Morgunblaðið - 08.04.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, EÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
23
Herforingjar hlýða á messu
Argentínska herforingjastjórnin samankomin, Reynaldo Bignone lengst til vinstri. Myndin var tekin fyrr í vikunni er
foringjarnir fylgdust með guösþjónustu í minningu fallinna argentínskra hermanna í Falklandseyjastríðinu. Miöa
Argentínumenn vid 2. apríl er innrás þeirra á eyjamar hófst. Fresta varð messunni þangað til eftir páska, vegna
„Fremur
dauður en
rauður“
Boston, 7. aprfl. AP.
Nær helmingur af 792 manna
hópi í Massachusetts í Banda-
ríkjunum, sem þátt tóku í skoð-
anakönnun, sögðust heldur vilja
kjarnorkustyrjöld en verða að
búa við kommúnistastjórn, og
þriðjungur hinna aðspurðu vildi
heldur kjarnorkustyrjöld, enda
þótt hún hefði dauða í fór með
sér fyrir allt fólk í Bandaríkjun-
um.
Einn af hverjum þremur vildi
þannig „fremur vera dauður en
rauður, sagði Padraig OMalley
prófessor við stjórnmáladeild há-
skólans í Massachusetts, er hann
kunngerði niðurstöður könnunar-
innar.
þcirra.
Perú:
Myrtu minnst 70
óbreytta borgara
Ayacucho, Perú, 7. aprfl. AP.
FLOKKAR lögreglu og hermanna í
Perú hafa fundið Ifk að minnsta
kosti 70 óbreyttra sveitamanna og
kvenna í tveimur sýslum Ayac-
ucho-sýslu og hafa önnur eins morð
ekki verið framin á óbreyttum
borgurum í Perú í rúmlega öld.
Það eru skæruliðar MAO-ista sem
bera ábyrgð á morðunum, en líkin
fundust á víð og dreif í hlíðunum,
einkum við rætur Andes-fjallanna,
sem snúa að Perú. Sex manns
fundust á lífi og voru fluttir með
þyrlum til byggða. Allir voru þeir
stórslasaðir og í lífshættu.
Stjórnarher Perú hefur reynt að
hafa hendur í hári skæruliðanna
að undanförnu, en hefur orðið lítið
ágengt, einkum vegna illviðris.
Aðgerðir skæruliða gegn hinum
óbreyttu borgurum eru taldar
stafa af beiðni þorpsbúa á þessum
slóðum til yfirvalda, að opna á ný
lögreglu- og hervarðstöðvar sem
lagðar voru niður fyrir nokkru.
Skæruliðarnir hafa lýst þessi
svæði „frelsuð", en sveitaalþýðan
hefur illan bifur á þeim. Fórnar-
lömbin voru ýmist myrt með byss-
um, sveðjum eða öxum.
Vill ganga að eiga
dauðadæmdan fanga
Harstad, Noregi, 7. aprfl. AP.
RANNVEIG Rydmo, 21 árs
gömul norsk stúlka, og 32
ára gamall BandaríkjamaÖ-
ur, Mike Berryhill aö nafni,
sem bíður dauöa síns í fang-
elsi í Jackson í Georgíuríki,
í mál gegn
systurinni
— eða þannig sko
Paterson, New Jersey, 7. aprfl. AP.
TÍU ára gamall drengur, sem
mátti kallast heppinn að missa
ekki sjón á öðru auga eftir að
systir hans hafði kastað í hann
blýanti, hefur nú höfðað mál á
hendur henni og krefst hann
180.000 dollara, um 3,8 millj.
ísl., í skaðabætur.
Lögfræðingur drengsins segir,
að ástæðan fyrir málshöfðuninni
sé sú, að tryggingafélagið neiti að
greiða drengnum bætur fyrir
meiðslin og því sé þetta eina leið-
in. „Við verðum að gera þetta til
að fá eitthvað út úr heimilistrygg-
ingunni," sagði hann.
Atburðurinn átti sér stað 3. maí
fyrir tveimur árum þegar strákur-
inn klappaði systur sinni á öxlina
þar sem hún sat við skólalærdóm-
inn. Hún brást þannig við, að hún
kastaði blýanti aftur fyrir sig og
ienti hann í öðru auga bróður
hennar.
ætla aö setja upp hringana
nk. sunnudag aö því er segir
í dag í Óslóarblaöinu Aften-
posten.
„Við vonumst til að geta gifst
einhvern tíma í sumar," sagði
Rannveig skömmu áður en hún
hélt til Bandaríkjanna sl. mið-
vikudag. Þau Mike hafa skrifast á
í fjögur ár eða síðan hún var 17
ára gömul en þá sá hún nafnið
hans í vikuriti. Rannveig hefur áð-
ur farið vestur til fundar við Mike.
Mike Berryhill bíður dauða síns
fyrir morð en hefur þó aldrei játað
það á sig. Hann hefur verið í fang-
elsi í níu ár og ekki er talið ólík-
legt, að dóminum yfir honum verði
breytt í lífstíðarfangelsi.
Veður
víða um heim
Akureyri +1 skýjaó
Amsterdam 13 skýjaó
Aþena 19 heiðskírt
Barcelona 17 lóttskýjaó
Berltn 8 skúr
BrUssel 8 skýjað
Chicago 10 skýjsö
Dublin 5 skýjaó
Franklurt 11 rigning
Færeyjar 4 alskýjað
Genf 11 rigning
Helsinki 10 skýjaö
Hong Kong 24 skýjaó
Jerúsalem 18 skýjað
Jóhannesarborg 23 heióekirt
Kaupmannahöfn 6 rigning
Kairó 23 skýjaó
Las Palmas 17 skýjsó
London 12 skýjaó
Los Angeles 20 heióskírt
Madrid 19 heiöskirt
Malaga 22 lóttskýjsó
Mallorca 18 hálfskýjaó
Mexikóborg 27 heióakírt
Miami 27 heiðskírt
Moskva 12 skýjað
Nýja Delhí 29 heióekirt
New York 15 skýjaó
Ósló 5 skýjaó
París 13 skýjaó
Peking 17 haióakírt
Perth 17 skýjaó
Reykjavik 1 léttskýjaó
Rio de Janeiro 27 rigníng
Rómaborg 17 heióakírt
San Francisco 19 heiöskirt
Stokkhólmur 8 skýjaö
Sydney 20 skýjaö
Tel Aviv 22 heiöakirt
Tókýó 21 akýjaö
Vancouver 15 akýjaö
Vinarborg 14 akýjaö
Japanir auka
herútgjöld
Tókýó, 7. apríl. AP.
ÚTGJÖLD Japana til hermála
voru á síðasta ári meiri en þau
hafa nokkru sinni verið eftir stríð
og hækkuðu um nærri 50% milli
ára. Mesta hluta hækkunarinnar
má rekja til kaupa þeirra á banda-
rískum orrustuþotum af gerðinni
F-15, á flugvélum, sem beint er
gegn kafbátum, og öðrum búnaði.
V esturbakkaveik-
in rannsökuð
Genf, 7. aprfl. AP.
ALÞJÓÐANEFND Rauða kross-
ins lagði í dag til, að fram færi
„ítarleg rannsókn" á Vesturbakka-
veikinni svokölluðu, sem einkum
hefur orðið vart meðal palest-
ínskra skólastúlkna á hernáms-
svæði Israela á Vesturbakkanum.
í fyrstu var talið að um einhvers
konar gaseitrun væri að ræða og
vildu Palestínumenn kenna ísrael-
um um. Ekkert hefur þó komið
fram, sem styður það, og segja nú
ísraelar, að hér sé um ímyndunar-
veiki að ræða vegna múgsefjunar.
Big Ben
í viðgerð
London, 7. apríl. AP.
VERIÐ er nú að setja upp vinnu-
palla utan á turninum, sem hýsir
þá frægu klukku Big Ben og er
gert ráð fyrir, að það taki hálft
annað ár að lagfæra turninn, sem
þykir orðinn nokkuð hrörlegur. Er
þetta hluti af sex ára áætlun um
gagngera viðgerð á Westminster-
höllinni, aðsetri breska þingsins.
Heróín í eðalsteinum
Mikið ffkniefnasmygl í Hollandi
Amsterdam, 7. aprfl. AP.
LÓGREGLAN í Amsterdam hef-
ur að undanförnu lagt hald á 9,5
kg. af heróíni, sem faíið var innan
í eðalsteinum, og handtekið 9
manns fyrir heróínsmygl. Skýrði
hollenzka lögreglan frá þessu í
dag. Var fíkniefninu smyglað inn í
Holland frá Pakistan með þessum
hætti.
Hollenzka lögreglan handtók
fyrst þrjá karlmenn og tvær
konur frá Pakistan en einnig
hollenzk hjón. Fóru þessar hand-
tökur fram 23. marz sl. í Amst-
elveen, einni af útborgum Amst-
erdam. Hinn 29. marz sl. hand-
tók hollenzka lögreglan enn einn
Pakistana á Shiphol-flugvelli við
Amsterdam, þar sem lögreglan
fann aðra sendingu af eðalstein-
um. Síðasta handtakan fór fram
á miðvikudag og var þá Holiend-
ingur einn handtekinn í Amst-
erdam. Við leit í íbúð hans fann
lögreglan 67.000 dollara I reiðufé
og er talið, að það sé andvirði
tveggja kílógramma af heróíni,
sem seld hafi verið í Amster-
dam.
Alls hefur hollenzka lögreglan
nú gert upptæk 1.000 kg. af eðal-
steinum, en verðmæti þeirra er
talið nema 110.000 dollurum.
Söluandvirði heróínsins, sem
falið var innan í þeim og gert var
upptækt um leið, er talið nema
ekki minna en 350.000 dollurum
og hugsanlega miklu meira á
götumarkaðnum í Amsterdam.
míiMiaiB
AMERIKA
PORTSMOUTH/
NORFOLK
Bakkafoss 8. april
City of Hartlepool 18. april
Bakkafoss 29. apríl
City of Hartlepool 10. maí
NEWYORK
City of Hartlepool 19. april
Ðakkafoss 28. april
City of Hartlepool 9. mai
HALIFAX
City of Hartlepool 22. april
City of Hartlepool 12. mai
BRETLAND/
MEGINLAND
Eyrarfoss 11. apríl
Alafoss 18. april
Eyrarfoss 25. april
Alafoss 2. mai
ANTWERPEN
Eyrarfoss 12. apríl
Alafoss 19. apríl
Eyrarfoss 26. april
Alafoss 3. mai
ROTTERDAM
Eyrarfoss 13. april
Alafoss 20. april
Eyrarfoss 27. april
Alafoss 4. maí
HAMBORG
Eyrarfoss 14. april
Álafoss 21. april
Eyrarfoss 28. april
Alafoss 5. maí
WESTON POINT
Helgey 13. april
Helgey 26. apríl
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 15. april
Mánafoss 22. april
Dettifoss 29. april
Mánafoss 6. mai
KRISTIANSAND
Mánafoss 16. april
Dettifoss 18. april
Mánafoss 25. april
Dettifoss 2. maí
MOSS
Dettifoss 15. april
Manafoss 22. april
Dettifoss 29. april
Mánafoss 6. maí
ÞRÁNDHEIMUR
Goöafoss 11. apríl
HORSENS
Dettifoss 20. april
Dettifoss 4. maí
Dettifoss 18. mai
Dettifoss 1. júní
GAUTABORG
Mánafoss 13. apríl
Dettifoss 20. april
Mánafoss 27. april
Dettifoss 4. maí
KAUPMANNAHÖFN
Mánafoss 14. apríl
Dettifoss 21. april
Mánafoss 28. apríl
Dettifoss 5. mai
HELSINGBORG
Mánafoss 15. april
Dettifoss 22. april
Mánafoss 29. april
Dettifoss 6. mai
HELSINKI
Mulafoss 26. april
RIGA
Múlafoss 28. april
GDYNIA
Mulafoss 29. april
TORSHAVN
Dettifoss 23. april
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-framogtilbaka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla-fimmtudaga
EIMSKIP