Morgunblaðið - 08.04.1983, Síða 10
10 MORGUNBLAÐI.Ð, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Kvenréttindafélag Islands:
Lára Sigurbjörns-
dóttir kjörin heiðurs-
félagi á aðalfundinum
KVENRÉTTINDAFÉLAG íslands hélt aéalfund sinn 21. mars sl. og var
Esther Guémundsdóttir, þjóðfélagsfræóingur, endurkjörin formaður fé-
lagsins til næstu tveggja ára. Aðrir í stjórn eru: Guðrún Gísladóttir,
varaformaður, Arnþrúður Karlsdóttir, Ásdís J. Kafnar, Ásthildur Ket-
ilsdóttir, Hlédís Guðmundsdóttir, Jónína M. Guðnadóttir, María Ás-
geirsdóttir og Oddrún Kristjánsdóttir.
Esther Guðmundsdóttir formaður afhendir Láru Sigurbjörnsdóttur heið-
ursskjal til staðfestingar kjöri hennar sem heiðursfélaga.
Kirkjur á
landsbyggðinni:
Messur á
sunnudaginn
BORGARNESKIRKJA: Messa á
sunnudaginn kl. 11. Altarisganga.
Organisti: Jón Þ. Björnsson. Sr.
Þrobjörn Hlynur Árnason.
REYÐARFJARÐARKIRKJA: Á
morgun, laugardag, barnastund
kl. 10.30. Fermingarguðsþjónusta
á sunnudaginn kl. 10. Sóknar-
prestur.
ODDAKIRKJA: Fermingarguðs-
þjónusta kl. 12 á hádegi. Sr. Stef-
án Lárusson.
STÓRÓLFSHVOIiíKIRKJA: Ferm-
ing á sunnudaginn kl. 14. Sr. Stef-
án Lárusson.
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL:
Söngæfing kirkjukóranna þriggja
og safnaðarfólks í prestakallinu
verður í Hábæjarkirkju á morgun,
laugardaginn, kl. 14, undir stjórn
Sigrúnar Huldu Jónasdóttur og
fleiri söngstjóra. Fermingarguðs-
þjónusta í Hábæjarkirkju á
sunnudag kl. 14. Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir sóknarprestur.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Ferming-
arguðsþjónusta kl. 14. Sóknar-
prestur.
Orkukostnaður
óheyrilega hár
STJÓRN SSA fjallaði á fundi sínum
á Eskifirði 22. f.m. um orkuverð á
sambandssvæðinu, einkum kostnað
við hitun íbúða með rafmagni. Fyrir
fundinum lágu rökstuddar ályktanir
sveitarstjórna á Höfn í Hornafirði,
Stöðvarfirði og Seyðisfirði.
Nefndar sveitarstjórnir telja að
orkukostnaður meðalheimilis
nemi nú helmingi af launum
verkamanns í dagvinnu.
Það er einróma álit stjórnarinn-
ar, að hið gífurlega háa verð á raf-
orku til hitunar húsa sérstaklega,
og margfaldur munur á húshit-
unakostnaði á höfuðborgarsvæð-
inu annarsvegar, og í velflestum
byggðarlögum hins vegar, sé
stórhættulegur fyrir þróun byggð-
ar í landinu. Gæti hann leitt til
fólksflótta frá þeim byggðum sem
verst eru settar í þessum efnum.
Stjórn SSA skorar á viðkom-
andi stjórnvöld að ráða bót á
þessu ófremdarástandi. Jafnframt
heitir stjórnin á þingmenn Aust-
urlands að veita málinu brautar-
gengi.
(ílr frétUktilkynninfpj)
Varastjórn skipa þær Erna
Bryndís Halldórsdóttir, Erna
Indriðadóttir og Hrafnhildur
Sigurðardóttir.
Á aðalfundinum var Lára Sig-
urbjörnsdóttir kjörin heiðursfé-
lagi. Lára hefur starfað lengi og
vel fyrir félagið og var hún fyrst
kosin í stjórn þess 1949, varafor-
maður var hún 1953—1964 og
formaður KRFÍ 1964-1969.
Auk þess hefur hún átt sæti í
stjórn Menningar- og minn-
ingarsjóðs kvenna.
Á aðalfundinum kynnti Vil-
borg Harðardóttir, blaða-
fulltrúi, drög að frumvarpi að
nýjum jafnréttislögum, en hún
er formaður nefndar er endur-
skoðað hefur lögin um jafnrétti
karla og kvenna frá 1976.
í lok fundarins var samþykkt
eftirfarandi áiyktun:
„Aðalfundur KRFÍ haldinn að
Hallveigarstöðum 21. mars 1983
fagnar því að sett hefur verið á
stofn athvarf fyrir konur, sem
þurfa að flýja heimili sín vegna
ofbeldis. Fundurinn skorar á fé-
laga KRFÍ að styðja þetta
merka framtak, og bendir sér-
staklega á fjársöfnun, sem fara
á fram dagana 8. og 9. apríl nk.“
Lifandi
tónlist
SATT-samtökin efna um
helgina til tónleika í
Klúbbnum, en sú nýbreytni
að bjóða upp á lifandi tón-
list að undanförnu hefur
mælst mjög vel fyrir og að-
sókn aukist jafn og þétt og
voru t.d. um 400 manns á
síðustu tónleikum.
í kvöld, föstudag, kl. 21.45
kemur hljómsveitin Q4U fram
og klukkustund síðar mætir
BARA-Flokkurinn frá Akureyri
á sviðið. Langt er nú um liðið
síðan hljómsveitin lék síðast
fyrir borgarbúa.
Á morgun, laugardag, leika
Möðruvallamunkarnir kl. 21.45
og klukkustund síðar koma
Bergþóra Árnadóttir og Pálmi
Gunnarsson fram . Heiðursgest-
ir kvöldsins verða hjón frá Búð-
ardal, Bjarni Hjartarson og
Anna Flosadóttir. Flytja þau
frumsamið efni.
Vpstmannaeyjum, 28. mars.
UNDANFARNA daga hefur lið kvikmyndagerðarmanna unnið hér að
gerð nýrrar leikinnar kvikmyndar. Myndin á að heita „Nýtt IÍP‘ og fjallar
um tvo unga og hressa náunga sem ákveða að bregða sér á vertíð til Eyja
í von um skjótfenginn gróða. Segir myndin af lífi þeirra, starfi og
ævintýrum í þessari stærstu verstöð landsins. Þeir félagar fengu „vinnu"
í Vinnslustöðinni og hafa gengið þar til ýmssa starfa, gert að, hausað og
ýmislegt annað tilfallandi. Þá hefur verið myndað á verbúð og til kvik-
myndagengisins hefur sést í útsölu ÁTVR, um borð í Herjólfi og víðar.
Leikstjóri myndarinnar og gegn sem Dúddi rótari í Stuð-
jafnframt höfundur handrits er
Þráinn Bertelsson. Ari Krist-
insson er kvikmyndatökumaður,
og framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins er Jón Hermannsson. Allt
eru þetta menn úr hópi okkar
reyndustu kvikmyndagerðar-
manna.
Aðkomumennina tvo á vertíð
leika þeir Karl Ágúst Úlfsson og
Eggert Þorleifsson. Báðir hafa
þeir áður staðið framan við
kvikmyndatökuvélar. Karl lék
m.a. í Jóni Oddi og Jóni Bjarna
og Hergilseyjarfíflið í Útlagan-
um. Eggert sló eftirminnilega í
Iggert Þorleifsson við
ína í Vinnslustöðinni.
mannamyndinni Með allt
hreinu. Aðrir ieikarar sem fram
koma í myndinni eru héðan úr
Eyjum og má þar nefna til gam-
alkunna leikara á borð við Unni
Guðjónsdóttur, Svein Tómasson
og Runólf Dagbjartsson. Þá er
Sigurgeir Scheving aðstoðarleik-
stjóri.
Kvikmyndatakan hófst hér
um síðustu helgi og ráðgert er að
Ijúka henni á um mánaðartíma
en síðan verða nokkur atriði tek-
in upp í Reykjavík.
- hkj.
,vinnu“
Karl Ágúst Úlfsson í hlutverki sínu
og á greinilega f einhverjum erfið-
Ipiknm
Unnur Guðjónsdóttir og Ari Kristinsson kvikmyndatökumaður.
Ljósmyndir/Sigurgeir Jónasson.
Sveinn Tómasson og Signrgeir Scheving aðstoðarleikstjóri.
Ævintýri á vertíð kvikmyndað í Eyjum
Þráinn Bertelsson, leikstjóri og höfúndur handrits, og Runólfur Dag-
bjartsson í hlutverki verkstjóra.