Morgunblaðið - 08.04.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
21
Yeröbólga og vinstri stjórn:
Betri lelóir
bjóðast
„Ákaflega alvarlegt
félagslegt vandamál“
0: Gerbreytta
m efnahagsstefni
Verðbólgan stefnir í yfir 100%
samkvæmt útreikningi Seðla-
banka íslands og í 105% sam-
kvæmt byggingavísitölu — hún
er því 10 sinnum hærri nú en
hún ætti að vera hefði ríkis-
stjórnin staðið við fyrirheit sitt
um lækkun hennar.
Svavar Gestsson, formaður
Alþýðubandalagsins, sagði í
Þjóðviljagrein 6. september 1980
„ ... sú mikla verðbólga sem hér
hefur verið er ákaflega alvarlegt
félagslegt vandamál og ef við ætl-
Svavar Gestsson
um að ná tökum á því verkefni
sem okkur er skyldast að skila
þjóð okkar og lífi hennar heilu
til komandi kynslóða verðum við
af fullri alvöru að takst á við
þennan gífurlega verðbólgu-
vanda ...
Núna á næstu vikum og mán-
uðum mun ríkisstjórnin leggja á
það þunga áherslu að vinna að
alhliða stefnumótun í efna-
hagsmálum þar sem tekið er á
vandamálum verðbólgunnar,
lagður traustari grundvöllur að
uppbyggingu atvinnulífsins og
aukinni verðmætasköpun og
jafnframt á nauðsyn þess að
breyta til í ákvörðunarkerfi ís-
lenskra efnahagsmála ...
Ég er sannfærður um að einn
meginvandinn í efnahagslífinu á
íslandi er fólginn í því að ýmsir
þættir stjórnkerfisins eru löngu
úreltir og úr sér gengnir og að
ekki verður komist að rótum
verðbólgumeinsins nema þessum
þáttum verði vikið til hliðar eða
þeir gerðir upp á nýjum forsend-
um.“
Síðan Svavar Gestsson ritaði
þessi orð eru tvö og hálft ár og
allan þann tíma hefur hann setið
í ríkisstjórn. Allar hugmyndir
hennar um lausn efnahagsvand-
ans hafa náð fram að ganga án
þess þó að hún hafi náð „tökum á
því verkefni" sem Svavari taldi
sér „skyldast".
Myndin er tekin á fréttamannafundi Alþýduflokksins. Frá vinstri: Bjarni P. Magnússon, formaður framkvæmda-
stjórnar, Kjartan Jóhannsson, formaður, Magnús Magnússon, varaformaður, og Kristín Guðraundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri flokksins.
„Við viljum gerbreytta
stefnu í efnahagsmálum“
— segir Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokksins
„VIÐ viljum gerbreytta stefnu í efna-
hagsmálum og höfnum þeim glund-
roða sem sett hefur mark sitt á
stjórnmálalíf hér síðustu tólf ár,“
sagði Kjartan Jóhannsson á fundi
með fréttamönnum sl. mánudag, þar
sem stefnuskrá flokksins í efna-
hagsmáium var kynnt undir heitinu
Betri leiðir bjóðast. Kjartan sagði, að
margar af tillögum Alþýðuflokksins
væru ekki nýjar af nálinni, enda
hefði flokkurinn flutt frumvörp um
margar ráðstafanir í efnahagsmálum
sem því miður hefðu ekki náð fram
að ganga á þingi. Það væri því Ijóst,
að Alþýðuflokkurinn bæri enga á-
byrgð á hinu slæma efnahagsástandi
Albert Gudmundsson, sem skipar efsta sæti D-listans í Reykjavík, sótti starfsmenn Kristjáns
Skagfjörö heim í hádeginu í gær og var þessi mynd tekin þá.
Steingrímur Hermannsson:
„Páli er laus tungan“
„PÁLI er laus tungan," svaraði
Steingrímur Hermannsson for-
maður Framsóknarflokksins, er
hann var á blaðamannafundi í gær
spurður álits á yfírlýsingum Páls
Péturssonar þingflokksformanns
og fleiri framsóknarmanna í Norð-
urlandskjördæmi vestra vegna
hcimildar framkvæmdastjórnar
Framsóknarflokksins til svo-
nefndra göngumanna í kjördæm-
inu að nota listabókstafina BB í
komandi Alþingiskosningum.
Þingflokksformaðurinn hefur
m.a. sagt í þessu tilefni, að yfir-
stjórn flokksins í Reykjavík sé
með þessu að hlutast til um mál-
efni flokksins í heimahéraði og
geti það haft áhrif á innviði
flokksins. Steingrímur var
spurður álits á þessu í framhaldi
af yfirlýsingum hans um hin
ýmsu sérframboð fyrir Alþing-
iskosningarnar. Hann sagði
BB-listann skipaðan góðum
framsóknarmönnum og því hefði
verið talið rétt að þeir fengju
listabókstafina. Um yfirlýsingar
flokksbræðra sinna og þing-
flokksformannsins svaraði hann
áðurnefndum orðum: að Páli
væri laus tungan.
T-listinn á Vestfjörðum
FRAMBODSLISTI nokkurra
Sjálfstæðismanna á Vestfjörðum,
T-listinn, er svo skipaður:
1. Sigurlaug Bjarnadóttir,
menntaskólakennari, Reykja-
vík.
2. Halldór Hermannsson,
skipstjóri, ísafirði.
3. Guðjón A. Kristjánsson,
skipstjóri, ísafirði.
4. Kolbrún Friðþjófsdóttir,
kennari, Litlu-Hlíð, Barða-
strönd.
5. Jóna Kristjánsdóttir,
húsfreyja, Alviðru, Dýrafirði.
6. Hjálmar Halldórsson,
rafvirki, Hólmavík.
7. Þórarinn Sveinsson,
búnaðarráðunautur, Hólum,
Reykhólahr.
8. Ragnheiður Hákonardóttir,
húsmóðir, ísafirði.
9. Soffía Skarphéðinsdóttir,
verkakona, ísafirði.
10. Þórður Jónsson,
bóndi, Hvallátrum, Rauða-
sandshr.
þjóðarinnar, en hins vegar hefðu
Sjálfstæðisflokkur, Alþýðubandalag
og Framsóknarflokkur setið í stjórn
mestan hluta þessa tólf ára tímabils
þegar verðbólgan hefði vaxið úr 6,4%
í um 70%.
Kjartan kvað Alþýðuflokkinn að
vísu hafa setið í stjórn á árunum
1978— 79, en þegar hinir flokkarnir
hefðu ekki sýnt því neinn áhuga að
takast á við efnahagsvandann,
hefðu jafnaðarmenn sagt sig úr
stjórninni. Aðspurður sagði Kjart-
an, að ætlunin væri ekki að fara í
einvígi við Bandalag jafnaðar-
manna í kosningabaráttunni, þó að
þessir flokkar byðu fram að ein-
hverju leyti á sama grundvelli.
Hann sagði, að margt í stefnuskrá
Bandalagsins væri í samræmi við
markmið alþýðuflokksmanna, en
þar væru einnig stefnumál, sem að
hans dómi væru óraunhæf.
í því kynningarriti sem lagt var
fram á fundinum kemur m.a. fram,
að fjóra þætti ber hæst í efna-
hagsmálum: Afkomuöryggi, ný at-
vinnustefna, uppstokkun í ríkis-
búskap og ábyrg samskipti. Þar
segir, að lífskjaratrygging þurfi að
leysa vísitölukerfið af hólmi með
samningum um launaþróun og lág-
launatryggingu. Kjartan kvað það
skammarlegt hve raungildi lægstu
launa hefðu lækkað á undanförnum
árum á sama tíma og hátekjumenn
hefðu fengið launahækkanir sem
næmu heilum verkamannalaunum.
{ stefnuskránni kemur einnig fram,
að keppt verði að því að draga úr
erlendri skuldasöfnun í þeim til-
gangi að koma verðbólgunni niður
og atvinnulífið fái eðlileg rekstr-
arskilyrði til að vel rekin fyrirtæki
þurfi ekki að lifa á bónbjörgum. Al-
þýðuflokksmenn leggja einnig til að
húsnæðislán til kaupa á fyrstu íbúð
verði tvöfölduð og kaup- og leigu-
fyrirkomulagi verði komið á. Þá er
stefnt að því að verðtryggja al-
mennt sparifé, þannig að bankar
skili raunvirði til sparifjáreigenda.
Það, sem einkum felst í hinni
nýju atvinnustefnu sem Alþýðu-
flokkurinn vill marka, er að tryggja
fulla atvinnu og hætt verði að eyða
fjármunum í óarðbærar fjárfest-
ingar, s.s. óhagkvæman togara-
innflutning, lán til hallærisrekstrar
og óhóflegra útflutningsbóta.
Ennfremur vill flokkurinn leggja
niður Framkvæmdastofnun. í
stefnuskránni er sett fram það
markmið, að eftirlit verði tekið upp
með óeðlilegri erlendri samkeppni
við íslenska framleiðslu. Sagði
Kjartan á fundinum, að hér væri
fyrst og fremst átt við vörur sem
stæðust ekki gæðamat. Alþýðu-
flokksmenn vilja einnig að ráðist
verði gegn spillingu i þjóðfélaginu
með því að koma á fót skattadóm-
stóli og skattaeftirlit verði hert tíl
að sporna við skattsvikum. Þá segir
í stefnuskránni, að virðisaukaskatt-
ur skuli koma í stað söluskatts og
tekið verði upp staðgreiðslukerfi
skatta, en einnig að almennur
tekjuskattur af launum verði af-
numinn í áföngum. Kjartan sagði,
að hann gerði ráð fyrir því að það
gæti komist í framkvæmd á einu
kjörtímabili. Þá stefna alþýðu-
flokksmenn að því að samræmdu
lífeyriskerfi verði komið á og tolla-
og aðflutningsgjaldakerfið verði
endurskoðað og einfaldað. í lok
stefnuskrárinnar kemur m.a. fram,
að ábyrgðin skuli sett í öndvegi að
nýju og atvinnurekstur standi á
eigin fótum án ríkisábyrgðar.
T.a.m. ættu þeir aðilar, sem ákveða
fiskverð að bera ábyrgð á ákvörðun-
um sínum án ávísunar á ríkisvaldið.
Loks sagði Kjartan að alþýðu-
flokksmenn vildu einnig auka
valddreifingu í þjóðfélaginu og efla
áhrif sveitarfélaga.
Breytingar á utankjörfundar-
atkvæðagreiðslu erlendis
HÉR MEÐ tilkynnist eftirfarandi breytingar á kjörstöóum og kjörtímum við
utankjörfundaratkvæðagreiðslu erlendis vegna alþingiskosninga 23. aprfl nk.
og auglýstar voru í fréttatilkynningu ráðuneytisins nr. 8/1983:
Belgía
Brussel:
Sendiráð íslands
Blvd. Leopold III (OTAN)
1110 Bruxelles
sími (02) 215 10 35
Bretland
Bristol
Ræðismaður: Frank W.C. Pitt
The Coach House, la Camp Road,
Clifton, Bristol BS8
sími (0272)-738121
Edinburgh — Leith:
Vararæðismaður: Snjólaug Thomson
50 Grange Road
Edinburgh EH 9 ITU
sími (031) 667-2166
ísrael
Tel-Aviv:
Aðalræðismaður: Fritz Naschitz
Ræðismaður: Peter G. Naschitz
136 Rothschild Blvd.
Tel-Aviv
símar: 22 92 41/42/43
26. mars—23. apríl kl. 9—13 og
14:30—18 virka daga.
15. apríl kl. 10—17.
11.—18. apríl kl. 14—18 virka
daga. Á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
5. og 6. apríl kl. 10—15.