Morgunblaðið - 08.04.1983, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Norðanmennirnir Steingrímur Ingason og Auðunn Þorsteinsson aka saman í Tommarallinu á Datsun 1800, en hér sjást þeir keppa gegn hvor öðrum í
íscrossi á Húsavík og er Datsun Steingríms fyrir framan Escort Auðuns. .j*_ ^ o—. ^
Fjölmargir stefna á sigur
FYRSTA ralikeppni ársins, svo-
kallað Tommarall ’83, rennir úr
hlaði við Þróttheima á morgun,
laugardag. 44 rallökumenn á 22
keppnisbflum eru skráðir til leiks í
keppni, sem er um 300 km löng og
stendur í tvo daga. Ræst verður kl.
10.00 á laugardag og komið í mark
rúmlega fjögur síðdegis. Á sunnu-
dag hefst keppnin á ný kl. 9.00 og
koma keppendur þeir er eftir verða
í endamark um kl. 15.15 síðdegis.
Akstursleiðirnar í rallinu eru
að segja má sniðnar fyrir áhorf-
endur. Báða daganna eru sömu
leiðir eknar, og hefst fyrsta sér-
leiðin af 16 í Kapelluhrauni við
Straumsvík klukkan 10.15. Eru
síðan þrjár leiðir meðfram
Keflavíkurveginum, sú síðasta
hefst við Voga. Halda rallkapp-
arnir síðan út á Reykjanes og
aka þar fram og til baka, en
koma svo til baka eftir þeim leið-
um sem fyrst voru eknar. Vega-
lengdin sem ekin er á sérleiðum
er um 70 km og hver glötuð sek-
únda dýrmæt. Verður keppnin
væntanlega svo jöfn að ekkert
má útaf bera svo keppendur
hrapi ekki niður um mörg sæti,
t.d. ef springur eða þess háttar. í
skjóli vetrar hafa ökumenn und-
irbúið bíla sína af kostgæfni og
átta nýir ökumenn koma fram í
sviðsljósið í Tommarallinu. I
samtali við Morgunblaðið hefur
rúmlega helmingur ökumanna
lofað sigri, eða a.m.k. verðlauna-
sæti og því verður ekkert gefið
eftir. Nokkrir keppendanna eru
þó líklegri til stórræða en aðrir.
Birgi Bragason og óskar
Gunnlaugsson á RS Skoda má
telja líklegustu mennina til að
setja hraðann i keppnina, sem
aðrir verða síðan að fylgja.
Margir keppendanna eru hins
vegar með það á hreinu að Skoda
Birgis ljúki ekki keppni, en hann
mun væntanlega sýna þeim í tvo
heimana og setja stefnuna á sig-
ursætið. Jón S. Halldórsson
verður í fararbroddi á 130 hest-
afla BMW ásamt bróður sínum
Einari. Jón náði þriðja sæti í
Varta-rallinu á sl. ári, en það var
síðasta rallkeppni ársins. Logi
Einarsson ekur endurbættum
Escort-bíl sem hann náði ágæt-
um árangi á á sl. ári. Með honum
fer Ásgeir Sigurðsson. Lada 1600
Ævars Hjartarsonar og Berg-
sveins ólafssonar á eftir að
koma mörgum í opna skjöldu, en
kraftur bílsins á að vera slíkur
að hann reykspólar í öllum gír-
um eftir götum bæjarins, eins og
einhver sagði í gamni. Birgir og
Hreinn Vagnssynir aka nýsmíð-
aðri Cortinu 200 í Tommarallinu,
en Birgir sýndi stórgóð tilþrif á
slökum bíl sl. ár. Má því búast
við honum í skottinu á forystu-
bílunum. SAAB 99 Ævars og
Halldórs Sigdórssona þykir með
traustlegri bílum rallsins og
þéttur akstur ætti að tryggja
honum eitt af toppsætunum.
Hafsteinn Hauksson og Birgir
Viðar Halldórsson munu aka
Escort 1600 lánsbíl í rallinu og
frétti blm. að nýbyrjað væri að
taka upp vélina í bílnum! Þeir
ættu að sýna góð tilþrif á annars
fremur slökum bíl. Að norðan
koma tveir skæðir keppnisbílar,
annar þeirra er Datsun 1800
Steingríms Ingasonar og Auðuns
Þorsteinssonar, en þeir eru vanir
að keppa gegn hvor öðrum, en
slógu að þessu sinni saman i
sunnanferð. Þeir félagar voru í
fyrsta og öðru sæti 1 íscrossi,
sem fram fór á Húsavík nýlega.
Bróðir Steingríms, Þorsteinn
Ingason, mætir einnig til keppni
og ekur glælsilegum BMW Turbo
knúnum 170 hestafla vél, ásamt
Sighvati Sigurðssyni. Þetta mun
vera kraftmesti bíll rallsins.
Glænýr keppnisbíll mun verða
með, en það er Toyota Corolla
1600 Halldórs Úlfarssonar og
Tryggva Aðalsteinssonar, sem
gerður er út með aðstoð Toyota-
umboðsins.
Þeir verða að teljast skæðir í
toppbaráttunni. Af upptalning-
unni hér að ofan er ljóst að
keppnin verður grimm og líklegt
að Reykjanesleið skeri úr um
hver sigrar. Á morgun birtir
Mbl. stutta umsöng allra kepp-
enda um hvað þeir ætla sér í
rallinu og birtist það því stuttu
áður en þeir leggja af stað.
G.R.
„Kominn tími
til að sinna öðr-
um áhugamálum“
*
— segir rallkappinn Omar Ragnarsson
„FRÁ mínum bæjardyrum séó, þá
erum við Jón búnir að keppa svo
lengi í rallakstri, að það er kominn
tími til að hvfla sig og fara að sinna
öðrum áhugamálum,” sagði rall-
kappinn Ómar Ragnarsson er
Morgunblaðið spurði hann hvers-
vegna þeir bræður tækju ekki þátt
í Tommarallinu um næstu helgi.
„Maður verður framvegis
fremur í þessu til gamans en til
að sigra,“ sagði ómar. „Það er
óvíst, hvort við keppum eitthvað
í sumar. Ég hef tekið að mér
fjölmörg verkefni og því spurn-
ing hvort maður á nokkuð að
vera að stressa sig við að ná ein-
hverjum röllum. Ég mun fylgj-
ast með framgangi mála úr fjar-
lægð. Það má segja, að við höf-
um náð takmarki okkar í rall-
akstri. Fyrst var það að verða
íslandsmeistarar, síðan að verja
titilinn og loks að sigra titilinn
þrisvar í röð. Það er búið, þann-
ig...“
Viltu spá einhverju um hugs-
anleg úrslit í Tommarallinu?
„Það er ekki hægt að spá öðr-
um en Haffa sigri (Hafsteini
Haukssyni.) Birgir Bragason
verður númer tvö, ef Skódinn
gengur, en því miður er það
ólíklegt! Ég ætti frekar að spá
Dóra Úlfars velgengni, Jón S.
Halldórsson mun keyra eins og
andskotinn ..., en ég spái því að
Hafsteinn Hauksson og Halldór
Úlfarsson verði í tveimur efstu
sætunum,“ sagði Ómar Ragn-
arsson að lokum. Það má með
sanni segja, að áhugamónnum
um rallakstur verði eftirsjá í
þeim bræðrum, en vonandi láía
þeir sjá sig sem fyrst í rall-
keppni, því fáir eða engir hafa
stuðlað meira að frangangi þess-
arar íþróttar en „rauðhærðu"
bræðurnir Ómar og Jón. G.G.
Bræóurnir Ómar og Jón Ragnarssynir fagna hér sigri í Ljómarallinu
1981, eftir marga frækilega sigra hyggjast þeir draga sig að miklu leyti í
hlé frá keppni í rallakstri. Lj6sm. Gunniaugur R.
Þriðju áskrift-
artónleikar Tón-
listarfélags Akur-
eyrar á morgun
ÞRIÐJU áskriftartónleikar Tónlist-
arfélags Akureyrar verða í Borgar-
bíói laugardaginn 9. aprfl kl. 17. Efn-
isskrá hafa kennarar við Tónlist-
arskólann á Akureyri undirbúið.
Þrettán hljóðfæraleikarar
flytja tónlist allt frá 16. öld til
okkar tíma eftir tónskáldin: Sam-
uel Barber, Bizet, Árna Björnsson,
Manuel de Falla, Maurer, Quilter,
Max Reger, Schein, Schumann,
Andreas Spirea og Verdi. Leikið
verður á blásturshljóðfæri,
strokhljóðfæri, píanó og flutt
sönglög.
Flytjendur eru Atli Guðlaugs-
son, Edvard Fredriksen, Halldór
Halldórsson, Hrefna Hjaltadóttir,
Jóhann ó. Ævarsson, Jonathan
Bager, Kristinn Örn Kristinsson,
Lilja Hjaltadóttir, Magna Guð-
mundsdóttir, Michael J ón Clarke,
Roar Kvam, Soffía Guðmunds-
dóttir og Þuríður Baldursdóttir.
Orkuveröi
mótmælt af
oddvitum í
Dalasýslu
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning:
„Fundur oddvita allra sveitarfé-
laga í Dalasýslu, haldinn að Laug-
um 16. marz, 1983, samþykkir eft-
irfarandi:
Ekki verður lengur unað við það
gífurlega misrétti, sem er á
orkugjöldum heimila og fyrir-
tækja eftir landshlutum.
Fundurinn minnir á yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar frá 5. maí,
1982, um jöfnun hitakostnaðar og
skorar á hana að framfylgja þeirri
yfirlýsingu.
Fundurinn telur jöfnun orku-
verðs brýnasta byggðamálið í dag
og raunar forsendu þess, að komið
verði í veg fyrir byggðaröskun
með þeim afleiðingum, sem allir
ættu að gera sér grein fyrir.“
Þá var iðnaðarráðherra og þing-
mönnum Vesturlands sent bréf
sama efnis.
Austan Eden
eftir Steinbeck
komin út
KOMIÐ er út hjá Bókaklúbbi Arnar og
Örlygs fyrra bindi bókarinnar Austan
Eden eftir John Steinbeck. Þýðandi er
séra Sverrir llaraldsson.
Sagan Austan Eden er tvfmælalaust
ein þekktasta skáldsaga bandarfska
Nóbelsverðlaunaskáldsins John Emst
Steinbecks, segir f fréttatilkynningu
frá Erni og Örlygi. Þegar bókin kom
fyrst út árið 1952, var Steinbeck þegar
orðinn heimsþekktur rithöfundur, enda
ferill hans búinn að standa f hálfan
þriðja áratug. Með þessari sögu hófst
hann þó til enn meiri vegs en áður,
enda sagan af mörgum talin besta
skáldsaga hans, ef Þrúgur reiðinnar er
undanskilin.
Austan Eden er örlagasaga banda-
rískrar fjölskyldu, Task-fjölskyldunn-
ar. Hún hefst f Connecticut árið 1863
þegar heimilisfaðirinn, Cyrus Task,
kemur heim frá borgarastyrjöldinni.
Flestum mun í fersku minni að gerð-
ir hafa verið sjónvarpsþættir eftir sög-
unni og voru þeir sýndir hér á landi
haustið 1982. Svo sem gefur að skilja
var þó stiklað á stóru f þáttunum, en
samt gaf myndaflokkurinn nokkra
hugmynd um efni og framsetningu
bókarinnar.
Fyrra bindi Austan Eden er 250 blað-
síður. Það er unnið f Prentsmiðjunni
Hólum hf.
Wterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamiöill!