Morgunblaðið - 08.04.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Tommi gaf eina
TÓMAS Tómasson, sem betur er
þckktur sem Tommi í Tommaborg-
urum, gaf eina milljón krónur í gær
til söfnunar SÁÁ vegna sjúkrastöðv-
ar félagsins, sem rísa á í Grafarvogi
sunnanverðum. Fvrir hönd SÁÁ
veittu Hendrik Berndsen, varafor-
maður samtakanna og formaður
söfnunarinnar, og Vilhjálmur Þ.
Vijhjálmsson framkvæmdastjóri
SÁÁ gjöfinni mótttöku.
„Þessi söfnun og það sem hún
stendur fyrir, það er bygging
þessarar sjúkrastöðvar, er það
mikið mál og það nauðsynlegur
þáttur í baráttunni gegn áfengis-
vandamálinu, að hún er yfir alla
gagnrýni hafin. Tilgangurinn
helgar meðalið, og það er þess
vegna sem ég slæ til og gef þessa
milljón.
Kveikjan að því að ég gef þessa
upphæð er margþætt. Einn þátt-
urinn er sá að ég hef gengið með
það í maganum lengi að gefa bíl-
inn minn til einhverrar góð-
gerðarstarfsemi, en hann er ein-
mitt einnar milljón króna virði í
dag. Það má því segja að búið sé
að gefa einn Skóda og einn Benz í
söfnunina.
Þá er ég búinn að selja milljón
hamborgara og hefði ég ekki haft
eina krónu út úr hverjum þeirra,
þá væri eitthvað að.
Loks er ég sjálfur búinn að
ganga í gegnum það sjúkrapró-
gramm, þá hjálp sem SÁÁ hefur
milljón
getað veitt fólki, sem á við áfeng-
isvandamál að stríða. Ég hef farið
á Silungapoll og ég hef farið á
Sogn í meðferð fyrir alkóhólista,
sem ég er sjálfur. Þess vegna skií
ég tilgang þessarar söfnunar. Ég
skil af eigin raun við hvaða
vandamál er að glíma, og þess
vegna er þessi söfnun mér kær,“
sagði Tommi.
Tómas Tömasson í Tommaborgur-
um gaf eina milljón króna i söfnun
SAA í gær. Gjöfinni veittu móttöku
þeir Hendrik Berndsen, varafor-
maður SÁÁ (t.h.), og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
samtakanna (t.v.). Tómas er á mynd-
inni miðri.
Morgunblaöið/KOE.
Aldursmark
í knattborðs-
og leiktækja
sali
BORGARSTJÓRN samþykkti á
fundi sínum í gærkvöldi að vísa til
annarrar umræðu tillögu til breyt-
ingar á lögreglusamþykkt Reykja-
víkurborgar, en þar er fjallað um
knattborðs- og leiktækjasali.
Breytingartillagan felur í sér,
að enginn megi reka knattborð,
spilakassa eða leiktæki gegn borg-
un nema með leyfi lögreglustjóra,
að fenginni umsögn borgarstjórn-
ar. Jafnframt er kveðið á um að
slíkt leyfi megi einungis veita
þeim sem hefur veitingaleyfi. Þá
er börnum innan 12 ára aldurs
ekki heimilaður aðgangur að slík-
um tækjum nema í fylgd með for-
ráðamönnum.
í tillögunni er ákvæði þess efnis
að ef leyfishafi brýtur gegn þess-
um reglum, eða reksturinn þykir
ekki fara vel úr hendi, getur lög-
reglustjóri svipt hann leyfinu,
enda hafi leyfishafi ekki látið
segjast við aðvörun.
I umræðu á fundinum kom það
fram að þessar breytingar væru í
rétta átt. Ákvæði um veitingaleyfi
gæfi tilefni til aukins eftirlits
heilbrigðisyfirvalda og lýstu menn
yfir ánægju með ákvæði um
aldurstakmark.
við björgunina og loks mynd af
sleða, sem annar þeirra, er fór í
sprunguna hefur verið lagður á.
Þorsteinn Sigurbergsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að dvöl-
in í sprungunni hafi ekki verið
óbærileg, enda hafi þeim verið það
ljóst strax frá upphafi, að þeim
yrði bjargað. Samferðafólkið hefði
strax eftir fallið náð sambandi við
þau og hefði stappað í þau stálinu.
Síðar eftir björgunina úr sprung-
unni náði ferðafólkið talstöðvar-
sambandi við sjúkrabíl, sem kom
til móts við það frá Höfn í Horna-
firði. Myndina tók Gísli Hjálm-
arsson.