Morgunblaðið - 08.04.1983, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Maradonna er byrjaður að æfa að nýju með el Barcelona. Félagíð
þarfnast hans meir en nokkru sinni fyrr til þess aö berjast um Spán-
armeistaratitilinn í 1. deild.
Aðsókn minnkar í Evrópu:
102 þúsund áhorfendur
að meðaltali á hverjum
leik hjá FC Barcelona
AÐSÓKN aö knattspyrnuleikjum í
Evrópu hefur minnkaö mjög
verulega ó síöasta ári. Tvær und-
antekningar eru þó á þessu. Aö-
sókn á Ítalíu og Spáni hefur auk-
ist verulega. Aösókn aö 1. deildar
leikjum í Svíþjóð hefur minnkað
mest eöa um rúm fimm prósent á
síóasta ári. Meöalaðsókn aö 1.
deildarleikjum í Svíþjóð var 5.138
áhorfendur á hverjum leik. Aö-
sókn hefur ekki veriö jafn lítil síö-
an árið 1945.
Meöalaösókn aö leikjum í 1.
deild í V-Þýskalandi hefur minnkaö
um rúm tvö þúsund áhorfendur á
hverjum leik. Og í Englandi hefur
aösóknin minnkaö um átta þúsund
áhorfendur á hverjum leik. Enda
eru mörg knattspyrnufélög þar í
verulegum peningavandræöum.
Tvær þjóöir í Evrópu skera sig
alveg úr hvaö aösókn aö leikjum
snertir. Á Ítalíu og Spáni hefur aö-
sókn aö leikjum aukist um 16 pró-
sent. Mest er aösóknin á Spáni.
Hiö fræga félaga FC Barcelona
hefur hvorki meira né minna en
102 þúsund áhorfendur aö meöal-
tali á hverjum heimaleik sínum. f
næsta sæti kemur Real Madrid
með 64,001 áhorfendur aö meöal-
tali á hverjum leik.
Fjögur liö skera sig úr á italíu.
Napoli er meö 58.121 áhorfenda
sem meöaltal á hverjum leik,
Roma meö 48.609, Fiorentina meö
46.789 og AC Milan meö 44.587
áhorfendur.
Maradonna byrjaður aftur
eftir lifrarsjúkdóminn
Frá Helgu Jónsdóttur, tréttaritara Mbl. í Burgos, Spáni.
Argentínubúarnir síðasta von ei Barca
DIEGO ARMANDO Maradona æfir nú á nýjan leik með félagi sínu, el
Barcelona. Eftir aó hann varð að hætta aö leika og keppa vegna
lifrarbólgu sem hann þjáóist af var það eilíf þráhyggja hjá hinum
snjalla leikmanni að geta byrjað að spila að nýju. Fyrst eftir veikindin
hvíldist Maradona vel á heimili sínu, síðan tók viö líkamleg endurþjálf-
un í LLoret de Mar; þrotlausar æfingar og ólýsanleg löngun að geta
klæðst aftur búningi el Barca.
Og vitaskuld tókst þaö. Carlos
Belgrano, vinur og trúnaöarmaöur
Maradona, var meö leikmanninum
alla daga veikinda hans ... og
liföi meö honum þá óskhyggju
leikmannsins aö geta snúiö sér
fljótt aftur að knattspyrnunni, sem
er allt hans líf. Einnig voru foreldr-
ar Maradona, systkini og unnusta
hjá honum allan tímann.
Batatímabilið var mjög erfitt.
Ekki þó vegna sjálfs sjúkdómsins,
sem var frekar vægur, heldur
vegna þess aö Maradona var ekki
leyft aö reyna neitt á sig. Hann var
mjög miöur sín, mjög dapur. Vinir
hans viku ekki frá honum eitt and-
artak, leikmenn liösins heimsóttu
hann og ef honum stökk bros eitt-
hvert skipti þá sá enginn þaö;
Maradona sat allan tímann í hæg-
indastól og horföi niður á gólf. Allir
voru örvilnaöir.
Nótt eina sá Carlos Maradona
fara út úr herbergi sínu með spegil
í hendinni til þess aö sjá hvaöa lit
augun heföu; morguninn eftir gerði
hann það sama. Hann vildi sjá
hvort augun væru enn gul. Mara-
dona hélt aö hann fengi aldrei aft-
ur bata. Honum leiö mjög illa;
knattspyrnan er allt hans líf og þaö
aö geta ekki spilaö sökkti honum.
Þegar læknar tilkynntu aö
Maradona gæti brátt hafiö æfingar
aö nýju fylltist hann gleöi. Aö sögn
Carlos Belgrano hlær hann núna,
leikur sér, tekur þátt í samræöum,
eldar mat .. . Maradona er aftur
hamingjusamur.
Þrátt fyrir veikindin og enga lík-
amlega þjálfun í margar vikur er
Maradona í fyrirtaks formi; fyrsta
daginn sem hann hóf æfingar á ný
aftur fann hann ekki til þreytu.
Honum líöur fullkomlega og þyrj-
aöi strax aö æfa af fullum krafti
meö félögum sínum.
Maradona lifir mjög reglu-
bundnu og rólegu lífi. Líf hans er
tileinkað knattspyrnunni. Hann er
gamaldags aö margra áliti; fer lítiö
út aö skemmta sér, horfir á sjón-
varp; gerir lítið annaö, spilar
„truco" (spilaleikur frá Argentínu)
og kemur saman ásamt vinum. En
hann fer lítið út m.a. vegna þess að
hann er mjög hlédrægur og líkar
lítiö aö vera eltur af Ijósmyndurum
og aödáendum. Einnig finnst hon-
um gaman aö spila tennis og ku
vera mjög góöur í þeirri íþrótt.
Á sama tíma og Maradona gat
hafiö æfingar eftir veikindi sín
hætti Udo Lattek þjálfari störfum
hjá el Barcelona. í staöinn kom
César Luis Menotti fyrrverandi
þjálfari argentíska landsliösins.
Hefur hann ritaö undir samning hjá
FC Barcelona.
Menotti álítur aö Maradona hafi
haft lítil áhrif á að hann var ráöinn
sem þjálfari Barcelona. Sagöi aö
Maradona þurfi ekki vernd neins
þjálfara, sama hver það væri. Leik-
maöur ætti aö koma sér vel viö
félaga sina og skilja þá betur.
Þaö er ósk Menotti „aö Schust-
er verði besti leikmaöurinn í heimi
meö el Barcelona". Heyrst hefur
að Menotti kjósi fremur argent-
ínska leikmanninn Díaz en Schust-
er en þjálfarinn neitar því. Menotti
vill ekki ræöa um hvaö hann muni
fá í laun frá félaginu. Segist ekki
hafa mikinn skilning á fjármálum.
Hann álítur vandamál el Barca þaö
aö félagiö vanti titla: „En þaö sama
• Maradonna gatur tafcið glaðf
sína é nýjan loik.
henti mig meö argentínska lands-
liöinu. Þaö var mikill þrýstingur aö
öölast heimsmeistaratitilinn og ég
býst varla viö aö spennan sé meiri
í Barcelona, þvi ef hérna eru
100.000 félagsmenn voru í Argent-
ínu 25 milljónir áhangenda."
Samningur Menotti hjá Barce-
lona gildir til eins árs ... til þess
aö gefa þeim hjá félaginu tíma til
þess aö kynnast honum og öfugt.
César Luis Msnotti, Mnn snjalli
argentíski þjáifari, or nýi þjálfari
F.C. Barcelona. Tekst félaginu að
hreppa 1. sætiö undir hans
stjórn?
• Fyrsta golfmótiö fór fram í Vestmannaeyjum um páskana.
• Skemmtun landsmanna var misjöfn um páskana. Flestir brugöu sér
á skíöi en í Vestmannaeyjum spiluöu menn golf. Margir lentu í hrakn-
ingum og erfiöleikum í snjónum um páskana. f Vestmannaeyjum var
hið besta veöur og ekkert mál að leika knattspyrnu á auðum velli og
bregða sér út á golfvöll með kylfurnar. Golfklúbbur Vestmannaeyja var
með sitt fyrsta golfmót um páskana og tók Sigurgeir Jónasson Ijósm-
yndari Mbl. þessar myndir um páskana úti á golfvelli.
• Skipstjórinn, forstjórinn og netamaðurinn aNhressir með að golf-
vertíðin skuli hafin.
Kyngja ekki
ákvörðun FIFA
Knattspyrnukapparnir Pele og
Franz Backenbauer, ásamt Henry
Kissinger, fyrrum utanríkisráö-
herra Bandaríkjanna, ætla nú aö
gera allt sem þeir geta til að
Bandaríkin fái aö halda næstu
heimsmeistarakeppni í knatt-
spyrnu.
í síöustu vlku gaf FIFA út þá til-
kynningu aö sambandið tæki aö-
eins umsókn Mexíkó til greina, en
umsóknir frá Kanada og Banda-
ríkjunum yröu lagðar til hliöar.
FIFA sagði ástæöurnar fyrir
þessu aö vegalengdir milli valla í
Bandaríkjunum væru allt of miklar
og í Kanada væru ekki nógu marg-
ir vellir.
Forráöamenn knattspyrnunnar í
Kanada ruku upp til handa og fóta
er þessi yfirlýsing var gerö opinber
og mótmæltu henni í snarhasti.
Pele, Beckenbauer og Kissinger,
sem er mikill knattspyrnuáhuga-
maöur, heiöursformaöur i Knatt-
spyrnusambandi Noröur-Ameríku,
voru allir á fundi meö undirnefnd
fjármálaspekinga úr fulltrúadeild
þingsins í gær, þar sem átti aö
finna einhverja leið til aö fá FIFA til
aö taka umsókn Bandaríkjamanna
til greina.
„Mexíkó viröist í augnablikinu
hafa mesta möguleika, en FIFA
tekur ekki lokaákvöröun fyrr en
20. maí, og viö munum reyna allt
sem í okkar valdi stendur til aö fá
keppnina hingaö," sagöi James
Florio, einn þingmanna í samtali
viö AP.