Morgunblaðið - 08.04.1983, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
fKtfgsti Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 180 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 15 kr. eintakiö.
Opinber
kosningasjóður
Sú ráðstöfun Steingríms
Hermannssonar, formanns
Framsóknarflokksins, að krefj-
ast útgáfu bráðabirgðalaga til
þess að geta tekið opinbert lán í
því skyni að fleyta skuldugustu
fyrirtækjunum í sjávarútvegi
fram yfir kosningar er enn ein
staðfestingin á skammtíma-
brölti þeirra sem farið hafa með
stjórn landsins í rúm þrjú ár.
Að þessari „fyrirgreiðslu" er
auk þess staðið með þeim hætti
að öll venjuleg sjónarmið við
lánveitingar eru þverbrotin.
Steingrími Hermannssyni er
veitt sjálfdæmi um lánsskilyrði,
lánshæfni, lánskjör og trygg-
ingar. óhætt er að líta á þessa
120 milljón króna lántöku innan
lands og utan með samþykki
Ragnars Arnalds, fjármála-
ráðherra, sem stofnfé í opinber-
an kosningasjóð Framsóknar-
flokksins og Alþýðubandalags-
ins, sjóð sem á að duga til að
koma í veg fyrir almenna
rekstrarstöðvun og beinlínis
gjaldþrot þeirra 60 fyrirtækja
sem talað er um að muni
„njóta" lánsins samkvæmt þeim
reglum sem Steingrímur Her-
mannsson setur.
Fyrir liggur að vanskila-
skuldir fyrirtækja í sjávarút-
vegi og fiskvinnslu við tvo opin-
bera lánasjóði eingöngu, Fisk-
veiðasjóð og Byggðasjóð, nema
rúmum 600 milljónum króna.
Enn skal ítrekað, að það eru
vanskilaskuldir sem nema rúm-
um 600 milljónum króna og
kosningafyrirgreiðsla Stein-
gríms Hermannssonar og Ragn-
ars Arnalds nemur 120 milljón-
um króna eins og áður er getið.
Þannig er sem sé komið fyrir
útgerð og fiskvinnslu á íslandi á
því herrans ári 1983, eftir að ís-
lendingar hafa fengið full yfir-
ráð yfir 200 mílna efnahags-
lögsögu, allir útlendingar hafa
verið reknir af fiskimiðunum og
sveiflukenndir markaðir eru
eins öruggir og kostur er, að
sjávarútvegsráðherra þjóðar-
innar reynir að bjarga eigin
skinni með því að stofna opin-
beran kosningasjóð með láni í
útlöndum í þeirri von að sér
takist að fresta hruninu um
þriggja vikna skeið. Og fjár-
málaráðherrann sem var í júli
1982 sannfærður um að þjóðin
væri „óneitanlega að sökkva á
kaf í ískyggilega skuldasöfnun"
á engin úrræði betri en taka lán
í hinn opinbera kosningasjóð.
Nú fara þeir Steingrímur
Hermannsson og Ragnar Arn-
alds, það er að segja Framsókn-
arflokkur og Alþýðubandalag,
fram á endurnýjað umboð frá
kjósendum til að stjórna land-
inu. Þessir stjórnmálamenn og
flokkar þeirra hafa stefnt þjóð-
arskútunni í stóra strandið en
þó aldrei látið undir höfuð
leggjast að lofa kjósendum gulli
og grænum skógum. Framsýni
þeirra lýsir sér þó best í 120
milljón króna lántökunni nú
sem á að duga fram yfir 23. apr-
íl. Enginn gerir lítið úr vanda
fiskvinnslu- og útgerðarfyrir-
tækja. En skammtímabrölt
þeirra Steingríms og Ragnars
er ekki rétta aðferðin við að
leysa þennan vanda — þetta
lánabrölt staðfestir hins vegar
enn einu sinni að hvorki fram-
sóknarmenn né alþýðubanda-
lagsmenn ráða við stjórn lands-
ins. Kjósendur eiga að veita
þeim verðuga ráðningu í kosn-
ingunum 23. apríl næstkom-
andi.
Gæðin um-
fram allt
Portúgalir hafa lýst yfir
óánægju vegna selorma í
íslenskum saltfiski og vegna
hennar hafa saltfiskframleið-
endur ákveðið að endurvinna
1.200 lestir af fiski auk þess sem
þeir ætla framvegis að hreinsa
orma úr öllum fiski. Þetta atvik
er enn ein áminningin um þá
gullnu reglu sem nauðsynlegt er
að fylgja við fiskvinnslu eins og
á öðrum vettvangi: gæðin um-
fram allt.
Sú staðreynd liggur fyrir að í
samkeppnislöndum okkar eru
fiskveiðar aukabúgrein ef svo
má að orði komast og þeim er
haldið úti með ríkisstyrk sem
lið í byggðastefnu. íslendingar
hafa að vísu reynslu af því að
ríkisstyrkir nýtast ekki ávallt
sem skyldi og sú er einnig
reyndin meðal annarra þjóða.
Hitt er ljóst að samkeppnisaðil-
ar okkar fá engu að síður visst
forskot vegna ríkisstyrkjanna
og styrkur okkar gagnvart þeim
hefur einkum byggst á meiri
gæðum íslenska fisksins. Frá
ströngum gæðakröfum má alls
ekki kvika. Sé einhver þáttur
fiskvinnslunnar alfarið í manna
höndum er það meðferðin eftir
að fiskurinn hefur verið dreginn
úr sjó. Við þá meðferð verður að
fylgja reglunni: gæðin umfram
allt.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JOHN VINOCUR
Frakkland:
Rússneskar njósnir og
dauði Bernard Nuts
Síðastliðinn þriðjudag ráku frönsk stjórnvöld úr landi 47 sovéska
sendiráðsmenn, blaðamenn og aðra sovéska borgara og var þeim gefið að
sök að hafa stundað njósnir, bæði reynt að afla sér upplýsinga um frönsk
tæknimál og hermál. Það heyrir til undantekninga að svo mörgum sé
vísað úr landi samtímis og til að finna einhverja hliðstæðu verður að leita
aftur til ársins 1971 þegar Bretar ráku á brott 105 sovéska sendiráðs-
menn í einu lagi. Vegna þessa máls hefur athygli manna nú aftur beinst
að undarlegum dauðdaga foringja í frönsku gagnnjósnaþjónustunni, sem
fannst skotinn til bana á fáförnum sveitavegi 15. febrúar sl.
Brottrekstur Sovétmann-
anna frá Frakklandi kemur
í kjölfar brottrekstrar nokkurra
Sovétmanna frá Bretlandi og
Spáni en embættismenn halda
því þó fram, að ekkert samband
sé á milli þessara mála. Á það
má þó minna, að allt frá því að
háttsettur foringi í sovésku
leyniþjónustunni baðst hælis á
Vesturlöndum seint á síðasta ári
hefur hvert njósnamálið rekið
annað.
Haft er eftir ónefndum
frönskum embættismönnum, að
það hafi verið Mitterrand sjálf-
ur, sem tók af skarið um brott-
reksturinn eftir að hann hafði
kynnt sér skýrslu frönsku leyni-
þjónustunnar um njósnir Sov-
étmanna, en þar sagði meðal
annars, að Sovétmennirnir hefðu
„stundað kerfisbundnar njósnir í
Frakklandi og reynt að afla sér
ólöglegra upplýsinga um tækni-
leg og vísindaleg efni, einkum
þau, sem snerta herinn".
Samkvæmt tölum frá innan-
ríkisráðuneytinu franska bjuggu
2.406 sovéskir borgarar í Frakk-
landi í upphafi árs 1982 og þar af
höfðu um 700 þeirra opinbert
vegabréf, þ.e.a.s. nutu réttinda
sendiráðsmanna. Franska leyni-
þjónustan telur, að um þriðjung-
ur þeirra fáist eingöngu við
njósnir.
Brottrekstur Sovétmannanna
hefur endurvakið vangaveltur
manna um dularfullt morð á for-
ingja í frönsku gagnnjósnaþjón-
ustunni, Bernard Nut að nafni,
enda er það haft eftir frönskum
leyniþjónustumönnum og sendi-
ráðsmönnum, að nýjar upplýs-
ingar bendi til, að hann hafi ver-
ið ráðinn af dðgum af einhverj-
um samstarfsmanna sinna, sem
leikið hafi og leiki enn tveim
skjöldum.
Bernard Nut, sem var yfir-
maður frönsku gagnnjósnanna í
Suður-Frakklandi, var einnig
mjög athafnasamur á Ítalíu og
segja sumir, að hann hafi gefið
ítölskum yfirvöldum upplýs-
ingar um aðild búlgörsku leyni-
þjónustunnar að morðtilræðinu
við Jóhannes Pál páfa. Nut er
einnig þakkað það, að ítölskum
yfirvöldum tókst að hafa hendur
í hári sovéska njósnarans Viktor
Pronin, starfsmanns sovéska
flugfélagsins Aeroflot í Róm, en
hann var handtekinn nokkrum
dögum fyrir morðið á Nut.
Franskir embættismenn, sem
ekki vildu láta nafns síns getið,
sögðu í viðtali við frönsku frétta-
stofuna France-Presse, að
brottrekstur Sovétmannanna nú
væri ekki í tengslum við morðið
á Nut en bentu hins vegar á, að í
síðustu viku hefði 25 ára gamall
skjalavörður, Patrick Guerrier,
verið handtekinn fyrir iðnað-
arnjósnir og að þar kynnu ein-
hver tengsl að vera á milli. Aðr-
ar upplýsingar, sem France-
Presse komst yfir, benda hins
vegar til, að í raun sé samband á
miíli morðsins á Nut og brott-
rekstrarins.
Bernard Nut fannst látinn á
afskekktum fjallavegi fyrir
norðan Nice og lá hann nokkurn
spöl frá bílnum sínum. Upphaf-
lega var talið. að hann hefði
framið sjálfsmorð og franska
leyniþjónustan vildi af einhverj-
um ástæðum láta líta svo út því
að hún kom á kreik sögum um að
Nut hefði verið haldinn þung-
lyndi um nokkurt skeið. Kunn-
ingjar Nuts og önnur vitni hafa
hins vegar allt aðra sögu að
segja og einnig er bent á, að
byssa Nuts, sem þremur skotum
hafði verið hleypt úr, fannst á
jörðinni í nokkurri fjarlægð frá
líkinu.
Meðal þess, sem torveldað hef-
ur rannsóknina á dauða Nuts, er
að þótt hann hefði verið skotinn,
fannst engin byssukúla f líkama
hans og þess vegna ekkert hægt
að segja um hvort hans eigin
byssa var notuð. Þegar bíllinn
fannst var útvarpið opið en
bensínið hins vegar búið af tank-
inum og ekkert benti til, að til
átaka hefði komið með Nut og
einhverjum öðrum manni.
Þær nýju upplýsingar, sem nú
hafa komið fram og ekki hefur
verið skýrt frá nema að litlu
leyti, gefa til kynna, að Nut hafi
þekkt banamann sinn og líklega
borðað með honum hádegisverð
þennan síðasta dag í lífi sínu.
Rannsóknir leiddu f ljós, að Nut
hafði verið skotinn úr nokkurra
metra fjarlægð og við krufningu
kom í Ijós, að hann hafði borðað
og drukkið áfengi um það bil
þremur stundum fyrir dauða
sinn.
Það eru einkum tvær kenning-
ar um ástæðuna fyrir morðinu á
Bernard Nut. Önnur rekur ræt-
urnar til sambands hans við líb-
anska auðkýfingsdóttur en hin
segir, að svikari meðal njósnara
Nuts hafi myrt hann. óstaðfest-
ar fréttir eru lfka um, að Nut
hafi komist að því hver svikar-
inn sé og einnig, að hann hafi
fengið áreiðanlegri upplýsingar
um morðtilræðið við páfa.
Allt eru þetta vangaveltur enn
sem komið er en þó er fullyrt, að
frönsk stjórnvöld og leyniþjón-
ustan þar f landi búi yfir ýmsum
upplýsingum, sem ekki sé talið
rétt að birta að svo stöddu. Þeir,
sem kunnugir eru þessum mál-
um, eru hins vegar ekki í vafa
um, að flest ef ekki öll njósna-
málin, sem upp hafa komið á
Vesturlöndum að undanförnu,
séu tengd flótta KGB-foringjans
Vladimirs Kuzichikins. Kuzich-
ikin, sem var háttsettur í aðal-
stöðvunum f Moskvu, kom til
Vestur-Evrópu á siðasta ári,
sumir segja að það hafi verið
hans fyrsta utanlandsferð, og
notaði þá tækifærið og gekk
Bandaríkjamönnum á hönd.
Hann er sagður hafa veitt vest-
rænum leyniþjónustum gífurleg-
ar upplýsingar og m.a. á hann að
hafa haft í fórum sínum langan
lista með nöfnum sovéskra
njósnara á Vesturlöndum.
Sv (Heimild NYTS)
Bernard Nut lagður til hinstu hvfldar. Framdi hann sjálfsmorð eða
ruddi KGB honum úr vegi?