Morgunblaðið - 08.04.1983, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
ALÞINGISKOSNINGARNAR
mm iw J«|
Húsnæðismálin f kosningastefnuskrám:
„Eign fyrir alla“
leiguhúsnæði“ -
Húsnæðismál eru á öldutoppi í athygli fólks, vegna samdráttar í lánum
hins almenna húsnæðislánakerfis sem og samdráttar í byggingariðnaði.
Lánahlutfall, sem var nálægt 45% af byggingarkostnaði 1971 er komið langt
niður fyrir 20%, jafnvel niður í 12%, ef verðrýrnun lána á þrískiptum útborg-
unartíma er tekin með í dæmið. Arið 1978 var 'ánað til 1.883 íbúða, sem
einstaklingar stóðu að, en aðeins til 1.070 íbúða árið 1981, eða til 800 færri
— Stóraukið
„Félagsleg lán“
íbúða. Samdráttur hefur enn orðið. Samkvæmt fbúðaspá þarf að byggja um
2.000 nýjar íbúðir á ári, til að fullnægja þörf og eftirspurn vaxandi þjóðar, en
mikið skortir á að svo sé gert í dag.
En hvað segja flokkarnir um húsnæðismálin í kosningastefnuskrám sín-
um?
Sjálfstæðisflokkur:
Eign fyrir alla —
átak í húsnæðismálum
„Á síðustu misserum hafa almennar húsbyggingar
dregist stórlega saman og framkvæmdir færst æ meira
yfir á svið verkamannabústaða og bygginga á vegum
opinberra aðila. Orsakirnar eru annars vegar versnandi
efnahagur og lífskjör, en hins vegar lánsfjárskortur og
beinar aðgerðir stjórnvalda.
Sjálfstæðisflokkurinn telur þessa þróun óæskilega og
stefnir að því að allir geti eignast og búið í eigin hús-
næði. Hann mun beita sér fyrir eftirfarandi aðgerðum í
húsnæðismálum:
• 1. Efldir verði tekjustofnar Byggingasjóðs ríkisins
svo að almenn íbúðarlán hækki nægilega til þess
að almenningi sé kleift að koma sér upp eigin íbúð
með þeim lánskjörum, sem staðið verður undir af
venjulegum launatekjum. Þeir sem eru að eignast
sína fyrstu íbúð fái 80% lán með betri kjörum en
aðrir.
• 2. Verkamannabústaðakerfið verði bundið við þarfir
hinna efnaminnstu er fái nægilega aðstoð til að
koma sér upp eigin íbúð.
• 3. Leiguíbúðum sé markaður ákveðinn rammi innan
húsnæðislánakerfisins.
• 4. Sérstakt átak verði gert í byggingu þjónustuíbúða
fyrir aldraða og öryrkja. Öldruðum verði auðveld-
uð eignaskipti á íbúðarhúsnæði.
• 5. Sérstakar skattaívilnanir verði veittar þeim ein-
staklingum sem leggja reglulega fé inn á bundna
reikninga. Sú aukning frjáls sparnaðar sem af
þessu hlýst sé notuð til að standa undir auknum
þörfum húsnæðislánakerfisins."
Alþvðubandalají:
Framfarir
í húsnæöismálum
{ kosningabæklingi Alþýðubandalags segir um húsnæð-
ismál:
„• fbúðir fyrir ungt fólk. Næstu 5 ár starfi sérstakur sjóður,
„íbúðir fyrir ungt fólk“, sem fjármagni hóflegt húsnæði
fyrir ungt fólk og þá sem eru að tryggja sér húsnæði í
fyrsta sinn. Fjármagn sjóðsins komi með auknu framlagi
lífeyrissjóða, með lögbundinni þátttöku bankakerfisins í
húsnæðislánakerfinu og sérstakri tekjuöflun í þessu
skyni.
• Ný eignaform — kaup/leigusamningar — hlutaeign.
• Húsnæðislán verði greidd út í tvennu lagi.
• Félagslegar íbúðarbyggingar. Þriðjungur íbúða verði á
félagslegum vettvangi — íbúðir fyrir aldraða — leigu-
íbúðir — námsmannaíbúðir.
• Aukin hlutdeild byggingarsamvinnufélaga þannig að
byggðar verði fleiri minni ódýrar íbúðir."
Alþýðuflokkur:
Húsnæði fyrir alla
í kynningarbæklingi frá Alþýðuflokknum segir:
„Alþýðuflokkurinn vill að allir eigi þess kost að búa í góðu
húsnæði sem þeir annað hvort eiga eða leigja eftir því sem
hver og einn velur.
Þessu vill hann ná með:
• Stórbættu lánakerfi til þeirra sem vilja byggja eða kaupa
húsnæði. Stórhækkun lána og lengingu lánstíma.
• Bættri löggjöf um byggingu leiguhúsnæðis á grundvelli
kaup/leigu-fyrirkomulags.
• Verulega auknum byggingum verkamannabústaða.
• Sérstökum ráðstöfunum til að rétta hlut þeirra húsbyggj-
enda sem stjórnvöld hafa brugðizt á undanförnum árum.“
FramsóknarHokkur:
80% lán til
frumbyggjenda
f kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins stendur:
„Húsnæðislán verði í áföngum hækkuð í 80% bygg-
ingarkostnaðar til 42 ára, fyrst til frumbyggjenda."
Kvennalistinn:
Stóraukið
leiguhúsnæði
Um húsnæðismál segir svo í stefnuskrá Kvennalistans:
„Við viljum breytta stefnu í húsnæðismálum. Við vilj-
um stórauka byggingu leiguhúsnæðis annað hvort á veg-
um hins opinbera eða á vegum félagasamtaka. Endur-
skoða verður lánakjör þeirra sem eignast vilja húsnæði
til eigin afnota. Við viljum að fólk geti í reynd valið um
það hvort það býr í leiguhúsnæði, byggir sjálft eða festir
kaup á öðru húsnæði."
Bandalag jafnaöarmanna:
„Félagsleg lán“
í bæklingi Bandalags jafnaðarmanna segir:
„Bandalag jafnaðarmanna vill að húsnæðisþörf ungs
fólks verði fullnægt með félagslegum lánum þannig að
með tilstyrk þeirra geti einstaklingar eignast íbúð með
því að endurgreiða mánaðarlega jafnvirði sanngjarnrar
húsaleigu."