Morgunblaðið - 08.04.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, fÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
47
KR-ingar eru á toppi 1. deildar fyrir n»it eíðustu úrslitaumferöina sem
hefst í kvöld. Hér eru þeir til varnar í leik gegn Víkingum, sem eru í
ööru sætinu.
Dregið í bikarnum
DREGIÐ hefur veriö í bikarkeppni
í handbolta, átta liða úrslitum, og
eru leikirnir þessir í meistara-
flokki karla:
Þróttur — KR, Reynir — Þór V.,
Víkingur — KA, Stjarnan/Fram —
UBK/Valur.
Ekki er búiö aö dagsetja leikina
en stefnt er aö því aö úrslitaleikirn-
ir í keppninni, í karla- og kvenna-
flokki, veröi 29. þessa mánaöar.
Einnig er búiö að draga í meistara-
flokki kvenna: Fram — Haukar, ÍR
— FH, Valur — Fylkir, Þróttur —
Víkingur.
Erla Rafnsdóttir úr ÍR skorar hér I landsleik gegn Englendingum fyrr í
vetur. Hún og félagar hennar í liöinu mæta Dönum um helgina.
Landsleikir kvenna í handknattleik:
Leikið gegn Dönum
í kvöld og á morgun
í KVÖLD kl. 19.00 leika í Hafnar-
firöi landsliö íslands og Dan-
merkur í kvennaflokki í hand-
knattleik. Leikurinn er liöur í
heimsmeistarakeppninni en
þessar þjóðir berjast um sæti f
B-keppni, sem haldin veröur í
Póllandi næsta haust. Liöin mæt-
ast svo aftur á morgun kl. 15.00
aö Varmá og er þar um vináttu-
leik aö ræöa. Um möguleika ís-
lensku stúlknanna má segja aö
þeir séu talsveröir, breiddin f
kvennahandknattleik hefur auk-
ist mikið og margar efnilegar
stúlkur koma fram á hverju ári.
Liöiö sem hefur veriö valiö i
þessa leiki er góö blanda af leik-
reyndum og efnilegum leik-
mönnum sem eru ákveönir ( að
gera sitt besta, og meö góöum leik
og öflugum stuöningi áhorfenda
ætti aö takast aö leggja Dani aö
velli.
Liöiö veröur þannig skipaö:
Markveröir:
Jóhanna Pálsdóttir Val
Jóhanna GuöjónsdóttirVíkingi
Aörir leikm.
Erna Lúövíksdóttir Val
Sigrún Bergmundsd. Val
Magnea Friöriksdóttir Val
Katrín Danivalsdóttir FH
Kristjana Aradóttir FH
Erla Rafnsdóttir ÍR
Ásta Sveinsdóttir ÍR
Ingunn Bernótusdóttir ÍR
Oddný Sigsteinsdóttir Fram
Guöríöur Guöjónsd. Fram
Þjálfarí
Sigurbergur Sigsteinsson
Þaö er von landsliðsnefndar
kvenna aö áhorfendur fjölmenni
og styöji vel viö bakið á stúlkunum
í þessum leikjum.
Þriðja umferðin í Hafnarfiröi:
Baráttan um titilinn
heldur áfram um helgina
BARÁTTAN um islandsmeistara-
titilinn í handbolta heldur áfram
um helgina, og er spennan nú um
þaö bil að komast í hámark. ís-
landsmeistarar Víkings, sem
náðu sér ekki á strik í fyrstu um-
feröinni, voru mjög sterkir í ann-
arri umferóinni fyrir páska og
unnu þá alla sína leiki og komust
í annaö sætiö.
Þriöja umferðin verður svo leikin
í Hafnarfiröi um helgina og hefst í
kvöld. Þar verður reyndar einnig
kvennalandsleikur í handbolta, ís-
land mætir Dönum í heims-
meistarakeppninni eins og sagt er
frá annars staöar á síöunni. Sá
leikur hefst kl. 19.00. Síöan leika
KR og Stjarnan kl. 20.30 og FH og
Víkingur kl. 21.45. Fyrir þessa um-
ferð er staðan í keppninni þannig:
KR 6 4 1 1 150—133 9
Víkingur 6 4 0 2 138—139 8
FH 6 3 1 2 142—140 7
Stjarnan 6 0 0 6 116—134 0
Á morgun heldur umferðin
áfram, FH og KR mætast þá kl.
14.00 og Stjarnan og Víkingur kl.
15.15, og á sunnudaginn leika
Stjarnan og FH kl. 20.00 og KR og
Víkingur kl. 21.15. Allir leikirnir
veröa eins og áöur segir í Hafnar-
firöi.
Stjarnan hefur enn ekki sigraö i
neinum leik í þessari úrslitakeppni
þótt oft hafi munaö mjóu og gætu
þeir haft áhrif á úrslit keppninnar
meö því að reita stig af hinum liö-
unum. KR-ingar héldu sínu striki
nokkuð vel í síðustu umferö en
FH-ingarnir voru ekki eins sterkir
og áöur. Baráttan viröist því nú
munu standa milli Víkings og KR ef
FH-ingar ná sér ekki betur á strik
en í síöustu keppni, þar sem þeir
voru reyndar miklir klaufar aö tapa
fyrir Víkingum. __ SH
Fram sigraði Val 2—0 í gærkvöldi
• Þeir voru kappklæddir leikmenn Fram og Vala er liöin mættust ( fyrsta leik Reykjavíkurmótsins í
knattspyrnu á Melavellinum í gærkvöldi. Þaö var liö Fram sem bar sigur úr býtum í leiknum, 2—0. í hálfleik
var staðan 1—0. Halldór Arason skoraði annaö mark Fram en hitt var sjálfsmark. Leikur liöanna var fyrsti
opinberi kappleikurinn á keppnistímabili knattspyrnumanna sem nú er hafiö. Leikir í litlu bikarkeppninni
hefjast á laugardag. Ljósm rax
„Góöar rækjur á góðu veröi.“
Hermundur Sigmundsson ungl-
ingalandsliösmaður í handbolta
selur hér rækjur á Lækjartorgi í
gær. Unglingalandsliöiö er á för-
um til Færeyja á næstunni þar
sem þaö tekur þátt í Norður-
landamótinu, og er rækjusala
þeirra ætluö sem fjáröflun fyrir
ferðina. Salan gekk vel framan af
degi í gær, en síöan kom babb í
bátinn. Heilbrigöiseftirlitiö stööv-
aöi söluna þar sem rækjurnar
voru ekki geymdar í nógu miklu
frosti.
Ljóim. Skapti.
Vill Robson fá Keegan aftur?
Kevin Keegan hótaói því í
haust, er Bobby Robson valdi
hann ekki í landsliöshóp sinn, aö
hann myndi aldrei leika fyrir
England á ný. í gær var Keegan á
lista sem Robson geröi yfir þá
menn sem hann vildi að léku fyrir
England í sérstökum ágóöaleik,
17. maí, gegn Middlesbrough,
tveimur gömlum Boro-hetjum til
heiöurs, þeim Wilf Manmnion og
George Hardwick.
Þaö vakti athygli í Englandi í
gær aö Robson skildi velja Keegan
í hópinn, og telja menn aö Robson
vilji meö þessu reyna aö fá Keegan
aftur í landsliöiö. En Keegan situr
fast viö sinn keip. Hann segist hafa
neitaö boöinu, þar sem hann verói
á feröalagi erlendis meö liöi sínu,
Newcastle, á sama tíma. „Þaö
skiptir engu máli aö Robson hafi
valiö mig,“ sagöi Keegan viö AP í
gær. Malcolm Allison, stjóri
Middlesbrough, var á ööru máli.
„Ég er alveg viss um aö Robson
var í alvöru aö reyna aö fá Keegan
aftur í liöiö," sagöi hann í gær. „Ég
er viss um aö Robson valdi hann
vegna lélegrar frammistöðu liösins
gegn Grikkjum á Wembley á dög-
unum.“
Robson sagöi sjálfur aö sérstök
nefnd knattspyrnusambandsins
veldi liöiö, en hann heföi mælt meö
vissum leikmönnum. „Ég vil aö lið-
iö veröi sem líkast því sem ég heföi
valió mitt landslið, og ég viöur-
kenni aö ég mælti meö því aö
Keegan léki meö. Ég hef aldrei
sagt aó Keegan léki ekki aftur fyrir
England og ég yröi hæstánægöur
ef hann vildi gera þaö,“ sagöi
Robson, sem hefur látið fylgjast
vel meö frammistööu Keegan hjá
Newcastle í vetur.