að Bandaríkjamenn samþykki að
veita allri fjárhæðinni í fyrsta
áfangann, en íslendingar fjár-
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna kemur til landsins í dag
Aðalframkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, Javier Pérez de Cuéll-
ar, og eiginkona hans, Marcela Pér-
ez de Cuéllar, koma í opinbera heim-
sókn til landsins í dag. Þau hjónin
heimsækja m.a. forseta íslands að
Bessastöðum, fljúga til Vestmanna-
eyja og fara til Þingvalla. Heimsókn-
inni lýkur á sunnudagskvöld.
í kvöld sitja hjónin kvöldverð-
arboð forsætisráðherra og eigin-
konu hans að Hótel Borg. í fyrra-
málið á aðalframkvæmdastjórinn
viðræðufund með forsætisráð-
Stykkishólmur:
Helga Guð-
mundsdóttir
aflahæst
Stvkkishólmi, 7. apríl.
í MARZ var hæsti bátur hér í
Stykkishólmi með 274 tonn, en það
var Helga Guðmundsdóttir. Alls
hefir hún komið með 420 tonn á
vertíðinni. Næst var Sif með 233
tonn í marz, en hún byrjaði ekki
róðra fyrr en 9. marz. Grettir var
með 206 tonn í marz og alls 248
tonn á vertíðinni. Eins og lög gera
ráð fyrir tóku bátarnir upp net sín
fyrir páska og lögðu þau aftur á
þriðjudag, en ekki var hægt að
vitja um netin í gær sökum óveð-
urs en í dag eru allir bátar á sjó.
Fréttaritari
herra og utanríkisráðherra í ráð-
herrabústaðnum, en þau hjónih
sitja hádegisverð með forseta ís-
lands að Bessastöðum í hádeginu á
morgun. Þá heimsækja þau ýmsar
opinberar stofnanir og kl. 16.30
flytur Pérez de Cuéllar fyrirlestur
í húsakynnum Háskóla íslands.
Kl. 17.30 situr hann fyrir svörum á
sérstökum blaða- og fréttamanna-
fundi á Hótel Sögu. Annað kvöld
sitja hjónin kvöldverðarboð borg-
arstjóra Reykjavíkur og eiginkonu
hans.
Á sunnudagsmorgun verður Al-
þingishúsið skoðað en síðan flogið
til Vestmannaeyja. Um miðjan
dag verður síðan farið til Þing- ,
vaila, en um kvöldið sitja hjónin ISSfjÖrölir:
kvöldverðarborð utanríkisráð- ------------------
herra og hans konu. Aðalfram-
kvæmdastjórinn og fylgdarlið
halda utan á ný snemma á mánu-
dagsmorgun.
magni síðar síðari áfanga. Garðar
var spurður hvað liði enduráætlun
um bygginguna og sagði hann að
verið væri að vinna við hana sam-
kvæmt beiðni utanríkisráðherra.
Hann sagði einnig að þar sem
fjárveitingarheimild Bandaríkja-
manna rynni út í haust hlytu
ákvarðanir að verða teknar fyrir
þann tíma. I enduráætluninni hef-
ur ekki verið reiknað með að
minnka flatarmál byggingarinnar,
en atriði varðandi lækkun bygg-
ingarkostnaðar og dreifingu fram-
kvæmda á lengra tímabil verið
grandskoðuð. Árangur þessa væri
sá að unnt ætti að vera að taka
stærstan hluta byggingarinnar í
notkun fyrir áðurgreinda fjárhæð
og vinna síðan eftir efnum og að-
stæðum að síðari áföngum, frá-
gangi og fleiru.
LEIÐ Krakkans Roger Pichon á Vatnajökli. Austfirskir bændur fóru með
hann á snjósleðum að Snæfelli, en síðan gekk hann til Kverkfjalla. Frá
Kverkfjöllum gekk hann langleiðina að Grímsvötnum, en þaðan tók hann
stefnuna á Esjufjöll, og frá Esjufjöllum hélt hann niður Breiðamerkurjökul
og niður á Breiðamerkursand. Ferðin á jöklinum tók 10 daga og alls lagði
Frakkinn 160—180 kílómetra að baki í gönguferð sinni frá Snæfelli og á
Breiðamerkursandi.
Kaupfélagiö
úr Ljóninu með
fógetavaldi?
EIGENDUR Ljónsins á ísafirði
leggja í dag fyrir bæjarfógetann á
ísafirði beiðni um að Kaupfélag fs-
firðinga verði borið út úr húsnæði
Ljónsins inni í firði þar sem Kaupfé-
lagið rekur nú stórmarkað, en það
vanefndi loforð sín um aö undirrita
kaupsamninginn á húseigninni, sem
átti aö fara fram 5. aprfi sl.
Að sögn Heiðars Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Ljónsins, rann
frestur til undirritunarinnar út á
miðnætti aðfararnótt 6. apríl, og
rekur kaupfélagið stórmarkaðinn
nú í húseign Ljónsins án leigu-
samnings eða áðurumsamins
kaupsamnings.
Kaupfélagið hafði gefið loforð
um kaup á húseigninni, en hafði
áður gengið frá kaupsamningum á
lager og innréttingum, sem það
hefur staðið við, að sögn Heiðars.
Heiðar sagðist reikna með að það
gæti tekið fógetaembættið um
eina viku að ganga frá málsskjöl-
um áður en unnt yrði að bera
Kaupfélagið út úr húsnæðinu.
Cliff Barnes
Dallas-þátt-
anna til íslands
BANDARÍSKI leikarinn Ken
Kercheval, sem íslendingum er
kunnugastur sem Cliff Barnes í
sjónvarpsþáttunum Dallas, bróð-
ir Pamelu Eving og einn af fjöl-
mörgum hatursmönnum J.R.,
kemur til íslands í dag til aðstoð-
ar SÁÁ við söfnun til byggingar
þeirra við Grafarvog. Hann kem-
ur m.a. fram í klukkustundar
skemmtiþætti í sjónvarpinu á
laugardagskvöld, ásamt fjöl-
mörgum íslenzkum skemmti-
kröftum.
Ken Kercheval kemur með
þotu Flugleiða í boði þess og
annast það einnig uppihalds-
kostnað. Hann tekur sjálfur
ekkert fyrir framlag sitt til
söfnunarinnar. Á meðan á dvöl
hans stendur heimsækir hann
meðferðarstofnanir SÁÁ og
flytur tvo fyrirlestra og svarar
fyrirspurnum um áfengis-
vandamálið, sem er honum
ekki ókunnugt fyrirbæri, í
bækistöðvum SÁÁ á laugardag
og sunnudag.
Skemmtiþátturinn í sjón-
varpinu hefst kl. 21 á laugar-
dagskvöld, en auk leikarans
koma fram fjölmargir íslenzkir
skemmtikraftar, sem allir gefa
vinnu sína sem framlag til
söfnunarinnar. Þá verður í
þættinum viðtal við banda-
ríska kvikmyndaleikarann Rod
Steiger og eina af „systrunum"
í sjónvarpsþáttunum um „Hús-
ið á sléttunni". í gærkvöldi var
vitað, að eftirfarandi fslend-
ingar kæmu fram: Magnús Ax-
elsson og Ellen Hansdóttir, en
þau kynna þáttinn, Hljóm-
sveitin Messoforte, Sigrún Eð-
valdsdóttir, Sigfús Halldórsson
og Friðbjörn G. Jónsson.
Revíuleikhúsið sýnir atriði úr
nýrri revím Háskólakórinn
syngur og Omar Ragnarsson
skemmtir.
unni
SVO SEM menn rekur minni til varð það óhapp á skírdag, er ferðafólk var á
leið til Esjufjalla á vélsleðum, að einn sleðinn hrapaði í jökulsprungu á
Breiðamerkurjökli og með honum maður og kona, Þorsteinn Sigurbergsson
og Nanna Gunnarsdóttir. Hröpuðu þau hálfan þriðja tug metra niður í
sprunguna, en brotnuðu hvorugt. Þorsteinn hlaut 15 sentimetra skurð á enni
og varð að sauma hann saman með 25 sporum.
Eins og áður hefur komið fram í sprungunni, en á henpi urðu þau
Morgunblaðinu höfnuðu þau að hírast í um tvær klukkustundir
Nanna og Þorsteinn á syllu í á meðan samferðafólk þeirra unnu
að því að ná þeim upp. Morgun-
blaðinu hafa nú borizt myndir af
þessum atburði á Breiðamerkur-
jökli. Á einni þeirra má sjá vél-
sleðann í sprungunni, á annarri
þar sem verið er að reka hæla
niður í jökulinn á sprungubarmin-
um, svo að unnt sé að ná festu. Þá
er mynd, sem sýnir framkvæmdir