Morgunblaðið - 08.04.1983, Side 48
rs
____fcuglýsinga-
síminn er 2 24 80
^/\skriftar-
síminn er 830 33
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1983
Páskahret á undanhaldi
KKAKKARNIR f Hrísey undu
glöð við sitt í brekkunni ofan við
höfnina um páskana enda veður
ágstt til útivistar. Frá páskum hef-
ur hins vegar verið stórhríð á
Norðurlandi, samgöngur verið erf-
iðar og skólum verið lokað svo
dæmi séu nefnd. í dag er búist við
að veður verði svipað á landinu og
verið hefur síðustu daga. Þó er
þess að vænta að dragi úr norðan-
áttinni er líður á daginn og hún
verði að mestu gengin niður á
morgun. Eftir helgina er búist við
að veður fari að breytast. Gera má
ráð fyrir frosti á landinu í dag, en
hiti fer þó yfir frostmark á sunnan-
verðu landinu meðal sólin skín.
Byggingarsjóður ríkisins:
Lánshlutfell komið niður í
12% byggingarkostnaðar
— ef opinber gjöld og verðrýrnun lána á útborgunartíma eru tekin með í heildardæmið
Brotizt inn í
Útvegsbank-
ann í Keflavík
Fíkniefnasalar
staðnir að verki
BROTIST var inn í útibú Útvegs-
banka íslands í Keflavík í fyrrinótt.
Skemmdir voru unnar, en einskis er
saknað. Á skírdag stóðu lögreglu-
menn tvær íslenzkar konur að verki
við sölu á fíkniefnum.
Brotinn var upp skápur í Út-
vegsbankanum í fyrrinótt og gerð
tilraun til að brjóta upp læstar
skúffur, en samkvæmt heimildum
Mbl. höfðu innbrotsþjófarnir ekk-
ert upp úr krafsinu. Innbrots-
manna var leitað í gær, en án
árangurs. Eins og fyrr segir höfðu
þeir ekki árangur sem erfiði, en
nokkrar skemmdir urðu á innrétt-
ingum og innbúi bankans.
Tvær íslenzkar konur voru
staðnar að sölu á hassi á Aðal-
stöðvarplaninu í Keflavík á anna-
tíma á skírdag. Höfðu þær selt er-
lendum manni hass og fundust í
fórum þeirra 30-40 grömm af
hassi. Bæði eru mál þessi í rann-
sókn.
Austfirðir:
Óvenjumörg
heilahimnu-
bólgutilfelli
Óvenju margra heilahimnubólgu-
tilfella hefur orðið vart á Austfjörðum
að undanförnu. Hafa sjö eða átta
börn veikst og eitt látist af völdum
sjúkdómsins, að því er Eggert Brekk-
an, yfirlæknir við Fjórðungssjúkra-
húsinu á Neskaupstað, sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins í
gærkveldi.
Eggert sagði flest heilahimnu-
bólgutilfellin hafa komið upp á
suðurfjörðum Austfjarða, en þó
væru engin tengsl á milli sjúk-
dómstilfellana og því alls ekki um
faraldur að ræða. Sagði Eggert á
hverju ári koma upp á landinu
nokkur tilfelli, og réði tilviljun því
ein að svo mörg börn hefðu veikst á
Austfjörðum nú. Börnin sem hafa
veikst sagði hann ekki hafa verið á
neinum sérstökum aldri, ekki frek-
ar ungbörn en stálpaðri hefðu
veikst.
Eggert sagði börn þau er veikt-
ust ýmist hafa verið flutt til
Reykjavíkur á sjúkrahús eða til
Neskaupstaðar, en heilahimnu-
bólga væri alltaf alvarleg og þyrfti
meðhöndlunar á sjúkrahúsi við, en
bakteríur hafa valdið þeim tilfell-
um sem vart hefur orðið á Aust-
fjörðum að undanförnu.
Lánshlutfall Byggingarsjóðs, þ.e.
hins almenna húsnæðislánakerfis, er
komið niður í um 12% af byggingar-
kostnaði, ef tekið er tillit til verðrýrn-
unar húsnæðislána á þrískiptum út-
borgunartíma þeirra og opinber gjöld
eru meðreiknuð í staðalverði, sem við
er miðað. Lánshlutfall til kaupa á
eldri fbúð er að hámarki helmingur
lána til nýbyggingar. Þetta lánshlut-
fall hefur aldrei verið lægra í sögu
Byggingarsjóðsins. — Höfuðvandi
Byggingarsjóðs ríkisins er sá að með
lögum frá 1980 var hann sviptur meg-
intekjustofni sínum, 2% iaunaskatti,
| en þessi pólitíska ákvörðun hefur
mjög þrengt lánagetu hans.
Húsnæðismálastjórn samþykkti í
júnímánuði sl. aö sleppa öllum
opinberum gjöldum í verðútreikn-
ingi staðalíbúða, sem lán eru miðuð
við, þ.e. gatnagerðargjaldi, skipu-
lagsgjaldi, byggingarleyfisgjaldi,
heimæðagjaldi, gjaldi vegna Hita-
veitu Reykjavíkur, heimæðagjaldi
Rafmagnsveitu, gjaldi vegna hol-
ræsa og neyzluvatns og iðgjaldi af
brunatryggingu. Lán úr hinu al-
menna húsnæðislánakerfi (Bygg-
ingarsjóði) vóru síðan ákveðin
19,4% af verði staðalíbúðar, þannig
útreiknuðu. Ef lánahlutfall þetta er
miðað við raunverð, þ.e. ef tekið er
tillit til hinna opinberru gjalda,
verður það aðeins 17,4% af staðal-
verði. Þetta lánahlutfall lækkar enn
í raun fyrir þá sök, að útborgun
láns er þrískipt, fyrsti hluti er
greiddur 3 mánuðum eftir að íbúð
verður fokheld, og síðan eru 6 mán-
uðir á milli útborgana. Miðað við
70% verðbólgu verður 19,4% láns-
hlutfall, þegar lán er ákveðið, að
13,3% raunkostnaðar og 17,4%
lánshlutfall að 12,1%, sem mun
vera lang lægsta lánshlutfall í sögu
Byggingarsjóðs ríkisins. Verðbólgu-
spá frá upphafi til loka árs 1983 er
70—75%, ef engar efnahagsráðstaf-
anir koma til.
Lánahlutfall var 28% 1955 og
nálægt 45% 1971.
Lán vegna fokheldra íbúða janú-
ar/marz 1983 munu hafa verið frá
kr. 211.000,- til kr. 363.000.-, eftir
fjölskyldustærð. Lán miðað við fjöl-
skyldustærð 2—4 var kr. 268.000.-
Er það miðað við húsnæði sem er að
stærð u.þ.b. 110 fermetrar eða 384
rúmmetrar.
Sjá kafla úr stefnuskrám flokk-
anna í húsnæðismálum á bls. 20.
Skagafjörður:
Selavöður sem
fjárhópar væru
B* á Höfðaströnd, 7. aprfl.
STÓRHRÍÐ geisar nú um útsveitir
Skagafjarðar og þykir okkur
páskahretið lengi að ganga yfir. í
útsveitum hefur aðeins einn og
einn dagur komið bjartur um
hálfsmánaðar tíma. Og hríðarbyljir
oft geisað.
Mjólkurbíll sem fer heim á
flesta bæi þarf að hafa keðjur á
öllum hjólum, og stundum er
honum ekki fært nema með
hjálp ýtu. Snjógöng eru mikil og
fyllast þau fljótt.
í framhéraði er ástandið betra
en þó mjög óstillt. Nýlega er
vitavörður á Málmey á Skaga-
firði, Kjartan Hallgrímsson, fór
í eyna sem nú er óbyggð, sá hann
selavöður eins og fjárhópar
væru. Náði hann níu selum og
missti nokkra í botninn, en selir
voru hvar sem litið var. Þeir,
sem stunda grásleppuveiði frá
Hofsósi ennþá á djúpi vatni, fá
mjög lítið, en seli fá þeir marga í
netin. Togarar koma með um 100
tonn hver af skrapfiski.— Björn
Ríkisstjórnin:
Kosningasnjómokst-
ur lyrir 10 millj. kr.
Á ríkisstjórnarfundi fyrr í þessari viku var samþykkt aö auka
snjómokstursheimildir fram yfir kosningar. Vegagerð ríkisins
er með þessu heimilað að fara að óskum fulltrúa stjórnmála-
flokkanna í hverju kjördæmi um sérstakan snjómokstur til
að greiða fyrir kosningafundahöldum og undirbúningi.
Miðað er við þau mörk að
snjómokstur verði í hæsta lagi
helmingi tíðari en er við
venjulegar aðstæður. Að sögn
fjármálaráðherra, Ragnars
Arnalds, er reiknað með að
verja hámark 10 milljónum
króna til kosningasnjó-
mokstursins.