Morgunblaðið - 08.04.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIЄFÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
5
Frá upplausn til ábyrgðan
Hádegisverður um
fjölskyldumál á morgun
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Reykjavík, Heimdallur, Hvöt, Oðinn og Vörður,
munu halda almennan hádegisfund um fjölskyldumál laugardaginn 9. aprfl
nk. frá kl. 12.00—14.00 í Valhöll við Háaleitisbraut.
Fundur þessi er annar af þrem-
ur hádegisfundum, sem haldnir
verða fram að kosningum um mál,
sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur
mikla áherslu á í komandi kosn-
ingum.
Á þessum fundi verða frum-
mælendur fjórir, þ.e. Sveinn
Jónsson, viðskiptafræðingur, og
þrír af frambjóðendum flokksins í
Reykjavík, Birgir ísleifur Gunn-
arsson, Elín Pálmadóttir og Helga
Hannesdóttir. Að loknum ræðum
frummælenda gefst fundar-
mönnum tækifæri til að bera fram
fyrirspurnir.
Fundarstjóri verður Björg Ein-
arsdóttir, skrifstofumaður.
Á boðstólum verður léttur há-
degisverður á vægu verði fyrir
fundargesti. í kjallara Valhallar
verða teiknimyndir sýndar fyrir
börn fundargesta og barnagæsla.
Lögfræðingafélag íslands 25 ára:
Dr. Ármann Snævarr
gerður heiðursfélagi
TUTTUGU og fimm ára afmælis
Lögfræðingafélags íslands verður
minnst með athöfn á morgun, laug-
ardag, en félagið var stofnað í aprfl
1958. Dr. Ármann Snævarr, hæsta-
réttardómari, var fyrsti formaður fé-
lagsins og af því tilefni hefur hann
verið gerður að heiðursfélaga í
Lögfræðingafélaginu.
is Jósefssonar, sem baðst undan
endurkjöri. Með Arnljóti eru þess-
ir menn í stjórn: Guðrún Er-
lendsdóttir, settur hæstaréttar-
dómari, Logi Guðbrandsson hrl.,
Baldur Guðlaugsson hrl., ólöf Pét-
ursdóttir, deildarstjóri, Valgeir
Pálsson hdl. og Þorgeir Órlygsson,
dómarafulltrúi.
Bjor*
Einarsdóltir
Ótíðindi
Hr. ritstjóri.
í frétt frá kvikmyndasjóði i
heiðruðu blaði yðar 7. apríl sl. er
skýrt frá því að hingað séu
væntanlegir tveir opinberir Sví-
ar til að ræða við íslenska
kvikmyndaframleiðendur og
stjórnvöld um möguleika á sam-
vinnu um kvikmyndafram-
leiðslu.
Þetta eru nokkur ótíðindi, þar
sem ljóst er að Svíar standa síð-
ur en svo framarlega í kvik-
myndagerð, nema Ingmar Berg-
man. Aftur á móti hafa tveir ís-
lenskir kvikmyndaleikstjórar
gert sér títt um Svía og haft við
þá nokkra samvinnu. Það er
þeim auðvitað frjálst. Aðrir leik-
stjórar hafa kannski samstarf
við Norðmenn eða Breta. Ekki
bjóða þeir aðilar sjálfum sér
hingað til viðræðna við stjórn-
völd um möguleika á samvinnu
um kvikmyndaframleiðslu.
Sú stóra tilraun, sem hér hef-
ur verið gerð til framleiðslu á
kvikmyndum, hefur vakið at-
hygli víða, og þá einkum vegna
þess að menn eru hissa á því að
héðan úr einu Norðurlandanna
skuli koma myndir, sem í raun
þykja skara fram úr helftinni af
annarri framleiðslu kvikmynda
á Norðurlöndum. Þessi íslenska
tilraun er enn í mótun og á um
margt erfitt uppdráttar. Það er
því of snemma í rassinn gripið af
stjórnvöldum að ætla að fara að
ræða við Svía um islenska
kvikmyndagerð. Þeir geta lagt
sína sænsku samskiptahönd á ís-
lenskar kvikmyndir seinna, þeg-
ar þær eru vaxnar svo úr grasi
að þær eiga nokkurt sjálfdæmi
um framtíð sína.
Virðingarfyllst,
Indriði G. Þorsteinsson.
Stefimvitinn og forystugreinin
í FORYSTUGREIN Morgunblað-
sins, Skýrsla flugmálastjórnar, í
gær stóð: „Flugmenn Orion-vélar-
innar segjast hafa verið önnum
kafnir við æfingar og auk þess
hafi fjölstefnuvitinn á Keflavíkur-
flugvelli, sem notaður er til stað-
arákvörðunar, „dottið út af og til“
eins og það er orðað, stefnuvitinn
hafi með öðrum orðum ekki sent
út merki sem skyldi. Hvað olli
þessari truflun?"
Morgunblaðinu hefur verið á
það bent, að það hafi ekki orðið
truflun á sendingum stefnuvitans
á Keflavíkurflugvelli heldur hafi
merkin frá honum „dottið út af og
til“ í Orion-vélinni vegna þess að
móttökutæki hennar námu ekki
geislann frá vitanum. Það var því
mishermt í forystugrein blaðsins í
gær að stefnuvitinn hafi „ekki
sent út merki sem skyldi", eru þeir
sem hlut eiga að máli beðnir af-
sökunar.
Dr. Ármann Snævarr
Dr. Ármann Snævarr er fyrir
löngu landskunnur fyrir margvís-
leg störf á sviði lögfræði. Hann
hefur m.a. verið prófessor í lögum
við Háskóla íslands og síðan há-
skólarektor og loks dómari í
Hæstarétti. Þá hefur hann verið
mikilvirkur rithöfundur á sviði
lögfræði og liggja eftir hann fjöl-
margar bækur og vísindagreinar í
íslenzkum sem erlendum tímarit-
um um ýmiss lögfræðileg efni.
í fréttatilkynningu frá Lög-
fræðingafélaginu segir, að Arn-
ljótur Björnsson, prófessor, hafi
verið kjörinn formaður á síðasta
aðalfundi í stað Guðmundar Vign-
Ertu örugglega
á kjörskrá?
Kærufrestur rennur
út í dag
NÚ fer hver að verða síðastur
til að huga að því hvort nafn
hans sé ekki örugglega á kjör-
skrá, því kærufrestur rennur
út í dag, þann 8. apríl. Það eru
alltaf einhver brögð að því að
menn falli út af kjörskrá, sér-
staklega við skipti á lögheim-
ili. Slíkt er hægt að kæra til
viðkomandi sveitarstjórnar og
er síðasta tækifærið til þess í
dag. Að vísu er hægt að fara
með málið til dómstólanna
eftir að kærufrestur rennur
út, en bæði er það meiri fyrir-
höfn og ýmsum fyrirvörum
háð.
14 Al
WÆF
í kvöld
ALLIR KOMA í ROKKSTUÐI OG DJAMMA
EINS OG GERT VAR í ÞÁ GÖMLU GÓDU
DAGA.
UM 2JA TÍMA STANSLAUST STUD MEÐ:
Harald G. Haralds, Guðbergi Auðunssyni, Þorsteini Eggerts-
syni, Astrid Jenssen, Berta Möller, Önnu Vilhjálms, Mjöll Hólm,
Sigurdór Sigurdórssyni, Garðari Guðmundssyni, Stefáni Jóns-
syni, Einari Júlíussyni, Sigurði Johnny og Ómari Ragnarssyni.
Hver man ekki eftir þessum kempum?
STÓRHLJÓMSVEIT BJÖRGVINS HALL-
DÓRSSONAR LEIKUR ROKKTÓNLIST
Hljómsveitina skipa:
Björn Thoroddsen, Hjörtur Howser, Rafn Jónsson, Pétur Hjalte-
sted, Haraldur Þorsteinsson, Rúnar Georgsson og Þorleifur
Qislason.
Á Broadway hittir þú gömlu djammfélagana
sem þú hefur ekki séd síöan í Glaumbæ forö-
um daga og rifjar upp gömul kynni. Annaö
eins hefur ekki sést hérlendis í áraraöir — eitt
mesta stuö sem um getur.
sem hefur svo
sannarlega slegiö í gegn
verður enn framhaldiö í
SÆMI OG DIDDA ROKKA.
SYRPUSTJÓRARNIR
ÞORGEIR ÁSTVALDSSON
OG PÁLL ÞORSTEINSSON KYNNA.
GÍSLI SVEINN DUSTAR RYKIO
AF GÖMLU ROKKPLÖTUNUM.
Borðhald hefst kl. 20. Pantiö mióa tímanlega.
Aógangseyrir kr. 150.
Mióasala er í Broadway í dag kl. 9—5.
Dvv
*n#ia
K- HÁTÍÐIN
Matseóill
Létlreykt lambasneit) niet)
rjómaspergilsósu.
Ostakaka nieð jarðaberjum
Verð kr. 300 -