Morgunblaðið - 08.04.1983, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, J’ÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
45
EL LICEO
Montserrat Caballé og José Carreras
í hlutverkum sínum í óperunni „Don
Carlo“ eftir Verdi.
Atriði úr sýningu í el Liceo.
El Liceo-óperuleikhúsift í Barcelona; meft þeim stærstu og glssilegustu í heimi.
Krá Helgu Jónsdóttur, fréltaritara Mbl. í
Burgos, Spáni.
I’annig er el Liceo; fremsta
óperuleikhús Spánar: Á frumsýn-
ingarkvöldum klæðast herrarnir
kjólfotum og það má heyra skrjáfa
í satín- og silkikjólum damanna.
Stærsta og íbúðarmesta leikhúsið
á Spáni líkist risastórum gimsteini,
gríðarstórum rúbínsteini; hvelfing-
in gerð úr skarlatsrauðum kvars-
steinum. I>að liggur spenna í and-
rúmsloftinu. Allur þessi fólksfjöldi
saman kominn fyrir neðan gyllt
loftið og tendruðu Ijósakrónurnar.
Fyrir augu ber skrautmiklar stúk-
ur, breiðar tröppur, marmari alls
staðar, speglar í gulllituðum útflúr-
uðum römmum, súlur í nýklassisk-
um stíl, skrautsaumuð flauelstjöld;
skrjáfið eykst eins og einskonar
fyrirfram hylling rétt áður en tjald-
ið er dregið frá. Við erum stödd í
fremstu óperuhöll Spánar: el Liceo
í Barcelona.
135 ár eru liðin frá stofnun el
Liceo. Það er eitt af bestu óperu-
leikhúsum í heimi; hið fremsta á
Spáni og hið eina í landinu sem
eingöngu er notað til óperuflutn-
ings síðan Konunglega leikhús-
inu í Madrid var lokað.
Byggingin, tignarleg að innan-
verðu og fast hefðbundið ytra út-
lit, er aðalvígi menningar- og fé-
lagslífs Catalunahéraðs.
Að sækja sýningu í el Liceo
hefur frá upphafi verið að upp-
fylla eitt af boðum „katalónism-
ans“ hvort sem fólk unni óperu-
tónlist eða ekki.
En einnig hefur el Liceo verið
vagga og skóli fyrir bestu óperu-
söngvara Spánar sem síðar hafa
öðlast verðskuldaða frægð og
frama í öðrum löndum eftir nám
og þjálfun í Barcelona. í dag eru
þessi söngvarar heimsfrægir;
Montserrat Caballé, José Carr-
eras, Jaime Aragall, Juan Pons
og Vincente Sardinero. Áður
voru það Francisco Vinas —
fyrsti tónórsöngvarinn, sem
söng verk Wagner á katalónsku,
María Gau, Miguel Fleta og
seinna meir Victoria de los Ang-
eles, þau eru meðal fjölda ann-
arra þekktra nafna í óperuheim-
inum uppalin og menntuð í Cata-
lunahéraði.
Saga el Liceo hefur, eins og
saga svo margra óperuleikhúsa í
heiminum, verið löng og torveld
barátta milli listaeiginleika á
sviðinu og næfurgullsins í saln-
um og milli glæsilegrar og virðu-
legrar sýningar og gífurlegs
kostnaðar.
Því óperan er dýrust allra sýn-
inga. Og el Liceo hefur ekki ætíð
getað boðið almenningi upp á
óperuflutning við bestu skilyrði.
F'rá stofnun söngleikhússins hef-
ur það verið eign 550 félags-
manna. Leikefnisskrá og fjár-
forráð voru þangað til fyrir 2 ár-
um í höndum eins einkafyrir-
tækis. En síðustu árin hefur
rekstur óperunnar tekið miklum
breytingum. Einkaatvinnurek-
andi getur ekki lengur tekið einn
alla áhættu. í Liceo fóru fram
vanræktar sýningar og ekki
bættu léleg hljómsveit og slæmir
kórar það upp. Aðeins nöfn eins
og Caballé, Áragall eða Carreras
gátu við og við bjargað miðasöl-
unni.
Árið 1980 var ákveðið að
syngur aðalhlutverkið í óper-
unni.
Til loka marsmánaðar á næsta
ári mun el Liceo bjóða upp á 15
mismunandi verk og verða sýn-
ingarnar 44 talsins, þar af verða
5 sérstakar hátíðarsýningar.
Meðal verka á nýhöfnu starfsári
eru Töfraflautan eftir Mozart í
útsetningu Jean-Pierre Ponolle;
Tristan og Isolde eftir Wagner;
„La Italiana en Argel" eftir
Rossini með spænsku söngvur-
unum Raquel Pierotti og Dala-
mancio Gonsáles; Rómeó og
Júlía með José Carreras og Patr-
icia Wise og Fausto með Jaime
Aragall. Einnig verður flutt
óperan „Macbeth" með Jean
Pons og síðast en ekki síst „La
Bohéme" eftir Puccini. Frægir
hljómsveitarstjórar hafa verið
ráðnir til starfa þetta starfsárið
í el Liceo; Nicola Rescigni, Carlo
Fellice Cillario, Anton Guad-
agno og Romani Gandolfi.
E1 Liceo tekur 2.958 áhorfend-
ur í sæti. Miði fyrir sæti í sal
kostar 3.500 peseta. Ódýrasti
miðinn, sem er stæði á 5. hæð
leikhússins, kostar 300 peseta.
Eins og áður hefur komið
fram er el Liceo eina starfandi
óperuleikhúsið á Spáni. Menn-
ingarmálaráðuneyti landsins
hefur í 20 ár skipulagt óperusýn-
ingar í Zarzuelaleikhúsinu í
Madrid. Þar verða á næsta ári
Piácido Domingo.
fluttar átta óperur og sýningar
verða 35 talsins. Einnig eru
óperur fluttar í el Coliseo Albina
í Bilbao; í Campoamorleikhúsinu
í Oviedo; í Pérez Galdóleikhús-
inu í Las Palmas og í Principal-
leikhúsinu í Valencia.
En það er í Barcelona og nán-
ar tiltekið í el Liceo-söngleikhús-
inu þar sem ljómi spænskrar
óperutónlistar skín hæst. Flestir
mikilvægustu tónlistaratburðir
Spánar hafa farið fram þar. E1
Liceo jafnast á við hvað stærð
snertir og er jafnvel enn stærra
en mörg frægustu óperuleikhús í
heiminum. E1 Liceo var byggt
árið 1847. Fjórtán árum síðar
kom upp eldsvoði í byggingunni
og eyðilagði hana. Arkitektinn
José Oriol Mestres lauk endur-
byggingu óperuhallarinnar, og
hefur el Liceo starfað óslitið síð-
an, fyrir utan árin sem borgara-
styrjöldin á Spáni stóð yfir.
í dag hefur ópæruhúsið á að
skipa 93 manna hljómsveit —
helmingur þeirra er Spánverjar,
aðrir eru Rúmenar, Tékkar, Sví-
ar, Bandaríkjamenn og svo kór
sem skipaður er 93 söngmönn-
um.
Óperuhúsið notar fyrir flestar
sýningar sínar leigða búninga,
tjöld, og leikmuni o.þ.h. Það fær
leigt frá öðrum leikhúsum inn-
lendum og erlendum. Að áliti
forráðamanna óperuhússins er
það ekki þess virði að útbúa og
hanna eigin búninga fyrir 3 eða
4 sýningar.
Við látum í lokin fylgja með
orð Victoriu de los Angeles um
spænska óperuáhorfendur: „Ég
kýs frekar amerískan almenning
því hvert sýningarkvöld á Spáni
er eins og um frumsýningu sé að
ræða. Þú getur staðið þig frá-
bærlega vel í 3 sýningum og ef
þér tekst illa upp á þeirri fjórðu
ertu lamin.“
AAalinngangur í el Liceo.
breyta og endurbæta hið gamla
leikhús og láta það líkjast la
Scala í Mílanó, óperuhúsinu í
Vínarborg, óperuhúsi Parísar-
borgar, The Covent Garden í
London eða Metropolitan í New
York. í fyrra sungu m.a. Mont-
serrat Caballé, „Anna Bolena",
og Alfredo Kraus í „La favorita"
og „Lucia di Lammermoor" með
miklu betri hljómsveitarleik en
fyrir breytingu. Einnig var í lok
starfsársins haldin sérstök heið-
urssýning þar sem Placido Dom-
ingo söng í „La Bohéme" eftir 4
ára fjarveru í el Liceo.
Hið nýja starfstímabil fyrir
1982—83 hófst 11. nóvember með
flutningi óperunnar „Don Carlo"
eftir Verdi. Montserrat Caballé
m-
mw ntmmMitmm
— eitt af fræg-
ustu og glæsileg-
ustu söngleika-
húsum í Evrópu