Morgunblaðið - 08.04.1983, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Leiðindaveður
á Raufarhöfn
Kaufarhofn, 7. aprfl.
LEIÐINDAVEÐUR er á Raufar-
höfn í dag, mikill skafrenningur
og éljagangur. Ekki hefur verið
flogið frá því á annan dag páska,
og bíða 26 manns flugs, skólafólk
og fleira fólk.
Vegna ótíðar hafa hrogn-
kelsaveiðar gengið brösuglega,
veiði hefur verið lítil, og bátar
átt erfitt með sókn, og hafa net
því legið allt upp í 10 daga í sjó.
Lítið hefur veiðst af rauðmaga
enn sem komið er.
Þá hefur skóiahald enn ekki
hafist eftir páska vegna veðurs,
en skóli átti að hefjast að nýju í
fyrradag. Kennarar ýmsir, sem
fóru til sinna heima yfir bæna-
dagana, hafa ekki komist hingaö
vegna ófærðar í lofti og á landi.
Þó er vegurinn um Sléttu
greiðfær, enda hefur ekki fest á
honum snjó síðan hann var lag-
færður. Hins vegar teppist oft
inn í Skörðum við Kópasker, og
illfært er á Tjörnesi og þess
vegna hefur mjólkurbíll ekki
komist hingað frá Húsavík.
Helgi
Kalt en bjart
á Sauðárkróki
Saudárkróki, 7. aprfl.
ÞÓTT ÓVEÐUR hafi geisað um
mestallt Norðurland hafa Sauð-
krækingar orðið þess lítt varir. Að
vísu blæs hann kalt að norðan, en
hér hefur ekkert snjóað undan-
farna daga og verið bjart til lofts-
ins og stundum jafnvel sólskin.
Flugleiðir hafa flogið hingað sam-
kvæmt áætlun alla daga.
Vegir í héraðinu eru flestir
færir, þó mun ófært vera um
Blönduhlíð og vegurinn frá
Hofsósi til Siglufjarðar er alveg
ófær. Varðskip kom hingað í dag
og tók 20—30 manns til Siglu-
fjarðar sem hér voru veður-
tepptir.
Þótt veðrahamur af norð-
austri sé fyrir Norðurlandi er
það oft að hann nær ekki til
okkar. Segja fróðir menn að það
sé Tröllaskaga að þakka, sem
veiti okkur skjól fyrir norðaust-
anáttinni.
Drangey, einn af togurum Út-
gerðarfélags Skagfirðinga, kom
inn í gær með 120—130 tonn,
mest þorsk. Áður landaði Skafti
120 tonnum, aðallega karfa.
Kári
Snjólétt fram
að páskahreti
Húsavfk, 7. aprfl.
SNJÓLETTUR mun líðandi vetur
verða kallaður, þó nú með páska-
hretinu hafi sett niður töluverðan
snjó og þann mesta sem komið
hefur á vetrinum. Ófært er fyrir
bíla nema um aðalgöturnar, en
þeim hefur verið haldið opnum
með tíðum mokstri og hafa hér
sést menn fara á skíðum til vinnu.
Sérleyfisbíllinn fór til Akur-
eyrar í fyrrakvöld og kom til
baka í gær í samfloti við vöru-
flutningabíl frá Kópaskeri, sem
ekki komst lengra og verður að
bíða hér batnandi veðurs. Flug
gekk vel fram á annan páskadag
og fór flugfélagið þá fjórar ferð-
ir, en áætlaði tvær ferðir á
þriðjudag, en þær eru enn
ófarnar og nú bíða um 20 manns
eftir flugfari til Reykjavíkur.
Það má heita að samfelld
snjókoma hafi verið í dag, þó
aðeins hafi rofað til stutta stund
eftir hádegið. Útlit er ekki gott
með að þeir farþegar sem bíða
fái byr í dag og ef flugið dregst
til morguns, þá stækkar hópur-
inn. Fréttaritari
Lokið breytingu
á stöðumælum
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi fréttatilkynning frá gatna-
málastjóra:
Lokið er við að breyta stöðumæl-
um fyrir fimm kr. mynt. Umferðar-
deild vill vekja athygli á því, að
gjald í stöðumæla er nú fimm krón-
ur alls staðar í borginni fyrir hverj-
ar byrjaðar þrjátíu mínútur.
Ráðherrarnir farnir
í kosningaslaginn
ÞAÐ VERÐUR ákaflega lítið um ríkisstjórnarfundi á næstunni. Næsti fund-
ur verður ekki fyrr en á þriðjudag og þá mæta utanbæjarmennirnir ekki. Það
er útilokað þar sem við erum allir á framboðsfundum. Ég hef ekki trú á að
þessi mál verði afgreidd, þau hljóta að bíða fram yfir kosningar," sagði
Kagnar Arnalds fjármálaráðherra, er Mbl. spurði hann hvort og þá hvenær
vænta mætti bráðabirgðalaga vegna fjáröflunar til Vegasjóðs, sem reiknað
var með að gefin yrðu út samhliða vegaáætlun. Þá var hann spurður hvað liði
almennum efnahagsráðstöfunum, sem verið hafa til umfjöllunar í rfkisstjórn-
inni.
Ragnar sagði að bráðabirgða-
lagasetningin vegna vegamálanna
væri mál sem lægi ekki nægilega
ljóst fyrir. Hann kvað það nokkuð
augljóst að mál þessi yrðu látin
bíða afgreiðslu, enda yrðu ráðherr-
arnir mjög lítið í bænum fram að
kosningum. „Við getum það hreint
ekki vegna framboðsfunda og kosn-
ingaundirbúningsins," sagði hann.
Loðnu rak á land
við Skúlagötu
Bendir ekki til meiri loönugengdar en við höfum reikn-
ad með, segir Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur
NOKKUÐ af dauðri loðnu rak á fjör-
ur við Skúlagötu í gær og hefur það
ekki gerzt áður svo vitað sé. Þá hafa
sjómenn orðið varir við talsvert af
loðnu víða við landið. Að sögn Hjálm-
ars Vilhjálssonar, fiskifræðings, bend-
ir þetta ekki til þess, að um meiri
loðnu hér við land sé að ræða, en
mælingar fiskifræðinga segja til um.
Hjálmar sagði, að loðnan, sem
rak á land við Skúlagötuna, væri
loðna, sem líklega hefði hrygnt á
Faxaflóa, hugsanlega á Sundunum.
Sagði hann sér ekki kunnugt um að
þarna hefði loðnu rekið áður. Hins
vegar væri það algengt að dauða
loðnu ræki á land í álandsvindi.
Loðnan hrygndi aðeins einu sinni
og dræpist síðan og ræki þá eftir
vindum og straumum. Hvað varðaði
fullyrðingar sjómanna um mikla
loðnugengd, sagði hann, að það
benti ekki til þess, að meira væri
um loðnu, en mælingar fiskifræð-
inga segðu til um. Samkvæmt þeim
væri hrygningarstofninn á milli
200.000 og 300.000 lestir, en talið
væri að hann þyrfti að minnsta
kosti að vera 400.000 lestir til að
skynsamlegt væri að veiða úr hon-
um nú. Það væri heldur ekki óeðli-
legt að menn yrðu varir við nokkuð
af loðnu nú, þegar hún væri að
Gæzlunni
þakkað
SENDIRÁÐ Dana á íslandi hefur
fært Landhelgisgæslunni þakkir
fyrir frækilegt björgunarafrek er
þyrlan TF-RAN sótti slasaðan sjó-
mann af danska björgunarskipinu
Fylla á haf út undan Vestfjörðum
í fyrradag. Danski sjómaðurinn
gekkst undir aðgerð á Borgarspít-
alanum samdægurs og tókst hún
vel. Hann fer heim til Danmerkur
í dag flugleiðis.
hrygna, en hrygningartími hennar
væri talinn frá því í marz og fram í
apríl.
Norsk herflugvél. Myndin er tekin við Ísland £ stríðsárunum.
Sýning á minjum leyni-
legrar blaðaútgáfu í Noregi
LAUGARDAGINN 9. aprfl verður opnuð í anddyri Norræna hússins
sýning um leynilega blaðaútgáfu í Noregi og þátt hennar í norskri
andspyrnuhreyfingu, meðan á hernámi Noregs stóð 1940—45.
Sýningin er að meginhluta ar Kjell Larsgaard frá sama fé-
byggð á efni af sýningu, sem há-
skólabókasafnið í Osló setti upp
vorið 1980, en sú sýning var síð-
an m.a. sýnd í Frihedsmuseet
(Frelsissafninu) í Kaupmanna-
höfn. Þeir sem hafa séð um efn-
isval og skýringatexta eru Erl-
ing Gronland, bókavörður við
stríðsprentsdeildina, og Hans J.
Luihn, frá félagi ieynilegu blaða-
útgáfunnar, og honum til aðstoð-
lagi.
Að sýningunni í Norræna hús-
inu standa, auk háskólabókas-
afnsins í Osló og Félags leyni-
legu blaðaútgáfunnar, Sendiráð
Noregs á íslandi, Landsbókasafn
íslands og Norræna húsið.
Sýningin stendur út apríl og
er öllum opin á venjulegum
opnunartíma hússins.
Hróður Mezzoforte berst vfðar um Evrópu:
Hljómsveitin komin inn í
„topp-50“ hjá Hollendingum
Lag þeirra valið sem kynningarlag í heimsmeistarakeppni í diskódansi
Hróður Mezzoforte berst nú víðs
vegar um Evrópu í kjölfar frágeng-
inna samninga við plötufyrirtæki.
Morgunblaðið hafði í gærkvöld
spurnir af því, að breiðskífa hjóm-
sveitarinnar væri nú komin inn á
„topp-50“ listann hjá Hollendingum,
nánar tiltekið í 46. sætið.
Þá hafa lög Mezzoforte og verið
leikin iðulega í frönskum útvarps-
stöðvum. Þar í landi er hins vegar
ekki um neinn opinberan vin-
sældalista að ræða og því erfitt að
henda reiður á vinsældir ein-
stakra hljómsveita. Verður þar
helst stuðst við svonefnda „play-
lists" útvarpsstöðvanna.
Fregnir þessar berast á sama
tíma og heldur virðist tekið að
halla undan fæti hjá Mezzoforte í
Bretlandi eftir velgengnina á und-
anförnum vikum. Á nýjasta vin-
sældalistanum, sem birtur var í
gærmorgun, hafði tveggja laga
platan dottið niður um sjö sæti, úr
19. niður í 26. sæti. Þá hafði
breiðskífan, sem menn höfðu spáð
meira langlífi á listanum, einnig
hrapað niður um sex sæti, úr 23. í
það 29.
Fyrir skemmstu var gengið frá
samningum við plötufyrirtæki í
Japan um útgáfu platna Mezzo-
forte, en þess má geta að Japan er
alla jafna annar stærsti plötu-
markaður heims á eftir Banda-
ríkjunum. Algengt er að sala vin-
sælla platna í Bretlandi fimm- eða
sexfaldist í Japan.
Að sögn Jónatans Garðarssonar
hjá Steinum á nú aðeins eftir að
ganga frá samningum við aðila í
Frakklandi, S-Afríku og Banda-
ríkjunum. Gengið hafi verið frá
samningum á öllum öðrum stærri
mörkuðum.
Þessa dagana er verið að vinna
við gerð plötu, sem inniheldur
bestu lögin af þremur fyrstu
breiðskífum Mezzoforte. Henni er
ætlað að koma á markað í Bret-
landi innan skamms og þá er
fyrirhuguð útgáfa lítillar plötu um
svipað leyti og hljómsveitin Jeggur
upp í 7 vikna tónleikaferðalag sitt
um Bretland.
Loks má geta þess, að lag
Mezzoforte, Garden Party, hefur
verið valið sem einskonar þemalag
úrslitakeppni heiinsmeistara-
keppninnar í diskódansi, sem
fram fer í Empire Ballroom við
Leicester Square í Lundúnum í
sumar. Undankeppni fyrir þessa
keppni verður háð í veitingahús-
inu Broadway i júní í sumar og er
skráning þegar hafin.
U tanr íkisráðherr-
ar á fundi í Osló
FUNDUR utanríkisráðherra Norður-
landa var haldinn i Osló hinn 24.
marz sl. Eru slíkir fundir haldnir
tvisvar á ári, segir í tilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu.
Samkvæmt venju ræddu utan-
ríkisráðherrarnir óformlega helztu
alþjóðamál svo sem samskipti
austurs og vesturs, afvopnunarmál,
þ.á m. kjarnavopnalaus svæði,
Madrid-ráðstefnuna, ástandið í
Miðausturlöndum og sunnanverðri
Afríku svo og efnahagsástandið í
heiminum.
Næsti fundur utanríkisráðherra
Norðurlanda verður haldinn í
Stokkhólmi dagana 5. og 6. sept-
ember 1983.
Snæfellsnes:
Þungfært um páskaleytið
Stykkishólmi, 3. apríl, páskadag.
EFTIR því sem næst verður komist
eru fjallvegir á Snæfellsnesi alveg
ófærir. Heydalur er ófær eftir því
sem bflstjórar á áætlunarbflunum
sögðu mér. Rútan á Snæfellssnesi
lagði af stað frá Reykjavík í gær kl.
13. Var ekið á 3 rútum því alls voru
með 150 farþegar sem ætluðu að eyða
páskadeginum á Snæfellsncsi. Uni kl.
6 um kvöldið komust bílarnir að
Vegamótum í Miklaholtshreppi, en
þá var brostin á hríð og versta veður.
Var þá þegar sýnt að ekki yrði farið
yfir Kcrlingarskarð, enda smábflar
þar fastir og fólkið hafði gengið til
byggða.
Áætlunarbíll átti að fara frá
Grundarfirði og Stykkishólmi og
var sá bíll með yfir 25 farþega og
ætlaði sér að fara skarðið. Lagði
hann af stað frá Stykkishólmi
tæplega hálf sjö um kvöldið en varð
sökum ófærðar að snúa við í svo-
kallaðri „efri sneið" í Kerlingar-
skarði. Var þá ákveðið að reyna að
fara um Skógarströnd og Heydal
suður, og vitað var að færð var
mjög farin að þyngjast um Heydal.
Bílarnir sem voru á Vegamótum
gerðu slíkt hið sama, þeim var snú-
ið við og farið var um Heydal, en þá
var færð orðin mjög erfið í Eyj-
arhreppi og víðar. Komust þeir loks
til Stykkishólms um k) 2 í nótt,
aðfaranótt páskadags. Tveir héldu
áfram með farþega á útnesið og
komust þeir ekki nema í Ólafsvík,
enda Ennisvegur ófær því á hann
hafði fallið snjóskriða sem ekki var
hægt að moka vegna illviðris.
Komu þeir til Ólafsvíkur kl. rúm-
lega 4 um nóttina. Það er að segja
af bílnum sem var á leið til Reykja-
víkur að hann komst um Heydal þó
ill væri færðin en til Reykjavíkur
var ekki komið fyrr en undir kl. 7 í
morgun. Var þá margur feginn.
í Ólafsvík og Sandi biðu í morg-
un 28 manns sem ætluðu suður til
Reykjavíkur. Ekki var hægt að
sækja farþega til Hellissands sök-
um skriðunnar sem var á veginum
og urðu farþegar af Sandi að fara
fótgangandi til að komast í bílinn
sem beið í Ólafsvík. Var þá reynt
að komast Fróðárheiði en það tókst
ekki sökum erfiðrar færðar og var
þá brugðið á það ráð að fara sömu
leið og áður, eða um Heydal og suð-
ur.
í dag er aftur á móti gott veður,
logn að mestu og léttskýjað.
Nú eru hér margir ferðamenn á
Snæfellsnesi sem hafa hugsað sér
að komast suður á morgun. Er því
líklegt að vegagerðin láti moka svo
hægt verði að komast á leiðarenda
og það taki ekki eins mikinn tima
og í nótt.
Fréttaritari