Morgunblaðið - 08.04.1983, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Ástríður Eggerts-
dóttir - Kveðjuorö
Mig langar til að minnast lang-
ömmu minnar, Ástríðar Eggerts-
dóttur, nokkrum orðum.
Það var alltaf svo gott að koma
til hennar á Nýlendugötuna í það
verndaða og góða umhverfi, þar
sem iátleysi, hógværð og góðvild
skipuðu öndvegi.
Ámma á Nýlendugötunni, eins
og ég kallaði hana alltaf, var ekki
í hinu svokallaða lífstíðarkapp-
hlaupi, en hafði aftur á móti aðra
lífspeki fram að færa, sem ég vil
muna og geyma í mínum huga og
hjarta. Þær stundir sem við áttum
saman verða aldrei frá mér tekn-
ar.
Ég veit að hún fær góða heim-
komu, þar sem Sigríður amma og
langafi bíða hennar.
Blessuð sé minning hennar.
Ásta
í dag verður gerð frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík útför Jónínu
Ástríðar Eggertsdóttur. Ástríður
eða Ása, eins og hún var kölluð,
andaðist á Vífilsstaðaspítala laug-
ardaginn 2. apríl eftir langa og
stranga sjúkdómslegu.
Ástríður var fædd að Magn-
ússkógum í Hvammssveit 22. marz
1886. Þegar hún heilsaði þessum
heimi var hún svo veikburða og
lasin, að hún var skírð skemmri
skírn og vart hugað líf. Þau urðu
nú samt 97 árin hennar áður en
hún kvaddi.
Foreldrar hennar voru hjónin
Eggert Guðmundsson og Guðlaug
Guðmundsdóttir, sem fluttu að
Gröf í Laxárdal um það leyti, sem
hún fæddist. Ástríður varð hins-
vegar um kyrrt í Magnússkógum,
þar sem hún ólst upp hjá ömmu
sinni, Sigríði, og frænda sínum
Halldóri. Var hún í Magnússkóg-
um til 19 ára aldurs og bar alla tíð
í brjósti hlýju og tryggð til þess
staðar og þess góða fólks, sem þar
var, eins og raunar til allra vina
sinna og vandamanna i Dölunum.
Eggert og Guðlaug áttu auk
Ástríðar tíu börn, en af þeim stóra
hópi komust upp auk hennar að-
eins fjögur þeirra. í þí dága voru
læknavísindin skemmra á veg
komin en þau eru í dag, og barna-
dauði mun algengari heldur en nú
er. Systkini Ástríðar, sem upp
komust, voru þau Guðmundur,
bóndi á Níp, Kristmundur, bóndi á
Rauðbarðarholti, Margrét, hús-
freyja á Gilsbakka í Miðdölum, og
Viktoría, húsfreyja í Reykjavík.
Af þeim eru enn á lífi Viktoría og
Margrét.
Ung giftist Ástríður Guðbrandi
Jóni Sigurbjörnssyni frá Svarfhóli
í Laxárdal, f. 26. september 1886.
Hjónaband þeirra var einkar
hamingjuríkt og farsælt og heyrði
maður aldrei styggðaryrði falla
þeirra milli.
Ástríður og Guðbrandur bjuggu
sín fyrstu búskaparár á Svarfhóli
á árunum 1918—1922. Þar fæddist
þeim dóttirin Sigríður Guðlaug
árið 1918, sem varð þeim afar kær.
En það átti ekki fyrir Ástríði og
Guðbrandi að liggja að búa á
Svarfhóli og fluttust þau til
Reykjavíkur árið 1922 ásamt Sig-
ríði dóttur sinni. Þar bjuggu þau
síðan til æviloka. Stuttu eftir
komuna þangað eignuðust þau
soninn Kjartan, en misstu hann
ungan.
Ekki fluttu þau Guðbrandur og
Ástríður mikil veraldleg auðæfi
með sér til Reykavíkur enda var
starfsævi þeirra rétt að byrja um
þær mundir — en þau áttu sér
auðinn meiri, sem var fólginn í
bjartsýni og vinnufúsum höndum.
Og þá auðlegð áttu þau svo lengi
sem líf og heilsa entist. Fyrir þau
eins og svo marga af þeirra kyn-
slóð skipti það höfuðmáli að vera
sjálfstæð, að standa fyrir sínu og
þurfa ekki að vera upp á aðra
komin, og það tókst þeim sannar-
lega.
Þau höfðu ekki verið lengi í
Reykjavík, er þau festu kaup á
litlu, tvílyftu, húsi á Nýlendugötu
19a, þó að ekki væri hlaupið að
slíku fyrir ung hjón á þeim árum,
en það hafðist allt saman með
vinnusemi og forsjálni. Á
Nýlendugötunni var svo heimili
þeirra alla tíð síðan.
Það kom þó að því að Sigríður
flytti að heiman og stofnaði sitt
eigið heimili. Það gerði hún, er
hún giftist Magnúsi Péturssyni,
lögregluþjóni í Reykjavík, árið
1938 og var heimili þeirra hér í
bæ. Þau eignuðust fimm syni, en
tveir þeirra dóu á unga aldri. Eftir
lifa Pétur, kvæntur Sigurveigu
Hauksdóttur, Björn, kvæntur Þór-
unni P. Sleight, áður kvæntur Ing-
unni Hinriksdóttur og Andrés,
kvæntur Elsu Karlsdóttur. Nú eru
langömmubörn Ástríðar orðin
fimm. Það eru þau Ásta Ingibjörg
Pétursdóttir, Sigríður Guðlaug
Björnsdóttir og Halldór Björns-
son, Guðbjörg og Ásta Andrés-
dætur. En þó að Sigríður færi að
heiman og stofnaði sitt eigið
heimili þá rofnuðu ekki tengslin
við bernskuheimilið, því alltaf var
mikið og gott samband þar á milli.
Á Nýlendugötuna var alltaf gott
að koma og vera. Margar eru
minningarnar þaðan og allar góð-
ar. Þar vorum við oft og lengi
„drengirnir" þeirra. Þar spiluðum
við Marías og drukkum kaffi af
undirskálinni hans afa og smíðuð-
um með honum í kjallaranum. Þar
var gott að kúra frameftir á
sunnudögum og fá heita snúða eða
kruður með límonaði í rúmið. Þar
kenndi amma okkur að fara með
bænirnar — og svo margt, og svo
margt. Á Nýlendugötuna var allt-
af jafn gott að koma. Þar voru nú
ekki byltingarnar né bramboltið.
Þar var friður og ró. Það fundu
allir, sem þangað komu.
Guðbrandur fékkst við smíðar
alla ævi og var smiður góður og
traust það sem hann smíðaði, en
auk þess vann hann alla þá vinnu,
sem til féll, einkum á kreppuárun-
um. Vinnutími hans var oft langur
og ekki alltaf farið fram á mikla
borgun. Ástríður vann einnig
hörðum höndum. Ekki einungis
við heimilisstörfin, sem voru öllu
umfangsmeiri og erfiðari þá en
þau eru nú, heldur líka utan heim-
ilis svo sem í fiski og við þvotta.
Ekki veit ég hvernig okkur nú-
tímafólkinu þætti að fara á fætur
upp úr klukkan fjögur á morgn-
ana, sinna því sem sinna þurfti
heima og ganga síðan út í Skerja-
fjörð til að byrja þar á reitunum
klukkan sex, svo dæmi sé nefnt.
En þetta gerði hún með æðruleysi
og glöðu geði, þótti það reyndar
sjálfsagt. Vinnan var öðruvísi og
vinnudagurinn lengri og erfiðari á
þeim árum en nú er.
Ástríður og Guðbrandur höfðu
gamlar dyggðir í heiðri, en velkt-
ust aldrei í umróti nútímans og
aldrei eltust þau við tízkuna. Allt
sem þau sögðu stóð eins og stafur
á bók og aldrei hallmæltu þau
nokkurri manneskju. Þau voru
staðföst og trygglynd, þeim sem
þau tóku. Þau voru höfðiiigjar í
lund og allt sem þau gerðu, gerðu
þau vel og rausnarlega, en þau
voru líka nægjusöm og nýtin, en
það án þess að vera nízk — og
þannig mætti lengi telja. Þau voru
einstaklega samrýmd og höfðu
sama gildismat og viðhorf til hlut-
anna. Ég efast um að þeir sem
kynntust Ástríði og Guðbrandi
hafi nokkurn tíma kynnst grand-
varari og traustari manneskjum.
Vinahópurinn hennar Ástríðar er
að visu að þynnast, þar sem svo
margir hafa lagt upp í förina
miklu á undan henni, en þeir sem
eftir lifa hugsa áreiðanlega til
hennar í dag með hlýju og sökn-
uði.
En lífið lék nú ekki alltaf við
þessi góðu hjón fremur en aðra.
Þau áttu sér bæði gleði og sorgir,
en sorgum sínum mættu þau með
æðruleysi og staðfestu og einlægri
trú á Guð. Þannig mættu þau
saman þeirri miklu sorg, sem
barði að dyrum þeirra, er Sigríður,
einkadóttir þeirra og augasteinn,
dó á besta aldri úr ólæknandi
sjúkdómi. Sorgin sú fór ekki hátt,
þótt djúpt risti. Þannig mætti
Ástríður einnig örlögum sínum, er
Guðbrandur var á burt kallaður
og hún ein eftir seint á ævikvöldi
sínu. Þegar hún svo lagðist bana-
leguna fyrir sjö árum síðan, er
hún missti heilsuna svo til á einni
nóttu og var ekki hugað líf, þá
brást hún enn við á sama hátt. Þá
bilaði líkaminn, en sterk skapgerð
hennar og vilji var enn fyrir
hendi. Helzt vildi hún þá vera kyrr
á Nýlendugötunni í húsinu sínu og
deyja þar sem hún hafði lifað í svo
langan tíma og þar sem svo gott
var að vera.
En það fór nú á annan veg, því
nauðsynlegt var að eyða síðasta
hluta ævikvöldsins á spítala. Hún
fór á Vffilsstaðaspítala og hefur
verið þar undanfarin sjö ár, allan
þann tíma mikið veik. Hún hefur
nú loks fengið hvíldina og er vel að
henni komin eftir langa og starf-
sama ævi. Á spítalanum var vel
um hana hugsað og henni hjálpað
eftir beztu getu og þökkum við
starfsfólkinu þar hjartanlega
fyrir það. Öllum sem glöddu hana
með heimsóknum sínum þangað er
einnig þakkað innilega. Ljúft er
hér að minnast á og þakka Vikt-
oríu, systur Ástríðar, fyrir órjúf-
anlega tryggð og umhyggju fyrir
henni. Þær eru ómetanlegar og
óteljandi allar ferðirnar hennar
inn að Vífilsstöðum til Ástu.
Nú er jarðlífi Ástríðar lokið. Ég
minnist hennar sem mikillar og
heilsteyptrar konu, og býst ég við
að þeir sem hana þekktu beri
sömu tilfinningar í brjósti til
hennar. Guð sé með henni.
Björn Magnússon
t
Móöir okkar,
HELGA GUOJÓNSDÓTTIR,
Hverfisgötu 23, Reykjavík,
lést í Landspítalanum 6. apríl.
Börnin.
Fööursystir okkar. t
EUFEMÍA ÓLAFSSON,
er látin. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunnl þriöjudaginn 12.
apríl kl. 10.30.
Effa Georgsdóttir,
Dagný Georgsdóttir.
t
Ástkær móölr okkar, tengdamóöir, amma, langamma og mág-
kona,
SVAVA KONRÁÐSDÓTTIR HJALTALÍN,
Grundargötu 6, Akureyri,
andaöist á föstudaginn langa í fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Útför hennar veröur gerö frá Akureyrarkirkju laugardaginn 9. apríl.
kl. 13.30.
t>eim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á starf
KFUM og K, Akureyri.
Fyrir hönd fjölskyldunnar
Rafn Hjaltalln,
Svavar Friörik Hjaltalín.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
EYJÓLFUR ÞORLEIFSSON,
veröur jarösunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 9. apríl kl.
13.30.
Guðrún Erlingadóttir,
Steinunn Eyjólfadóttir, Gunnar Gunnaraaon,
Erlingur Eyjólfaaon, Bóra Stefónadóttir,
Leifur Eyjólfaaon, Áadía Guönadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þakka innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
eiginmanns míns,
TORFA SIGGEIRSSONAR,
Kirkjuvegi 13, Keflavík.
Anna Vilmundardóttir.
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Kristileg framkoma
Margir kristnir menn koma ekki fram sem kristnir menn í
samskiptum sínum við aðra. Hvað veldur?
Enginn er fullkominn í heimi þessum. Bezti
kristni maðurinn er aðeins syndari, frelsaður af náð.
Jafnframt bregðast kristnir menn oft, þegar þeir
ættu að haga sér í samræmi við trú sína.
Skýringarnar eru margar: Kristur fær ekki öll
völd á sérhverju sviði lífs þeirra; þeir færa sér ekki
að fullu í nyt þá blessun og hjálp, sem Guð vill veita
okkur dag hvern; eigingirni veldur því, að við metum
ekki réttilega aðra menn, skoðanir þeirra og vanda-
mál; og kannski er algengast að okkur gleymist að
byrja og lifa daginn í bæn um návist Krists í hjört-
um okkar og huga við allt það, sem við tökum okkur
fyrir hendur.
Hegðun og líf kristinna manna ætti að einkennast
af kærleika til annarra, einkum til kristinna bræðra
og systra. Ef við rannsökum hjörtu okkar, komumst
við að raun um, hversu mjög vantar á, að við auðsýn-
um kristilega elsku í samskiptum okkar við aðra
menn.
Eina leiðin til að sigrast á þessu er að við gefum
okkur að nýju Kristi á vald, biðjum hann að ráða
öllu í lífi okkar og förum síðan út og framkvæmum
það, sem hann vill að við gerum. Við getum ekki gert
þetta í eigin mætti, en Kristur vill gefa okkur kraft,
sem til þess þarf að lifa á þennan hátt. Hann vill
það, ef við aðeins leyfum honum það.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og úlför
bróöur okkar,
EINARS ÞORSTEINSSONAR,
fró Gularósi, Austur-Landoyjum.
berstakar þakkir eru til lækna og starfsfólks á Sjúkrahúsinu Sel-
fossi og á Landakoti.
Guómundur Þorsteinsson,
Þórunn Þorsteinsdóttir.