Morgunblaðið - 08.04.1983, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Talið frá vinstri. Dómsmálaráðherra, Friðjón Þórðarson, Olafur Watter, skrifstofustjóri dómsmálaráðuneytis-
ins, séra Sigmar Torfason, prófastur, frú Guðríður Guðmundsdóttir, Kristján Magnússon, sveitarstjóri.
Hreppstjóri og lögregla í
nýtt húsnæði á Vopnafirði
Vopnafjördur, 17. mars.
FIMMTUDAGINN 17. mars sl. var opnuð á Vopna-
firði umboðsskrifstofa sýslumanns Norður-Múlasýslu
við hátíðlega athöfn. Viðstaddir opnunina voru auk
dómsmálaráðherra, Friðjóns Þórðarsonar, og sýslu-
manns, Sigurðar Helgasonar, sveitastjóri og hrepps-
nefnd Vopnafjarðarhrepps ásamt fjölda annarra gesta.
Sigurður Helgason, sýslumaður, talaði fyrstur.
Reifaði hann fyrst stuttlega byggingasögu hússins
og bauð síðan gestum að gjöra svo vel og njóta
þeirra veitinga sem fram voru bornar í boði dóms-
málaráðuneytisins. Dómsmálaráðherra hélt síðan
ræðu. í máli hans kom m.a. fram, hversu mikil bót
væri að hinu nýja og rúmgóða húsnæði. Einnig
þakkaði ráðherra, sérstaklega Friðriki Sigurjóns-
syni, mikið og gott starf sem hreppsstjóra Vopna-
fjarðarhrepps, en hann hefur gegnt því starfi í
hartnær 50 ár. Síðn töluðu sveitarstjóri, Kristján
Magnússon, Friðrik Sigurjónsson o.fl. Af máli
allra þeirra sem þarna töluðu, má ljóst vera, að
með tilkomu þessarar skrifstofu er brotið blað í
þjónustumálum sýslumannsembættisins við Vopn-
firðinga. Umboðsskrifstofan er til húsa í nýju og
glæsilegu húsi að Hamrahlíð 15. Starfsaðstöðu þar
Rúnar Valsson,
lögregluvarðstjóri.
hafa hreppsstjóri, Friðrik Sigurjónsson, og
lögregluvarðstjóri, Rúnar Valsson. Skrifstofan er
opin frá klukkan 10—12 og 13—17 alla virka daga.
B.B.
Eggjaverð hef-
ur ekki hækkað
vegna undirboða
— segir í yfirlýsingu „framkvæmda-
nefndar Sambands eggjaframleiðenda“
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi yfirlýsing frá Jóni Gíslasyni,
„fyrir hönd framkvæmdanefndar
Sambands eggjaframleiðenda:
Miðvikudaginn 30. mars sl. átti
blaðamaður frá Morgunblaðinu
viðtal við Gunnar Jóhannsson á
Ásmundarstöðum í Holtum, „um
tillögu um einkasölu á eggjum"
sem birt var á baksíðu blaðsins
þennan dag.
Þar segir Gunnar að verð á eggj-
um til neytenda hækki um allt að
80% ef slíkt kæmi til framkvæmda,
það er að litlu leyti sannleikanum
samkvæmt. Því verð á eggjum er
allt frá 40—80 kr. út úr búðum en
þó algengast 65—75 kr.
Verðlagsgrundvöllur eggja er nú
69 kr. og hækkaði um 25,4% 15.
mars sl. Hækkun þessi var ákveðin
af stjórn Sambands eggjafram-
leiðenda sem Gunnar Jóhannsson á
sæti í, einnig hefur verðlagsstjóri
samþykkt hana.
Hækkunin hefur hinsvegar ekki
náð fram að ganga vegna stór-
felldra undirboða mjög fárra fram-
leiðenda á markaðnum og er það
lýsandi dæmi um ástandið.
Þá talar Gunnar um að Osta og
smjörsalan sf. eigi að annast rekst-
ur dreifingarstöðvar. Þetta er
rangt til getið hjá honum, Samband
eggjaframleiðenda mun eiga og reka
dreifingarstöð og allt sem henni við-
kemur.
Það hefur hinsvegar verið rætt
óformlega við Osta og smjörsöluna
um kaup á dreifingar- og skrif-
stofuþjónustu.
Einnig hefur verið samið við
ráðgjafarþjónustufyrirtækið Hag-
vang hf. um gerð áætlunar um
Ellefta verðkynning Verðlagsstofnunar:
Auglýsendur verða að geta
staðið við fullyrðingar sínar
VERÐLAGSSTOFNUN hefur nýlega gefið út fjórblöðung þar sem greint er
frá ýmsum málum sem neytendamáladeild Verðlagsstofnunar hefur haft
afskipti af á sl. ári. í yfirlitinu kemur fram að neytendamáladeildin hefur
fjallað um 60 mál á árinu 1982, í 23 tilvikum að beiðni atvinnurekenda, 21
tilviki vegna tilvísana neytenda og í 10 tilfellum að beiðni opinberra stofnana
eða félagasamtaka. Þá hefur deildin tekið upp 6 mál að eigin frumkvæði. í
yfirlitinu er vikið að málum sem varða of hátt verð, ólöglegar og villandi
auglýsingar, megrunarlyf, myndbandstæki, ferðalög o.fl.
Dæmin sem nefnd eru varða að-
allega 26. og 27. grein laga nr.
56/1978 um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskipta-
hætti. í greinunum segir að óheim-
ilt sé að hafast nokkuð það að sem
brýtur í bága við góða viðskipta-
hætti eða er óhæfilegt gagnvart
neytendum (26. gr.), eða veita rang-
ar, ófuilnægjandi eða villandi upp-
lýsingar í auglýsingum (27. gr.).
Sölumennska og
góðgerðarstarfsemi
Kaffibrennsla hét því í auglýs-
ingu að láta 40 aura af andvirði
hvers kílógramms af seldu kaffi
renna til styrktar öldruðum. Fyrir-
spurn barst til Verðlagsstofnunar
um það hvort auglýsingin sam-
ræmdist lögum. f svari Verðlags-
stofnunar var bent á að í auglýs-
ingunni væri skírskotað til óvið-
komandi mála sem er óheimilt
samkvæmt 27. grein ofannefndra
laga. Ennfremur var bent á að ekki
væri viðeigandi að kaup á kaffi
tengdist söfnun. Niðurstaðan varð
sú að kaffibrennslan auglýsti ekki
með þessum hætti í kjölfar athuga-
semda Verðlagsstofnunar.
Kangar leiðbeiningar
Barnaheimili keypti leir-
brennsluofn þar sem leiðbeiningar
fylgdu á hollensku. Forráðamenn
verslunarinnar létu því kaupand-
anum í té leiðbeiningar á íslensku.
Þær leiðbeiningar reyndust hins
vegar rangar, og urðu til þess að
ofninn skemmdist vegna rangrar
meðferðar. Spurt var hvort neyt-
andinn ætti rétt á því að fá nýjan
ofn. Svarið var játandi því óheimilt
er að veita rangar upplýsingar með
vörum. Vara er gölluð ef henni
fylgja upplýsingar sem leiða til
þess að hún skemmist.
Ferðalög oft dýrari en
gefið er til kynna
í auglýsingum
Allmargar kærur um rangar
verðupplýsingar á ferðalögum hafa
borist til Verðlagsstofnunar, og er í
athugun að semja reglur um aug-
lýsingar á verði fargjalda. Fyrir-
tæki auglýsti ferð til New York á
sérstöku kynningarverði. í auglýs-
ingunni var tekið fram verðið, 9.700
kr. fyrir sjö daga ferð, þar sem
innifalið væri flugfar, gisting,
morgunverður, ferðir til og frá
flugvelli o.fl. Þegar til kom hækk-
aði ferðin upp í 10.260 þar sem í
ljós kom að morgunverður og
flugvallarskattur voru ekki inni í
auglýsta verðinu.
Fyrirtækið hét því að birta
fljótlega aðra auglýsingu með rétt-
um upplýsingum.
Hvað er best?
Sölumaður spurði hvort hann
mætti auglýsa að vara sem hann
hafði á boðstólum væri sú besta.
Svarið var að það mætti aðeins
orða auglýsinguna þannig ef aug-
lýsandinn gæti sannað mál sitt.
Megrun — lofað upp
í ermina
Nokkrar kærur, m.a. frá mann-
eldisfræðingum, bárust til Verð-
Neytendamála-
deildin hafði
afskipti af 60
málum á sl. ári
lagsstofnunar vegna auglýsinga á
dufti, töflum o.fl., sem auðvelda
átti mönnum að grennast. Leið-
beiningar sem fylgt hafa slíkum
söluvarningi hafa verið ónákvæm-
ar og mönnum hefur verið lofað að
þeir geti borðað allt sem þeir vilja
og eins mikið og þeir geta, en samt
lést o.s.frv. Neytendamáladeild
samdi því leiðbeiningar til að auð-
velda seljendum að fara eftir
landslögum. Þær eru í mörgum lið-
um, en kjarni málsins er sá að selj-
endur þurfa að geta fært sönnur á
að staðhæfingar um eiginleika vör-
unnar standist.
Myndbandstækja-
markaðurinn
Vegna kæra sem Verðlagsstofn-
un hafa borist þótti ástæða til að
kanna myndbandatækjamarkaöinn
og varð niðurstaðan í stuttu máli
þessi: Vöruframboð breytist sífellt
og miklar verðsveiflur eiga sér
stað. Fyrir neytendur skiptir mestu
máli að fá vitneskju um það sem
þeir þurfa að greiða fyrir þau tæki
sem á boðstólum eru. í auglýsing-
um er því leyfilegt að bera saman
verð á mismunandi gerðum tækja.
Hins vegar eru matsfullyrðingar
um gæðaflokka — hvaða tæki séu
best, fullkomnust o.s.frv., óhæfi-
legar gagnvart öðrum seljendum
nema auglýsandinn geti sannað
mál sitt á ótvíræðan hátt.
stofnun og rekstur dreifingarstöðv-
ar.
Þá talar Gunnar um að ætlunin
sé að koma á kvótakerfi og fóður-
bætisskatti misháum eftir bú-
stærð. Hér er vissulega athyglis-
verð ábending, sem nú fyrst sér
dagsins ljós og sannar að ekki er
manninum alls varnað.
Ekki skulum við fjölyrða um
hagkvæmni í rekstri eggjafram-
leiðslubúa en viljum þó taka fram
að framleiðsla eggja fer að mestu
leyti fram í tæknivæddum húsum
þ.e. svokölluð haughænsni eru að
mestu leyti úr sögunni.
Þá viljum við leiðrétta Gunnar
þar sem hann segir Framleiðsiuráð
landbúnaðarins reyna að ná tökum
á þessari búgrein. Hann fer þar
vísvitandi með rangt mál, því það
er alfarið samkvæmt ósk frá Sam-
bandi eggjaframleiðenda að hafin
er samvinna við Framleiðsluráð
landbúnaðarins og Stéttasamband
bænda um skipulag og stjórnun
þessarar framleiðslugreinar.
Og að síðustu viljum við benda
Gunnari Jóhannssyni á að
skemmtilegra sé að kynna sér mál
sem hann hleypur með í fjölmiðla
til að geta sagt rétt frá.
Það er vitað og viðurkennt bæði
af eggjaframleiðendum og kaup-
mönnum að núverandi ástand í
markaðs- og dreifingarmálum sé
svo slæmt að verra geti það ekki
orðið og líkist helst prangi í versl-
unum sem viðhaft var á miðöldum
og jafnvel að bændur gangi í hús
með eggin. Þetta verður að breyt-
ast og komast til nútímahorfs. Nær
allar þjóðir á vesturhveli jarðar
hafa fyrir löngu lagt slíkt niður,
því það er gjörsamlega úr sam-
hengi við nútíma þjóðfélag, sem við
íslendingar viljum vissulega til-
heyra.
En vissulega er naðusynlegt að
framboð og eftirspurn haldist í
hendur ef koma á í veg fyrir verð-
sveiflur á markaðnum.
Dæmi eru til að egg séu boðin á
verði sem er helmingi lægra en
fóðrið kostar til að framleiða þau.
Stefna meirihluta framleiðenda
er þessvegna sú, að stjórnun og
hagræðing á þessari búgrein sé
nauðsynleg, ekki síst vegna við-
kvæmni vörunnar, þetta er fersk-
vara og þolir þessvegna mjög litlar
framleiðslusveiflur sé ekki fyrir
hendi vinnslu- og dreifingarstöð til
að vinna úr eggjum þegar of mikið
berst að.
Neytendur eiga skýlausa kröfu á
því að matvara þessi sem önnur
komist til þeirra í sem bestu og
ferskustu ásigkomulagi með hag-
kvæmri dreifingu og gæðaeftirliti
Fyrir hönd framkvæmdanefndar
Sambands eggjaframleiðenda,
Jón Gíslason
Byssum stol-
iö í Sportvali
BROTIST var inn í verkstæði hjá
sportvöruversluninni Sportval hjá
Hlemmtorgi í gærkveldi, og allmörg-
um haglabyssum stolið. Að sögn lög-
reglunnar er talið að unglingar hafi
þarna verið að verki, og var verið að
yfirheyra nokkra er Morgunblaðið
fór í prentun í nótt.
Lögreglumenn fundu nokkrar
byssur að húsabaki verslunarinn-
ar eftir að uppvíst varð um inn-
brotið, en í gærkveldi var ekki
ljóst hvort allar byssurnar hefðu
fundist, en um var að ræða notað-
ar byssur sem voru til viðgerða á
verkstæðinu.