Morgunblaðið - 17.05.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1983
15
Jazzvakning:
Lionel Hampton í
Háskólabíói 1. júní
Hinn heimskunni bandaríski
jazzleikari, Lionel Hampton, mun
koma hingað til lands og halda
tónleika í Háskólabíói hinn 1. júní
næstkomandi, að því er Jónatan
Garðarsson, einn forsvarsmanna
Jazzvakningar, tjáði blaðamanni
Morgunblaðsins í gær. Jónatan
sagði Hampton koma með 17
manna hljómsveit með sér, en hann
væri nú á hljómleikaferð um Evr-
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF
ópu, líklega þá síðustu sem hann
færi. Sagði Jónatan það aðeins vera
fyrir áhuga Hamptons á íslandi, og
velvilja umboðsmanns hans í Hol-
landi og einstakan velvilja Flug-
leiða hf., að mögulegt reyndist að
halda þessa tónleika nú.
Lionel Hampton er einn hinna
gömlu meistara jazztónlistarinn-
ar, og er oft nefndur í sömu andrá
og hinir miklu snillingar Louis
Armstrong, Duke Ellington,
Benny Goodman og Count Basie.
„Hampton er kominn á áttræðis-
aldur, heilsan tekin að bila og
hann ferðast um með hjúkrun-
arkonu, og hann er hættur að
gera samninga langt fram í tím-
ann,“ sagði Jónatan. „Þrátt fyrir
það eru tónleikar hans engu líkir,
hann leggur bókstaflega allt í söl-
urnar fyrir góðan konsert. Áður
fyrr kom það fyrir að hann lengdi
tveggja tíma hljómleika um 10
klukkustundir, og enn á hann það
til að framlengja þá um einn eða
tvo tíma, fái hann góðar undir-
tektir og líki honum við land og
þjóð þar sem hann leikur."
Trygging hf.
Viöskiptamenn Tryggingar hf. Laugavegi
178 athugið, að á tímabilinu frá 16. maí til
1. sept. nk. verður aðalskrifstofan Lauga-
vegi 178 opinfrá kl. 8:00-16:00.
Utan þess tíma er viðskiptamönnum bent
á upplýsingar í símaskránni á bls. 263.
Laugavegi 178, sími 21120.
”Gáfnaljósin”
Kertastjakar úr hreinum og tærum
kristal frá Kosta.
Stúdentagjöfín í ár
• . v.
"VjV t> ■
£»• ■ ■
^ "*~***..V,? Vj
*
Sendum í póstkröfu.
Bankastræti 10, sími 13122