Morgunblaðið - 08.04.1983, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL1983
Frá vinstri bankaráðsmenn: Árni Gestsson, Hannes Þ. Sigurðsson, Þorvaldur Guðmundson, Leifur ísleifsson, Sverrir Norland, Höskuldur ólafsson,
bankastjóri, Hjörtur Hjartarson, fundarstjóri, Kristján Oddsson, bankastjóri, Magnús E. Finnsson, fundarritari, Gunnlaugur J. Briem, fundarritari.
Aðalfundur Verzlunarbankans:
Aukning spariinnlána 62,5%
Fjölbreytni í þjónustu
við viðskiptamenn
Aðalfundur Verzlunarbankans var
haldinn laugardaginn 19. marz aö
Hótel Sögu. Fundarstjóri var Hjört-
ur Hjartarson, en fundarritarar
Gunnlaugur J. Briem og Magnús E.
Finnsson.
Formaður bankaráðs, Sverrir
Norland, verkfræðingur, og Hösk-
uldur Ólafsson, bankastjóri, fluttu
ítarlegar skýrslur um starfsemi
bankans á liðnu starfsári og lögðu
fram endurskoðaða reikninga hans.
Hagur og rekstur bankans
Niðurstöðutala rekstrarreikn-
ings er 238,5 millj. kr. og hafði
hækkað um 96,3% frá fyrra ári.
Af rekstrartekjum eru vextir og
verðbætur langstærsti liðurinn,
eða 77,2% heildartekna. Rekstr-
argjöld urðu samtals 236,4 millj.
kr. og hækkuðu um 115,6 millj. kr.
eða 95,6%. Bankinn greiddi á ár-
inu innistæðueigendum 107,7
millj. kr. í vexti og verðbætur.
Rekstrarkostnaður bankans
varð 32 millj. kr. og hækkaði hann
um 58% frá fyrra ári, sem er held-
ur lægri en verðbólgan varð á ár-
inu. Starfstöðvar bankans eru 7 og
vinna 105 manns að bankastörf-
um.
Eigið fé bankans í árslok er 47,8
millj. kr. og jókst það á árinu um
17,6 millj. kr. Hlutafé er 17,2 millj.
en á sl. ári voru gefin út jöfnun-
arbréf til hluthafa að upphæð 5.7
millj. kr. Þá samþykkti aðalfund-
urinn nú að gefa út á þessu ári
jöfnunarbréf, sem svari 58,68% af
eign hvers hluthafa í árslok 1982.
Nemur sú upphæð 10,5 millj. Er
hlutafé bankans eftir aukningu
þessa 28 millj. kr. Endurmats-
reikningur er í árslok 22,1 millj. og
hafði hækkað á árinu um 9,5 millj.
Varasjóður og óráðstafað fé nema
8,5 millj. og hækkuðu þeir liðir um
2,3 millj. á árinu. Hagnaður til
ráðstöfunar varð 2.768 þús. kr. á
móti 1.319 þús. kr. á árinu áður, en
þá hefur verið greiddur skattur að
upphæð 2.213 þús. kr. skm. sér-
stökum lögum nr. 65/1982.
Innlán — Útlán
Heildarinnlán Verzlunarbank-
ans námu í árslok 414,9 millj. kr.
og jukust þau á árinu um 150,6
millj. eða um 57%.
Spariinnlán hækkuðu um 134
millj. eða 62,5% en veltiinnlán um
32,9% Aukning spariinnlána er
þannig í takt við almenna innláns-
þróun í landinu á síðasta ári, sem
var 60%. Hins vegar er aukning
veltiinnlána aðeins rúmur helm-
ingur af hlutfalli spariinnlána og
sést af því, hversu lausafjárstaða
fyrirtækja hefur veikst á árinu.
Heildarútlán bankans námu í
árslok 372,5 millj. kr. og hækkuðu
þau á árinu um 132,5 millj. eða
54,9%. Stærsti hluti lána bankans
fór til atvinnuvegarins verzlun og
viðskipti, eða 43,9%, og lán til ein-
staklinga námu 33,8% af heildar-
útlánum. Hlutfall verðtryggðra
útlána hækkaði á árinu úr 21,5% í
ársbyrjun í 39,5% í árslok.
Verziunarlánasjóöur
Stofnlánasjóður bankans, Verzl-
unarlánasjóður, veitti 117 ný lán á
árinu að upphæð 40,2 millj. kr.
Starfsfé Verzlunarlánasjóðs kem-
ur að stærstum hluta frá Lífeyr-
issjóði verzlunarmanna, sem lán-
aði 33,5 millj. á síðasta ári. Þá
veitti Framkvæmdasjóður íslands
sjóðnum 9 millj. kr. lán og var
þetta fjármagn ásamt eigin fé
sjóðsins endurlánað verzlunarfyr-
irtækjum vítt og breitt um landið.
Útistandandi lán Verzlunarlána-
sjóðs námu 118,8 millj. kr. í árs-
lok. Lán Verzlunarlánasjóðs og
önnur lán bankans til verzlunar
nema samtals 21,6% af heildar-
lánum innlánsstofnana til einka-
verzlunar í landinu.
Viöskipti við SeÖlabanka
Inneign Verzlunarbankans á
bundnum reikningum í Seðla-
banka íslands var i árslok 113,8
millj. kr. og hafði aukist á árinu
um 45,6 millj. eða 66,8%. Lán hjá
Seðlabankanum voru í árslok 26,6
millj. og þar af endurseld afurða-
og framleiðslulán 6 millj. Inneign
á viðskiptareikningi i Seðlabanka
var í árslok 10,3 millj. en lausa-
fjárstaða bankans var oft erfið á
árinu, svo sem bankakerfisins í
heild. I heild varð jákvæð breyting
31
á stöðunni gagnvart Seðlabanka
um 41,1 millj. og er nettóstaða við
Seðlabankann 97,5 millj. kr. í árs-
lok.
Á síðasta ári tóku gildi nýjar og
harðari reglur um viðskipti inn-
lánsstofnana og Seðlabanka.
Markmið þeirra ráðstafana var að
hvetja innlánsstofnanir til að
huga vel að lausafjárstöðu sinni.
Þannig ákvað Seðlabankinn stig-
hækkandi refsivexti frá
70—150%, ef yfirdráttarskuld
myndast á viðskiptareikningi inn-
lánsstofnunar.
Fjölþætt þjónusta
Bankinn hefur kappkostað að
veita viðskiptamönnum sínum
fjölþætta þjónustu. Safnlán,
launalán og fjármálaleg ráðgjöf
eru þættir, sem teknir hafa verið
upp á siðustu árum. í fyrra gerðist
bankinn eignaraðili ásamt Út-
vegsbankanum að Kreditkortum
sf. Það fyrirtæki er í samvinnu við
Eurocard, sem er eitt stærsta
kreditkortafyrirtæki í heimi.
Bankinn getur þannig boðið við-
skipta- mönnum sínum bæði inn-
lenda og erlenda kreditkortaþjón-
ustu. Leyfi til notkunar kredit-
korts erlendis er þó háð leyfi
Seðlabanka íslands.
Þá hefur bankinn nýlega kynnt
þjónustukerfi fyrir húsfélög fjöl-
býlishúsa. Byggist það á inn-
heimtu húsgjalda, útreikingi á
breytingu á vísitölu, greiðslu
krafna á húsfélagið til kröfueig-
enda á réttum tíma o.s.frv. Eru
fleiri slík verkefni á döfinni hjá
bankanum og er tölva bankans
lykillinn að þeirri starsemi, en
Verzlunarbankinn er eini bankinn,
sem er með eigin rafreikni.
Bankinn rekur nú 6 útibú, fjög-
ur í Reykjavík, eitt í Keflavík og
eitt í Mosfellssveit. Á þessu ári
mun bankinn opna starfsstöð í
Húsi verzlunarinnar á mótum
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar, en aðrir eigendur þess
húss hafa nú flutt alla starfsemi
sína þangað. Bygging Húss verzl-
unarinnar er mikið og myndarlegt
átak. Er gert ráð fyrir að flytja
ýmsa starfsemi þangað í áföngum
eftir aðstæðum, en bankinn hefir
leigt þann hluta húsnæðis síns,
sem eigi verður nýttur um sinn til
bankastarfsemi: Útibú verður
opnað þar á þessu ári eins og fyrr
sagði, gert er ráð fyrir að flytja
rafreiknideild bankans þangað í
náinni framtíð.
Formaður bankaráðs Verzlun-
arbankans er Sverrir Norland,
verkfræðingur. Aðrir í stjórn eru
Árni Gestsson, stórkaupmaður,
Guðmundur H. Garðarsson, við-
skiptafræðingur, Leifur ísleifsson,
kaupmaður og Þorvaldur Guð-
mundsson, forstjóri. Varastjórn
skipa Hannes Þ. Sigurðsson, full-
trúi, Hilmar Fengar, fram-
kvæmdastjóri, Hreinn Sumarliða-
son, kaupmaður, Jónas Eggerts-
son, bóksali, og Kristmann Magn-
ússon, forstjóri. Endurskoðendur
eru Helgi V. Jónsson, löggiltur
endurskoðandi, Magnús E. Finns-
son, framkvæmdastjóri og Ólafur
Haukur Ólafsson, stórkaupmaður.
Kirkjur á landsbyggrtinni
Fermingar á sunnudaginn
Fermingarbörn í Oddakirkju,
sunnudaginn 10. apríl kl. 12 á há-
degi. Prestur: séra Stefán Lár-
usson.
Fermd veröa:
Ásmundur Jón Pálsson,
Freyvangi 22, Hellu.
Garöar Jónsson,
Heiövangi 7, Hellu.
Guöjón Jóhannsson,
Útskálum 9, Hellu.
Guömundur Max Jónsson,
Freyvangi 3, Hellu.
Helgi Jónsson,
Heiövangi 7, Hellu.
Ólafur Valsson,
Heiövangi 10, Hellu.
Helga Oddný Hjaltadóttir,
Hólavangi 24, Hellu.
Fermingarbörn í Stórólfs-
hvolskirkju, sunnudaginn 10.
apríl kl. 14. Prestur: séra Stefén
Lárusson.
Fermd verða:
Aöalsteinn Ingvason,
Hlíöarvegi 3, Hvolsvelli.
Bjarni Líndal Snorrason,
Öldugeröi 22, Hvolsvelli.
Sveinn Ægir Árnason,
öldugerði 17, Hvolsvelli.
Tryggvi Siguröur Bjarnason,
Þinghóli, Hvolhr.
Hafdís Þóra Árnadóttir,
Hvolsvegi 21, Hvolsvelli.
Sigrún Ágústsdóttir,
Stórageröi 9, Hvolsvelli.
Ferming i Skálholti 10. apríl
1983 kl. 14.
Piltar:
Brynjar Kristjánsson,
Borgarholti.
Hallur Sighvatsson,
Miðhúsum.
Matthías Ólafsson,
Syðri-Reykjum.
Sigurjón Sæland,
Stóra-Fljóti.
Þorlákur Ásbjörnsson,
Víöigeröi.
Þorsteinn Páll Sverrisson,
Ösp.
Þórarinn Þorfinnsson,
Spóastööum.
Stúlkur:
Arnbjörg Traustadóttir,
Einholti.
Eilisif Bjarnadóttir,
Helgastööum.
Eva Hrund Pétursdóttir,
Austurbyggö C, Laugarási.
Guörún Björk Þrastardóttir,
Birkiflöt.
Jenny Gísladóttir,
Kjarnholtum.
Stella Björk Guöjónsdóttir,
Reykjavöllum.
Fermingarbörn í Hábæjar-
kirkju í Þykkvabæ, sunnudaginn
10. apríl.
Fermd veröa:
Berglind Guöjónsdóttir,
Háarima.
Guömundur Þór Ágústsson,
Brekku.
Guömundur Páll Ólafsson,
Háfi.
Jóhann ívarsson,
Háteigi.
Jóna Maria Kristjónsdóttir,
Tjörn.
Fermingarbörn á Reyöarfirði
sunnudaginn 10. apríl.
Fermd veröa:
Anna Heiöa Stefánsdóttir,
Holtagötu 3.
Ágúst Hreinn Sæmundsson,
Túngötu 8.
Björgvin Kristjánsson,
Hjallavegi 7.
Einar ísfeld Ríkharösson,
Ásgeröi 7.
Garðar Þ. Jónsson,
Hafnargötu 2.
Gísli Edvald Einarsson,
Mánagötu 12.
Guöný Ingibjörg Rúnarsdóttir,
Mánagötu 13.
Hjalti Gunnarsson,
Eskihlíö.
Inga Ósk Rúnarsdóttir,
Hæöargerði 5. •
Jóna Ragnhildur Guttormsdóttir,
Brekkugötu 8.
Jón Þór Björnsson,
Heiöarvegi 10.
Jónatan Guönason,
Réttarholti 3.
Kári Elvar Arnþórsson,
Brekkugötu 7.
Ólafur Höskuldur Ólafsson,
Snæfelli.
Sigríöur Helga Aöalsteinsdóttir,
Heiöarvgi 13.
Sigfús Heiöar Frímannsson,
Heiöarvegi 16.
Steinþór Hinrik Stefánsson,
Heiðarvegi 29.
Þórdís Björk Björnsdóttir,
Túngötu 1.
Þórarinn Guöjónsson,
Mánagötu 29.
Þorsteinn Þorsteinsson,
Búöareyri 2.