Morgunblaðið - 08.04.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
19
Sálfræðideildar skóla, við
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur
haustið 1960, eina af gagnlegri að-
gerðum til stuðnings góðu og
mannúðlegu skólastarfi í borginni.
Mér er að vísu málið skylt þar sem
ég var forstöðumaður sálfræði-
þjónustu skólanna frá byrjun og
fram á árið 1971. Nokkrar atrenn-
ur höfðu verið gerðar árin á undan
til að koma slíkri þjónustu á
rekspöl en gengið nokkuð mis-
jafnlega. Ég skal viðurkenna að ég
var ákaflega smeykur við að taka
þetta verkefni að mér og ekkert
hefur mér enn í dag þótt tvísýnna
og áhættusamara á minni starfs-
ævi, enda var ég lítt í stakk búinn
að taka að mér forystu fyrir svo
ábyrgðarmiklu starfi. Það er ýkju-
laust að fræðslustjórinn, sem frá
upphafi átti mestan þátt í að þessi
starfsemi komst á laggirnar, var
þegar á reyndi jafnan sá sem hélt
hlífiskildi yfir starfsemi sálfræði-
deildarinnar á þessum árum.
Hann umbar einnig af stöku jafn-
aðargeði misjafnlega sanngjarnar
kröfur og ádrepur af hendi for-
stöðumanns. — En það er önnur
saga. —
Annað málefni, að visu skylt
óbeint, segir e.t.v. meira um upp-
eldisleg og kennslufræðileg við-
horf Jónasar B. Jónssonar, en það
mál sem að framan var nefnt. Þar
á ég við kennslu tornæmra og
lestregra barna og annarra frá-
viksnemenda, sem nú á síðari ár-
um eru gjarnan nefnd börn með
sérþarfir. Á þessum árum tíðkað-
ist, að ég held, í öllum skólum
borgarinnar „röðun“ í bekkjar-
deildir eftir meintri námshæfni, í
yngri deildum raunar nær ein-
göngu eftir lestrarkunnáttu og þá
einkum leshraða.
Umbótasinnar í skólamálum
börðust á árunum upp úr 1950
mikið fyrir stofnun sérbekkjar-
deilda til handa hinum ýmsu hóp-
um afbrigðilegra nemenda. Þetta
virtist óneitanlega skynsamlegt
úrræði, bæði kennslufræðilega og
sálfræðilega og auk þess að vera
mannúðaratriði eða þannig mátti
a.m.k. líta á málið.
Jónas B. Jónsson var að vísu
mjög áhugasamur um þessi mál-
efni, sbr. stuðning hans við sál-
fræðiþjónustu í skólum og var ör-
ugglega annt um hag vanþroska
nemenda.
En fræðslustjórinn okkar var
samt alltaf, að mér fannst — og ég
vona ég sé ekki í þetta sinn að gera
honum upp skoðanir — með ein-
hverjar vöflur í þessu máli og efa-
semdir um blessun þess fyrir
námstrega nemendur að vera sett-
ir í „hjálparbekk". Og ég má full-
yrða að sú afstaða var ekki fyrst
og fremst sprottin af sparnaðar-
ástæðum. Hann skynjaði næmum
skilningi að hin neikvæðu áhrif
aðgreiningarinnar fyrir sjálfs-
traust nemandans gátu vegið
þyngra en ávinningurinn af því að
njóta kennslu í fámennri bekkj-
ardeild.
Hér er ekki rúm að rekja þetta
mikilvæga málefni nánar. En það
er skemmst frá að segja, að þegar
kom fram á 7. áratuginn fjölgaði
sífellt þeim, sem studdu „blöndun"
í bekki, og aðhylltust jafnframt þá
skoðun að gæta skyldi mjög hófs
að stofna sérbekkjardeildir, en
auka því meir stuðningskennslu
með sveigjanlegu sniði.
Það sem mér persónulega þótti
e.t.v. merkilegast i starfi Jónasar
B. Jónssonar sem fræðslustjóra í
höfuðborginni, var viðleitni hans
til að efna til fræðslunámskeiða af
ýmsu tagi fyrir kennara. Einn
þáttur í þessu fræðslustarfi var að
fá erlenda skólamenn, einkum frá
Norðurlöndum, að halda hér nám-
skeið eða a.m.k. flytja nokkra
fyrirlestra um málefni sem ofar-
lega voru á baugi í skólamálum
hverju sinni. { þá daga var minna
talað um endurmenntun en nú er
og stundum heyrðist að þessi við-
leitni væri hið versta bruðl og ein-
ber sýndarmennska. — Ég hefi
aldrei getað tekið undir það nöld-
ur. — Ég er þvert á móti sann-
færður um að okkur er brýn nauð-
syn að halda nánu sambandi við
nágrannaþjóðir okkar í V-Evrópu
og Skandinavíu. Jónas B. Jónsson
reyndi að opna okkur sýn til nýrra
viðhorfa og halda leiðum opnum
að sækja fróðleik út fyrir pollinn.
Ég tel að á okkar tíð þurfi einmitt
að gera nýtt átak í þessu efni og
halda áfram af auknum krafti því
fræðslustarfi sem Jónas B. Jóns-
son hélt lifandi á árum áður.
Um manninn og persónuleikann
Jónas B. Jónsson mætti skrifa
langt mál og væri vel við hæfi á
afmæli sem þessu. Ég mun þó láta
undan dragast, enda sannreynt að
ég dugi lítt til slíkra verka. Get ég
þó ekki stillt mig um að nefna, að
mikið er ævinlega gaman að vera
nærstaddur þar sem nafni minn er
gestgjafi á góðri stund, hvort sem
er hér heima eða á erlendri grund.
Þar kemur til að Jónasi B. Jóns-
syni er höfðingsskapurinn sjálf-
runninn í merg og bein og kann
því manna best að koma fram við
slík tækifæri.
Mér hefur í spjalli mínu hér að
framan, í tilefni af 75 ára afmæli
nafna míns, orðið tíðrætt um
landnám og nýtt íslenskt samfélag
sem verið hafi í mótun síðustu
áratugi. Og mér þykir sem Jónas
B. Jónsson sé meðal farsælli for-
ystumanna í hópi landnema hinna
nýju á 20. öld.
Á okkar dögum er verk skóla
ekki aðeins fræðslumiðlun í
þröngri merkingu, heldur færist á
þeirra hendur eða öllu heldur
hendur kennaranna sífellt stærri
hluti félagsmótunar og uppeldis,
sem áður var á vegum heimilis og
fjölskyldu. En einmitt við þessar
aðstæður má ljóst vera hve mik-
ilvægt var að njóta forystu dug-
mikilla einstaklinga þegar verið
var að ryðja nýjar brautir á þessu
sviði.
Það er sennilega ekki smekk-
legt, en mig langar, nafni minn, að
nota mér afmæli þitt til að koma á
framfæri smávegis athugasemd
almenns eðlis, sem stundum sækir
á hug mér og raunar vísast að bor-
1 ið hafi á góma í viðræðum okkar á
liðnum árum. Það er þá ekki í
fyrsta sinn, sem þú verður að taka
beint eða óbeint ábyrgð á rausinu
í mér!
Það hvarflar stundum að mér að
nothæf formúla hafi ekki enn
komið fram hvernig varðveita
megi til frambúðar sjálfstætt og
menningarlega hlutgengt nútíma
þjóðfélag á íslandi. Við nafni
minn, sem báðir erum sveitamenn
og ólum aldur okkar til fullorðins-
ára norðan heiða, viljum að sjálf-
sögðu halda byggðahringnum og
neitum því ábyggilega að við séum
óvinir dreifbýlisfólks, hvort sem
það býr inn til sveita eða út við
sjó. En til þess að byggðahringur-
inn haldist og i landinu búi hvar-
vetna fólk, sem skynjar sig hluta
af samofnu og heildstæðu menn-
ingarþjóðfélagi, þurfa að vera til
staðar viss skilyrði. Efnahagsleg
verkaskipting milli landshluta
ætti m.a. að verða skýrari og
endurmat að koma til á félagsleg-
um gæðum og ókostum mannlífs
annars vegar í þéttbýli og hins
vegar dreifbýli. Skynsamleg upp-
bygging þjónustu á sviði fræðslu-
og menntamála, félags- og heil-
brigðismála er lykilatriði ef varð-
veita á heildstæða menningu
fólksins í landinu, halda byggða-
hringnum í megindráttum og gera
hvort tveggja án þess að við glöt-
um efnahagslegu sjálfstæði okkar.
Fámenni íslensku þjóðarinnar,
ásamt með fjölmenni þéttbýlis-
kjarnans á suðvesturhorninu,
skapar vanda sem sjálfstæð ríki í
heiminum eiga óvíða við að etja í
sama mæli og við íslendingar.
Þess vegna verðum við að leysa
málið samkvæmt eigin formúlu og
af eigin rammleik. En hvað kemur
þessi vandi og lausn hans afmæli
góðkunningja míns, Jónasar B.
Jónssonar, við? Ja — e.t.v. er tíbrá
eða hillingar af eylandinu í Skaga-
firði tekin að villa mér sýn og
nafna mínum úr Húnaþingi munu
ekki koma slíkir órar alveg á óvart
þegar ég á í hlut.
Hér er ýjað að þeirri staðreynd,
þó með flausturslegum hætti sé,
að við fáum naumast til lang-
frama haldið uppi tvöföldu eða
margföldu þjónustukerfi í svo
fámennu, en jafnframt hlutfalls-
lega stóru, landi eins og ísland er.
í þessu efni er nauðsyn að leita
nýrra leiða. Eðlilegt virðist að
byggja upp þjónustuhringi utan
um þéttbýliskjarna og þá einkum
út frá höfuðborgarvæðinu. Það er
sannfæring min, að okkur íslend-
ingum sé nauðsyn að finna varan-
legar og hagkvæmar lausnir á
framannefndum viðfangsefnum
og sé ekki seinna vænna. Það er
ennfremur tilgáta mín, að í
fræðslu- og skólamálum hafi
Reykjavík á fræðslustjóraárum
Jónasar B. Jónssonar mótað vísi
að starfsháttum, sem gætu gefið
okkur bendingar um hvernig þróa
mætti samvirka þjónustu á ýms-
um sviðum, sem á gagnkvæman og
sanngjarnan hátt kæmi í senn til
móts við þarfir þéttbýlis og
dreifbýlis í landinu.
Og nú er mál að linni þessu
sundurlausa rabbi. — Störf Jónas-
ar B. Jónssonar ættu þó sannar-
lega vandaðri umfjöllun skilið, og
einkum hann sjálfur persónulega
frá minni hendi, en hér hefir gert
verið . Það er bót í máli, að aðrir
mér kunnugri löngum starfsferli
Jónasar B. Jónssonar á vettvangi
skólamála munu bæta úr í þessu
efni, annað hvort nú eða síðar.
Um leið og ég bið nafna minn að
virða þessa kveðju á betri veg óska
ég þess að hann megi enn lengi
sinna áhugamálum sínum mörg-
um og halda alia tíð óskertri lífs-
gleði og bjartsýni.
Jónas Pálsson
Tíminn líður ört, og við sem
fyrir skömmu vorum ungir, erum
nú orðnir eldri menn.
Einn af okkar ágætustu skóla-
mönnum á miðhluta þessarar ald-
ar, Jónas B. Jónsson fyrsti
fræðslustjóri Reykjavíkurborgar,
er 75 ára í dag.
Ungur helgaði hann sig skóla-
og æskulýðsmálum. Eftir að hafa
lokið kennaraprófi frá Kennara-
skóla íslands, hélt hann út til
framhaldsnáms og nam við kenn-
araskóla i Gautaborg. Jónas var
því betur undirbúinn undir
kennslustarfið en almennt gerðist
á þeim tíma.
Það að Jónas undirbjó sig vel
fyrir sitt starf, er nokkur lýsing á
hans lífsháttum. Hann vildi ávallt
hafa yfirsýn yfir það, sem hann
fékkst við og vald á því, sem hann
var að gera.
Á hans embættisferli eru þau
orðin mörg málin, sem hann hefur
þurft að afgreiða, með áliti eða
ákvörðun, og Jónas fræðslustjóri
var ekki í hópi þeirra embætt-
ismanna, sem lögðu málin í salt.
Hann afgreiddi málin jafnan á
skömmum tíma. En það var at-
hyglisvert hversu ötull hann var
að afla sér upplýsinga um hvert
mál, áður en lokaákvörðun var
tekin. Þarna voru sömu starfs-
hættir og við undirbúning að
lífsstarfinu, fyrst haldgóð þekk-
ing, síðan að leysa viðfangsefnið.
I kennslustarfi sinu fékk Jónas
yfirlitsgóða reynslu, fyrst sem
kennari í sveitahéraði og síðan í
höfuðborginni. Hann var því vel
undirbúinn, bæði hvað menntun
og starfsreynslu snerti er hann
varð fræðslufulltrúi Reykjavíkur.
Embætti fræðslufulltrúa, sem
síðar nefndist fræðslustjóri, var
nýtt embætti, sem Reykjavíkur-
borg stofnaði 1943.
Það er jafnan vandasamt að
taka við nýju embætti og skipu-
leggja það og fyrir framtíð emb-
ættisins er afdrifaríkt hvernig
tekst að marka fyrstu sporin, svo
embættið verði farsælt, fái virð-
ingu og viðurkenningu. Gildir þar
málshátturinn: „Lengi býr að
fyrstu gerð“.
Það var lán Reykjavíkur, að fá
hinn vel hæfa unga mann, Jónas
B. Jónsson, til að taka að sér þenn-
an starfa.
Vandinn við að koma þessu
embætti á. fastan og farsælan
grundvöll var margþættur. Það
var ekki nægilegt að byggja upp
vel útfært og hagnýtt skrifstofu-
kerfi, það þurfti einnig að ná góðu
sambandi við þær stofnanir, sem
embættinu voru tengdar, skilja
stöðu þeirra, veita þeim rétta og
hagkvæma þjónustu. Talsverða
lagni og festu hefur þurft til að fá
skólana til að viðurkenna forsvars
og leiðtogahlutverk þessa nýja
embættis. Skólastjórar Reykjavík-
urskólanna voru vel metnir menn
og góðir skólastjórar, þeir réðu í
sínum skólum og voru á þessum
tíma kóngar í sínu ríki. Það er því
harla óliklegt, að þeir hafi verið
sérlega hrifnir af því, að Reykja-
víkurborg stofnaði nýtt embætti
til að fara með yfirstjórn skóla-
mála borgarinnar.
Ef einhver skerjagarður hefur
verið á þessari leið, þá tókst Jón-
asi siglingin þar í gegn það vel, að
aldrei steytti á steini.
Skipulagshæfileikar Jónasar,
dugnaður, lagni og festa báru
brátt árangur. Skólarnir viður-
kenndu og mátu þá aðstoð og
fyrirgreiðslu sem fræðsluskrif-
stofan veitti. Og skólastjórunum
varð fljótlega ljóst, að þeim var
styrkur að starfi fræðslustjóra og
að Jónas var einmitt maðurinn,
sem þeir vildu og þurftu í þetta
starf.
Þótt ég fylgdist með ferli Jónas-
ar, vegna dugnaðar hans og fram-
taks, þá hófust okkar persónulegu
kynni ekki fyrr en 1949, er undir-
búningur hófst að verknámsskóla
hér í Reykjavík. Mér varð strax
ljós skipulagsgáfa hans, og athygli
vakti hve fljótur hann var að ná
heildaryfirsýn yfir það viðfangs-
efni, sem hann fékkst við. Einnig
dáðist ég að hvað maðurinn gat
afkastað. Sú aðstoð, sem hann
hafði, var hálfs dags skrifstofu-
stúlka. Önnur störf fræðsluskrif-
stofunnar utan og innan veggja
stofnunarinnar vann hann sjálfur.
Borgin var í örum vexti, skólum
fjölgaði, verksvið fræðsluskrif-
stofunnar varð stöðugt meira og
víðtækara og starfsfólkinu fjölg-
aði.
Það var gæfa Jónasar, hversu
vandlátur og glöggskyggn hann
var við mannaráðningar. Á
fræðsluskrifstofunni var valinn
maður í hverju starfi.
Jónas var maður framfara og
framtaks, hann var síungur í
starfi. Áhugi hans fyrir betra og
fullkomnara skólahaldi hélst alla
tíð. Hann fylgdist vel með fram-
vindu og stjórnarháttum fræðslu-
mála nágrannalandanna og
Bandaríkjanna. Okkur skólastjór-
unum kynnti hann þær stefnur og
nýjungar, sem helstar voru á
hverjum tíma.
Á þessum árum voru breytingar
miklar og örar hjá helstu menn-
ingarþjóðum, hvað snerti kennslu-
hætti og skipulag skóla. Til þess
að við mættum með eigin augum
fylgjast með því, sem var að ger-
ast, kom Jónas á námsferðum
skólastjóra og yfirkennara til
Norðurlandanna. Hann skipulagði
ferðimar og annaðist fararstjórn.
Við kynntumst því þar, að Jónas
var ekki aðeins góður fræðsiu-
stjóri, heldur líka frábær farar-
stjóri og ágætur félagi.
Um leið og ég flyt Jónasi og
hans fólki hamingjuóskir í tilefni
þessara tímamóta, vil ég þakka
honum langt og gott samstarf og
góða stjórn fræðslumála.
Magnús Jónsson,
fyrrv. skólastjóri.
Þegar Jónas B. Jónsson, fyrrum
skátahöfðingi Islands, verður 75
ára gamall, er vert að minnast
tæplega 50 ára starfs hans fyrir
skátahreyfinguna á íslandi.
Það hófst með því, að Jón Sig-
urðsson, skólastjóri Laugarnes-
skólans í Reykjavík, fékk Jónas B.
til að ganga í lið með sér við stofn-
un Skátafélagsins Völsunga, sem
var bundið við nemendur Laug-
arnesskólans, rétt fyrir stríð. Jón
Sigurðsson skólastjóri var mikill
skólamaður og því mannþekkjari,
þegar hann valdi Jónas B. til þessa
starfs, þó hann þekkti ekki til
skátastarfs áður.
Starf skátafélagsins Völsunga
varð strax með þeim hætti, að til
fyrirmyndar var, öflugt og fjöl-
breytt skátastarf, sem gaf skátun-
um tækifæri til að stunda ánægju-
leg og þroskandi tómstundastörf.
ólust þar upp margir þeir foringj-
ar, sem áttu eftir að setja svip á
skátastarf hér í Reykjavík um
langan tíma. Á ég margar góðar
minningar um starf við þá á
stríðsárunum, þegar kreppti að
æskulýðsstarfi hér í höfuðborg-
inni.
Árið 1942 verða þáttaskil i
skátastarfi Jónasar B. (eins og við
skátar köllum hann alltaf), því þá
er Skátaskólinn á Úlfljótsvatni
stofnsettur að tilhlutan Helga
Tómassonar, skátahöfðingja og
fyrir velvild Bjarna Benediktsson-
ar, borgarstjóra, en Reykjavíkur-
borg átti landið.
Jónas B. var fenginn til að vera
þar leiðtogi eða skólastjóri. Fyrsta
sumarið var byrjað smátt, en 1943
var byggður fyrsti skátaskálinn
fyrir austan. Var strax mikið starf
unnið þarna undir forustu og leið-
sögn Jónasar B., sem var okkur,
sem störfuðum þarna, stoð og
stytta á þann hátt, að hann varð
vinur okkar, þótt aldursmunur
væri nokkur. Síðan hefur starfið á
Úlfljótsvatni verið hjartans mál
Jónasar B. og þó margir hafi kom-
ið þar við sögu, hefur hlutur Jón-
asar B. verið þar langstærstur. Má
hann þar horfa yfir glæsilegan
árangur skátastarfs, þar sem á
Úlfljótsvatni starfa nú öll sumur
stórir hópar stúlkna og drengja að
skátastörfum. Skátasveitir og
skátafélög stunda þar útilegustörf
um helgar, foringjanámskeið eru
haldin fjölmörg ár hvert og lands-
mót skáta hafa verið haldin þar
tvisvar.
Eftir að Jónas B. hætti starfi
sem fræðslustjóri hefur hann enn
frekar helgað sig starfi á Úlf-
ljótsvatni og véitt forustu Úlf-
ljótsvatnsráði, sem sér um allar
framkvæmdir á staðnum. Er allt-
af gaman og uppörfandi að hitta
Jónas B. og ræða um skátamál, en
sérstaklega Úlfljótsvatn og marg-
ar góðar minningar frá liðnum ár-
um. Hann horfir björtum augum á
framtíðina, því að 75 ár hafa ekki
dregið úr áhuga og baráttuþreki
hans til að vinna að þessum mál-
um.
En Jónas B. vann líka að öðrum
málum skáta. Eins og áður getur
var hann félagsforingi Völsunga
frá stofnun, síðan í stjórn Banda-
lags íslenskra skáta, varaskáta-
höfðingi og við fráfall Helga Tóm-
assonar 1958 varð Jónas B. skáta-
höfðingi íslands. Gengdi hann því
starfi samfellt til 1971 eða í 13 ár.
Nokkur styrr stóð um Jónas B.
þegar hann var kjörinn. Sumir
álitu að hættulegt væri að fá
skólamann — kennara til að leiða
skátastarf, frjálst æskulýðsstarf,
sem ætti að vera ólíkt skóla í
framkvæmd. En það sýndi sig, að
Jónas B. vann fljótt hug skáta um
allt land, sem sáu hve ötulan og
styrkan leiðtoga þeir höfðu fengið.
Það má segja, að Jónas B. hafi
allan þennan tíma verið óþreyt-
andi að vinna að framgangi mala í
þágu skátahreyfingarinnar á Is-
landi. Yrði of langt mál að telja
upp öll þau mál, en aukin foringja-
menntun, bætt húsnæðisaðstaða
skátafélaga, og stuðningur við
þau, auk mjög aukins samstarfs
við erlendar skátahreyfingar, sér-
staklega á Norðurlöndum, sem allt
hefur orðið skátastarfi til ómet-
anlegs gagns.
Ég veit, að vinur minn, Jónas B.,
kann mér litlar þakkir fyrir að
bera lof á hann, svo ég verð að
gæta hófs.
Gamlir skátar og sérstaklega
þeir, sem til forustu voru valdir
undir stjorn Jónasar B. munu
minnast starfs hans og leiðsagnar
á liðnum árum og senda honum
hugheilar kveðjur á afmælisdegi
hans. Þeir yngri njóta nú ávaxt-
anna af ötulu starfi hans fyrir
bættu skátastarfi og ég veit að það
er besta afmælisgjöfin að vita af
vaxandi og fjölbreyttu skátastarfi
víðsvegar um landið.
Ég nota þetta tækifæri til að
senda Jónasi og Guðrúnu konu
hans hamingjuóskir á þessum há-
tíðisdegi um leið og ég þakka þeim
vináttu á liðnum árum.
Páll Gíslason
Jónas B. Jónsson, fyrrverandi
fræðslustjóri er 75 ára í dag. Ég
ætla mér ekki að rekja feril hans
sem kennara, skólamanns, uppeld-
isfrömuðar og fræðslustjóra í
Sjá einnig bls. 30.