Morgunblaðið - 17.05.1983, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.05.1983, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1983 Rætt um félagsaðstöðu unglinga í Seljahverfi Undanfarin misseri hefur farið fram umræða um félagslega aðstöðu fyrir unglinga í Seljahverfi í Reykja- vík. Æskulýðsráð Reykjavíkur, skólamenn, starfsmenn Útideildar og fleiri hafa reynt að finna framtíð- arlausn á þessu máli. Á sl. vetri náðist samkomulag samstarfsnefndar æskulýðsráðs og fræðsluráðs annars vegar og skólastjóra Seljaskóla hins vegar, um sameiginlega byggingu á fé- lagsaðstöðu fyrir Seljaskóla, sem nýtist bæði fyrir hefðbundið fé- lags- og tómstundastarf skólans, svo og sem félagsmiðstöð með áþekku formi og aðrar félags- miðstöðvar á vegum Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur. Þessari félags- aðstöðu er ætlað að þjóna öllu Seljahverfi fyrst um sinn. Samkvæmt lögum ber ríkisvald- inu að greiða hluta af byggingar- kostnaði fyrir félagsaðstöðu nem- enda á móti viðkomandi sveitarfé- lagi. Uppbygging á viðbótar- kennsluhúsnæði fyrir Seljaskóla hefur ekki fengið hljómgrunn hjá ríkisvaldinu og þar af leiðandi ekki heldur bygging á félagsað- stöðu fyrir skólann. Æskulýðsráð Reykjavíkur boð- ar til hverfafundar um æskulýðs- og tómstundamál með íbúum Seljahverfis miðvikudaginn 18. maí nk. kl. 20.00 í Ölduselsskóla. Á fundinum verða þessi mál til um- fjöllunar, bæði uppbygging félags- aðstöðu við Seljaskóla ásamt bráðabirgðatillögum í félags- og tómstundastarfi barna og ungl- inga í Seljahverfi næsta vetur. Dagskrá fundarins verður sem hér segir: Fundarsetning og ræða: Kol- beinn Pálsson, formaður Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur. Ræða: Bogi Árnar Finnbogason, talsmaður Foreldrasamtaka Seljaskóla. Ræða: Jes Einar Þorsteinsson, talsmaður Foreldrafélags Öldu- selsskóla. ómar Einarsson, fram- kvæmdastjóri Æskulýðsráðs Reykjavíkur, kynnir hugmyndir borgaryfirvalda um félagsaðstöðu í Seljahverfi. Ávarp fulltrúa nemendaráðs Ölduselsskóla. Ávarp fulltrúa nemendaráðs Seljaskóla. Ræða: Markús Örn Antonsson, borgarfulltrúi og formaður Fræðsluráðs Reykjavík- ur. Almennar umræður. Fundar- stjóri verður Áslaug Friðriksdótt- ir, skólastjóri, og fundarritari Þórunn Gestsdóttir, fulltrúi í Æskulýðsráði Reykjavíkur. Geðhjálp með fund um streitu GEÐHJÁLP, félag geðsjúkra, að- standenda þeirra og velunnara gengst fyrir mánaðarlegum fyrir- lestrum um geðheilbrigðismál og skyld efni. Fyrirlestrarnir eru haldn- ir á geðdeild Landspítalans í kennslustofu á III. hæð. Næsti fyrirlestur verður fimmtudaginn 19. maí 1983 kl. 20. Ingólfur Sveinsson, geðlæknir, tal- ar um streitu í daglegu lífi. Fyrir- lestrarnir eru bæði fyrir félags- menn svo og alla aðra, sem áhuga kynnu að hafa. Aðgangur er ókeypis. Fyrirspurnir og umræður verða eftir fyrirlestrana. Símaþjónusta AA-samtakanna AA-SAMTÖKIN hafa byrjað starf- rækslu símaþjónustu. Þangað geta þeir hringt, sem eiga við áfengis- vandamál að stríða og leitað ráða. Sömulciðis aðstandendur þeirra. Símanúmer þessarar þjónustu er 16373 og er símaþjónustan opin alla daga frá klukkan 17 til klukkan 20. Foringjanám- skeið skáta BANDALAG íslenzkra skáta gengst fyrir flokksforingjanámskeiði að Úlfljótsvatni dagana 26. maí til 1. júní næstkomandi. Námskeiðið er ætlað skátum 13 ára og eldri, en miðað er við 24 þátttakendur. Þess má geta að ákveðið hefur verið að fella niður vikuhaustnámskeið. Ölduselsskóli í Breiðholti. .TTnvrnKFTRS Gegnheilt (massíft) gólfparket. - Vönduö vara, þykkt: 22 mm. og 12 mm. Full lakkað og tilbúið til lagningar. Áratuga ending sannargæðin. Auðvelt í lagningu, auðvelt í þrifum. EGILL ÁRNASON H.F. HUSA5MIÐJAN HF. aIa Timburverzlunin Völundur hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.