Morgunblaðið - 08.04.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
13
Jón Steinar Gunnlaugsson
Kosinn formað-
ur Lögmanna-
félags íslands
AÐALFUNDUR Lögmannafélags fs-
lands var haldinn 25. mars sl. For-
maóur var kosinn Jón Steinar Gunn-
laugsson, hrl. Aðrir í stjórn eru
Skúli J. Pálmason, hrl., Þórður S.
Gunnarsson, hrl., Hallgrímur B.
Geirsson, hdl., og Gísli Baldur
Garðarsson, hdl. Framkvæmda-
stjóri er Hafþór Ingi Jónsson, hdl.
Félagsmenn eru nú alls 264, þar af
115 hæstaréttarlögmenn og 149
héraðsdómslögmenn. Heiðursfé-
lagi er Rannveig Þorsteinsdóttir,
hrl. (Frétlatilkynning.)
Húsgagna- og inn-
réttingaframleiðendur:
Búast má
við fjölda-
uppsögnum
Á NÝLEGUM fundi Félags hús-
gagna- og innréttingaframleiöenda
var einróma samþykkt ályktun þar
sem m.a. segir að verði ekki gripið til
róttækra aðgerða nú þegar megi bú-
ast við fjöldauppsögnum í greininni
og iafnvel stöðvun fyrirtækja.
I ályktuninni segir ennfremur að
ástæðan fyrir þessu slæma ástandi
sé óðaverðbólga og aðgerðarleysi
stjórnvalda í að bæta samkeppnis-
aðstöðu innlendrar framleiðslu til
jafns við erlenda keppninauta eftir
inngöngu fslendinga í EFTA. Þá
skoraði fundurinn á alþingi og
stjórnvöld að láta þessi mál til sín
taka því að efnahagsvandi þjóðar-
innar verði vart leystur nema með
eflingu íslenskrar framleiðslu.
KrétUtilkynning
Dalvík:
Óvenjumikill
afli togara
Dalvík, 6. apríL
UNDANFARNA daga hefur óvenju-
mikill afli borist á land af togurun-
um á Dalvík. í gær, 5. apríl, var
landað úr Björgvin 180 tonnum, í
dag er verið að landa úr Baldri 70
tonnum og á morgun á að landa 130
tonnum úr Björgúlfi.
Þessir togarar liggja nú allir í
höfn vegna illviðris úti fyrir.
Mestur hluti afla togaranna er
þorskur. Nú eru farnir sex bátar
héðan til netaveiða, ýmist af
Snæfellsnesi eða suður fyrir land.
Heima eru þá aðeins eftir þrír
bátar, sem lögðu netin hér fyrir
norðan, eftir að páskastoppi lauk.
— Fréttaritarar.
JNNLENT
Sparisjóður Glæsibæjarhrepps í nýtt húsnæði
SPARISJÓÐUR Glæsibæjarhrepps
hefur flutt í nýtt húsnæði. Sjóðurinn
var stofnaður áriö 1908 og verður því
75 ára um þessar mundir.
Afgreiðsla sjóðsins var lengi að
Hlöðum og Moldhaugum í Glæsi-
bæjarhreppi, en hefur nú um ára-
tugaskeið verið á Akureyri.
Lengi var hann í leiguhúsnæði á
ýmsum stöðum í bænum, allt til
ársins 1968 að hann flutti í eigið
húsnæði að Brekkugötu 7, en þar
hefur hann verið síðan. Nú var
þetta húsnæði orðið of þröngt og
ákvað stjórn sjóðsins því að kaupa
jarðhæð í húseigninni Brekkugötu
9, Akureyri.
Verið er að ljúka við innréttingu
fyrir starfsemi sjóðsins og var af-
greiðslan opnuð þriðjudaginn 5.
apríl sl.
Heimili
um stundarsakir
Merkjasala 8. og 9. apríl Póstgírónúmer: 44400-6
Kvennaathvarfið er opið allan sólarhringinn, alla daga. Þar
er alltaf einhver til að veita aðstoð þeim konum sem beittar
hafa verið ofbeldi.
Konurnar geta haft börn sín með sér.
Tökum höndum saman.
Tryggjum framtíðarhúsnædi Kvennaathvarfsins.