Morgunblaðið - 08.04.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
33
Þeir hafa allt á þurru
— eftir Ólaf Ólafs-
son, járnsmið
Það má segja, að borið sé í
bakkafullan lækinn að bæta við
einni rödd í þetta svokallaða
ÍSAL-mál. Ég er venjulegur
starfsmaður þar, nánar tiltekið
járnsmiður.
ÍSAL er í mínum augum enginn
helgigripur, enda dreg ég mjög í
efa að svo sé til ætlast, um mig
eða nokkurn annan starfsmann,
að þankagangur okkar hneigist í
þá átt. Mér finnst gott að vinna
þarna og þoli þvi ekki að menn
komist upp með tilgangslaust
skítkast í fjölmiðlum. Það er
nokkuð sem ég mótmæli.
Ég kem þvf beint að tilefninu.
Hópur manna, tíu til fimmtán,
fann sig knúinn til að þeysa fram í
blöðum og útvarpi með spott og
spé í garð þessa fyrirtækis sem ég
vinn hjá. Og það var tekið eftir
görpunum. Mér varð það fyrst
fyrir að íhuga hverskonar
mannskapur þetta væri sem hefir
það sér til gamans að reyna að
leika sér að því sem lífsafkoma
fjölda fólks byggist á. Sumt er
býsna augljóst. Enginn þeirra á
atvinnu sína undir því hvernig
ÍSAL reiðir af. Flestir sýnast vera
langskólagengnir. Þeir virðast
hafa tíma nægan, enda halda þeir
blaðamannafund um það leyti
dags sem allir venjulegir vinnandi
menn þessarar þjóðar þurfa að
sinna sínum skyldustörfum.
Margir þeirra taka laun hjá þvi
opinbera. Sem sagt, allt á þurru.
Er virkilega ekki hægt að finna
eitthvað þarfara handa mönnun-
um að gera, úr þvi þeir hafa svona
góðan tíma, en að vera með
óþurftargaspur þessu líkt? Og er
það ekki út í hött ef þetta og ann-
að af þessu tagi er afrakstur þess
að mennta menn og reyna með því
að búa þá betur undir lífsbarátt-
una? Það má vera að þeir haldi þvi
fram að það sé þeirra mál hvort
þeir lesi og læri og hvort þeir noti
sitt nám eða ekki, en ég veit ekki
betur en ég hafi í nær helming
aldar fengið að taka þátt í að
borga þann brúsa sem kallaður er
menntakerfi. Ein rödd sem hefði
látið í sér heyra í sama tilgangi
hefði naumast verið svara verð.
Það hafa alltaf verið til menn sem
kjósa sverð í stað sátta, en þegar
hópur manna kveður sér hljóðs á
sama hátt, þá fer um mann hroll-
ur.
Ég fullyrði að það er ósk allra
sem hjá ÍSAL vinna að þau
ágreiningsmál, sem uppi hafa ver-
ið og kunna að verða, leysist og
gildir einu hvort menn telja sig til
vinstri eða hægri í landsmálum.
Tilgangur hópsins umrædda geng-
ur bersýnilega ekki í þá átt.
Og að síðustu þetta. Þegar ég var
unglingur og menn töluðu tæpi-
tungulaust mál, var mönnum með
vafasaman málflutning og tilgang
sagt „að skammast sín og þegja".
En svo góðum tökum hefir menn-
ingin náð á okkur, að slfkt er ekki
í tísku lengur.
Hafnarfirði 2. apríl.
Nýtt tölublað
af „Hár og
fegurð“
ÚT ER komið 1. tölublað þriðja
árgangs af tímaritinu Hár og feg-
urð. Forsíða blaðsins er unnin af
listamanninum Erro í París og í
efni blaðsins kennir ýmissra grasa
varðandi hársnyrtingu og hár-
tízku.
Utankjörstaðakosning
Utankjörstaöaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins í Valhöll
Upplýsingar um kjörskrá og fl.
Háaleitisbraut 1 — Símar 30866, 30734 og 30962.
Sjálfstæðisfólk. Vinsamlega látiö skrifstofuna vita um
alla kjósendur, sem veröa ekki heima á kjördegi.
Utankjörstaöakosning fer fram í Miöbæjarskólanum
alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22.
Sunnudaga kl. 14—18.
Búðardalur
Leikklúbbur
Laxdæla fer
í leikför suður
Búðardal. 5. apríl.
Á SKÍRDAG frumsýndi Leik-
klúbbur Laxdæla í Búðardal leikritið
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn
Bjarnason. Leikstjóri er Margrét
Ákadóttir. Frumsýnt var í Dalabúð
fyrir fullu húsi við frábærar undir-
tektir leikhúsgesta.
Önnur sýning verður á Seltjarn-
arnesi, föstudagskvöldið 8. april
kl. 21, þriðja sýning I Selfossbíó,
laugardagskvöldið 9. apríl kl.
22.30, fjórða sýning að Hlöðum,
Hvalfjarðarströnd, sunnudags-
kvöldið 10. apríl kl. 21. Athygli
skal vakin á því, að sýning í Sel-
fossbíó er kl. 22.30 að loknum
skemmtiþætti SÁÁ. Er það vel við
hæfi, því leikritið fjallar um
áfengis- og vímuvandamálin, sem
ekki að ástæðulausu hafa verið
nefnd mesta mein aldarinnar.
Leikritið verður sýnt á Jörfa-
gleði mivikudag 27. apríl. Jörfa-
gleði er menningarhátíð Dala-
manna.
Með helstu hlutverk fara: Elísa-
bet Magnúsdóttir, Sigrún Sigurð-
ardóttir og Þórir Thorlacius. önn-
ur stærri hlutverk: Sigrún Thorla-
cius, Þórey Jónatansdóttir, Grett-
ir Börkur Guðmundsson, Kristján
E. Jónsson, Guðmundur Erlends-
son, Sigrún Halldórsdóttir auk
þess fjöldi annarra leikenda.
Fyrsta öngstræti til hægri er 18.
verkefni Leikklúbbs Laxdæla frá
upphafi, en hann var stofnaður ár-
ið 1971. Núverandi formaður
klúbbsins er Guðrún Konný
Pálmadóttir.
— Krintjana.
Benedikt Grön-
dal sendiherra
*
Islands
í Júgóslavíu
BENEDIKT Gröndal afhenti 21.
mars sl. Petar Stambolic, forseta
Júgóslaviu, trúnaðarbréf sem
sendiherra íslands i Júgóslavíu
með aðsetur í Stokkhólmi.
(Króttatilkynninjj frá uUnríkinráduneytinu)
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Nú er einstakt tækifæri
til að eignast nýjan
BMW
Við seljum síðustu bílana af BMW
árgerð 1982 á ótrúlega hagstæðu verði
Samkv. gengi 15/3 '83
BMW315
BMW316
Verðnú kr. 259.500.- BMW318Í
Annars kr. 0.-
Verðnú kr. 285.000,- BMW 320
Annars kr. 336t400.- ^IWIWW
Verð nú
Annars
Verð nú
Annars
kr. 310.000.-
kr. 33*000.-
kr. 339.400.-
kr. £WrO00,-
BMW 518
Verðnú kr. 347.000.-
Annars kr. 390.000.-
BMW 520 i
Verðnú kr. 403.200.-
Annars kr. 460.000.-
Missið ekki af þessum hagstæðu kaupum, og tryggið ykkur bíl sem fyrst.
Seljum nýja og notaða bíla laugardaga kl. 1-5.
KRISTINN GUDNASON Hl.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633